Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991.
LXIÚGAR1)AGUR''24. ÁGÚST Í99L
35
Ólafur Jóhann Ólafsson hjá Sony í viðtali við DV:
„Ég sef vel á nætumar"
- New York Times segir spennu innan Sony um Ólaf og verk hans, Data Discman
Hið virta bandaríska fréttablað,
New York Times, hafði á dögunum
eftir heimildarmanni innan Sony að
vaxandi spennu gætti nú á milli
tveggja megindeilda Sony, tækja-
framleiðslunnar, „hardware", og út-
gáfustarfseminnar, „software". ís-
lenski rithöfundurinn og eðlisfræð-
ingurinn, hinn 29 ára Ólafur Jóhann
Ólafsson, er einmitt helsti yfirmaður
útgáfustarfsemi Sony og forstjóri
Sony Electronic Publishing, fyrir-
tækisins sem Japanarnir, eigendur
Sony, setja allt sitt traust á aö íleyti
Sony-samsteypunni með glæsibrag
inn í 21. öldina. New York Times seg-
ir að styrinn núna standi ekki síst
um Ólaf Jóhann og verk hans, Data
Discman, sem kemur á markaö í
Bandaríkjunum í haust og Sony veðj-
ar á í jólavertíðinni.
„Flugeldasýning" hjá
sumum innan Sony
mistakist Ólafi
Einn heimildarmanna New York
Times segir að ef umtalað stórverk-
efni Sony, Data Discman, falh á lé-
legu efni frá Ólafi og hans fólki verði
mikil „flugeldasýning og fagnaðar-
læti“ innan „hardware“hlutans,
tækjasviðs Sony. Að þar verði glatt
á hjalla.
Sá sem ritar greinina í New York
Times heitir Eben Shapiro og er sér-
fræðingur blaðsins um Sony. Hans
starf felst í litlu öðru en fylgjast með
fyrirtækinu og skrifa umþað. í grein-
inni ræðir hann við þá Ólaf Jóhann
Ólafsson og Mike Vitelli. yfirmann
tækjasviðs Sony, og neita þeir báðir
innbyrðis erjum um verkefnið og að
heitt sé í kolunum innan fyrirtækis-
ins um stefnu þess inn á upplýsinga-
og skemmtimarkaðinn en Ólafur Jó-
hann er einn helsti höfundur þeirrar
stefnu.
Discman sé ekki á tíma. Tækið kem-
ur á markað í október. Það er þegar
búið að semja um og ganga frá um
tuttugu til þrjátíu geisladiskum, með
alls kyns upplýsingum, fyrir tækið.
Þess vegna hef ég svarað gagnrýni
um tímaþröng og þrýsting svo að ég
sofl vel á næturnar."
Data Discman
er alvitur
- Lýstu fyrir lesendum DV út á hvað
tölvan, Data Discman, gengur:
„Data Discman gengur í stuttu
máli út á lestur bóka og uppflettirita
og heilsu og svo framvegis. Dæmið
gengur út á að með Discman og við-
komandi geisladiska er maður með
alfræðiorðabækur, sem og önnur
uppflettirit, á sér.“
Samkeppni Discman
yið Franklin og fleiri
í umfjöllun fjölmiðla vestanhafs
hefur komið fram að fyrirtækið
Frankhn Electronic Publishing
Company í New Jersey í Bandaríkj-
unum hafi framleitt tæki með upp-
lýsingadiskum. Þrátt fyrir ágæta
sölu hefur Franklin átt í vandræðum
er sannfærður um að salan muni
ganga vel. Data Discman hefur þegar
fengið mikla umfjöllun hér í Banda-
ríkjunum. Ef eitthvað er teljum við
að ekki verði hægt að anna eftir-
spum í jólasölunni."
