Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991.
Menriing
Píanóleikur í Haf narborg
Tónlistarlíflö er nú komiö í fullan gang eftir hvíld
sumarsins og nokkuð hikandi haustvertíö. Allt bendir
til að tónleikahald vetrarins veröi eins fjölskrúðugt
og best verður á kosið og allir muni finna eitthvað við
sitt hæfi. Ekki er allt tónleikahald eins mikið í sviðs-
ljósinu og meðal þess sem lágt hefur farið er tónleika-
röð sem Tónlistarskóli Hafnarfjarðar hefur haldið í
samvinnu við Hafnarborg í Hafnaríirði. Þessir aðilar
stóðu fyrir tónleikahaldi í allan fyrravetur og áætla
að gera svo einnig í vetur. Á tónleikum þessum koma
fram kennarar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en auk
þess eru gestir fengnir til eftir atvikum. Fyrirkomulag
tónleikanna er óvenjulegt að því leyti að þeir eru
haldnir jafnframt þeim myndlistarsýningum sem uppi
eru í Hafnarborg hverju sinni, en húsið er eftirsótt
undir sýningar myndlistarmanna eins og kunnugt er.
Tónleikar í þessari röð eru haldnir fyrsta sunnudag
í hverjum mánuði og í gær voru píanótónleikar þar
sem Sigurður Marteinsson lék einleik. Sigurður hefur
um árabil stundað nám á hljóðfæri sitt bæði hér heima
og erlendis. Síðast dvaldist hann í Danmörku um nok-
kurra ára skeið en kennir nú við Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar.
Á efnisskránni voru Krómatísk fantasía og fúga í
d-moll eftir Jóhann Sebastian Bach og Sónata í G-dúr
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
eftir Franz Schubert. Bæði þessi verk eru fullverðug
viðfangsefni yfir hvaða píanóleikara sem er og fyrsta
flokks tónlist. Sigurður hafði gott vald á þessum verk-
um. Skýrleiki var góður í fantasíunni og fúgunni og
engin óhófleg rúbató, þótt ásláttur hefði stundum
mátt vera mýkri. Sigurður sýndi í Schubert að hann
kann þegar hann vill að slá hina blíðari strengi og
hljómaði margt fallega hjá honum í þessu verki.
Meðan á tónleikunum stóð var í gangi málverkasýn-
ing Péturs Friðriks og létu sumir gesta hans tilleiðast
að tylla sér um stund og einbeita sér að tónlistinni.
Aðrir létu hana leiða sig milli myndanna eins og til
að ýta enn frekar undir hughrifin. Örfáum tókst ekki
að gera sér þann dagamun að stöðva munnræpuna
þá stuttu stund sem tónleikarnir stóðu og varð að því
nokkur truflun. Að öðru leyti fóru tónleikarnir prýði-
lega fram og virðist þetta tónleikaform eiga fullan rétt
á sér.
Bíóhöllin - Oscar: ★★ '/2
Stallone án of beldis
Sylvester Stallone hefur löngum verið gagnrýndur
fyrir að vera hæfileikalítill leikari sem væri lítið ann-
að en skrokkurinn. Hann hefur í myndum sínum hing-
að til oftast nær verið frekar spar á talað mál og illar
tungur segja að það sé vegna þess hve Stallone sé illa
máli farinn. En í myndinni Oscar hefur aldeilis orðið
breyting á. Aldrei þessu vant lætur Stallone orðin tala
í stað hnefanna. Og merkilegt nokk - hann gerir það
bara nokkuð vel.
Handritið að myndinni er byggt á leikriti Frakkans
Claude Magniers sem hann skrifaöi árið 1960. Þetta
er bráðskemmtilegur farsi sem gerist nánast allur á
sama stað, heimili mafiubófans Angelo Snaps Provol-
one (Sylvester Stallone). Provolone varð vellauðugur
á ýmiss konar ólöglegri starfsemi og hefur safnast
mikill auður. Myndin hefst á því að Provolone mætir
við dánarbeð föður síns og í andarslitrunum tekur
faðirinn loforð af syninum um að hætta allri ólöglegri
starfsemi og gerast heiöarlegur þegn.
