Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
33
Afmæli
Magnús Andrésson
Magnús Andrésson sjómaður,
Laugarbrekku 19, Húsavík, er sex-
tugurídag.
Starfsferill
Magnús fæddist í Drangsnesi í
Kaldrananeshreppi í Strandasýslu
og ólst þar upp. Hann fór ungur til
sjós og hefur stundað sjómennsku
síðan.
í tuttugu og fjögur ár gerði hann
út báta ásamt Þórði Ásgeirssyni sem
þeir áttu saman en síöustu árin hef-
ur hann átt og gert út eigin trillu.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 23.12.1954 Þóru
Sigurmundsdóttur frá Húsavík,
húsmóður, en hún er dóttir Sigur-
munds Halldórssonar, sjómanns á
Húsavík, og konu hans, Kristínar
Jónasdóttur húsmóður.
Dóttir Magnúsar og Þóru er Krist-
ín, f. 21.9.1954, húsmóðir á Húsavik,
gift Erni Arngrímssyni sjómanni en
þau eiga tvö börn, Magneu Dröfn,
f. 4.7.1973, og Arngrím, f. 20.4.1978.
Magnea er trúlofuð Sigurði Helga
Ólafssyni frá Raufarhöfn, verka-
manni, og eiga þau einn son, Ólaf
Örn.f: 20.12.1990.
Systkini Magnúsar voru Qórtán
en ellefu þeirra eru á lífi. Systkini
Magnúsar: Anna Guðmunda And-
résdóttir, f. 1928, d. 1935; Stefanía
Guðrún Andrésdóttir, f. 1930, hús-
móðir á Hólmavík; Friðrik Andrés-
son, f. 1934, múrarameistari í
Reykjaík; Anna Guðmunda Andrés-
dóttir, f. 1935, húsmóðir í Reykjavík;
Marel Andrésson, f. 1937, starfsmað-
ur á Keflavíkurflugvelli, búsettur í
Sandgerði; Guðrún Andrésdóttir, f.
1939, húsmóðir í Reykjavík; Harald-
ur Vignir Andrésson, f. 1940,
drukknaði 1961; Herdís Ólína And-
résdóttir, f. 1941, húsmóðir í Reykja-
vík; Ingólfur Andrésson, f. 1944, b. á
Bæ I í Kaldrananeshreppi; Efemía
Guðbjörg Andrésdóttir, f. 1945, hús-
móðir í Sandgerði; Hulda Andrés-
dóttir, f. 1947, d. 1957; Bjarni Andrés-
son, f. 1949, starfsmaður við fiskeldi
og bæjarfulltrúi í Grindavík; Ríkey
Andrésdóttir, f. 1951, húsmóðir á
Akranesi; Hrefna Andrésdóttir, f.
1952, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar voru Andrés
Magnússon, f. á Kleifum í Kaldrana-
neshreppi 8.9.1906, d. 12.12.1979,
sjómaður á Drangsnesi, og kona
hans, Guðmundína Arndís Guð-
mundsdóttir, f. aö Hafnarhólmi í
Kaldrananeshreppi20.9.1911, d.
28.9.1978, húsfreyja.
Ætt
Andrés var sonur Magnúsar
Andréssonar á Kleifum í Kaldbaks-
vík, og konu hans, Efemiu Bóasdótt-
ur.
Guðmundína Arndís var dóttir
Guðmundar, b. á Bassastöðum og
Hafnarhólmi og síðar húsmanns í
Drangsnesi, Torfasonar, í Asparvík
Björnssonar. Móðir Guðmundar var
Magnús Andrésson.
Guðrún Ólafsdóttir. Móðir Arndísar
og kona Guðmundar var Anna Jó-
hannsdóttir frá Svanshóli Jónsson-
ar.
Magnús verður að heiman á af-
mælisdaginn.
María Stefanía Bjömsdóttir
María Stefanía Björnsdóttir hús-
móðir, Kastalagerði 1, Kópavogi, er
sextugídag.