Ólafur segir að þegar hann hafi
byrjað með Data Discman hafi hann
htið á þá tækni sem ákveðna grein í
útgáfustarfsemi. „Það þarf að velja
það sem gefið er út á réttan hátt. í
Japan hefur verið stílað upp á svo-
nefndan uppa-markað. Það vil ég
ekki gera í Bandaríkjunum. Ég sé
fyrir mér að skólafólk noti þessa"
tækni mikið. Enda verðum við með
gögn á diskum sem verða mjög hand-
A Tiny Computerfrcd Know-lt-AII
Sony Data Discman
To ba Introduced In
the Unlted States
laterthlsyear.
Prlce About $450.
Dlsks yvtll cost $30 to
$50.
Welght 24 ounces
Descrlptlon Plays
dlsks contalnlnfl
guides to wlne or
movles, and
reference works,
Includlng a dlctionary
or éncydopedla. It wlll
contaln no audio
featuree. though later
versione may Indude
them.
Sourot: Sony CoipoMton
The New York Time*
Þetta er tölvan Data Discman sem
Sony setur á markað i Bandaríkjun-
um i október og veldur spennunni í
kringum Ólaf Jóhann og hans fólk
innan Sony. Discman er í raun af-
spilunartæki fyrir örsmáa geisla-
diska sem á eru margvisleg upp-
flettirit og fræðsluefni, eins og al-
fræðiorðabókin Britannica. Stærð
tækisins er rétt eins og lófi. Verðið
verður i kringum 30 þúsund krónur.
Hugmyndafræðin á bak við Discman
er þessi: Hann er alvitur - og allir
hafa hann í hendi sér.
Making a Difference
Sony Is ^etting Big on Its Man From Iceland
ICELAND is not onc of thc world's
grcai consumcr efectronics mar-
kets Noneihcfcss. the SonyCorpo-
rauon has tappcd a 29-year-oldnativc
of lccland to spearhead its attempt to
siorm the $4.7 bilhon video gamc
business. President of Sony's E3ec-
tronic PubhshingCompany, which
was crealed just three momhs ago.
Olaf OLaffson now finds himself in the
middle ot Sony's battle wtih the Nin-
léndo Coropany over who will prof il
from Ihc ncxi generation of vidco
games
' The dtsputc betwccn Sony and Nin-
tendo erupted a weck ago. when Sony
announced ihal iv planned to enter thc
gamc markct wiih a machine called
the Play Station In eífcijt. Sony said il
would bc adding a compacl disk play-
er to Nintendo's new video game ma-
chíne, the Supcr NES. Sony said that
a contract it signcd with Ninlendo
Hmtij KMi Im TWí
Sony’s Olaf Qlaffson
Nintendo’s Super NES
Þrátt fyrir að styr sé í kringum Olaf Jóhann er hann engu að síður óumdeil-
anlega maðurinn sem Sony veðjar á að muni fleyta Sony-samsteypunni inn
í 21. öldina, eins og þessi blaðaúrklippa úr New York Times ber með sér,
„Sony veðjar á manninn frá ísiandi“.
Ég tek hag fyrir-
tækisins fram yfir
hag nokkurra manna
„Ég hef svarað þessum fréttum við
íjölmiðla vestra og endurtek það hér
að sjónarmið mitt er að þegar yfir-
stjóm fyrirtækis tekur ákvarðanir
þá eiga þær að vera góðar fyrir fyrir-
tækið í heild. Þess vegna skiptir það
mig miklu meir'a máli að ég taki
ákvarðanir sem eru góðar fyrir þá
tugi þúsunda starfsmanna, sem
vinna hjá okkur, fremur en ein-
hveija tvo eða þrjá. Ég tel að hagur
fyrirtækisins sem heildar sé meira
virði en hagur einstakra persóna sem
vinna hjá því,“ sagði Ólafur Jóhann
er DV náði tali af honum.
Þess má geta að í greininni í New
York Times neitar Ólafur Jóhann
ennfremur sögum um að hann og
hans fólk sé í mikilli tímaþröng með
verkefnið Data Discman, sem á að
vera tilbúið fyrir jólamarkaðinn, og
þess vegna sé hann undir miklum
þrýstingi.
