Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 16
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
DV
Iþróttir
ísland leikur um 5. sætið á heimsmeistaramóti pilta:
Munaði í raun
bara sekúndum
- sagði Gunnar Einarsson eftir jafntefli, 19-19, við Þjóðverja
„Þaö er svekkjandi að missa af því
að leika um verðlaunasæti á mótinu,
því það munaði í raun bara sekúnd-
um að það tækist. En ef maður lítur
ískalt á árangurinn þá er hann við-
unandi, við tryggðum okkur sæti í
næstu heimsmeistarakeppni og er-
um meðal sex bestu þjóða í heimi,
sem allar geta unnið hver aðra,“
sagði Gunnar Einarsson, þjálfari ís-
lenska 21 árs landsliðsins í hand-
knattleik, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
ísland og Þýskaland gerðu jafn-
tefli, 19-19, í lokaumferð milliriðla
heimsmeistaramótsins í Grikklandi
í gær. ísland var 1-2 mörkum yfir
mest allan tímann, 10-9 í hálfleik, en
Þjóðverjar jöfnuðu, 18-18, og siðan
aftur nokkrum sekúndum fyrir
leikslok.
Sigurður Bjarnason skoraði mest,
6/2 mörk. Gunnar Andrésson gerði
3, Gústaf Bjarnason 3, Einar G. Sig-
urðsson 3, Páll Þórólfsson 2, Dagur
Sigurðsson 1 og Patrekur Jóhannes-
son 1. Gunnar var mjög ánægður
með •frammistöðu Dags, en annars
hefðu allir skilað sínu í keppninni.
Magnús Sigurðsson gat ekki leikið
með íslenska liðinu í gær vegna
meiðsla í öxl. Hallgrímur Jónasson
stóð sig ágætlega í markinu og varði
14 skot.
Eftir á kom í ljós að úrslitin hefðu
engu breytt því Svíar tóku sig til og
burstuðu Sovétmenn, 30-22, eftir
16-7 í hálfleik. Það verða því Svíar
og Júgóslavar sem leika um gull-
verðlaunin, Sovétmenn og Spánverj-
ar um bronsið, og íslendingar mæta
Rúmenum í kvöld í leik um 5. sætið.
Næsta keppni að lík-
indum hérálandi
Alþjóða handknattleikssambandið
gaf í gær sterklega í skyn að næsta
keppni 21 árs liða yrði haldin á ís-
landi árið 1993 en ísland og Ítalía
bítast um að fá að halda hana. Geflð
var út að ef ísland yrði meðal sex
efstu í þessari keppni, myndi leikur-
inn um 7. sætið skipta máli.
„Þetta er hálfgerð viðurkenning á
því að viö fáum keppnina og það
myndi skipta miklu máli fyrir ís-
lenskan handbolta. Það er ódýrt að
halda svona keppni því þátttökuliðin
bera allan sinn kostnað sjálf,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ís-
lenska A-landsliðsins, sem er með 21
árs liðinu í Aþenu.
-VS
Sigurður Jónsson ekki 1 náðinni hjá Arsenal:
Sagði Graham að
fara i rass og róf u
æfir með varaliðinu fyrir náð og miskunn. Stefnir á meginlandið eða Akranes
Sigurður Sverisson, DV, Akranesi:
Sigurður Jónsson, knattspyrnumað-
ur hjá Arsenal, verður að láta sér nægja
að æfa með varaliði félagsins þessa dag-
ana eftir að upp úr sauð í viðskiptum
hans og George Graham, framkvæmda-
stjóra Arsenal, fyrir þremur vikum.
Síðan þá hafa þeir ekki talast við.
Sagði honum að fara
í rass og rófu
„Þolinmæði mína þraut einfaldlega og
Siguróur Jónsson hyggst reyna fyrir sér á meginlandi Evrópu en ég krafði hann um skýringar. Hann gaf
snúa heim til Akraness í vor ef það gengur ekki. engar. Eg sagði honum þá að fara í rass
og rófu og gekk burtu,“ sagði Sigurður
í samtali viö DV.
Atvik þetta gerðist á föstudegi fyrir
leik Everton og Arsenal fyrir þremur
vikum. Sigurður hafði verið vaÚnn í 14
manna hóp fyrir leikinn. Á æfmgunni
þennan dag meiddist einn úr hópnum
þannig að Sigurður taldi öruggt að hann
yrði að minnsta kosti annar tveggja
varamanna liðsins. George Graham tók
hins vegar inn nýjan mann þannig að
Sigurður var út úr myndinni. Það var
meira en hann lét bjóða sér.
