Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Page 32
Húsbréf:
Krafan komin
í 9 prósent
Ávöxtunarkrafa húsbréfa hækkaði
í gær úr 8,8 í 9 prósent hjá Landsbréf-
sum í gær. Þetta er hæsta ávöxtunar-
krafa húsbréfa frá upphafi. Hún þýð-
ir afföll upp á vel yflr 20 prósent fyr-
ir þá sem eiga húsbréf. Með öðrum
orðum, þeir sem eiga húsbréf að and-
viröi 1 milljón fá því aöeins rúmar
700 þúsund fyrir bréfin núna á Verð-
bréfaþinginu.
Ástæðan fyrir hækkuninni í gær
er sú að Húsnæðisstofnun hefur
dælt út húsbréfum að undanförnu
vegna greiðsluerfiðleikalána.
Þeir sem hafa átt í erfiðleikum
streyma því núna til Landsbréfa, við-
skiptavakans með húsbréfm til að
selja þau en verða á sama tíma að
hlíta þessum miklum afföllum.
-JGH
Mál ráðherra-
bílstjóra sent
ríkissaksóknara
Sakadómur Reykjavíkur hefur
sent ríkissaksóknara mál bílstjóra
utanríkisráðherra sem tekinn var
fyrir of hraðan akstur á leið að Leifs-
—^stöð fyrir skömmu. Bílstjórinn hefur
ekki verið sviptur ökuréttindum en
sakadómur sendi ríkissaksóknara
málið til umsagnar og ákvörðunar.
Mæling lögreglu á hraða bílsins
sýndi um 130 km hraða, það er næst-
um helmingi meiri hraða en leyfilegt
er á veginum. Venjulega eru öku-
menn sviptir ökuréttindum strax í
slíkum tilfellum en það var ekki gert
í þetta skiptið. Framburði ökumanns
ber ekki saman við vitni í málinu.
Mál þetta hefur nú verið til meðferð-
ar hjá lögreglunni í Keílavík og lög-
regluembættinu í Reykjavík auk
þess sem dómsmálaráðuneytið hefur
einnig haft afskipti af því. Gert er ráö
fyrir að ríkissaksóknari afgreiði mál-
■ ið og sendi það aftur til Sakadóms
^■Reykjavíkur. -ÓTT
Fötum smyglað
í stórum gámi
Tollgæsla íslands hefur lagt hald á
talsvert af fótum sem falin voru í
leðurhúsgögnum í gámi. Vörurnar
komu með 40 feta gámi til landsins
meö einu af skipúm Samskipa. Toll-
verðir komust á snoðir um sending-
una i vöruafgreiðslu í Holtagörðum.
Húágögn voru í gáminum en við nán-
ari skoðun kom i ljós að fötum haföi
verið komið fyrir inni í húsgögnun-
um. Tollgæslan framkvæmdi leitina
miðvikudag er málið í rannsókn.
-ÓTT
Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarstjóri um St. Jósefsspítala:
Þetta hlýtur að vera
tómur misskilningur
„Efnislega er þetta mál fjarri öllu
lagi, hlýtur að vera eintómur mis-
skilningur. Ráðherra kemur frá
útlöndum á mánudag og þá hljót-
um við aö geta leiðrétt þetta mál,
ekki síst þegar við sýnum fram á
hvernig starfsemi spítalans hefur
verið háttað, bæði faglega og ijár-
hagsiega. Spítalmn hefur passað
mjög vel upp á að standast ramma
fjárlaga, allar götur frá því hann
fór á fóst fjárlög. Nú er bókstaflega
verið að leggja spítalann niður en
ekki skera niður reksturinn. Við
erum mjög ókátir með það,“ sagði
Guðmundur Árni Stefansson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, um þau
áform heilbrigðisráðuneytisins að
breyta St. Jósefsspítala í hjúkrun-
arheimili fyrir aldraða.
„Sjúkrahúsið veitir Hafnfirðing-
um og Garðbæingum mjög víðtæka
þjónustu. Skurðaðgerðir voru 1800
á síðasta ári og ég sé ekki hvemig
Reykjavíkurspítalarnir eiga að
taka við þeim. Það er kominn tími
til að menn staldri við í þessum
Reykjavikurmiðstýringartilhneig-
ingum sínum.“
„Ástæða þess að St Jósefsspítali
varð fyrir valinu, ásamt nokkrum
öðrum spítölum úti á landi, er sú
að talið er að hægt sé að fullnægja
þörfinni fyrir aðgerðir á Borgarspít-
alanum og Landspítalanum," sagði
Jón Sæmundur Sigurjónsson, að-
stoðarmaður heilbrigðisráðherra.
