Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Síða 3
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991. 3 Jöf nun og útlögn stýrt með leysitækni Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstööum; „Viö áætlum að jafna undirláfe, framleiða 75 þúsund m3 af muldu efni og keyra út 28 þúsund m:i af burðarlagi fyrir áramót. Ennfremur að leggja 10 þúsund lengdarmetra af ídráttarrörum fyrir rafmagn vegna ljósabúnaðar í flugbraut," sagði Tryggvi Jónsson, verkfræðingur hjá Krafttaki sf., en nú er nýlega hafin vinna við lokaáfanga við nýja flug- völlinn á Egilsstöðum. Það er Kraftverk sf. og A/S Vei- dekket í Noregi sem annast munu þessar framkvæmdir. Vélar til að vinna efni svo og malbikunarstöð komu frá Norgegi. Burðarlagsefni er sprengt og malað úr svonefndum Selhöfða skammt norðan Fellabæjar. Flutningur á efni verður boðinn út. Tryggvi sagði að þeir myndu síðan hefjast handa að nýju um miðjan apríl á næsta ári. Þá verður lokið við að keyra út burðarlagi en öll útlögn og jöfnun á því verður leysistýrð. Einnig verður og malbikunarstöðin sett upp en til að hægt sé að gera sér grein fyrir stærð hennar skal þess getið að hún framleiðir 90 tonn á klst. Það þarf líka ekki svo lítið af mal- biki. Flugbrautin er 2000 m löng og á miðju hennar er 10 sm þykkt mal- bik en 5 sm á vængjum sitt hvorum megin. Verklok eru um miðjan októ- ber á .næsta ári að sögn Tryggva. Kostnaðaráætlun er 313 milljónir. Milli 15-20 menn munu starfa á veg- um þessara tveggja fyrirtækja þar af allt að níu Norðmenn. Selhöfði, þar sem sprengingar verða daglegt brauð næstu mánuð- ina, er örskammt frá þjóðvegi 1 svo stöðva verður umferð meðan sprengt er. Þá verða og gefin hljóðmerki í hvert sinn sem sprenging er í aðsigi. Austfirskir verktakar eru nú að ljúka öðrum áfanga við flugvallar- gerðina og þessa dagana er unnið við jarðvegsskipti í væntanlegu flug- hlaði. Núverandi flugbraut liggur austan við flugturninn en nýi völlur- inn, sem hefur nokkuð aðra stefnu, kemur vestan hennar. Þannig verða fyrrum bílastæði að flughlaði, en bílastæði færast austur fyrir flug- stööina. L 252. B 205 139.640,00 Tegund: Lundby 6 sæta leðurhornsófinn slær allt út í verði og þægindum. Úrvals leður á slitflötum og 10 LEÐURLITIR EKKIMISSAAF ÞESSU QÓÐ QREIÐSLUKJÖR BÍLDSHÖFÐA 20-1X2 REYKJAVfK - Sf MI91-681199 - FAX 91-673511 Fréttir HORNSOFI SEM QEFUR KEPPINAUTUM OKKAR HÖFUÐVERK Bjöm Bjarnason, formaður þyrlunefndar: Vill öf lugt samstarf við varnarliðið við björgun Unnið að jarðvegsskiptum í væntanlegu flughlaði. DV-mynd Sigrún Lokaáfangi hafinn við Egilsstaðaflugvöll: „Það er mín persónulega skoðun að íslendingar eigi að hafa öflugt samstarf við varnarhðið á sviði björgunarmála. Nefndin hefur hins vegar enn ekki lokið störfum þannig að það er ótímabært að greina frá niðurstöðum hennar,“ segir Björn Bjarnason alþingismaður. Björn er formaður svokallaðrar þyrlunefndar á vegum Alþingis sem kanna á valkosti varðandi kaup á nýrri þyrlu til Landhelgisgæslunnar. Hún mun fljótlega skila niðurstöð- um. Björn vildi ekkert tjá sig um vinnu nefndarinnar. Aðspurður vildi hann ekki heldur tjá sig um hvort til athugunar væri að hætta við þyrlu- kaup í ljósi þess að á vegum varnar- sé ekkert þvl til fyrirstöðu, segir upplysingafulltrui hersms liösins eru að koma flmm fullkomnar björgunarþyrlur til landsins. „Björgunarsvéit bandaríska flug- hersins á Keflavíkurflugvelli hefur fyrst og fremst það hlutverk að bjarga flugmönnum sem hafa verið skotnir niður á vígvelli. Hún þjónar öllum NATO-herjum en þar fyrir ut- an aðstoðar hún aðra þegar þörf er á, svo sem Landhelgisgæsluna og Slysavarnafélagið. Fyrir slíka aðstoð tekur hún enga peninga," segir Frið- þór Eydal, -upplýsingafulltrúi varn- arliðsins. Varnarliðiö er nú að skipta út þeim fjórum björgunarþyrlum sem það hefur yfir að ráða fyrir nýjar og full- komnar Sikorsky-þyrlur. Ein er komin og þrjár eru væntanlegar á næstunni. Sú fimmta kemur væntan- lega eftir eitt til tvö ár og er hugsuö sem varaþyrla. Verð hverrar þyrlu mun vera um milljón dollarar, eða hátt í 500 milljónir króna. Friðþór segist ekki vita til þess að bandaríski herinn hafi tekið að sér með formlegum hætti björgunarstörf fyrir önnur ríki en útilokaði það þó ekki. Til staöar væri þó samningur viö Landhelgisgæsluna varðandi að- stoö þegar sérstaklega stæði á. Að- spurður sagðist hann sjálfur ekkert sjá því til fyrirstöðu að varnarliðið annaðist allt björgunarflug með þyrl- um hér á landi. „Það er hins vegar spurning fyrir íslendinga hvort þeir geti alfarið treyst á herinn i þessit sanibandi. Það reynir náttúrlega hver og einn að vera sjálfum sér nógur i þessuni efn- um. Ef til stríös kæmi myndi herim. fyrst og fremst liugsa um sína." segir Friðþór. -ka;t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.