Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Side 18
18 MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991. Menning Tvær sýningar á verkum Sigurðar Guðmundssonar og afhjúpun skúlptúrverks: Tækifæri til að kynnast list eins þekktasta myndlistarmanns okkar - glæsileg bók um list Sigurðar og feril hans komin út Þaö eru sjálfsagt margir sem veröa undrandi þegar þeir sjá hina vönd- uðu og viðamiklu bók um Sigurð Guðmundsson myndlistarmann. Ástæðan er að Sigurður telst varla hér heima meðal þekktustu mynd- listarmanna okkar. En í evrópskri myndlist og sérstaklega þeirri hol- lensku, þar sem hann hefur búið í tuttugu ár, er hann stórt nafn. Sjálfsagt hefur engin bók um ís- lenskan myndlistarmann verið jafn- mikil aö vöxtum og ríkuleg að inn- haldi. Bókin er í stóru broti og prýdd miklum fjölda mynda og er gefin út af Máli og menningu hér á Islandi í samvinnu við hollenska útgáfufyrir- tækiö. Mun bókin einnig koma út í Hollandi, Þýskalandi og Svíþjóð. í bókinni er fjallað um listamanninn og allur hans ferill krufinn, þá eru einnig greinar eftir listamanninn sjálfan ásamt einkar skemmtilegum og fræðandi bréfaskriftum milli Sig- urðar og myndlistarkonunnar Mar- lene Dumas. Aðalsteinn Ingólfsson hefur þýtt bókina á íslensku og í ís- lensku útgáfunni er einnig stutt sam- tal við Sigurð sem Aðalsteinn hefur tekiö. Skúlptúr afhjúpaður í Gerðubergi Meðal annars er í tilefni útkomu bókarinnar búið að setja upp tvær sýningar í Reykjavík á verkum eftir Sigurð. í Listasafni íslands er yfir- htssýning á ljósmyndum Sigurðar, sem flestar eru frá sjöunda og átt- unda áratugnum, ásamt skúlptúr- verkinu Hið mikla ljóð sem er frá árinu 1981 og er í eigu Stedelijksafns- ins í Amsterdam. Nefnist sýningin Natúra Rómantíka. í Nýhöfn eru svo sýnd nýrri verk eftir Sigurð. Þess má svo geta að í dag verður aíhjúpað í Gerðubergi nýtt verk eftir hann. Sigurður Guðmundsson fæddist 20. september 1942. Hann varð eins og jafnaldrar hans í myndlistinni á sjö- unda áratugnum fyrir áhrifum frá fluxus list og arte povera og var einn af virkustu þátttakendum SÚM- hópsins í Reykjavík og er ekki að efa að mörgum er í fersku minni verk sem hann sýndi þá, enda nokkur þeirra umdeild. Á sjöunda áratugn- um, eftir að hann settist að í Amster- dam, þróaði hann eins konar ljós- myndagjöminga eða sviðsetningar, eins og hann kallar þær sjálfur, þar sem hann leikur aðalhlutverkið og eru það þessi verk sem eru á sýning- unni í Listasafni íslands. Sigurður hóf að vinna með ljós- myndir þegar á sjöunda áratugnum og gerði síðan ekki slík verk eftir 1980 nema eitt, Encore, sem hann gerði á þessu ári og prýðir það sýn- inguna í Listasafninu. Hluti af því verki er á kápu bókarinnar um Sig- urö sem heitir einfaldlega Sigurður Guðmundsson. Ljósmyndaverk Sigurðar eru öll hugmyndafræðilegs eðlis og vinnur hann þar iðulega með ákveðna texta. Þessi verk hans eru í raun myndræn ljóð þar sem verkin voru „útfærð með ljósmyndum er voru nátengdar þeim huglæga skáldskap sem finna má í íslenskri ljóðagerð. Verkin voru téngd hversdagslegum skírskotun- um og hugsanatengslum sem voru hlutgerð á afar einfaldan og ljóðræn- an hátt. Þegar tímabili ljósmyndanna var lokið fór Sigurður aö nálgast mjög skúlptúrinn og ekki kom á óvart að ijósmyndir hans yrðu að sjálfstæðum rýmisverkum. Þess vegna er á sýningunni fyrsta veru- lega skúlptúrverk hans til að sýna atferlistengsl við framhaldið. Eins og áður segir er Sigurður Guðmundsson ekki mjög þekktur meðal almennings í landinu en nú er kjörið tækifæri til að kynnast myndlist hans og ekki síður kynnast lesendur bókarinnar verkum hans, en í bókinni er hátt á þriðja hundraö