Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Page 3
FÖSTUD'AGUR '13. SEPTEMBER 1991.
3
Fréttir
Samgönguráðherra um búnað fyrir sj álfvirka tilkynningaskyldu:
Get ekki sinnt
ýfrustu kröf um í
samgöngumálum
- nauðsynlegt að taka ákvörðun um framhald, segir talsmaður SVFÍ
„Þaö er ánægjulegt aö þessi búnað-
ur hefur reynst vel en ég hef ekki séð
um þetta kostnaðaráætlun. Það
reynir auðvitað hver einasti maður,
sem getur haft áhrif á mál, að stuðla
að því að hægt sé aö auka öryggi
manna. Ég get hins vegar ekki sinnt
ýtrustu kröfum í sambandi við sam-
göngumál á fjárlögum," sagði Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra að-
spurður um hvort hann ætlaði að
beita sér fyrir því að miðstöð með
sjálfvirkum tilkynningaskyldubún-
aði yrði komið í gagnið hjá Slysa-
varnafélagi íslands. Tilraunum með
búnaðinn, sem var þróaður hjá Há-
skóláíslands, er lokið. Þær fóru fram
hjá SVFÍ og um borð í nokkrum ís-
lenskum skipum í samráði við al-
þjóðlega gervihnattastofnun. Sannað
er að búnaðurinn eykur mjög öryggi
sjómanna. Talið er að miðstöð og for-
ritun myndi kosta um 100 milljónir
króna. Búnaður um borð í hvert skip
myndi kosta sem svarar andvirði far-
síma. 20 tilraunatæki eru til sem
framleidd voru hjá rafeindafyrirtæk-
inu Marel.
Hálfdán Henrýsson hjá Slysa-
varnafélagi íslands sagði viö DV að
nauðsynlegt væri að taka ákvörðun
um áframhald uppbyggingar þessa
kerfis - sérstaklega í ljósi þess að 10
milljóna króna fjárveiting lægi þegar
fyrir sem hægt væri að verja í að
koma miðstöðinni á. Viðræður
standa yfir við Póst og síma um
tæknihlið framkvæmdanna. Hálfdán
sagði að þegar væri hægt að koma
upp sjálfvirkri tilkynningaþjónustu
við suðvesturhornið án mikils til-
kostnaðar.
„Ég vildi gjarnan geta sinnt öllu
sem á mitt borð kemur en eins og
sakir standa get ég það ekki,“ sagði
samgönguráöherra. „Ég hef hvorki
sagt já né nei við þessu en við í ríkis-
stjórninni tökum ákvörðun um að
Landeigendur að Heiðarfjalli rita umhverfisráðherra bréf:
Sæmir ekki stjórn-
völdum að stinga
hausnum í sandinn
- krefjaráðherraumliðsinni
„Það getur ekki lengur samrýmst
sóma íslenskra stjórnvalda aö stinga
hausnum í sandinn með því að gera
lítið úr þessu máh, að því er best
verður séð í þeim vafasama tilgangi
að vernda hagsmuni Bandaríkjahers
á íslandi," segir í bréfl sem Sigurður
R. Þórðarson hefur skrifað umhverf-
isráðherra fyrir hönd landeigenda
aö Heiðarfjalli.
Tilefni bréfs þessa er að nú liggja
fyrir niðurstöður mengunarmælinga
úr jarðvegs- og olíusýnum sem tekin
voru á Heiðarfjalli í ágúst síðasthðn-
um. Að mati landeigenda sýna niður-
stöðurnar að um umtalsverða blý-
og olíumengun sé að ræða á fjallinu
eftir Bandaríkjamenn en þar komu
þeir sér upp sorphaugum í tengslum
við ratsjárstöð sem þar var starf-
rækt.
í bréfinu er umhverfisráðherra
minntur á fyrirheit um framhalds-
rannsóknir á fjallinu og aðgerðir,
gæfi frumrannsókn tilefni til þess.