„Þörfin fyrir hjúkrunarheimili er
líka miklu meiri en hægt er að
horfa framhjá og þar sem einnig
næst fram spamaður með þessu
var þetta talin góð lausn.“
Aðspurður af hveiju stjóm spít-
alans hefði ekki verið með í ráðum
sagði Jón að fyrsta skrefið hlyti að
vera að taka ákvaröanir og gera
tillögur og siðan að hafa samband
við viðkomandi stofnánir.
Á fundi stjórnar spitalans í gær-
kvöldi var samþykkt einróma að
taka undir mótmæli bæjarráðs
Hafnarfjarðar frá í gær. -hlh/ingo
Skyttur og naut ógna öryggi
bæjarbúa á heilsubótargöngu
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Lögreglan á Akranesi rannsakar
nú atvik sem átti sér stað á veginum
við Akrafjall 7. september sl. þegar
riffilkúla hafnaði í vegkantinum
skammt frá hjónum sem þar voru á
gangi.Nokkur spotti var milli þeirra
og eiginmaðurinn taldi að kúlan
hefði hafnað aöeins 10-15 metra frá
þeim.
Engir skotmenn sáust í nágrenninu
en fullvíst má telja að skotið hafi
komið úr kraftmiklum riffii úr tals-
verðri fjarlægð. Ekki þarf að fjölyrða
um hversu mikil hætta getur stafað
af umferð skotmanna á þessu svæði
þar sem mjög algengt er að bæjarbú-
ar fari þarna um á leið sinni upp í
Akrafjall eða þá bara á göngu sér til
heilsubótar.
Þetta er ekki eina hættan sem
gangandi fólki er búin á þessum slóð-
um. Fyrir nokkrum vikum slapp
eldri maður með naumindum inn í
bíl sinn undan nautum sem ganga
laus í Garöaflóanum. Fleiri bæjarbú-
ar hafa komist í kast við nautin án
þess þó að hafa verið í bráðri hættu.
Ekki er þó um að ræða að nautin
séu á svæði þar sem þau eiga ekki
að vera. Landið, sem um ræðir, er í
eigu Innri-Akraneshrepps og nautin
á beit með leyfi hreppsyfirvalda. Eitt
lítið og torlæsilegt skilti er á þessum
slóðum þar sem varað er við nautun-
um en ákaflega auðvelt er að fara á
mis við það. Þá er ekki nema á færi
útvalinna að lesa það sem á skiltinu
stendur, svo máð er letrið orðið.
Oft verða menn að taka duglega á við vinnu sína og þar eru þessir engin
undantekning. Verið var að undirbúa komu skips i slippinn þegar Ijósmynd-
ara bar að garði. Af vinnugöllunum að dæma virðist heljarvinna við skröp-
un og málun bíða þeirra félaga. DV-mynd Hanna
Biíhjólamenn teknir í gærkvöldi:
Annar slasaðist en hinn
tekinn á 150 km hraða
gærkvöldi. Sá piltur hafði nýlega
stungið lögreglu af í tvígang, í annað
skiptið kvöldið áður. Hann þekktist
frá kvöldinu áður og var fylgt eftir
að Engihjalla en á Skemmuvegi virt-
ist sem ökuþórinn ætlaði að nema
staðar. Þá gaf hann skyndilega í en
þá vildi ekki betur til en svo að hjól-
ið rakst í ruslagám og féll síðan utan
í lögreglubílinn. Pilturinn var fluttur
á slysadeild en þar kom í ljós að
meiðsl hans voru minni háttar.
A -ÓTT
Reykjavíkurlögreglan stöðvaði
rúmlega tvitugan ökumann bifhjóls
á Arnarneshæð um klukkan tíu í
gærkvöldi sem ekið hafði á allt aö
150 kílómetra hraða. Hópur vélhjóla-
manna, sem voru í samfloti með hon-
um, komst undan á miklum hraða.
Lögreglan veitti ökumanninum eftir-
fór frá Bústaðavegi að Arnarneshæð
þar sem hann nam staðar en hinir
héldu áfram í átt að Hafnarfirði.
Lögreglan í Kópavogi stöðvaði 16
ára réttindalausan vélhjólamann í
F R ETT AS K OTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991.
Veðriö á morgun:
Norðaustan-
átt
Á morgun verður norðaustan-
átt, sums staðar allhvöss, einkum
á annesjum norðan- og norðvest-
anlands. Úrkomulaust eða úr-
komulítið á Suður- og Suðvestur-
landi en skúrir eða rigning í öðr-
um landshlutum.
LOKI
Er ekki ráð að koma upp
nautaatshring á
Skaganum?
Frjálst, óháð dagblaö
ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI
Vönduð og viðurkennd þjónusta
ÍL 0 91-29399
Ár#' Allan sólarhringinn
Öryggisþjónusta
VARI síðan 1 9Ó9