Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1991, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1991, Side 26
MIÐVIKl'DAGUK 4. SERTEMBER 19ftL, 5Q, Afmæli Númi Þorbergsson Númi Þorbergsson, textahöfundur, dansstjóri og verslunarmaður, Blönduhlíð 3, Reykjavík, er áttræð- ur í dag. Starfsferill Númi fæddist í Grafarholti í Staf- holtstungum í Borgarfirði en ólst upp hjá ömmu sinni í Tandraseli í Borgarhreppi til tíu ára aldurs. Þá fór hann í vinnumennsku og var á ýmsum bæjum í Stafholtstungun- um. Hann var vinnumaður i Stapa- seli í Stafholtstungum 1925-28, i Litla-Skarði í sömu sveit 1928-29 og verkamaður á Álafossi í Mosfells- sveit 1929-37. Númi kom til Reykjavíkur 1937 og hefur átt þar heima síðan. Fyrstu árin í Reykjavík starfaði hann við húsbyggingar en vann síðan við vik- urverksmiðju Jóns Loftssonar í sautján ár þar sem hann var verk- stjóri lengst af. Þá stundaði Númi verslunarstörf í fjölda ára, fyrst hjá Bílanausti en síðan hjá Saab- umboðinu eða þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir 1981. Númi er löngu landskunnur texta- höfundur en hann hefur gert texta við ýmis þekktustu dægurlög sjötta og sjöunda áratugarins, þ.á m. nokkur verðlaunalög dægurlaga- keppni SGT. Meðal sígildra dægur- laga sem Númi hefur samið texta við má nefna lögin Nú liggur vel á mér, Landleguvalsinn og Sigurður sjómaður. Þá er Númi mikill áhugamaður um dans en hann var lengi dans- stjóri, m.a. í Mjólkurstöðinni, Breið- firöingabúð og í Þórskaffi. Hann hefur starfað í Átthagafélagi Borg- firðinga í mörg ár og sat í stjórn félagsins um skeið. Fjölskylda Númikvæntist 26.11.1938fyrri konu sinni, Mörtu Maríu Þorbjarn- ardóttur, f. 16.3.1914, húsmóður en foreldrar hennar voru Þorbjörn Guðmundsson og kona hans, Guðr- íður Jónsdóttir frá Skiphyl í Hraun- hreppi. Númi og Marta María skildu. Börn Núma og Mörtu Maríu eru Þórdís, f. 22.10.1939, húsmóðir, var fyrst gift Finnboga Guðmundssyni, verkamanni í Reykjavík en síðan Jóni R. Sigurðssyni, vélvirkja á Akureyri; Björn Sævar, f. 26.11. 1942, múrarameistari í Garðabæ, kvæntur Þórunni Ingólfsdóttur hús- móður; Guðrún Guðríður, f. 10.10. 1944, húsmóðir, gift Hlöðveri Hall- grímssyni, sjómanni í Keflavík; Haf- steinn Oskar, f. 26.7.1946, múrari í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Stein- þóru Magnúsdóttur húsmóður; Sig- ríður, f. 31.1.1948, húsfreyja, gift Erni Einarssyni, b. í Miðgarði í Staf- holtstungum; Inga, f. 5.9.1949, hús- móðir, gift Guömundi Helgasyni, bifreiðastjóra í Reykjavík; Þorbjörn, f. 25.7.1951, rennismiöur í Vest- mannaeyjum, kvæntur Sæfinnu Ástu Sigurgeirsdóttur. Seinni kona Núma var Valgeröur Sigtryggsdóttir, f. 8.7.1926, d. 5.10. 