Ég sef vel á næturnar
Um tímapressuna segir Ólafur Jó-
hann við DV: „Það er rangt að Data
af tölvu sem er litlu stærri en lófi.
Discman er afspilunartæki fyrir
örsmáa 8 sentímetra cd-diska, geisla-
diska, sem á eru upplýsingar úr
margvíslegum uppflettiritum. Á ein-
um diski, sem raunar mun fylgja með
í kaupunum á Data Discman, verður
alfræðiorðabókin Britannica. Á öðr-
um diskum verða orðabækur, vín-
handbækur, listi yfir allar bíómynd-
ir, sem hafa verið framleiddar, og
umsagnir um þær, uppflettirit um lyf
meö að ná fram hagnaði af verkinu.
Það gerir komu Data Discman á
markaðinn enn meira spennandi.
Munurinn á tækni Franklins og
Sony er sá að tækið frá Franklin er
einnota ef svo má segja. í hverju af-
spilunartæki er aðeins einn diskur
sem hægt er að spila. Það þarf því
að kaupa nýtt tæki í hvert sinn sem
keyptur er diskur meö nýjum upp-
•lýsingum. Ef keypt er orðabók frá
Franklin þarf aö kaupa tækið í leið-
inni, annaö tæki fyrir aðrar upplýs-
ingar og sýo koll af kolU. Tæki Sony
er margnota. Data Discman-tækið er
keypt og síðan er hægt að kaupa eft-
ir hendinni geisladiska með alls kon-
ar upplýsingum og spUa. Það þarf
ekki að kaupa nema eitt tæki í upp-
hafi.
Ég stíla alls ekki
á uppa-markaðinn
Þrátt fyrir að Sony sé að setja Data
Discman á markaö í Bandaríkjunum
í október hefur Sony haft Discman á
markaði í Japan í nokkur ár. „Þetta
hefur gengið mjög vel í Japan. Ég
studdi það mjög hjá Sony að þetta
yrði reynt á Bandaríkjamarkaði. Ég
hæg í skóla. Bam getur haft þetta á
borðinu hjá sér í stað þess að fara inn
á bókasáfn tU að leita þar að hinu
og þessu í alfræðiorðabókum. Það
skiptir bara um diska eftir efninu
sem leitað er aö. Auk þess tel ég að
tækið verði vinsælt hjá fólki í við-
skiptum, sem og öllum þorra al-
mennings sem ferðast mikiö. Á ein-
um diskinum verður mikið úrval af
ferðabókum. Þá tel ég að mörg fyrir-
tæki muni kaupa tækið fyrir starfs-
menn sína. Ég lít á þetta sem víðtæka
neytendavöru."
Er frekar á móti
könnunum um mark-
hópa
- Einhvers staðar hef ég séð í blaði
að líklegur kaupendahópur sé konur
á aldrinum 35 ára?
„Ég held ég viti hvemig sú saga er
tíl komin. Þegar við vorum að kynna
okkur markaðinn fyrir Data Disc-
man, sem er ekki ný tegund af vöm
heldur alveg nýtt svið, komust
nokkrar deUdir hér innanhúss að
þeirri niðurstöðu að kaupendahóp-
urinn, markhópurinn, væri 35 ára
gamaU karlmaður, hvítflibbi, sem
hefði svo og svo mikið í tekjur og
gerði hitt og þetta. Ég sagði að mitt
mat væri að þetta væri ekki alls kost-
ar rétt. Þetta væri miklu frekar tæki
sem lyti að menntun. Og þó erfitt sé
fyrir okkur karlmenn að viðurkenna
það er straðreyndin engu að síður
sú að það eru yfirleitt konur sem
kaupa fyrir börnin vörur sem lúta
að menntun, að minnsta kosti í
Bandaríkjunum. Ég sagði því að ég
héldi að það væri alveg jafnlíklegt,
ef ekki líklegra, að konur keyptu
þetta tæki. Eg er raunar frekar á
móti könnunum um markhópa. Þær
trufla menn oft. Þegar menn eru að
kynna nýja tækni hef ég alltaf þá
aöferð að ákveða ekki neitt fyrirfram
heldur láta neytandann ráða. Annars
loka menn sig af. Þaö borgar sig ekki
að fara með neina þröngsýni inn á
markað þegar menn eru með eitt-
hvað nýtt.“
Forystan
felst í nýtækni
Ólafur segir að Data Discman sé
eitt af mörgum dæmum um nýtækni
sem Sony ætli sér að koma með á
næstu árum og áratugum og grund-
vallast fyrst og fremst á útfgáfu upp-
lýsinga. Þá veðji Sony einnig á ný-
tækni, tengda bíómyndum, tónlist og
texta - samruna mynda og hljóðs á
nýjan hátt.
