Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Page 24
rx
Fréttir
„J69Í 8aaM3T?38 mOAdWTSÖl
FOSTUflAfiUR 13. SEPTEMBER J99J.,
Akranes:
„Aðsóknin fram úr
björtustu vonum“
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
„Ég get ekki sagt annaö en aðsókn-
in hafl farið fram úr mínum björt-
ustu vonum. Ég gældi við töluna
400-500 í sumar en um mánaðamótin
höfðu 1150 manns komið hingað á
skrifstofuna til þess að leita sér upp-
lýsinga," sagði Þórdís Arthursdóttir,
ferðamálafulltrúi Akraneskaupstað-
ar, þegar DV ræddi við hana.
Að sögn Þórdísar voru útlending-
arnir, sem sóttu hana heim á skrif-
stofuna, alls 480 talsins, hitt voru ís-
lendingar, jafnt innanbæjarfólk sem
ferðamenn. „Þessi skipting kemur
mér talsvert á óvart því ég hafði átt
von á því aö um 80% þeirra sem
kæmu væru útlendingar," sagði Þór-
dís.
í ljósi þess að þetta er fyrsta sumar-
ið sem upplýsingaskrifstofa ferða-
manna er starfrækt hér á Akranesi
sagðist Þórdís ekki geta verið annað
en himinlifandi. Inni í þessum tölum
væru t.d. ekki neinir skipulegir
ferðamannahópar sem hefðu komið
hingað í sumar, a.m.k. þrír í hverri
viku. Þeirra ferðir væru skipulagðar
fyrirfram.
Þórdís sagði erlendu ferðamennina
hafa komið víða að, frá 18 þjóðlönd-
um alls, m.a. frá Ástralíu, Sovétríkj-
unum og Tékkóslóvakíu. Þegar mest
var komu 38 gestir á skrifstofuna á
einum degi. Fjöldi útlendinga á ein-
um degi varð mestur 26 manns.
Það er ekki amalegt að eiga góða
að. Þessi ungi herramaður var ekk-
ert á þeim buxunum að láta trufla
sig i miðjum klíðum er hann hámaði
i sig ís i góða veðrinu. Eitthvað er
nú farið að kólna þannig að það er
ekki vist að heppilegur ísdagur gef-
ist aftur alveg á næstunni.
DV-mynd JAK
Veðtyð var hreint dásamlegt á suðausturhorni landsins á sunnudag. Hitinn komst vel yfir tuttugu stig og margir
nutu útivistarinnar i sól og sumaryl. Nokkrir strákar við Bergá í Nesjum, sjö kílómetra innan við Höfn í Horna-
firði, stóðust ekki freistinguna og fengu sér bað í ánni með tilheyrandi leikjum. DV-mynd Ragnar Imsland, Höfn
Sauöárkrókur:
Áætlunarf erðir úr sveitinni
til að f á f ólk í frystihúsið
- ef þaö heppnast ekki veröur að ráða útlendinga
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Héraðsnefnd Skagafjarðar hefur
borist beiðni um að komið verði á
fóstum áælunarferðum frá Varma-
hlíð eða Steinsstöðum til Sauðár-
króks kvölds og morgna, þannig að
fólk úr sveitinni eigi hægara um vik
að sækja almenna vinnu á Króknum.
Það eru forsvarsmenn Fiskiðjunnar
á Sauðárkróki sem hvetja til þessa
og bjóðast jafnframt til að taka þátt
í kostnaði. Sárlega hefur vantað fólk
til vinnu í Fiskiðjunni um nokkurt
skeið, sérstaklega á þessu ári.
Að sögn Magnúsar Sigurjónssonar,
framkvæmdastjóra héraðsnefndar,
hefur þessi málaleitan verið rædd en
engin ákvörðun tekin.
„Við lítum á þennan möguleika
þann síðasta til aö leysa okkar vanda
með innlendu vinnuafli. Hvernig til
tekst í vetur ræður algjörlega úrslit-
um hvort við þurfum að ráða útlend-
inga í vinnu næsta vor. Við höfum
ekki viljað gera það ennþá, viljað
reyna til þrautar að fá innlent vinnu-
afl, en þetta er erfitt. Hins vegar er
ég ekkert bjartsýnn á að þessi mál
leysist í vetur. Þaö sýnir sig bara
annars staðar og það í mun stærri
samfélögum að það er gífurlega erfltt
að fá fólk í flsk. Nærtækast að nefna
ÚA á Akureyri sem dæmi,“ segir
Einar Svansson hjá Fiskiðjunni.
Margir vilja halda því fram aö á
næstu árum eigi stórlega eftir að
aukast að fólk úr firðinum sæki al-
menna vinnu til Sauðárkróks. At-
vinnuuppbyggingin hefur orðiö þar
á undanfórnum árum og margt bend-
ir til að svo verði áfram. Það gæti
því farið að styttast í fastar áætlunar-
ferðir úr héraðinu með vinnuafl til
Sauðárkróks.