mynda. Þess má að lokum geta að verk eftir Sigurð eru í eigu allra helstu safna í Evrópu, svo sem Stede- lijksafnsins í Amsterdam og Pompidousafnsins í París. -HK Vetrarstarf Sinfóníuhljómsveitar íslands að heflast: Upptökur á geisladiska, plötu- klúbbur og fjölbreytt tónleikaröð „Með því að skipa tónleikunum í þrjá flokka, gul- mikilla vinsælda og höfða því til breiðs áheyrenda- ar, rauðar og grænar tónleíkaraðir, vonumst við til hóps. Á tónleikunum 14. nóvember verða til aö að gera tónleikana aðgengilegri. Til að mynda reikn- mynda flutt lög úr Porgy og Bess eftir George Gersw- um viö með aö rauð og gul tónleikaröð sé meira fyr- in og verk eftir Scott Jophn. Söngvarar veröa hinir ir þá sem lengra eru komnir í hlustun á sígilda tón- þeldökku söngvarar Ebony Opera og Kór íslensku list, en græna tónleikaröðin höfði meira til þeirra óperunnar. 30. janúar verða hinir árlegu Vínartón- sem eru að stlga sin fyrstu spor í hlustun á sígilda leikar og 7. maí verður meðal annars hinn vinsæli tónlist," sagöi Runólfur Birgir Leifsson, fram- píanókonsert nr. 1 eftir Tsjajkovskíj fluttur. kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands, þegar hann kynnti vetrardagskrá hljómsveitarinnar. Jólatónleikar tileinkaðir ári söngsins Sjálfsagt eiga einstaka tónleikar eftir að vekja meiri athygli en aðrir, má þar nefna Mozart tónleikana 5. desember þar sem flutt verður Júpiter sinfónían og Sálumessa og tónleikana 12. desember sem eru jóla- tónleikar fyrir alla flölskylduna. Verða þeir unnir í samvinnu við tönmenntakennara og helgaðir ári söngsins. Eyrirhugað er að 120-140 börn myndir kór á sviðinu og áheyrendur, foreldrar og börn taki virk- an þátt í flutningi verkanna. Þá iná geta tónleika 2. apríl þar sem flutt verða verk eftir Sergei Rachmani- Modest Mussorgsky. Á Sinfóniuhljómsveit ís- noff, Gustav Mahler og Gunnar Þórðarson. Já, það tvennum tónleikum gulu lands mun ó tónleikum kom að því að Gunnar, sem er eitt allra afkastamesta raðarinnar verða ein- 2. apríl leika Noctume og vinsælasta tónskáld léttrar tónlistar, semdi fyrir göngu hljómsveitarverk 8001 er hljómsveitar- Sínfóníuna. VerkiöeftirhannheitirNoctumeogsem- en á sex tónleikum einnig veri< eftir Gunnar Þóró- m- hann það með fiðluleikaranum Szymon Kuran. einleikarar. arson Szymon Kuran. Margt fíeira er á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit- Það sem greinir rauðu tónleikaröðina frá öðrum inni. Má þar nefna plötuklúbb áskrifenda en f sumar röðura er að þar er lögð megináhersla á einleiks- gerðu Sinfóníuhljómsveitin og Japís með sér samn- verk.íveturverðurboðiöuppáperlurtónbókmennt- ing um stofnun og starfrækslu plötuklúbbs fyrir anna í einleiksverkum fyrir flðlu, selló, píanó, óbó áskrifendur að tónleikum hljómsveitarinnar. Þeir og söng. Þá eru önnur viöfangsefni í tónleikarööinni munu njóta margháttaðra fríöinda við kaup á geisla- ekki minna áhugaverð. Þar verða flutt verk eftir ís- disku, snældum og plötum. Þá heldur samstarfiö við lensk tónskáld, þá Áskel Másson og Finn Torfa Stef- . Chandos útgáfufyrirtækið áfram. Pyrsti geisladisk- ánsson, verksemekkihafaheyrstáður.Einnigverð- urinn er væntanlegur fljótlega og verður honum ur flutt slgild tónlist eftir Dvorák, Ravel, Debussy, dreift í verslanir í rúmum þriátíu löndum og eru Béla Bartók, Berlioz og Tsjajkovskíj. forráðamenn fyrirtækisins þeirra skoðunar að Einieikarar eru allir þekktir í heimi tónlistarinnar hljómsveitin standi erlendum hljómsveitum fyllilega og er þaö kannski einmitt frægö þeirra sem gerir á sporði varðandi gæpi og fagmennsku. þaö að verkum aö aðeins dýrara er á rauöu tónleika- Sinfóníuhljómsveit íslands verður óbreytt að