Starfsferill
María Stefanía fæddist á Siglufirði
og ólst þar upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
SigluQarðar 1948. Er hún gifti sig
fluttu þau hjónin til Vestmannaeyja
þar sem þau bjuggu í tólf ár en 1963
fluttu þau í Kópavoginn þar sem
María Stefanía hefur búið síðan.
Auk húsmóðurstarfanna hefur
hún starfað á saumastofu Kópa-
vogshælis í tíu ár. María Stefanía
hefur verið félagi í Oddfellow-regl-
unni í tíu ár.
Fjölskylda
María Stefanía giftist 16.6.1951
Hafsteini Júlíussyni, f. 8.6.1928, d.
15.2.1990, múrarameistara, en hann
var sonur Júlíusar Jónssonar,
múrarameistara í Vestmannaeyj-
um, og Sigurveigar Björnsdóttur
húsmóður.
Börn Maríu Stefaníu og Júlíusar
eru Sigurveig, f. 9.9.1951, þroska-
þjálfi í Kópavogi, gift Bjarna Ragn-
arssyni rekstrarstjóra og eiga þau
tvö börn; Eiríksína, f. 20.6.1955,
sjúkraþjálfari í Reykjavík, gift Ósk-
ari Sverrissyni viðskiptafræðingi og
eiga þau tvö börn; Guðný, f. 19.7.
1956, kennari í Kópavogi, gift Jó-
hanni Sveinssyni viðskiptafræðingi
og eiga þau tvö börn; Sigurður, f.
3.8.1959, byggingatæknifræðingur,
kvæntur Svövu Viggósdóttur og
eiga þau tvö börn; Júlíus, f. 1.1.1963,
trésmiður, kvæntur Margréti Guð-
mundsdóttur sjúkraliöa og eiga þau
tvö börn; Þröstur, f. 20.1.1964, blikk-
smiður, kvæntur Hrafnhildi Karls-
dóttur fóstru og eiga þau tvö börn.
Systkini Maríu Stefaníu: Sigurð-
ur, f. 27.5.1917, d. 12.2.1944, búsettur
í Sandgerði, var kvæntur Rósu
Magnúsdóttur og eignuðust þau
þrjúbörn; ÁsbjörgUna, f. 19.5.1919,
d. 4.9.1972, búsett í Reykjavík, var
gift Katli Ólafssy ni og eignuðust þau
fjögurbörn; Halldóra, f. 5.7.1921,
húsmóðir í Vestmannaeyjum, gift
Boga Jóhannssyni og eiga þau sex
börn; Sveinn Pétur, f. 27.6.1924, sjó-
maður á Siglufirði, kvæntur Hans-
ínu Jónatansdóttur og eiga þau eitt
barn; Ásgrímur, f. 22.2.1927, sjómað-
ur á Siglufirði, kvæntur Guðbjörgu
Friðriksdóttur og eiga þau fimm
börn; Þorsteinn, f. 30.5.1929, skip-
stjóri á Ólafsfirði, kvæntur Hólm-
fríði Magnúsdóttur og eiga þau íjög-
ur börn; Björn, f. 9.8.1930, verslun-
arstjóri í Reykjavík, kvæntur Önnu
Guðmundsdóttur og eiga þau tvö
börn; Svava, f. 10.11.1932, verslun-
armaður í Reykjavík, gift Hrafnkatli
Guðjónssyni og eiga þau þrjú börn;
Sigríður, f. 17.8.1934, skrifstofustjóri
í Kópavogi, var gift Garðari Júlíus-
syni sem lést 26.8.1988 en sambýlis-
maður Sigríðar er Bárður Auðuns-
son.
Foreldrar Maríu Stefaníu voru
Björn Sigurðsson frá Héðinsfirði, f.
María Stefanía Björnsdóttir.
14.11.1892, d. 30.8.1974, skipstjóri á
Siglufirði, og kona hans, Eiríksína
Kr. Ásgrímsdóttir, f. 11.4.1897, d.
18.9.1960, húsmóðir á Siglufirði.
