Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991.
Símar 13303 -10245 V
Komið og njótið góðro veitinga í ^
þægilegu og afsloppondi umhverfi. ^
Munið sérstöðu okkar til að taka *
á móti litlum hópum til hvers ^
konar veislu- og fundarhalda. J
Verið velkomin. y
Starfsfðik Torfunnar.
NÝTT ÚTLIT - BETRI STAÐUR v
vvvvvvvv *v
LINGUAPHONE
Tungumálanámskeið
Lærið sjálf á
skömmum tfma
nýtt tungumál
IMÁMSKEIÐIÐINNIHELDUR:
6 snældur
Myndskreytta kennslubók
Handbók • Námsvísi
Orðabók
VERÐ AÐEINS KR. 10.997,-
S * K * I * F • A • N
LAUGAVEGI 96 SÍMI 600934
Útlönd
Elisabet Taylor gengur í það heilaga 1 áttunda sinn:
Grét þegar hún sagði já
Elísabet Taylor virðist aldrei hafa verið ánægðari en eftir að hún hafði játast byggingaverkamannmum Larry
Fortensky. Þetta er í áttunda sinn sem Taylor gengur upp aö altarinu en Larry er að kvænast í þriðja sinn.
Símamynd Reuter
Leikkonan Elísabet Taylor brast í
grát þegar hún gekk í það heilaga í
áttunda sinn um helgina. Að þessu
sinni giftist hún byggingaverka-
manninum Larry Fortensky með
mikilli viðhöfn.
Heimildir herma að brúökaupið
hafi kostað milljónir dollara en það
var haldið á þúgarði poppsöngvarans
Michaels Jackson í Kaliforníu. Jack-
son hefur um árabil verið mikill að-
dáandi Taylor.
Brúðarkjóll Taylor kostaöi að sögn
30 þúsund dollara. Það svarar til um
1,8 milljóna íslenskra króna. Kjóllinn
er gulur með hvítum rósum og löng-
Glaumur var mikill í brúðkaupsveisl-
unni. Bent Clausen fagnaði þvi að
hafa lifað brúökaupið af með þvi að
klæðast bol sem á stóö: „Ég lifði
af áttunda brúðkaup Taylor".
Símamynd Reuter
um hvítum borðum.
Larry er 39 ára gamall en Taylor á
skammt í sextugt. Miklir kærleikar
virtust vera meö þeim við brúðkaup-
ið. Hann huggaði konu sína þegar
tilfinningar augnabliksins virtust
ætla að bera hana ofurliði. Larry er
nú að kvænast í þriðja sinn.
Um 200 gestum var boðið til athafn-
arinnar. Þar á meðal voru Gerald
Ford, fyrrum Bandaríkjaforseti, og
Betty, kona hans. Betty rekur með-
ferðarstofnun þar sem Taylor hefur
dvalið langdvölum á síðari árum. í
veislunni voru einnig Gregory Peck,
Liza Minnelli og Eddie Murphy.
Michael Jackson var aö sjálfsögöu
á staðnum og virtist áberandi
taugaóstyrkur. Fjölmiðlar sýna hon-
um mikinn áhuga og virtist sumum
sem nærvera hans skyggöi á sjálft
brúðkaupið. Því er haldið fram að
Jackson vildi helst ganga sjálfur að
eiga Taylor. Stórstjarnan bar sig þó
hetjulega.
Reuter
ADJUSTABLE "E" er stillanlegur
höggdeyfir með sverum stimpli.
Hentar sérlega vel fyrir
stóra jeppa og VAN-bíla.
91-81 47 88
SKEIFUNNI 5A.
Heimilis- og
hljómtækjaverslanir
eru á Gulu línunni
«««Guia
62-62-62
Hringdu fyrst í Gulu línuna áður en þú leitar annað
<im Clausen, aðalskipuleggjandi Erotica 2000, og Karina Bahner upplýsingafulltrúi voru ánægð með viðtökur
Caupmannahafnarbúa sem flykktust á kynlífssýninguna um helgina.
Aðsóknarmet á kynlífs-
sýningu í Kaupmannahöfn
Rúmlega sextíu þúsund gestir
höfðu borgað sig inn á kynlífssýning-
una Erotica 2000 í sýningarsölum
Forrnn í Kaupmannahöfn þegar dyr-
unum var lokað síðdegis í gær. Að
sögn sýningarhaldara er þetta að-
sóknarmet á þriggja daga sýningu í
Forum.
Þegar sýningunni var lokað hafði
höfðu gestir kosið ungfrú og herra
Erotica. Hin heppnu voru hin 23 ára
gamla Lene Zigler frá Kaupmanna-
höfh og hinn 18 ára gamli Kim Sör-
ensen frá Haslev.
Vegna undirtekta almennings hafa
skipuleggjendur Erotica 2000 nú í
hyggju að halda aðra slíka hátíð í
Ósló á næsta ári og fara síðan til
Stokkhólms árið 1993. Aftur veröur
svo haldiö til Kaupmannahafnar árið
1994.
Á sýningunni var opnað safn eró-
tískra muna og meiningin er að finna
stað í Kaupmannahöfn þar sem slíkir
munir verða sýndir að staðaidri.
„Danmörk var fyrsta landið sem
leyfði klám og þess vegna er eðlilegt
að fyrsta erótíska safnið verði í Dan-
mörku. í Amsterdam er eitt safn en
það sýnir bara klám en við viijum
ekkert slíkt í Kaupmannahöfn,"
sagöi Karina Bahner, upplýsingafull-
trúi sýningarinnar.
Hún sagði að meðal gestanna hefðu
verið mörg pör sem kysstust og
knúsuðu hvort annað á ferö sinni um
hinn erótíska heim.
Ritzau