stærð röðina en hinar tvær. íslensku listamennirair eru í vetur en Runólfur Birgir Leifsson sagöi að æskilegt Sigrún Eðvaldsdóttir sem leikur á tónleikum 24. væri aö stækka hana en leyfi hefði enn ekki fengist október og Kristinn Sigmundsson sem syngur meö til þess, þó kæmi til greina að stækka hana f ein- ómsveitínni 19. mars. staka verkum sem krefjast fjölmennari hljómsveitar. grænu tónleikaröðinni eru tónverk sem njóta -HK uuæu ei ao segja ao jjoí- breytni gæti í tónleikavali hljómsveitarinnar í vetur og ættu allir að geta fundiö eitthvað viö sitt hæfi. í gulrí tónleikaröö verður lögð megináhersla á stærri hljómsveitarverk, meðal annars eftir Béla Bartók, Beethoven og Norræna húsið: Grænlandsmánuður Októbermánuður er Grænlands- mánuður í Norræna húsinu. Um helg- ina voru haldnir fyrirlestrar og vísna- söngvarinn Rasmus Lyberth hélt tvenna tónleika. Auk sýninga sem eru í Norræna húsinu verður boðið upp á dagskrá um helgar. Meðal þess sem er eftirtektarvert er koma Silamiut leikhússins sem hefur á að skipa eina atvinnuleikhóp í Græn- landi. Mun leikhúsið sýna tvö verk, Tupila og Uaajeerneq. Leikhúshópur- inn Silamiut var stofnaður 1884 í Nu- uk. Auk þess að standa fyrir leiksýning- um vinnur Silamiut að því að koma á légg grænlenskum leiklistarskóla og fá pólitíska viðurkenningu á leikhús- lögum. Mikilvægasta takmark Silam- iut er að efla skilning á Inúíta-menn- ingu og veruleika íbúa Grænlands, einnig vinnur hópurinn að því að auka samvinnu allra Inúít-listamanna. Báðir leikimir, sem Silamiut sýnir, eru byggðir á gamalh hefö. Uaajemeq merkir grímu-sjónleikur. Mannfræö- ingar álíta að slíkir leikir hafi komið fram fyrir 3000 árum, séu upprunnir í Alaska og hafi verið iðkaðir meöal Inú- íta í Norður-Kanada og á Grænlandi. Nú er leikurinn aðeins leikinn á Aust- ur-Grænlandi. Skiptist leikurinn í þrennt, Skrípalæti, þar sem menn gretta sig og gera sig eins ljóta og þeir mögulega geta. Helgisiöir frjóseminn- ar, þar sem fólk skiptir um kynhlut- verk, karlmenn leika konur og öfugt. í þriðja hlutanum er börnum kennt eðh hræðslunnar. Sýningin Tupillak er nútímalegur dans án talaðs máls. Tupilak er óheillavera, búin til af galdramönnum í þeim eina tilgangi að drepa. Það er ekki auðvelt að búa til Tupilak, því ef fómarlambið hefur sterkan hjálpar- anda eða kraft snýr Tupilak aftur til skapara síns og drepur hann og eyðir þar með sjálfum sér. í sýningunni er fylgst með Tupilak, atferli hennar og baráttu við fórnarlambið. Sjálfsagt reka margir upp stór augu þegar talað er um grænlenska kvik- myndagerð, enda er hún ekki einu sinni farin að slíta barnsskónum. Þrjár grænlenskar myndir verða sýndar sunnudaginn 27. október og eru allar með íslenskum texta. Saattut er kvikmynd fyrir börn í þremur þáttum og segir frá veiði- mannasamfélagi Saattut. Hver þáttur er rúmar tuttugu mínútur. Kalaalht Nunaat - Grænland er heimildamynd um Grænland. Hvar er Grænland? Hversu margir búa þar og hvað gera íbú- arnir? Búa Grænlendingar í snjóhúsum? Þannig hljóða spurningar sem heimastjómin í Grænlandi fær ahs staðar að úr heiminum. í myndinni er leit- ast við að svara Silamiut-leikhóp- þessum spum- urinn sýnir leiki ingum. Myndin sem byggðir eru á er rúmar tuttugu gamalli hefð. mínútur. Inoghuit - þjóðin við nafla heimsins er eina myndin sem er í fuhri lengd. Er hér um að ræða heimhdarmynd um hvernig veiðimannaþjóð hfir á 20. öld þegar gripið er inn í thveru hennar af utanaðkomandi. Myndin er gerð í sam- vinnu viö Sænsku kvikmyndastofnun- ina og sænska sjónvarpið með styrk frá Norræna menningarsjóðnum og grænlensku heimastjórninni. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.