„Eg fæ nú að æfa með varaliðinu fyr-
ir náð og miskunn en það er ljóst á öllu
að ég er ekki inni í myndinni hjá Gra-
ham, allra síst eftir þessa uppákomu,"
sagði Sigurður.
Komast að hjá öðru liði
eða snúa heimleiðis
Hann sagði í samtali við DV að um
tvennt væri að velja fyrir sig. Annaö-
hvort að reyna að komast að hjá öðru
liði eða þá að snúa heimleiðis á ný. „Mér
finnst miklu nær að reyna að komast
eitthvað þangað sem þörf er fyrir mig.
Það er andlega niðurdrepandi að búa
við þessar aðstæður," sagði Sigurð-
Reyna fyrir sér á
meginlandinu
Sigurður sagðist vera búinn að fá sig
fullsaddan af knattspyrnunni í Eng-
landi. Hann kynni vel við land og þjóð
en sagðist mundu frekar reyna fyrir sér
á meginlandinu ef kostur væri á því.
Ef það gengi ekki upp kæmi hann til
Akraness í vor. Samningur hans við
Arsenal rynni þá út og ljóst væri aö
félagið gæti ekki krafist neins fyrir
hann úr því að þaö hefði ekki nein not
fyrir krafta hans.
Hverjir verða Islandsmeistarar?
Höröur Hilmarsson: „Lengst al hef
ég hallast að sigri Framara á is-
landsmótinu en nú er ég þeirrar
skoðunar að Víkingur vinni. Ég
held að Víkingar klúðri ekki öðru
tækifæri og á ég þá við jafnteflis-
leikinn gegn KA um siðustu helgi.
Bæði Fram og Vfkingur vinna sina
leiki á morgun en Víkingur hefur
það gott forskot i markatölu að það
nægir þeini til sigurs.
Einar Páll Tómasson: „Fram verð-
ur islandsmeistari. Ég skýri það
þannig að Vikingur nær aðeins
jafntefli gegn Víði í Garði og Fram-
arar klára leikinn gegn Eyjamönn-
um með sigri en |»etta verðúr
æsispennandi.
Hörður Magnússon: „Eg hef ekki
trú á neinu öðru en að Víkingar
hampi íslandsbikarnum á morgun.
\Ég held að Vikingar vinni auðveld-
an sigur á Víðlsmönnum enda eru
þeir með hálfvængbrotið lið og
hafa ekki að neinu að keppa. Þó
svo að Fram vinni ÍBV vinnur liðið
aldrei með það miktum mun að
það tryggi því tililinn.
Ormarr Örlygsson: „Vikingur er
með pálmann i höndunum og tel
ég mestar likur á að líðið standi
uppi sem sigurvegari en ég vona
samt að Framr vinni. Bæði liðin
eiga erfiða leiki á morgun og ég
er svo sem ekki búinn að sjá Vik-
ing vinna i Garðinum og sömuleið-
is Fram vinna ÍBV en þetta verður
spennandi og ræðst iíklega á loka-
mínútunum á morgun.
Úrslitin í einvígi Fram og Víkings ráðast á morgun:
Víkingar f ara í Garðinn
með vænlega stöðu
- Framarar þurfa að þremur mörkum stærri sigur ef bæði lið vinna
Unglingalandsliðið:
Naumttap
í London
England sigraði ísland, 2-1, á Sel-
hurst Park, heimavelli Crystal
Palace í London í gærkvöldi, en þjóð-
irnar mættust þar í Evrópukeppni
unglingalandsliða í knattspyrnu.
Með sigrinum tryggðu Englendingar
sér efsta sætið í riðlinum en þar leika
auk þessara tveggja þjóða Belgar og
Walesbúar.
Markvörður enska hðsins var rek-
inn af velli á 60. mínútu þegar hann
handlék boltann utan vítateigs. En
Englendingar skoruðu strax á eftir,
og aftur á 84. mínútu. Óskar Þor-
valdsson gerði mark íslands tveimur
mínútum fyrir leikslok þegar hann
komst inn í sendingu til markvarðar.
„Það var svekkjandi að tapa því
íslenska liðið óð í færum, sérstaklega
Helgi Sigurðsson. Menn höfðu á orði
hér aö krafturinn hefði sigrað tækn-
ina, forráðamenn enska liðsins voru
gapandi hissa á styrkleika okkar
stráka, og við erum mjög stoltir af
þeim,“ sagði Helgi Þorvaldsson, far-
arstjóri íslenska liösins, í samtali við
DV í gærkvöldi.