1977, húsmóðir en hún var dóttir Sigtryggs Helgasonar, og konu hans, Guðbjargar Friðriksdóttur frá Kumblavík á Langanesi. Foreldrar Núma voru Þorbergur Guðmundsson, vinnumaður í Tandraseli í Borgarhreppi, oglngir- íður Guðjónsdóttir. Ætt Þorbergur var sonur Guðmundar, b. á Litlafjalli í Borgarhreppi, Guð- mundssonar, b. í Múlakoti í Staf- holtstungum, Ásbjörnssonar, b. í Melhúsum og ættföður Melhúsaætt- arinnar, Erlendssonar, b. í Skipa- nesi, Narfasonar. Móðir Ásbjöms var Þuríður Sveinsdóttir. Móðir Guðmundar í Múlakoti var Sigríður JÓnsdóttir, b. í Teigakoti, Jónsson- ar, og Guðrúnar Magnúsdóttur. Móðir Guðmundar á Litlafjalli var Sigríður Guðmundsdóttir. Móðir Þorbergs var Sigríður Stef- ánsdóttir, b. á Litlafjalli, Þorkels- sonar, og Steinvarar Þorbergsdótt- ur. Ingiríður var dóttir Guðjóns á Uppsölum í Norðurárdal og víðar, Jónssonar, b. í Múlakoti í Lundar- reykjadal, Sigurðssonar og Guðríð- ar Jónsdóttur, b. í Höll í Þverárhlíð, og konu hans, Halldóru Auðuns- Númi Þorbergsson. dóttur, systur Björns, sýslumanns í Hvammi og ættfóður Blöndalsætt- arinnar. Móðir Ingiríðar var Kristín Magnúsdóttir, b. á Litlakroppi í Flókadal, Magnússonar og Ingiríðar Finnsdóttur. Númi verður að heiman á afmæl- isdaginn. Til hamingju með afmælið 4. september 85ára feiiíi Jónsdóttii'j DtHHðe. Reyhjávfk. ÖUéFöHB:GUðHadðttÍU Shdrtúbfaut að. iteyk.iavik. 80ára Hulda Sigmundsdóttir, Goðalandi 16, Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir, Víðivöllum 6, Akureyri. GisliG. Jónasson, Hvassaleiti58, Reykjavík. 75ára Guðrún Steinsdóttir, Reynistað, Staöarhreppi. 70ára Sigurður O. Helgason, Álfhólsvegi 98, Kópavogi. Vilhelm Friðriksson, Hvanneyrarbraut 26, Siglufirði. Tryggvi Sveinbjörnsson, HáálfeitiábfMtit24i Reykjavik. Soffia Lárusdóttir, Skálholtsbraut 15, Þorlákshöfn. Margrét Ásgeirsdóttir, Lækjarvegi 5, Þórshöfh. Bryndís Zophoniasdóttir, Mánabakka á Bergi, Keflavík. Sonja Emma Kristinsson, Sólvöllum 1, Akureyri. Guðbjörn Ragnarsson, Faxabraut 77, Keflavík. óskar H. Guðmundsson, Flyðrugranda 14, Reykjavík. 50ára Rann veig Jónsdóttir, Sólheimum 23, Reykjavík. Hufdís Daníelsdóttir, Esjubraut 26, Akranesi. EyjólfurHalldórsson, ’Harhárgötu lOc, Reykjavík. Ridfiii kjaftahsson. Miðvabgi 57. Hafimrfirði. Stfefán Jónasson; Rffekkii/l'uhgUHreþþl. 40 ára Stefania Guðbergsdóttir, Máshólum 7, Reykjavík. Helga Hjördís Sveinsdóttir, Lerkihlíö 5, Reykjavík. Marsibil Sigurðardóttir, Einigrund 14, Akranesi. Einar Gunnarsson, Hjalteyrargötu 1, Akureyri. Sigríður Birna Hólmsteinsdóttir, Fífuseli 7, Reykjavík. Marý A. Marinósdóttir Marý A. Marinósdóttir, Arnar- hrauni 29, Hafnarfirði, er sextug í dag. Starfsferill Marý fæddist á Húsavík og ólst báf Uþþ Ög f fiöf gáfflfeáí; Að gágti- fræðánáml loknu stuinlaði húfl fláffl viö Húsmaíöfáskóiatiii áð Várina láfldi f fiöfgáftiföi. Fjölskylda Marý giftist 17.6.1950 Birgi