Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1991, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1991, Side 28
52 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1991. Meiming Góður fagottleikur Björn Th. Árnason fagottleikari og Hrefna U. Eg- gertsdóttir píanóleikari héldu tónleika í Listasafni Sig- urjóns í gærkvöldi. Á efnisskránni voru verk eftir Gabriel Pierne, Francois Devienne, Helmut Neumann, Louis Spohr og Alexandre Tansman. Þessir höfundar eru ekki meöal þeirra sem oft hey- rast á tónleikum en ekki er þar með sagt aö þeir standi ekki fyrir sínu því að verkin sem flutt voru á tónleik- unum voru flest ágætlega gerö. Minnir þaö á hve strangt val sögunnar er. Aðeins verk örfárra þeirra ágætustu ná langlífi, önnur verða gleymskunni aö bráö. Prelude de Concert eftir Pierné er vel gert verk í rómantískum anda og rennur þægilega í gegn án þess aö skilja nokkuö sérstakt eftir sig. Svipað má segja um Sónötu Deviennes í g moll. Hún er í klassískum stíl sem ljóst er að höfundur hefur haft fullkomið vald á þótt ekki hafi hann persónuleika á við menn eins og Haydn og Mozart. Drei Stucke eftir Neumann eru tileinkuð Birni Árnasyni og var þetta frumflutningur á íslandi. Verkið er í léttum dúr og hefur yfirbragð sirkustónlistar þótt með alvarlegu ívafi sé. Adagio eft- ir Spohr er fallega skrifað verk í hugljúfum anda. Sónatína Tansmans er á hinn bóginn tilþrifasöm og töluvert í hana lagt. Stíllinn er í meginatriðum ný- klassískur þótt þar kenni ýmissa grasa. Nokkurs óstyrks gætti í leik þeirra Björns og Hrefnu framan af en það hvarf er á leið og óx þeim sífellt ásmegin við hvert verkefni og voru þau síðuslu leikin Tónlist Finnur Torfi Stefánsson með töluverðum tilþrifum. Björn hefur sérlega falleg- an tón og var leikur hans oft mjög blæbrigöaríkur og þegar best lét þrunginn tilfinningu eins og t.d. í hægu þáttunum í Devienne og Spohr. í Tansman sýndi hann tæknilega fimi og kraft sem hreif áheyrendur með. Píanóleikur Hrefnu var yfirleitt ágætur, nokkuð óná- kvæmur í hljóðfalh framan af en það lagaðist er á leið. Eiríkur Þorvaldsson frá Völlum, Þistilfirði, lést á dvalarheimilinu Hlíð 30. ágúst sl. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju fóstudaginn 6. sept- ember kl. 13.30. Valur Kristinh Jónsson, framreiðslu- maður, Ásvallagötu 61, verður jarð- sunginn frá Bústaöakirkju fimmtu- daginn 5. september kl. 13.30. Safnaðarstarf Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Neskirkja: Bænamessakl. 18.20. Sr. Guö- mundur Óskar Ólafsson. Tilkyimingar Félagsstarf aldraðra, Gerðubergi Vegna vinnu viö húsnæði breytist'dag- skrá tímabundið. Fimmtudaginn 5. sept.: hádegishressing og spiiamennska, kaffi kl. 15. Föstudagur 6. sept.: Fyrir hádegi - fótsnyrting og hárgreiösla, kl. 12 hádegis- hressing, spilamennska, kaííi kl. 15. Nán- ari upplýsingar í síma 79020. Suður-amerísk sveifla á Púlsinum Franski bandeoneónleikarinn Olivier Manoúray heldur tónleika á Púlsinum við Vitastíg í kvöld, 4. septémber. Hann hefur margsinnis leikið áður hér á landi og þá ekki síst tangó, enda hljóðfæri hans, bandeoneón, lykilhljóðfærið