-VS
Á morgun fæst úr því skorið hvaða
lið verður íslandsmeistari í knatt-
spyrnu árið 1991 en þá fer fram 18. og
síöasta umferð 1. deildar. Tvö liö berj-
ast um sigurlaunin. Meistararnir frá
því í fyrra, lið Fram, og Víkingur. Fall-
baráttunni er hins vegar lokið og kemur
þaö í hlut Víðis og Stjörnunnar að falla
í 2. deild.
Staða Víkinga
mun vænlegri
Víkingur og Fram eru með jafnmörg
stig á toppnum en markatala Víkinga
er hins vegar mun betri og munar
tveimur mörkum á liðunum, auk þess
sem Víkingar hafa skorað mun fleiri
mörk. í síðustu umferðinni sem leikin
verður klukkan 14 á morgun leikur
Víkingur gegn Víði í Garðinum og Fram
tekur á móti ÍBV. Því má segja að Vík-
ingar standi vel að vígi og möguleikar
þeirra á íslandsmeistaratitlinum eru
mun meiri en Framara.
Vinni Víkingar eins marks sigur í
Garðinum, þurfa Framarar að sigra
Eyjamenn með fjórum mörkum til að
verja meistaratitilinn.
Þrír aðrir leikir eru á dagskrá á morg-
un. Valur tekur á móti FH að Hlíðar-
enda, Stjarnan og Breiðablik leika í
Hvort verður það Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, eða Atli Helgason, fyrirliði Vík-
ings, sem hampar íslandsbikarnum á morgun?
Garðabæ og á Akureyri leikur KA gegn
KR. Þessir leikir skipta kannski ekki
miklu máli en keppnin stendur um 4.
sætið og því veröur örugglega hart bar-
ist um sigur í þessum leikjum. Staðan
fyrir lokaumferðina er þannig:
KA................17 6
Stjarnan..........17 4
Víðir.............17 2
Víkingur...
Fram......
KR........
ÍBV.......
Valur.....
UBK.......
FH........
.....17 11
.....17 10
.....17 8
.....17
.....17
......17
.....17
5 33-20 34
3 26-15 34
5 32-15 28
7 28-33 24
8 22-23 23
6 25-27 23
7 25-24 22
Guðmundur eða Hörður
markakóngur í ár
Þá er mikil barátta um markakóngstit-
ilinn. Guðmundur Steinsson úr Víkingi
hefur skoraö 13 mörk en fast á hæla
hans er markakóngur síðustu tveggja
íslandsmóta, Hörður Magnússon úr
FH, með 12 mörk. Vestmannaeyingur-
inn Leifur Geir Hafsteinsson hefur
einnig skorað 12 mörk en hann tekur
út leikbann í leiknum gegn Fram á
morgun og því er ljóst að slagurinn um
gullskóinn stendur á milli Guðmundar
og Harðar. Markahæstu leikmenn fyrir
lokaumferðina eru þessir:
Guðmundur Steinsson, Víkingi....13
Hörður Magnússon, FH............12
Leifur Hafsteinsson, ÍBV........12
Jón E. Ragnarsson, Fram.........-9
SteindórElíson.UBK...............9
AtliEðvaldsson.KR................9
Fylgir Þór
ÍAuppM.deild?
Síðasta umferð 2. deildar verður einnig
leikin á morgun. Þar liggur fyrir aö ÍA
hefur unnið deildina og leikur í 1. deild
að ári og Haukar og Tindastóll verða
að sætta sig við fall í 3. deild. Baráttan
stendur hins vegar um 2. sætið og þar
standa Þórsarar best að vígi. Norðan-
menn hafa þriggja stiga forskot á Grind-
víkinga og hafa auk þess hagstæðari
markamun sem nemur sex mörkum. Á
morgun leikur Þór gegn Fylki í Árbæ
en Grindavík tekur á móti ÍR. ÍA fær
Selfoss í heimsókn á Skagann, Haukar
og Þróttur leika í Hafnarfirði og í Kefla-
vík taka heimamenn á móti Tindastóli.
-GH
KR-ingar meistarar í 3. flokki
KR-ingar urðu íslandsmeistarar í
knattspyrnu 3. flokks þegar þeir sigr-
uðu Val, 2-0, á Valbjarnarvelli sl.
miðvikudag. Það þurfti tvo leiki hjá
þessum liðum til að útkljá meistara
en fyrri leikurinn endaði 1-1 eftir
framlengingu.
Valsmenn byrjuöu betur, en bæöi
var lukkan ekki þeim hliðholl og svo
varði markvörður KR-inga, Atli
Knútsson, mjög vel. Vesturbæjarlið-
ið kom smátt og smátt meir inn í leik-
inn og KR-mark, eins og lá í loftinu.