Búist við lítffli graskögglasölu:
Það þarf harðan vetur til
að heyin verði gefin upp
Þórhallur Ásmimdsson, DV, Sauðárkróki:
„Ég er ekki bjartsýnni mikla gras-
kögglasölu til bænda í vetur, þó svo
að markaðssvæði okkar sé stórt og
varan þyki góð. Eftir þetta metsumar
í heyskap má koma harður vetur til
að heyin veröi gefin upp. Það er svo
sem ánægjulegt, bændum veitir ekki
af einu og einu góðu ári til aö ná sér
upp,“ segir Pétur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri graskögglaverksmiðj-
unnar Vallhólma í Skagaflrði.
Vegna hagstæðs tíðarfars síðasta
vetur voru birgðir miklar af gras-
kögglum í Vallhólma í vor. Var því
ekki borið á nema hTuta túnanna í
og að sögn Péturs gæti orðið vanda-
mál næsta vor með þann hluta tún-
anna sem stóð í sinu í sumar. Þrátt
fyrir það þurfti sama ‘starfsmanna-
fjölda við uppskeruna og áður þar
sem verksmiðjan er keyrð allan sól-
arhringinn meðan á heyskáp stend-
ur. En helmingi styttri tíma tók aö
ná uppskerunni í hlöðu í sumar en
jafnan áður. Fjórar vikur í stað 8-9
vikna.
„Við eigum mjög svipað magn í
hlöðunum núna og í fyrrahaust. Það
er alltaf nokkur hluti af framleiðsl-
unni sem fer í fóðurblöndurnar og
við erum alla vega tryggir með það,“
sagði Pétur í Vallhólma.
Góða veðrið
ruglaði blómin
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Mikið hefur sumarið á Suðurlandi
verið gott og hlýtt. Grasspretta mikil
og þar af leiðandi óvenju góð og mik-
il hey svo bændur geta sparað sér
öll fóðurbætiskaup.
Það sagði mér eldri kona hér á Sel-
fossi, sem alltaf hefur verið mikið
gefin fyrir íjölær blóm í sínum garði,
að það hafi öll blóm sprungið út á
þessu sumri, meira að segja blóm
sem hefðu aldrei blómgast áður. Svo
eru sum fjölæru blómin, sem
sprungu út snemma í vor, aftur kom-
in í fullan skrúða. Það geta fleiri
ruglast á tímanum en núverandi rík-
isstjórn.
Minni af li í Húnaflóa
Regína Thorarensen, DV, Gjögii:
Lýður Hallbertsson gerir út bátinn
Dagrúnu ST12 frá Djúpuvík á sumr-
in. Það er 50 tonna bátur og á vetrar-
vertíðinni er hann með bátinn á
Skagaströnd þar sem hann býr, siglir
til Djúpuvíkur þegar grásleppuvert-
íðin byrjar á vorin.
Lýður er ekki ánægður með þann
afla sem hann hefur fengið á þessu
ári. í sumar fékk hann 76 tunnur af
fullverkuðum grásleppuhrognum en
hann fékk 120 tunnur 1990. Þá fékk
hann fyrr á árinu 88 tonn af rækju.
Þegar ég talaði við hann síðsumars
var hann aðeins búinn að fá 25 tonn
af þorski fyrstu átta mánuði ársins
en í fyrra 126 tonn á sama tíma.
Hvammstangi:
Dýpkun haf narinnar lokið
og malbikun gatna haf in
Þórhallur Ásmundsson, DV, Norðurl. vestra:
Lokið er dýpkun á höfninni á
Hvammstanga og nýlega eru hafnar
þar malbikunarframkvæmdir. Króks-
verksmenn munu malbika 12 þúsund
m2 í þorpinu í haust. Malbikunarstöðin
verður staðsett á Hvammstanga í vetur
og næsta vor verður síðan lokið við
seinni áfanga malbikunar.
Um 19 þúsund rúmmetrar voru
grafnir upp úr höfninni. Að sögn
sveitarstjórans, Bjarna Þórs Einars-
sonar, hefur þörfin fyrir dýpkun ver-
ið fyrir hendi nokkuö lengi og hún
ekki skapast vegna framburðar
Hvammsár eða sandburöar inn í
höfnina, heldur hafa skipin verið að
stækka í seinni tíð. Orðið djúpristari.
í haust verða 6000 m- af götum
malbikaðar, tvö þúsund á hafnar-
svæðinu og 3M000 á vegum kaupfé-
lagsins og einstaklinga. Næsta vor
veröur síðan afgangurinn tekinn,
12-15000 m2 og verða þá allar helstu
götur Hvammstanga bundnar varan-
legu slitlagi.
Selfoss:
Slátrun hef st á
föstudag
Regina Thoiarensen, DV, Selfossi:
Sauðfjárslátrun hefst hjá slátur-
húsi verslunarinnar Hafnar hér á
Selfossi á fóstudag, 13. september.
Að sögn sláturhússtjórans, Har-
alds Gestssonar, er reiknað með að
17 þúsund ijár verði slátrað hjá
þeim, daglega 500 kindum meðan
sláturtíðin stendur yfir. Ekki er
komið verð á nýja kjötiö eða slátrin
en það verður komiö á mánudag.