Farsinn byggist síðan á tilraunum Provolones til að
gerast heiðarlegur, sem reynist miklum erfiðleikum
bundið. Inn í myndina blandast eiginkona Provolones
Sofia (Ornella Muti), spillt dóttirin Lisa (Marisa To-
mei), endurskoðandinn Anthony Rossano (Vincent
Spano) og málfræðikennarinn dr. Poole (Tim Curry)
sem gegnir því hlutverki að reyna að breyta ruddalegu
málfari Angelos Provolone yfir í vandað málfar yfir-
stéttarfólks í samræmi við breytta lífsháttu.
Það veröur að segjast eins og er að þessi blanda
heppnast ágætlega og verður meinfyndin á köflum.
Stallone sýnir á sér áður óþekkta hlið, Tim Curry er
bráðskemmtilegur í hlutverki sínu sem málfræðikenn-
arinn en klæðskerar Provolones, Finucci og Finucci,
Kvikmyndir
ísak örn Sigurösson
eiga þó einna bestu sprettina í myndinni. Þeir eru
leiknir af Martin Ferrero og Harry Shearer.
Leikstjóri myndarinnar er John Landis. Það var
hann sem „uppgvötvaði" handritið og fannst Sylvester
Stallone vera sem sniðinn í hlutverk Provolones. Stall-
one þekktist boð Landis um hlutverkið enda passar
það mjög vel fyrir þær tilraunir hans að breyta ímynd
sinni. John Landis er þekktur fyrir margar gaman-
mynda sinni. Meðal helstu mynda hans eru The Blues
Brothers, Animal House, Trading Places, Coming to
America, og Three Amigos. Hann hefur einnig leik-
stýrt spennumyndum eins og Into the Night og The
Twilight Zone. Gamanmyndin Oscar er ágætis viðbót
fyrir þennan flölhæfa leikstjóra.
Vert er að geta sérlega glæsilegrar sviðsetningar sem
varpar ljósi á þann rómantíska blæ sem endurspeglar
þetta tímabil.
OSCAR
Leikstjóri: John Landis
Tónlist: Emer Bernstein
Aóalhlutverk: Sylvester Stallone, Ornella Muti, Martin Ferr-
ero, Harry Shearer, Marisa Tomei, Don Ameche.
Andlát
Brynjólfur Eirikur Ingólfsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri, lést á
Landakotsspítala 3. okt.
Benedikt Bjarnason, Háaleitisbraut
39, lést á heimili dóttur sinnar þann
3. október.
Elín Valdimarsdóttir Bender, áður
Hringbraut 104, lést að Hjúkrunar-
heimilinu Skjóli 1. október.
Kristinn Finnbogason framkvæmda-
stjóri lést í Borgarspítalanum 4. okt-
óber.
María Kristjánsdóttir, Víðivöllum 8,
Akureyri, lést 5. október.
Geir Óskar Guðmundsson véltækni-
fræðingur er látinn.
Einar Þór Jónsson, Furugerði 1, lést
í Landakotsspítala 5. október.
Ingibjörg Kristinsdóttir frá Hlemmi-
skeiði andaðist í Borgarspítalanum
4. október.
Bjarni E. Bjarnason, Meðalholti 12,
Reykjavík, lést 4. október.
Jóhannes Hjálmarsson, Suðurgötu
70, Siglufirði, lést í Borgarspítalan-
um þann 3. október.
Jens Kr. Gestsson verður jarðsung-
inn frá Áskirkju þriðjudaginn 8. okt-
óber kl. 13.30.
Magnús Hallsson húsasmiður, Soga-
vegi 80, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju þriðjudaginn 8. október
kl. 15.00.
Guðbjörg Bjarman, Smiðjuvegi 15,
Kópavogi, veröur jarðsungin frá
Fossvogskirkju 8. október kl. 13.30.
Útför Rósu Steinunnar Guðnadótt-
ur,Furugerði 1, verður gerð í dag kl.
13.30 frá Fossvogskirkju.