Fyrri hálfleikur varð nú samt sem
áður markalaus.
Strax í upphafi síðari hálfleiks náöi
Nökkvi Gunnarsson forystu fyrir
KR, fékk sendingu inn fyrir og
spyrnti í bláhornið. Stuttu seinna
kom annað mark KR-inga, Ásmund-
ur Haraldsson hljóp Valsvörnina af
sér og renndi boltanum framhjá
Benedikt Ófeigssyni í marki Vals.
Þarna var Valsvörnin víðs íjarri, en
þeir urðu að sækja strákarnir og
bitnaði það að sjálfsögðu á vörninni.
Þetta er í 3. árið í röö sem KR verö-
ur íslandsmeistari í 3. flokki karla.
Haraldur Haraldsson hefur þjálfað
flokkinn öll árin. -Hson
KR veitti SPI harða keppni
- en austurríska liðið sigraði að lokum, 74r-65, og samtals með 11 stigum
KR-ingar féllu i gærkvöldi út úr Evr-
ópukeppni bikarhafa í körfuknattleik
þegar þeir töpuðu öðru sinni fyrir SPI
Wien i Austurríki, 74-65. SPI vann
fyrri leikinn á þriðjudagskvöldið,
89-87, og vann því samtals með 11 stiga
mun, Það er raun betri árangur en
búist var við af KR-ingum.
SPI náði góðri forystu í fyrri hálfleik
og leiddi með 15 stigum í hléi, 45-30. í
síöari hálfleik söxuöu KR-ingar smám
saman á forskotiö og þegar tvær mínút-
ur voru eftir gat allt gerst, munurinn
kominn niður í fjögur stig og sæti í 2.
umferð orðinn möguleiki fyrir KR. En
tvö dauðafæri fóru þá forgöröum og SPI
jók forskotið í níu stig áður en yfir lauk.
Stig KR: Hermann Hauksson 18,
John Bear 15, Guðni Guðnason 10,
Axel Nikulásson 9, Páll Kolbeinsson
8, Lárus Árnason 5. Hjá SPI voru
Bandaríkjamennimir Dukes með 22
og Myers með 20 stigahæstir.
„Okkur gekk illa í fyrri hálfleiknum,
Austurríkismennirnir komu ákveðnir
til leiks eftir að hafa vanmetiö okkur
í fýrri leiknum. Við vorum seinheppn-
ir í hálfleiknum og nýttum illa færin,“
sagöi Birgir Guðbjörnsson, þjálfari
KR, í samtali við DV í gærkvöldi.
„Seinni hálfleikurinn var góður, og
þegar upp er staðið erum við alls ekki
óhressir með árangurinn. Það er auð-
vitað alltaf sárt að tapa, en SPI er sterkt
lið á Evrópumælikvarða - skemmtilegt
lið en ekld ósigrandi fyrir okkur."
Mun meiri harka var í leiknum en
þeimfyrriáþriðjudaginn. „Dómaram-
ir leyfðu meira, og fannst okkur þó nóg
um í fyrri leiknum. En þeir voru alls
ekki hlutdrægir og ég kenni þeim eng-
an veginn um úrslitin. Staðreyndin er
hins vegar sú að það er of mikið mis-
ræmi milli dómgæslunnar á íslandi og
annars staðar í Evrópu. Heima er ekk-
ert leyft en hér er spilað miklu fastar
og mönnum hreinlega haldið í vöm-
inni eins og í handbolta. Það þarf að
laga dómgæsluna heima að því sem
gerist annars staðar ef við eigum að
ná árangri erlendis," sagði Birgir.
Hann var mjög ánægður með varn-
arleik sinna manna í gærkvöldi. „Lár-
us og Páli léku mjög vel í vöminni og
héldu hinum frábæra Dukes í skefium.
Hann er aðeins 1,65 á hæð en mjög
snjall og óútreiknanlegur. Þá sýndi
Hermann mjög skemmtilega takta í
sóknarleiknum," sagði Birgir Guð-
björasson. -VS
Bryndís Valsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Val í úrslitaleik
Reykjavikurmótsins í gærkvöldi.
Valsstúlkur
Reykjavíkur-
meistarar
Valsstúlkur urðu í gærkvöldi
Reykjavíkurmeistarar í knatt-
spyrnu, sigruðu KR, 5-2.
Leikurinn var þriðji leikur lið-
anna og úrslitaleikur. Þetta var
einnig í þriðja sinn sem leikurinn
var settur á en tvívegis þurfti að
fresta honum vegna þess að dóm-
arar létu ekki sjá sig!