Guð- mundssyni, f. 22.1.1929, verkstjóra á vörulager hjá Aðalverktökum, en hann er sonur Guðmundar Skarp- héöinssonar skólastjóra og Ebbu Flóvents húsmóður. Börn Marýjar og Birgis eru: Alma, f. 2.3.1951, hjúkrunarfræðingur, gift Steingrími Haraldssyni vélstjóra og eiga þaútvö börn, Marý Björk, sem er sautján ára, og Þyrí Höllu sem er fimmtán ára; Marinó Flóvent, f. 4.11.1958, bakari, kvæntur Jóhönnu Ingimundardóttur húsmóður og eigaþau þrjú börn, Vilhjálm, tíu ára, Ingimar Flóvent, tveggja ára, og Marinó Flóvent, eins árs; Birgir Már, f. 10.1.1963, öryrki. Marý átti fjórar systur: Unnur, f. Marý A. Marinósdóttir. 1.8.1923, bankastarfsmaður; Hanna, f. 31.5.1925, d. 26.3.1984; Erna, f. 12.3.1933, fulltrúi hjá Pósti og síma; Halldóra, f. 29.7.1938, afgreiðslu- stúlka. Foreldrar Marýjar voru Marinó Sigurðsson, f. 17.12.1900, d. 29.6. 1972, bakarameistari, og Guðrún Jónsdóttir, f. 15.9.1900, f. 8.7.1971, húsmóðir Mary tekur á móti gestum á heim- ili dóttur sinnar, Fífumýri 12, Garðabæ, laugardaginn 7.9. n.k. klukkan 17.OO-2O.0O. Sviðsljós Nýr maður í lífi Juliu Roberts Leikkonan Julia Roberts, sem er þekktust fyrir leik sinn í myndinni Pretty Woman, hefur undanfarið sést í rpjög nánu sambandi með einkaþjálfara sínum. Eins og flest- um er í fersku minni skildi Julia nýlega við unnusta sinn, Kiefer Sutherland, nokkru áður en þau ætluðu að ganga upp að altarinu og tók saman við vin hans, Jason Patric. Þrátt fyrir að Julia sé enn með Jason hefur hún sést, hvað eftir annað, kyssa og faðma hinn mynd- arlega einkaþjálfara sinn, Dennis Smith. „Enginn veit raunverulega hve samband þeirra er náið en miðað viö það sem sést hefur til þeirra þá er samband þeirra mun nánara en venja er um þjálfara og nemanda hans,“ sagði einn kunningi hennar. Julia réð Dennis sem einkaþjálfara sinn 8. júlf síðastliðinn en þau Julia faðmar Dennis, þjálfara sinn, innilega. kynntust 1990 þegar hún var að leika í myndinni Dying Young. Síð- an hefur hún hitt hann á hverjum morgni klukkan átta í líkamsrækt- arstöð sem heitir Powerhouse Gym í Los Angeles á meðan Jason sefur heima í rúmi. „Dennis kyssir hana og er að hvísla ástarorðum í eyra hennar og þegar þau gera hlé á æfingunum haga þau sér eins og ástfangið par,“ sagði einn þjálfarinn á staðnum. „Hann er svo vöðvastæltur að Jason, núverandi unnusti hennar og Kiefer, fyrrverandi unnusti, líta út eins og veimiltítur við hliðina á honum," sagði einn vinur hennar. „En ef Jason vissi um þetta sam- band yrði hann líklega æfur.“ En Julia svaraði aðeins; „Mér er alveg sama hvað fólk segir, ég veit ekki hvað þetta samband mun stand lengi og ég vil aðeins skemmta mér á meðan ég get.“ Julia og Dennis ræðast við fyrir utan líkamsræktarstöðina eftir tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.