Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1991, Qupperneq 32
L_J
F R E T
S
OTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991.
Fjóriríhaldi
vegnaskartgripa-
þjófnaðarins
Sjö handteknir:
Spörkuðuog
kýldutvolög-
reglumenn
Dropinn dýrari
Áfengi og bjór hækkar aö meðal-
tali um 4,14% frá og meö deginum í
dag og tóbak að meöaltali um 4%.
Verslanirnar ÁTVR aö Li'ndargötu
46, á Sauðárkróki, Sigluflröi, í Vest-
mannaeyjum og á Seyöisfiröi verða
því lokaðar í dag en aðrar verslanir
veröa opnar. -ingo
LOKI
Geta Jónarnir ekki leyst málið
með þvíaðskattleggja
Jóhönnur sérstaklega?
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
fjóra menn í haldi grunaöa um aðild
að skartgripaþjófnaðinum í verslun
Jóns Sigmundssonar á Laugavegi 5
fyrir helgi. Þrír mannanna hafa veriö
úrskurðaöir í gæsluvarðhald til 9.,
11. og 18. september vegna málsins.
Búist er við að RLR leggi í dag fram
kröfu um gæsluvarðhald yfir fjórða
manninum sem var handtekinn í
gærkvöldi. Fjórmenningarnir eru á
milli tvítugs og þrítugs.
Að sögn Jóns Snorrasonar, deildar-
stjóra hjá RLR, hefur rannsóknarlög-
reglan komist yflr hluta af þeim
skartgripum sem stolið var í innbrot-
inu við Laugaveg. Þjófnaðurinn úr
versluninni er með þeim stærstu á
síðari árum. Útsöluverð skartgrip-
anna er talið vera tæpar 4 milljónir
króna. -ÓTT
Alls hafa sjö menn verið handtekn-
ir vegna árásar á tvo lögreglumenn
þegar þeir voru að leiða tvo menn
sem handteknir voru á pósthúsinu i
Pósthússtræti í gærmorgun þegar
þeir voru að ná í hasssendingu sem
í voru um 270 grömm. Allir tengjast
þessir menn eiturlyfjasmyglinu en
fleiri eru grunaðir.
Lögreglunni hafði borist vitneskja
um eiturlyfm á pósthúsinu og setti
hún leir í staðinn og lét sendinguna
ganga sína leið. Þegar komið var að
ná í pakkann var lögreglan látin vita.
Tveir óeinkennisklæddir lögreglu-
menn af miöbæjarstöð komu og
handtóku mennina. Þegar þeir voru
á leið yfir á lögreglustöðina réðust
að þeim fjórir menn, kýldu og spörk-
uðu í lögreglumennina og náðu
pakkanum. Mennirnir sluppu allir
'T nema einn.
Að sögn fíkniefnalögreglunnar
voru bæði vitni aö árásinni og svo
grunaði lögregluna hverja um var
að ræða og verið var að sækja menn-
ina í gærkvöldi. Mennirnir eru allir
um og yfir tvítugt og hafa nokkrir
þeirra komið við sögu flkniefnalög-
reglunnar áður. -ns
/ /T » l * /
Skólagjöld og sjúkra
skattur eru enn i
“ segir Jóhanna Sigurðardóttir
Skólagjöld og sjúkraskattur, svo-
nefnt innlagningargjald á sjúkra-
hús, voru hvað mest tii umræðu á
ríkissijórnarfundinum í nótt.
Niðurstaðan á fundinum var sú
að ekki hefur verið fallið endanlega
írá hugmyndum um þessa tekjuliði
heldur var i nótt rætt um breytingu
á þeim, breytt form. Það eru ein-
mitt þær breytingar sem valda því
að ræða þarf málin aftur í þing-
flokkum beggja flokka.
Eftir þvi sem DV kemst næst um
fundinn eru báðir flokkar mjög að
nálgast hvor annan um leiðir varð-
andi tekjuhlið flárlagafrumvarps-
Samkvæmt uppiýsingum DV hef-
ur verið horfið frá sjúkraskattinum
í þeirri mynd sem hann var settur
upp. Hann hefur tekið breytingum
en er engu að siður til umræðu.
Endanlega hefur ekki verið fallið
frá honum.