Valsstúlkur höfðu undirtökin
allan leikinn og var sigur þeirra
sanngjarn. Bryndís Valsdóttir
skoraði þrjú mörk fyrir Val,
Kristín Arnþórsdóttir eitt og Arn-
ey Magnúsdóttir eitt. Valdís
Rögnvaldsdóttir og Helena Ólafs-
dóttir skoruðu mörk KR.
-ih
Njarðvík
vann Hauka
Njarðvíkingar sigruðu Hauka í
Hafnarfirði, 92-103, í Reykjanes-
mótinu í körfuknattleik í gær-
kvöldi. Rondey Robinson og Teit-
ur Örlygsson gerðu 24 stig hvor
fyrir Njarðvík en ívar Ásgríms-
son 22 og Jón Örn Guðmundsson
21 fyrir Hauka. Njarðvík mætir
Grindavík í íþróttahúsinu í
Njarðvík í kvöld klukkan 20.
-ÆMK/VS
fþróttir
Sport-
stúfar
Frjálsíþróttadeild ÍR
gengst fyrir haust-
skokki í Laugardaln-
um á laugardaginn.
Hlaupið hefst við frjálsíþrótta-
völlinn klukkan 13 og er hlaupið
um Laugardalinn alls 5 kíló-
metra. Keppt er í aldursflokkum
sem hér segir: 12 ára og yngri.
13-39 ára. 40-49 ára. 50-59 ára og
60 ára og eldri. Ýmis útdráttar-
verðlaun verða veitt aö hlaupi
loknu og fyrsti keppandi í hverj-
um aldursflokki fær verðlauna-
pening. Skráning fer fram í sum-
arhúsinu við frjálsíþróttavöllinn
frá klukkan 12 og er þátttökugjald
krónur 500.
Juventus og AC Milan í
beinni útsendingu á Stöð 2
Stöð 2 sýnir á sunnu-
daginn í beinni útsend-
ingu stórleik Juventus
og AC Milan í ítölsku
1. deildinni í knattspyrnu. Þessi
tvö lið eru á toppnum á Ítalíu eft-
ir tvær umferðir, eru með fiögur
stig og þeir eru margir þeirrar
skoðunar að Juventus og AC
Milan muni berjast meistaratign-
ina. Margir frægir kappar leika
með Uðinum í AC Milan liðinu
leika Hollendingarnir þrír Marco
Van Basten, Frank Rikjard og
Ruud Gullit og í Juventus eru
menn á borð við Roberto Baggio,
Salvatore Schillachi og mark-
vörðurinn Stefano Tacconi. Út-
sending Stöðvar 2 frá leiknum
hefst laust fyrir klukkan 14.
Arsenal kaupir
norskan landsliðsmann
George Graham framkvæmda-
stjóri Arsenal tók upp budduna í
gær og gekk frá kaupum á norska
landsliðsmanninum Paul Lyder-
sen fyrir 500 þúsund sterlings-
pund. Lydersen er varnarmaður
og leikur með Start í norsku 1.
deildinni. Arsenal hefur byrjað
keppnistímabilið illa og því ákvað
Graham að reyna að styrkja liðið
og efla varnarleikinn sem hefur
ekki verið upp á marga fiska.
Lyderson kemur þó ekki til Ars-
enal fyrr en um miðjan október-
mánuð því fyrst mun hann klára
keppnistímabilið með norska lið-
inu. Lydersen er 26 ára gamall
og hefur leikið 10 landsleiki.
Harford aftur
til Luton
Meira úr ensku knatt-
spyrnunni. Luton sem
er á botni 1. deildar-
innar hefur keypt
Mick Harford frá Derby á 325
þúsund pund. Harford lék með
Luton áður en hann gekk til liðs
viö Derby fyrir 18 mánuðum.
Luton hefur gengið illa að skora
og því á að reyna að skerpa sókn-
arleikinn með kaupunum á Har-
ford sem er 32 ára sóknarmaður.
Stuðningsmenn Fram
ætla að halda hópinn
Stuðningsmenn Framara hafa
ekki gefið upp alla von um að
vinna íslandsbikarinn eins og
þeir svo eftirminnilega á Laugar-
dalsvellinum í fyrra með sigri á
Val, 3-2. Stuöningsmenn Fram
ætla að halda hópinn í stúkunni
og hvetja sína menn og þeir ætla
að fara upp í stúkuna inn um
annan' og þriðja innganginn.
íþróttir
helgarinnar
eru á bls. 23