Fundir
Félag breiðfirskra kvenna
heldur sinn fyrsta fund í Breiöfirðinga-
búð í kvöld, 7. október, kl. 20.30. Spilað
verður bingó.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í
kvöld, 7. október, kl. 20.30 í safnaðar-
heimib Dómkirkjimnar, Lækjargötu 14.
Rætt verður um vetrarstarfið. Kaffiveit-
ingar.
Jarðarfarir
A MITSUBISHI
HQ myndbandstæki
E12
3 hausar
30 daga 8 stöðva upptökuminni • Þráðlaus^l
fjarstýring 0 Euro skart samtengi • Sjálf-
virkur stöðvaleitari • PAL/NTSC afspilun
• Klukka + teljari • Skipanir á skjá •
Fullkomin kyrrmvnd.
Sértilboð 39.950 fm stgr.
E3 Aíborgunarskilmálar
Myndgáta
Myndgátan hér að ofan
lýsir orðatiltæki.
Lausn gátu nr. 147:
Lykkjufall
KR-konur
halda fund þriðjudaginn 8. október kl.
20.30 í félagsheimili KR. Snyrtikynning
frá versluninni Klöru.
ITC deildin Ýr
heldur fund í kvöld, 7. október, kl. 20.30
að Síðumúla 17. Upplýsingar gefa Ester
s. 674730 og Kristín s. 34159.
Félagsfundur JC Nes
2. félagsfundur JC Nes verður haldinn í
kvöld, 7. október, kl. 20.30 að Austur-
strönd 3, Seltjarnarnesi, 3. hæð.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opiö hús í Risinu, Hverflsgötu 105, í dag
kl. 14-17. Bridge og frjáls spilamennska.
Spilakvöld í Þing-
hól, Hamraborg
Spiluð verður félagsvist í Þinghól,
Hamraborg 11, í kvöld, 7. október, og
hefst hún kl. 20.30. Allir velkomnir.
Tapaðfundið
Gleraugu og lyklakippa
töpuðust á leiðinni Otrateigur - Gullteig-
ur - Laugarnesskólalóð. Finnandi hafi
samband í síma 34727.
Pamína er týnd
Pamína tapaðist frá heimili sínu, Hóla-
forgi 4, á laugardagskvöld. Pamína er
kettlingur, grá og hvít, með hvítt trýni,
hvítan kvið og fætm* og ljós í rófunni.
Hún er með bleika hálsól með tveimur
litlum bjöllum. Finnandi hringi í síma
10624.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
DÚFNAVEISLAN
eftir Halldór Laxness.
8. sýning miövikud. 9. okt. Brún
kortgilda.
Á ÉG HVERGI HEIMA?
eftir Alexander Galin.
Leikstjóri. Maria Kristjánsdótt-
ir.
Föstud. 11.okt.
Föstud. 18. okt.
Litla sviö:
Þétting
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Leikmynd: Jón Þórisson.
Búningar: Jón Þórisson og
Aðalheiður Alfreðsdóttir.
Lýsing: ögmundur Þór Jóhann-
esson.
Tónlist: Svelnbjörn I. Baldvins-
son og Stefán S. Stefánsson.
Leikstjóri: Halimar Sigurðsson.
Leikarar: Ása Hlin Svavarsdótt-
ir, Jón Júlíusson, Kristján
Franklin Magnús, Pétur Einars-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sigrún Waage, Soffia Jakobs-
dóttir, Sverrir Örn Arnarson og
Theodór Júiiusson.
Frumsýning fimmtud. 10. októb-
er. Uppselt.
Föstud. 11. okt.
Laugard. 12. okt.
Sunnud. 13. okt.
Kortagestir, ath. að panta þarf
sérstaklega á sýningar á litla
svlðlð.
Miðasala opin alla daga frá ki.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir í sima alla
virka daga frá kl. 10-12.
Simi 680680.
Léithv^l
man
.Í9|f9jQ0Í10:
Leikhúskortin, skemmtileg nýj-
ung, aðeinskr. 1000.
Gjafakortin okkar,
vinsæl tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarleikhús.