Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1991, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. RStstjórn - Auglýsingar ■ Áskrift - Preifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 1991. Bangkokmermimir: íslendingarnir voru í fangelsi um helgina íslendingarnir þrír í Tælandi, sem hafa ekki komist til íslands vegna ógildra farmiða og ógreidds hótel- reiknings, voru settir í fangelsi á hverfislögreglustöð í Bangkok um helgina. Að sögn Jörgens Hage, ræð- ismanns íslands í Bangkok, var þeim sleppt aftur út í gær á ábyrgð hótels- ins. Þeir hafa nú veriö fluttir á ódýrt hótel í Bangkok og una sér að sögn ræðismannsins vel þar. Þær fréttir hafa borist þangað suð- ur frá íslandi að Félagsmálastofnun Akureyrar ætli að greiða hótelreikn- inginn og farmiða fyrir einn af þre- menningunum. Ræðismaðurinn sagði við DV í morgun að 800 dollar- ar væru einnig á leiðinni fyrir annan mann í hópnum og að sú upphæð ætti að duga til að greiða það sem eftir er af hótelskuld þremenning- anna. SAS í Bangkok er nú í viðræð- um við SAS í Reykjavík um að setja aftur í gildi farmiða þess manns sem fær fjárhagsaðstoðina frá Akureyri. Flugfélagið hefur ekki viljað setja aftur í gildi þann farmiða sem greidd- ur var með innstæðulausri ávísun úr stolnu tékkhefti. Ræðismaðurinn sagði að því ætti eftir aö leysa farmiðavandamál hinna tveggja mannanna. Hann sagði að 200 þúsund krónur vantaði upp á til að hægt væri að senda mennina til íslands aftur. Sjá nánar bls.2. -ÓTT um heiðum Fært er á flesta staði á landinu samkvæmt upplýsingum sem feng- ust hjá Vegaeftirlitinu í morgun. Þó, er hálka á flestum heiðum landsins og ennfremur á fjallvegum á Austur- landi. Verið er að moka Steingríms- fjarðarheiði og ætti hún að vera orð- infærfyrirhádegi. -GRS Flugsamgöngur: ÓfaerttilEyja og ísafjarðar Ófært var til Vestmannaeyja og ísa- fjarðar í morgun þegar DV hafði samband við Flugleiðir. Flogið var til Akureyrar klukkan átta og ágæt- lega leit út með flug til Egilsstaöa. Áætlun íslandsflugs átti að hefjast rétt fyrir tíu og leit vel út með flug til Bíldudals en engar fregnir var að hafa um flug til Flateyrar. -GRS LOKI Leggjum Svíana! Islendingar hafa nauma forystu gegnSvfum - Pólverjar yfir gegn Brasilíumönnum Berglind Oddgeirsdóttir, DV, Yokohama: í þriðju lotunni, hafa skorað 42 impa gegn 30 i þriðju lotu. Staðan Leikur íslands og Sviþjóðar var í i leik þeirra er þegar þessar línur jafnvægi í morgun þegar 48 spilum eru ritaðar er 128 gegn 81. af 96 er lokið. Staðan í undanúr- Jón Baldursson-Aðalsteinn Jörg- slitaleik þjóðanna er þannig að ensen og Guömundur Páll Arnar- Sviar hafa skorað 74 impa en ís- son-Þorlákur Jónsson voru inni á lendingar 91. Fyrsta lota fór 25-40 í tveiraur fyrstu lotunum gegn fyrirSvíanaenlslendingarjöfnuðu Svíum. í fyrstu lotunni munaði metin í annarri lotu með 38-24. mest um tvær slemmur sem Þriðja lotan af 6 fór 28-10 fyrír ís- Svíarnlr náðu í leiknum, en íslend- land. ingar misstu af. Það voru samtals Pyrsta lotan í hinum úrslitaieikn- 24 impar. um var jöfn, Pólverjar skoruðu 35 í fyrstu 16 spilunum stóðu sam- impa gegn 32, en i annarri lotu tals 4 slemmur á spilin. í annarri bættu Pólverjar við og skoruðu lotunni græddu Islendingar 28 51-19. Pólverjar eru að bæta við sig impa á tveimur spilum. Svíarnir lentu fyrir