María Stefanía tekur á móti gest-
um að Skipholti 70 á afmælisdaginn
milli klukkan 17 og 19.
Andlát
Gunngeir Pétursson
Gunngeir Pétursson, skrifstofu-
stjóri hjá byggingafulltrúanum í
Reykjavík, Alfheimum 68, Reykja-
vík, lést fimmtudaginn 5.9. sl. en
útfór hans verður gerö frá Foss-
vogskirkju í dag, föstudaginn 13.9.,
klukkan 13.30.
Starfsferill
Gunngeir fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR1941 og stundaði nám
í verkfræði við HÍ í tvo vetur.
Gunngeir hóf störf hjá bygginga-
fuUtrúa Reykjavíkurborgar 1945,
var fulltrúi þar 1945-47 og hefur
verið skrifstofustjóri hjá bygginga-
fulltrúafrál955.
Hann var stundakennari við Iðn-
skólann í Reykjavík 1944^49, kenn-
ari við Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar 1947-55, stundakennari við VÍ
1956-75 og við Meistaraskólann í
Reykjavík 1969-83. Þá samdi hann
unglingapróf í reikingi og var próf-
dómari í fjölda ára og samdi, ásamt
Kristni Gíslasyni, kennslubók í
reikningi sem út kom 1963.
Gunngeir var einn af stofnendum
Bridgefélags Reykjavíkur, ritari
þess í mörg ár og formaður í eitt ár.
Hann keppti með landsliði íslands í
bridge í Kaupmannahöfn 1948 og í
Dublin 1952
Fjölskylda
Gunngeir kvæntist 12.10.1946 Sig-
urrós Guðbjörgu Eyjólfsdóttur, f.
23.8.1922, húsmóður, en hún er dótt-
ir Eyjólfs Guðbrandssonar, verka-
manns í Reykjavík, og konu hans,
Herdísar Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Gunngeirs og Sigurrósar
Guðbjargar eru Herdís Björg, f. 26.9.
1947, húsmóðir, sem rekur heild-
verslun ásamt manni sínum, Frið-
rik Björnssyni, en þau eru búsett í
Reykjavík og eiga þau þrjú börn;
Viðar, f. 27.9.1949, guðfræðingur,
kennari og b. að Ásum í Gnúpverja-
hreppi, kvæntur Höllu Guðmunds-
dóttur leikkonu og eiga þau þrjú
börn.
Gunngeir átti ellefu alsystkini. Tíu
þeirra komust á legg en fjögur
þeirra lifa í dag. Alsystkini hans:
Hildur, f. 12.10.1907, d. 26.12.1907;
Viðar, f. 24.11.1908, d. 8.2.1988, tann-
læknir í Reykjavík; Zophonías, f.
17.5.1910, d. 27.12.1984, deildarstjóri
hjá Tryggingastofnun ríkisins;
Hrafnhildur, f. 5.2.1912, d. 13.8.1966,
lengi þerna hjá Eimskip; Aki, f. 22.9.
1913, d. 10.9.1970, deildarstjóri á
Hagstofunni; Sturla, f. 6.9.1915,
lengi starfsmaður Rafmagnsveitu
ríkisins; Jakobína Sigurveig, f. 9.2.
1917, húsmóðir í Reykjavík; Skarp-
héðinn, f. 11.10.1918, d. 5.7.1974,
prófastur á Höfn í Hornafirði; Pétur
Vatnar, f. 11.9.1922, d. 3.2.1927;
Helga Guðrún, f. 17.11.1925, starfs-
maður við Happdrætti HÍ; Jarþrúð-
ur, f. 27.8.1927.
Þá átti Gunngeir þrjú hálfsystkini
samfeðra sem nú eru látin. Þau voru
Jóhanna Soffia, f. 2.11.1904, d. 13.6.
1970; Ingólfur, f. 21.12.1906, d. 9.6.
1985, lengi verkstjóri hjá Vegagerð
ríkisins; Svanlaug, f. 27.12.1910, d.