Á ríkisstjórnarfundinum í nótt
var einnig rætt um hallann á fjár-
lögum. Ríkisstjómin heldur sig enn
við 4 milljarða króna markmiðið
og mun á fundinum í nótt hafa ver-
ið rætt um halla upp á um 3,5 millj-
arða króna.
Rikísstjórnarfundurinn í nótt
snerist fyrst og fremst um tekjuhlið
fjárlaganna en ekki niðurskurð á
gjaldahliðinni.
Fulltrúar flármálaráðuneytísins
komu á fund ríkissfiórnarinnar og
lögðu fram miklar upplýsingar um
virðisaukaskattinn. Ekki kom hins
vegar til umræðu að breyta skatta-
lögunum. Viðfangsefnið i nótt var
því ekki að hækka virðisaukaskatt-
inn eða breikka hann með einu eða
öðru móti.
Jóhanna tók ekki þátt
i afgreiðslunni
„Eg tók ekki þátt í þeirri af-
greiðslu sem fram fór um máliö.
Ég er ósátt við hana og tók því ekki
þátt í henni. Ég er óbundin af þeim
ákvörðunum sem teknar voru í
nótt,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra er DV ræddi
við hana í morgun um afgreiðslu
annarra ráðherra ríkisstjórnarinn-
ar á útgjalda- og tekjuramma flár-
laganna á ríkisstjórnarfundinum í
nótt.
Jóhanna kvaðst ekki vilja tjá sig
um hvaða mál það væru sem hún
hefði verið ósammála við ífl-
greiðslu flárlagafrumvarpsins. „Ég
verð að ræða við mitt fólk, sem ég
hef ekki haft tækifæri til, áður en
ég fer að tjá mig frekar um máliö.“
-JSS/JGH
íslendingur í Uganda:
Skotinn til
bana af
rænmgjum
Slökkvilið Reykjavíkur hefur tvisvar þurft að fara að Armúla 42 á síðasta sólarhring vegna elds í blikksmiðjunni
Glófaxa. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út síðdegis í gær en klukkan fimm í nótt blossaði reykur og eldur upp
öðru sinni í blikksmiðjunni. Á myndinni eru slökkviliðsmenn að rjúfa þak verkstæðishússins. Sjá nánar bis. 2
DV-mynd S
47 ára íslendingur lést á sjúkrahúsi
í Uganda eftir að hafa orðið fyrir
skotárás á götu í Kampala síðdegis á
mánudag. Maðurinn var á ferð með
eiginkonu sinni og syni á unghngs-
aldri þegar tveir menn veittust að
honum og ætluðu að ræna hanh.
Maðurinn veitti viðnám og tókst að
afstýra því að hann yrði rændur. Dró
annar árásarmannanna þá upp
byssu og skaut íslendinginn. Við svo
búið lögðu ódæðismennirnir á flótta.
Farið var með manninn á sjúkra-
hús í Kampala. Þar lést hann
skömmu síðar. Um kvöldmatarleytið
í gærkvöldi hafði lögregla ekki náð
að handtaka ódæðismennina.
Hjónin voru nýlega flutt til Uganda
frá íslandi og vann maðurinn að
verkefnum fyrir dönsku þróunar-
samvinnustofnunina. Maðurinn læt-
ur eftir sig flögur börn. Tvö þeirra
voru með hjónunum í Uganda. Ekkj-
an og börnin dvelja nú í danska
sendiráðinu í Kampala. Utanríkis-
ráðuneytið hefur hlutast til um að
þau fái alla þá aðstoð sem á þarf að
halda. -ÓTT
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
um allt
land
Á morgun verður hæð í grennd
við landið og má því búast við
hægviöri og mjög hægri norð-
vestanátt. Þokuloft verður víða
við strendur landsins en léttskýj-
aö í innsveitum. Hlýnandi veður
verður um land allt, hlýjast verð-
ur sennilega sunnan- og suðaust-
anlands.
ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMIU
Vönduð og viðurkennd þjónusta
É Á&* ® 91-29399
¥ Allan sólarhrinqinn
fff
_ . ....._..__arhrinqinn
MVff
Oryggisþjónusta
VARI síðan 1 969
ÞREFALDUR 1. vinningur
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i