- Hvererhugmyndafræðinábakvið
þá stefnumörkun Sony að fara út í
skemmti- og afþreyingariðnaðinn á
næstu árum?
Fólkgeri meira
en horfa og hlusta
„Hugmyndin á bak við útgáfustarf-
semi okkar á skemmtiefni, sem bygg-
ist á bíómyndum, tónlist og samruna
mynda og hljóðs á nýjan hátt - með
nýrri tækni - felst í því að í stað þess
að fólk hlusti bara á tónlist og horfi
á kvikmyndir taki það líka beinan
þátt í leiknum. Þetta verður alls kyns
tækni og aðeins hluti af henni teng-
ist svonefndum tölvuleikjamarkaði.
Á næsta ári setjum við á markað
tæki þar sem menn geta gert sitt eig-
ið myndband við tónlist ýmissa lista-
manna af geisladiskum.
Vegna þessarar nýju tækni, sem
við stefnum á aö koma með á mark-
aðinn á næstu árum, þar sem hægt
verður að breyta bæði kvikmyndum
og tónlist eftir þörfum hvers og eins,
erum við núna að semja við fjöl-
margt fólk í skemmtiiönaöinum.“
- NústefnirSonyháttábæðiupplýs-
ingamarkaðnum og skemmtimark-
aðnum. Hvaða tengsl verða tækni-
lega þama á milli? Geta neytendur
til dæmis notað Data Discman-tækið
sitt þegar þeir framleiða sitt eigið
skemmtiefni?
Fólkvill
einfalda hluti
„Stefna okkar er að skilja að
skemmtimarkaðinn og upplýsinga-
og menntunarmarkaöinn og vera
ekki að reyna að búa til tæki sem er
allt saman. Það raglar fólk. Með Data
Discman og öðrum slíkum tækjum á
næstu árum stefnum við eingöngu
inn á upplýsinga- og fræöslumarkað-
inn. Þetta er alveg nýr markaður.
Síðan er það hinn markaðurinn fyrir
tónlist og myndir þar sem fólk er
sjálft þátttakendur. Á þeim markaði
verður einnig mikið af alls kyns nýj-
um tækjum á næstu árum og áratug-
um.“
Skemmtiefni Sony
aðeins spilað
á tækjum frá Sony
- Verður aðeins hægt að nota tæki
frá Sony til að spila þessa geisladiska
eða verður hægt að nota tæki frá til
dæmis Panasonic til að spila efni frá
Sony?
„Upphaflega verða það aðeins tæki
frá Sony sem hægt verður að nota
fyrir skemmti- og fræðsluefni frá
Sony.“
Columbia og
CBS Records
- Nú keypti Sony kvikmyndaverið
Colunjbia, ásamt miklu kvikmynda-
safni þess, fyrir nokkrum árum og
sömuleiðis CBS Records. Var þetta
gert í þeim tifgangi að tryggja sem
mest af efni fyrir skemmtimarkað
Sony?