í argentísk- um tangó. Aö þessu sinni verða það þó bóleró og samba sem hæst ber á efnis- skránni, auk ýmissa stefja úr latíndjassi, eftir Dizzy Gillespie og fleiri. Þeir sem spila hina suður-amerísku tónlist með Olivier Manouray eru píanóleikarinn Kjartan Valdimarsson, kontrabassaleik- arinn Tómas R. Einarsson og trommu- leikarinn Einar Valur Scheving. Tónleik- arnir hefjast kl. 22. Tónleikar Árlegur konsert Harðar Torfasonar Samningar hafa tekist á milli Harðar Torfa og Borgarleikhússins um konsert- hald. Hér eftir mun Hörður halda sinn árlega konsert fyrsta fóstudagskvöld í september í stóra sal Borgarleikhússins og verður sá fyrsti fóstudaginn 6. sept- ember kl. 21. Fyrrihluta konsertsins verður Hörður einn á sviði og flytur göm- ul og ný lög og ljóð en eftir hlé mun hann fá til sín tvo gítarleikara. Þar er fyrstan að nefna hinn velkunna Tregahljóm- sveitarmann Guðmund Pétursson og einnig mun Haraldur Reynisson slá strengi og radda með Herði. Lýsingu ann- ast Lárus Bjömsson og hljóðmaöur verð- ur Baldur Már Amgrímsson. Þess má geta að Hörður og félagar hans munu flytja nokkur lög af væntanlegum geisla- diski og snældu sem áætlað er að komi út í haust. Ástæða er til að benda fólki á að konsertinn verður ekki endurtekinn. Miðasala er í Borgarleikhúsinu. Miöa- pantanir í síma 680680. AncUát Helga Sigurðardóttir, fyrrv. póst- varðstjóri, Seyðisfirði, lést í Land- spítalanum 2. september. Magnús ísleifsson skipstjóri frá Nýja húsi, Vestmannaeyjum, búsettur á Kirkjuvegi 11, Keflavík, andaðist í sjúkrahúsinu í Keflavík 3. septemb- er. Petrína Kristín Jakobsson, Fossöldu 5, Hellu, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi þann 2. september sl. Ragnhild Blöndal, Charlottenlund, Danmörku, er látin. Sigrún Aðalheiður Kærnested, Háa- leitisbraut 23, lést í Landspítalanum að kvöldi 1. september. Sólborg Gunnarsdóttir frá Reyðar- firði, til heimilis á Einarsnesi 29, Reykjavík, andaðist í Landspítalan- um 2. september. Jarðarfarir Hjónaband Au ðbrekku 14,sími64-21 -41 Ágústa Jónsdóttir áður Hagamel 19, sem lést 27. ágúst sl., verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 5. september kl. 13.30. Tryggvi Guðjónsson, Hjarðarholti 10, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 6. sept- ember kl. 14. Þann 20. júli voru gefin saman í hjóna- band í Garðakirkju af séra Braga Frið- rikssyni Hildur Ólafsdóttir og Andri H. Sigurjónsson. Heimili þeirra er í Noregi. Ljósmyndari Jóhannes Long. Pétur Teitsson frá Bergsstöðum á Vatnsnesi lést 24. ágúst. Hann var fæddur í Skarði í Vatnsnesi 31. mars 1895, sonur hjónanna Ingibjargar Teitsdóttur og Teits Halldórssonar. Eftirlifandi eiginkona hans er Vil- borg Árnadóttir. Þau hjónin eignuð- ust þrjú börn. Einnig ól Pétur upp 5 börn Vilborgar frá fyrra hjónabandi. Útför Péturs verður gerð frá Hvammstangakirkju í dag kl. 14. Þann 20. júlí voru gefin saman i hjóna- band í Bessastaðakirkju af séra Bjarna Þór Bjamasyni Berglind Gylfadóttir og Helgi Eiríksson. Þau eru til heimilis að Strandgötu 79, Hafnarfirði. Mynd Hafnarfirði. Þann 20. júlí voru gefin saman í hjóna- band í