Tilefnið telja landeigendur nú vera
fyrir hendi, enda hafi sýnatökur leitt
í ljós að um umfangsmikla og alvar-
lega mengun sé að ræða. Þess er kraf-
ist að umhverfisráðherra knýi utan-
ríkisráðuneytið og fulltrúa Banda-
Akureyrarhöfn:
Gamli Sólbakur sigldi
átogarabryggjuna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Gamh Sólbakur, einn af togurum
Útgerðarfálsgs Akureyringa, sigldi á
togarabryggjuna við frystihús ÚA í
gær er togarinn var að koma úr
veiðiferð.
taka alvarlega að nauðsynlegt sé að
hafa aðhald í ríkisrekstri og nauð-
synlegt að verða við þeim kröfum að
draga úr lánsfjárþörf ríkissjóðs. Þess
vegna getum við ekki orðið við öhum
kröfum þó að frómar óskir okkar
standi th þess.“
- Er þá ekki tímabært að ræða þetta
mál fyrr en á næsta ári?
„Ég hef hvorki sagt já né nei við
því. En auðvitað vil ég gjarna stuðla
að því að sjálfvirkum tilkynninga-
skyldubúnaði verði komið um borð
Með lítilli fyrirhöfn og kostnaði er hægt að koma á miðstöð fyrir sjálfvirka
tilkynningaskyldu skipa á suðvesturhorninu. Hjá Slysavarnafélaginu er
hægt að sjá staðsetningu, stefnu og hraða alira skipa sem hafa viðeigandi
búnað um borð. Tæki um borð sendir reglulega út tilkynningar til SVFÍ.
Ef eitthvað kemur fyrir berst viðvörun. Getur Slysavarnafélagið þá séð strax
hvaða skip er í vandræðum og hvaða skip eru næst því. DV-mynd GVA
í íslensk flskiskip," sagði Halldór.
Að sögn Haralds Sigurðssonar hjá
fjarskiptasviði Pósts og síma er nú
unnið að því að senda samgöngu-
ráöuneytinu greinargerð. Þar mun
koma fram hvort stofnunin telji til-
kynningakerflð, sem Háskólinn hef-
ur þróað, samrýmast framtíðarþjón-
ustukerfi við strandstöðvar landsins.
Haraldur sagðist telja að tilkynn-
ingakerfið væri út af fyrir sig óneit-
anlega vel úthugsað. -ÓTT
VIRÐISA UKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
ríkjahers til samstarfs um tafarlausa
lausn á máhnu.
í bréfinu kemur fram sá skilningur
landeigenda að viðunandi lausn felist
meðal annars í því að gengið verði
frá skaðabótagreiðslum til þeirra,
upplýst verði nákvæmlega hvað var
urðað á haugunum og að gripið verði
til fyrirbyggjandi aðgerða.
Samkvæmt heimildum DV myndi
það kosta minnst 2,6 milljarða að
hreinsa upp allan mengaðan jarðveg
á fjallinu. Af hálfu landeigenda mun
það hins vegar koma til greina að
taka leigu fyrir mengunina að við-
bættum skaðabótum.
Jón Oddsson hæstaréttarlögmað-
ur, sem í samvinnu við bandaríska
málflutningsskrifstofu vinnur að
kröfugerð fyrir hönd landeigenda,
kvaðst í gær ekki geta upplýst hversu
miklar skaðabætur þeir gætu vænst
að fá. Ljóst væri þó að þarna væri
um mikla fjármuni að tefla. Hann
sagði erlendu lögfræðingana vænt-
anlega til landsins um mánaðamótin
til að undirbúa skaðabótamál gegn
bandarískum stjórnvöldum fyrir
þarlendum dómstólum.
-kaa
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna við
íbúðarhúsnaeði er endurgreiddur:
• Byggjendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis
síns.
• Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðisaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað er til
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
•RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.
•RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júlí og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
Skemmdir urðu svo til engar á
bryggjunni en stefni togarans
skemmdist nokkuð. Skipið mun að
öllum líkindum verða tekið í shpp
hjá Slippstöðinni á Akureyri þar sem
viðgerð fer fram.
RSK
RÍKISSKATTSTJORI