Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Síða 5
5 MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991. dv Fréttir Fjölskylda á Eskiíirði: Fékk einbýlishús vegna fötlunar móðurinnar Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Eskifjarðarbær og öryrkjabanda- lagið aíhentu Guðrúnu Ragnarsdótt- ur og Kristjáni Sigurðarsyni og börn- um þeirra fyrir skömmu nýtt og glæsilegt 130 m2 einbýlishús að Strandgötu 72, Eskifirði. Húsið er hannað með þarfir hreyfihamlaðra í huga en Guðrún þarf að nota hjóla- stól vegna sjúkdóms. Jón Ingi Einarsson, starfandi bæj- arstjóri, afhenti nýju húsráðendun- um húsið að viðstöddum eskfirskum bæjarstjórnarmönnum, Önnu Ingv- arsdóttur frá öryrkjabandalaginu og þeim sem unnu við smíði hússins. Trévangur hf. á Reyðarfirði tók verkið að sér sl. haust. Heildarupp- hæð verksamnings var 11,9 millj. kr. en með verðbótum fór upphæðin í 13 milljónir. Þá er eftir að taka tillit til hönnunar, eftirlits og veitugjalda, þannig að áætlað lokaverð gæti orðið nálægt 14 milljónum að sögn Sveins Björnssonar hjá Trévangi. Húsið hönnuðu Vilhjálmur Hjálm- arsson arkitekt og Vífill Oddsson frá Teiknistofunni Óðinstorgi, Reykja- vík, en Andrés Elísson rafiðnfræð- ingur sá um rafmagnsmálin. Guðrún, Kristján og börn þeirra, Benjamin Þór og María Lind, við nýja heimilið. DV-mynd Emil Mikil vinna á Tálknaíiröi: Fólk frá 6 þjóðlöndum í frystihúsinu Lúðvíg Thorberg, DV, Tálknafirði: Næg atvinna er í Tálknafirði enda þekkist atvinnuleysisskráning hér aðeins sem hugtak. Hjá Hraðfrysti- húsi Tálknafjarðar hf. starfa 38 manns við fiskvinnsluna sjálfa og er sá hópur frá sex þjóðlöndum: 25 ís- lendingar - þar af 10 í hálfsdagsvinnu - 4 Danir, 3 frá Afríku, einn Svíi, einn Ameríkani og 4 Pólverjar. Af íslend- ingum eru 4 aðkomumenn. Talsvert framboð virðist vera af útlendingum í fiskvinnslustörf, t.d. mun kona sem kvaðst heita María hafa hringt nokkrum sinnum í sum- ar og boðið verkstjóra frystihússins pólskt fólk í vinnu. Hann afþakkaði. Pólsku konurnar fiórar sem vinna í húsinu komu hingáð sl. vor frá Ólafs- vík. Eftir því sem næst verður kom- ist þurftu þær að borga aðila í Pól- landi 300 dollara hver í þóknun til að fá atvinnu á íslandi. Hraðfrystihúsið á og gerir út togar- ann Tálknfirðing og hefur afli hans að undanfórnu verið í slöku meðal- lagi. Á honum eru 6-7 Tálknfirðingar og 8-9 aðkomumenn. Hjá HT starfa auk áðurtalinna framkvæmdastjóri, skrifstofustjóri, tveir hálfsdagsskrif- stofumenn, tveir verkstjórar, bíl- stjóri, reddari, tveir vélstjórar og við- gerðarmaður. Alls vinna hjá fyrir- tækinu 65 manns. Enn riða í Skagafirði: Líkurániður- skurðiá5bæjum Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Erfiðlega gengur að kveða niður riðuna í Skagafirði. Nýlega fannst riða í einni kind frá Melstað í Ós- landshlíð. Loftur Guðmundsson, bóndi á Melstað, kveðst farga fé sínu nú í haust og mjög líklega fara ná- grannarnir á Óslandi að dæmi hans en fé bæjanna gengur saman. Hjörðin á Melstað telur 150 fiár og fiárstofninn á Óslandi er um 180. Fram til þessa hefur riða ekki komið upp í torfunni í Hlíðinni. Þar eru auk fyrrnefndra bæja Brekkukot, Kross og Marbæli. í athugun er að skera niður á öllu þessu svæði en á því eru tæplega 600 fiár. Fé af þessum bæjum gengur á sömu afrétt og einnig hjarðir bænda í Deildardal. Ekki er nema eitt og hálft ár síðan riða fannst seinast í fé í Óslandshlið. Var það á Hlíðarenda. Það verður leikur einn ef þú ekur LANCER MEÐ SÍTENGT ALDRIF 4x4 Meiri veghæð: Felgur 14" - Hjólbarðar 175/70 Meiri orka: 1800 cm3 hreyfill með fjölinnsprautun Þriggja ára ábyrgð - Verð kr. 1.286.400 e HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI695500 HVARFAKUTUR MINNI MENGUN A MITSUBISHI MOTORS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.