kirkju Óháða safnaðarins af séra Þórsteini Ragnarssyni Svanhildur Kristjánsdóttir og Ólafur Ari Jónsson. Þau eru til heimilis aö Skipholti 28. Mynd Hafnarfirði. Myndgáta ■VWr "■'X? ©/20 X Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Lausn gátu nr. 119: Barsmíðar Landsliðsmennirnir Ólafur Kristjánsson, FH, Arnar Grétarsson og Valur Valsson, Breiðabliki, Einar Páll Tómasson, Val, og Atli Eðvaldsson, KR, virtust hlakka til að taka á móti Dönum á morgun. DV-mynd Hanna Andinn í góðu lagi Undirbúningur fyrir landsleiki er ekki eingöngu bundinn viö æfingar á knattspyrnuvöllum. Ekki er síður mikilvægt að rækta samheldni og samhug leikmanna. Því hefur það verið siður hjá landsliðsmönnum ís- lands í knattspyrnu að hittast í Keilu- salnum í Öskjuhlíð til að þeyta kúl- um af annarri gerð, annaðhvort í knattborðsleik eða keilu daginn fyrir leik. Það var greinilegt að andinn var í góðu lagi hjá landsliðsmönnunum þegar ljósmyndari DV lagöi leiö sína í Öskjuhlíðina í gær. Námskeið Námskeið um fjöruna og lífríki hennar í nágrenni höfuðborgarinnar er aö finna afar fjölbreyttar fjörur. Útfiri er mikið þegar vel stendur á sjávarföllum en breytileiki fjaranna markast af staðhátt- um, t.d. hvort þær eru opnar fyrir brimi eða ekki. Dagana 7. og 8. september mun Hið íslenska náttúrufræðifélag gangast fyrir stuttu námskeiði til kynningar á lifi og lífsskilyrðum í mismunandi fjörum. Aðalleiðbeinandi á námskeiðinu verður prófessor Agnar Ingólfsson, en hann hef- ur fengist viö víðtækar rannsóknir á fjör- um um allt land. Námskeiðið stendur frá kl. 9-15 á laugardag og sunnudag. Þátt- takendum skal bent á aö vera vel búnir til fótanna, helst í stígvélum. Gagnlegt er að hafa meðferðis bæklinginn Fjöru- líf, sem Ferðafélag íslands hefur gefið út og fæst hjá öllum bóksölum. Fyrirlestr- arnir verða haldnir í stofu G-6 í húsi Líf- fræöiskorar Háskólans að Grensásvegi 12 í Reykjavík. Athygh skai vakin á því að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Þeir sem hafa áhuga á námskeiðinu geta skráö sig með því að hringja á skrifstoíu HÍN, sími 624757. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9-12. Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir hvorn dag. Námskeið í orgelleik Dagana 5.-7. september verður haldið námskeið í Háteigskirkju sem nefnist „Wolfgang Amadeus Mozart og orgelstíli hans tíma“. Námskeiðið felur í sér tvo fyrirlestra, tvenna orgeltónleika og kennslu í orgelleik. Organistar, fyrirles- arar og leiðbeinendur verða þau Dr. Kar- en De Pastel og Dr. Orthulf Prunner. Öllum er heimilt að hlusta á tónleikana og fyrirlestrana. Námskeiðið hefst fimmtudagskvöldiö 5. sept. kl. 20.30 á fyr- irlestrinum „Sónötuformið hjá W.A. Mozart" (Dr. Karen De Pastel). Föstudag- inn 6. sept. kl. 20.30 orgeltónleikar (Ort- hulf Prunner) „W.A. Mozart og Vínar- klassískur orgelstíll“. Laugardaginn 7. sept. Kl. 11 fyrirlestur (Orthulf Prunner) „Um orgelverk W.A. Mozarts og Vínar- klassískan orgelstíl." Kl. 20.30 orgeltón- leikar (Karen De Patel) „W.A. Mozart og samtíðarmenn hans í fimm löndum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.