„Það er ein ástæðan. Þegar verið
er að búa til kvikmyndir hjá Columb-
ia núna er séð til þess að hin ýmsu
fyrirtæki innan Sony taki þátt í því.
Til dæmis að tekin séu sérstök atriði
sem hægt verði að nota í öðru en
kvikmyndinni sjálfri. Það skiptir
mjög miklu máli. Hins vegar lítum
við fyrst og fremst á Columbia og
CBS Records sem sjáifstæðar fiár-
festingar sem verða að bera sig einar
sér. En við munum nota þessi fyrir-
tæki fram og til baka á öðrum svið-
um, tengdum rekstri Sony.“
Annað þekktasta
vörumerki í heimi
á eftir Coca-Cola
Til að lesendur DV átti sig betur á
hinni gífurlega öru þróun hjá Sony
á undanförnum árum er gott að
stikla á stóru um helstu breytingarn-
ar hjá fyrirtækinu.
Sony er japanskt stórfyrirtæki með
yfir hundrað þúsund manns í vinnu.
Það hefur mjög látið til sín taka á
Bandaríkjamarkaði. Sagt er að
Sony-vörumerkið sé annað þekkt-
asta vörumerki í heimi á eftir Coca-
Cola.
Starfsemi Sony hefur til þessa að
Olafur Jóhann Olafsson, hinn 29 ára rithöfundur og eðlisfræðingur, sem starfar sem forstjóri hjá Sony, er i eldlínunni þessa dagana. Blöð vestanhafs segja
að forráðamenn tækjadeildar Sony líti hann hornauga og verði með mikla „flugeldasýningu og fagnaðarlæti” ef honurn mistekst.
Mynd fengin hjá Sony
mestu verið fólgin í framleiðslu á
tækjum eins og sjónvarpstækjum og
hljómflutningstækjum. Nú er þessi
fyrrum aðalstarfsemi Sony orðin
önnur af aðaldeildum fyrirtækisins,
tækjadeild. Hin aðaldeildin er út-
gáfustarfsemi á fræðslu- og upplýs-
ingaefni, svo og skemmtiefni.
Sonyer
breyttfyrirtæki
Breytingamar á fyrirtækinu eiga
rætur að rekja til stefnumörkunar
Sony-fyrirtældsins fyrir nokkrum
árum er ákveðið var að framtíðin
gæti ekki legið í því að framleiða
aðeins tæki heldur yrði fyrirtækið
líka að geta boðið upp á sjálft efnið
sem yrði spilað á tækjunum frá Sony.
Sony er þvi núna hvort tveggja í senn
verksmiöja og útgáfufyrirtæki. Ólaf-
ur Jóhann og Schulhof, aöaiforstjóri
, unnu meðal annarra að þess-
ari stefnumörkun.
Sony stofnaði í apríl síðastliðnum
sérstakt fyrirtæki, Sony Electronic
Pubhshing, sem Olafur er forstjori
fyrir, til að gefa út allt fræðslu- og
skemmtiefni. Sony veðjar á þetta út-
gáfufyrirtæki sitt. Menn telja að þar
fari byltingin fram.
Discman og Fyrir-
gefning syndanna
Eben Shapiro, áðurnefndur blaða-
maður New York Times, sem er sér-
hæföur í fréttum um Sony-fyrirtæk-
ið, telur aö Sony tefli djarft á næstu
árum með nýrri tækni og reiði sig í
því sambandi á íslendinginn hjá
Sony. Hinn 9. júni síðastliðinn birti
Eben grein undir fyrirsögninni
„Sony is betting big on its man from
Iceland", eða Sony veðjar á manninn
frá íslandi.
Eben Shapiro gat þess hins vegar
ekki að maðurinn frá íslandi verður
bæði á jólabókamarkaðnum í Banda-
ríkjunum og íslandi - með Data Disc- ;
man úti og Fyrirgefningu syndanna,
nýja íslenska skáldsögu, hér heima.
-JGH