misskilning í fimm gröndum, þegar 5 tíglar standa á hendurnar. Fimm gröndfór 5 niður þegar vörnin tók 7 fyrstu slagina, 6 slagi á lauf og spaðaás. í spili 14 voru spiluð 5 hjörtu dobluð á báð- um borðum. Þorlákur Jónsson spilaði út trompi í upphafl sem var nauðsynlegt til að hnekkja spilinú en Svíinn spilaði út spaðaás sem gaf spilið. Leik liðanna lýkur á morgun en úrslitaleikurinn um heimsmeist- aratitilinn hefst á miðvikudag og lýkur á fóstudag. Ef íslendingar vimia sigur gegn Svíum stefnir allt í að þeir spili gegn Pólverjum. -ÍS Pörin, sem lentu í þremur efstu sætunum í 80 ára afmælismóti DV í bridge um helgina, voru að vonum ánægð með árangurinn. Lengst til vinstri eru sigurvegararnir Sveinn Rúnar Eiríksson - Svavar Björnsson, i miðið er parið í þriðja sæti, Bragi Hauksson - Sigtryggur Sigurðsson, og lengst til hægri Hrólfur Hjaltason - Sigurður Vilhjálms- son sem höfnuðu í öðru sæti. Sjá nánar um úrslit mótsins á blaðsíðu 4. DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Hvasstog slydda fyrir norðan Á morgun verður hvassviðri eða stormur um norðan- og norð- austanvert landið með slyddu eða rigningu. Mun hægara verður sunnan- og suðvestanlands og þar víða bjartviðri. j Líkamsárás Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri: Tveir ungir menn af höfuðborgar- svæðinu réðust á Akureyring nærri slökkvistöðinni á Akureyri aðfara- nótt laugardags og heimtuðu af hon- um peninga. Heimamaðurinn kvaðst ekki hafa neitt shkt á sér en því undu hinir illa og réðust að manninum. Þegar hann hafði komist undan þeim og gat kært atburðinn var nef hans mjög bólgið, gleraugu brotin og eitthvað fleira var úr lagi gengið. Árásar- mennirnir voru handteknir skömmu síðar og fengu ókeypis gistingu í höf- uðstað Norðurlands á kostnað ríkis- ins. Þingeyri 1 morgun: Slasaðist alvar- lega í bílveltu Alvarlegt slys varð skammt fyrir utan Þingeyri þegar bíll með tveimur ungum mönnum valt út fyrir veg um klukkan hálfátta í morgun. Annar mannanna missti meövitund og slas- aöist talsvert þegar hann kastaðist út úr bifreiðinni. Hinn, sem talinn er hafa verið ölv- aður, slasaðist minna og tókst hon- um að ganga af stað og leita hjálpar hjá björgunarsveit á staönum. Sjúkrabifreið fór á slysstað til að ná í félaga mannsins. Leita þurfti að hinum slasaða en hann fannst síðan skammt frá bílnum. Maðurinn var fluttur í sjúkraskýlið á Þingeyri. Læknir frá Flateyri var ræstur út til að gera að meiðslum mannsins. Ekki var fullljóst í morgun hve al- varleg meiðsl hans voru. Bifreiðin var talin gjörónýt eftir veltuna. Þegar DV fór í prentun í morgun voru lögreglumenn frá ísaflrði „að berjast" við að komast yfir Breiöa- dalsheiðina og yfir til Þingeyrar, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni. -ÓTT Sterkasti maður heims: Magnús Ver vann Magnús Ver Magnússon sigraði í keppninni Sterkasti maður heims, sem lauk á Tenerife á Kanaríeyjum í gær. Magnús Ver hafði talsverða yfirburði og munaði 10 stigum á hon- um og næsta keppanda sem er Dani. Titillinn sterkasti maður heims verð- ur því áfram í höndunum á íslensk- um kraftajötnum. -ns VAKTÞJÓNUSTA Oryggisverðir um alla borg... ...allan sólarhringinn Vönduð og viðurkenna þjonusta 0 © 91-29399 Allan sólarhringinn ¥ARI Öryggisþjónusta síðan 1969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.