Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
LífsstOl
Meðal þess sem kannað er á neytendasiðu DV er verð á hvitu greipi og rauðum eplum.
DV-mynd Hanna
DV kannar grænmetismarkaöinn:
Hækkun meðalverðs
flestra tegunda
- græn vínber lækka í veröi
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verö á grænmeti í eftirtöldum
verslunum: Bónusi í Kópavogi,
Fjarðarkaupi í Hafnarfirði, Hag-
kaupi í Kringlunni, Kjötstöðinni í
Glæsibæ og Miklagaröi við Sund.
Bónusbúðinar selja sitt grænmeti í
stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
Til þess að fá samanburö þar á milli
er grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
verð. Fjarðarkaup hefur undanfar-
inn mánuð verið með sértilboð á
nokkrum tegundum grænmetis sem
gildir einungis á fimmtudögum. Það
á við um tómata, kínakál, gúrkur og
græn vínber í þessari könnun.
Meðalverð á tómötum fer örlítið
upp á við í þessari könnun ef miðað
er við síðustu könnun. Meðalverðið
hækkar um 6 af hundraði og er 214
krónur. Þeir voru ódýrastir í Fjarð-
arkaupi, á 85, en síðan koma Bónus,
87, og í hnapp Kjötstöðin, 298, Hag-
kaup og Mikligarður, 299. Munur á
hæsta og lægsta verði á tómötum er
252%.
Meðalverð á gúrkum tekur kipp
upp á við um 19% og er nú 150. Gúrk-
ur voru á lægsta veröinu í Bónusi,
35, en á eftir fylgja Fjarðarkaup, 45,
Mikligarður, 195, Kjötstöðin, 198, og
Hagkaup, 279. Munur á hæsta og
lægsta verði er mikill eða 697%.
Neytendur
Meðalverð sveppa fer einnig hækk-
andi en hækkunin nemur 21%. Meö-
alverðið er nú 463 en lægsta verðið
var að finna í Bónusi þar sem kílóið
var á 174. í röð á eftir koma Kjötstöð-
in, 516, Mikligarður og Hagkaup, 539,
og Fjaröarkaup, 545. Munur á hæsta
og lægsta verði á sveppum er 213%.
Meðalverð grænna vínberja lækk-
ar um 10 af hundraði og er nú 212
krónur. Græn vínber voru á hag-
stæðasta verðinu í Bónusi, 44, en síð-
an koma Fjarðarkaup, 55, Hagkaup,
239, Mikligaröur, 325, og Kjötstöðin,
396. Munur á hæsta og lægsta verði
er 800% en þessi háa tala stafar af
verðsamkeppni Bónuss og Fjarðar-
kaups.
í þessari viku var gerð verðkönnun
á rauðri papriku en ekki er til saman-
burðarverð. Meðalverö hennar
reyndist vera 491 króna. Lægst var
verðið í Bónusi, 369, Hagkaup kom
næst með 494, Mikligarður 495,
Fjarðarkaup 499 og Kjötstöðin 599.
Munur á hæsta og lægsta verði á
rauðri papriku er 62%.
Verðstríð hefur verið i gangi und-
anfarnar vikur á kartöflum en nú
hregöur svo við að Bónus er eina
verslunin með mjög lágt verð. Vegna
þess hækkar meðalverðið um 40%
milli vikna og er nú 73 krónur.
Lægsta verðið er í Bónusi, 4,50 fyrir
kílóið, en á eftir fylgja Kjötstöðin,
75.50, Fjarðarkaup, 93,50, og Hagkaup
og Mikligarður eru með sama verð,
94.50. Munur á hæsta og lægsta verði
er ómarktækur eða 2.000%.
Neytendasíða DV kannaöi að þessu
sinni meðalverð á hvítu greipi og
rauðum eplum. Meðalverð á rauöum
eplum er 162 krónur kílóið. Þau voru
á lægsta verðinu í Bónusi, á 139, en
á eftir komu Fjaröarkaup, 148, Hag-
kaup, 158, Mikligarður, 169, og Kjöt-
stöðin, 198. Munur á hæsta og lægsta
verði á rauðum eplum er 42%.
Meðalverð á hvítum greipávexti er
138 en lægsta verðið var að finna í
Bónusi, 107. í röð á eftir koma Mikli-
garður, 116, Hagkaup, 119, Fjarðar-
kapp, 134, og Kjötstöðin, 214. Munur
á hæsta og lægsta veröi 'er 100%.
í könnuninni á kínakáli, sem er nú
gerö aöra vikuna í röð, kemur í ljós
að meðalverðið hækkar um 4 af
hundraði milli vikna, úr 90 í 94 krón-
ur. Kínakálið var á hagstæðasta
verðinu í Fjarðarkaupi, 75, en siöan
koma Bónus, 82, Hagkaup, 84, Mikli-
garöur, 99, og Kjötstöðin, 132. Munur
á hæsta og lægsta verði á kínakáli
er 76 af hundraði.
-ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Grillsósur og spaghettisósur
í Bónusverslunum eru 2 kg af
Falke hveiti á tilboösverðinu 59
krónur, 1 lítri af dönskum epla- eða
appelsínusafa á 75 krónur, eldhús-
rúllur frá Ducel, 4 saman, á 158 kón-
ur og Tapir WC rúllur, 16 rúllur í
pakka, á 319 krónur.
Á tilboðstorginu í Fjarðarkaupi var
hægt að gera góö kaup í tannburstum
frá Aqua Fresh, þeir voru á 134 krón-
ur, eða tannkremi frá sama framleið-
anda og kostar það 188, hver 100 ml
staukur. Sömuleiðis er örbylgjupopp
frá Golden Valley, 3 pk. saman, á
123, Krakus jarðarberja-, hindberja-
eða rifsberjasulta, 454 g, á 49. Kók-
og Pepsidrykkina vinsælu var hægt
að fá á 158 kr 2 1.
í Hagkaupi í Krínglunni var 1 'A 1
af RC Cola seldur á 109 krónur, Dep
sjampó og hárnæring, 2x562 ml, á
359, Hunt’s grillsósur, 7 tegundir,
voru á 147 krónur hver 500 g flaska
og Paul Newman spaghettisósa með
sveppum, 907 g, á 165.
Kjötstöðin í Glæsibæ er ein af
fyrstu verslunum sem selur slátur í
haust en 5 slátur í kassa kosta 2869.
Svínahnakki meö beini er á sértil-
boði, 790 krónur hvert kg, london
lamb á 789 krónur kílóið og verslun-
in var að taka upp margar tegundir
af Polly kartöflusnakki sem er á til-
boðsverði og auk þess 30% fituminna
en venjulegar flögur.
Mikligarður við Sund er með
þriggja korna Myllubrauðin á sértil-
boðsverði, 98 krónur stykkið, korn-
flögur frá Deeside, 500 g, á 149,
Branderup danska grauta í fernum
á 159 og kókómjólkina vinsælu
handa skólabörnunum, 18 fernur,
'A 1 hver, á 698.
-is
110
90
50
Kartöflur
FMAMJJAS
+40%
Bónus
94,50 4^50
Gúrkur
FMAMJJAS
^-cJfiöEÍbrn