3.2.1991, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Gunngeirs voru Pétur
Zophoníasson, f. 31.5.1879, d. 1946,
ættfræðingur, ritstjóri ogfulltrúi á
Hagstofu íslands, og kona hans,
Guðrún Jónsdóttir, f. 6.2.1886, d.
12.11.1936, húsmóðir.
Ætt
Bróðir Péturs var Páll, alþingis-
maður og búnaðarmálastjóri, faðir
Hannesar bankastjóra og Páls yfir-
dýralæknis. Pétur var sonur Zop-
honíasar, prófasts í Viðvík, Hall-
dórssonar, b. á Brekku í Svarfaðar-
dal, Rögnvaldssonar. Móðir Péturs
var Jóhanna Sofía, systir Jarþrúö-
ar, konu Hannesar Þorsteinssonar
þjóðskjalavarðar en hálfsystir Jó-
hönnu var Þóra, kona Jóns Magnús-
sonar forsætisráðherra. Jóhanna
var dóttir Jóns, alþingismanns og
háyfirdómara, bróður Péturs bisk-
ups. Jón var sonur Péturs, prófasts
á Víðivöllum, Péturssonar og Þóru
Brynjólfsdóttur gullsmiðs Halldórs-
sonar, biskups á Hólum, Brynjólfs-
Gunngeir Pétursson.
sonar. Móðir Jóhönnu Sofiu var
Jóhanna Sofía Bogadóttir, b. á Stað-
arfelli, Benediktssonar.
Guðriin, móðir Gunngeirs, var
dóttir Jóns, b. og smiðs á Ásmundar-
stöðum á Melrakkasléttu, Árnason-
ar, hreppstjóra í Keldunesi, Árna-
sonar. Móðir Jóns var Anna Guðrún
Stefánsdóttir Skaptasonar, prests á
Skeggjastöðum, Skaptasonar. Móðir
Guðrúnar var Hildur hin fróða
Jónsdóttir, b. á Skinnalóni á Mel-
rakkasléttu, Sigurðssonar og Þor-
bjargar Stefánssonar en móðir þess
Stefáns var Þorbjörg Stefánsdóttir
Scheving, prests á Prestshólum,
Lárussonar, klausturhaldara
Scheving.
Til
hamingju
með
daginn
85 ára
Olga Elíasdóttir,
Suðurgötu 12, Keflavík.
80ára
Steinunn Antonsdóttir,
Hvanneyrarbraut 30, Siglufiröi.
75 ára
Hulda R. Jessen,
Grenimel6, Reykjavik.
70 ára
Ingibjörg Eiríksdóttir,
Grjóti, Þverárhlíðarhreppi.
Elísabet Róbertsdóttir,
Heiðarbraut2, Gerðahreppi.
Sigurður Skúlason,
Þingholtsstræti 25, Reykjavík.
Ólafur Eiríksson,
Gijóti, Þverárhlíðarhreppi.
60 ára
Eimar Viglundsson,
Reykjafold 22, Reykjavík
Reynir Gunnarsson,
Ekru, Reyðarfjarðarhreppi.
Helga Kristrún Jónsdóttir,
Neðstabergi 13, Reykjavik.
Sigurfinnur Arason,
Sólvallagötu 48 B, Reykjavík.
50 ára
Sigurður Bj örgvin Viggósson,
Grýtubakka 14, Reykjavík.
Sigrún Jónina Jensdóttir,
Hörgatúni 25, Garðabæ.
Eysteinn Jónsson,
Hringbraut 85, Reykjavík.
40 ára
Elínborg V. Jónsdóttir,
Háaleitisbraut 95, Reykjavík.
Edda Ingibjörg Tryggvadóttir,
Markarflöt28, Garðabæ.
Jón Kristbergsson,
Rjúpufelli 29, Reykjavík.
Gísli Agnar Bjarnason,
Bjarkahlið 4, Egilsstöðum.
Elin Sigmarsdóttir,
Furugrund 76, Kópavogi.
Þorsteinn Jakobsson,
Bankastræti7, Skagaströnd.
Jón Hjálmarsson,
Lyngbraut6,Garöi.