Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 6
6' MÁNUÐAGUR 1'4.' OKTÓBER '1991. Fréttir_______________________________________________ Stórfundur EFTA og EB í Lúxemborg: Ráðherrar munu f unda sinn í hverju herberginu - viðræðumar í skeytaformi á milli fundarsala Eftir viku veröur gerð lokatilraun- in í Lúxemborg til að ná samkomu- lagi í samningaviðræðum EFTA og Evrópubandalagsins um evrópskt efnahagssvæði. Mjög tvísýnt er um samkomulag. Fundurinn í Lúxemborg verður sameiginlegur fundur utanríkisráð- herra EFTA og Efnahagsbandalags- ins. Opinberlega kallast hann sam- eiginlegur en í praxís veröa ráðherr- ar EFTA í einum fundarsal og ráð- herrar Evrópubandalagsins í öðrum. Tillögur, sem ganga á milli, verða skriflegar, í eins konar skeytastíl. Þetta er gert til að sagan endurtaki sig ekki frá fundinum í Lúxemborg í júm þegar aðeins nokkrar klukku- stundir liðu frá lokum fundarins þar til menn voru farnir að rífast um niðurstöðu hans, sem var munnleg. Nú skulu orð vera skrifleg og standa. Finnar og Hollendingar verða saman í lokuðum sal Jafnframt er líklegt að Finnar, sem hafa formennsku EFTA-ríkja, og Hollendingar, formennskuþjóðin í Evrópubandalaginu, fundi sérstak- lega. Jafnvel að þær komist að sam- komulagi sem þær síðan bera undir samstarfsþjóðir sínar. íslendingar og Portúgalar gætu blandast inn í þessar viðræður. ís- lendingar gegna varformennsku í EFTA og Portúgalar í Evrópubanda- Peningamarkaður INNLÁIMSVEXTIR (%) hæst innlAn ÚVERÐTRYGGÐ Sparisjóðsbækur óbundnar 4-7 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 5,5-6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaöa uppsögn 6,5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki ViSITÖLUBUNONIR REIKNINGAR 6 mánaöa uppsögn 3-3,75 Sparisjóðirnir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-11 Landsbanki SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantímabils) Visitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör 15-16 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst OTLAN ÓVERÐTRYGGÐ - Almennir víxlar (forvextir) 17,5-21 Sparisjóðirnir Viðskiptavíxlar (fQrvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 18-22 Sparisjóðirnir Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 21 -24 Sparisjóðirnir ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ » ■■■.■. Skuldabréf 9,75 10,25 Búnaðarbanki AFURÐALÁN Islenskar krónur 17,5-21,25 Sparisjóðirnir SDR 9-9,5 Islandsbanki, Landsbanki Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-1 2,75 Landsbanki Þýsk mörk 11 Allir Húsnœöislán 4,9 Lifeyrissjóöslán 5 9 Dráttarvextir 30,0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabróf september 21,6 Verðtryggð lán septembcr 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala október 3194 stig Lánskjaravísitala september 3185 stig Byggingavísitala október 598 stig Byggingavísitala október 1^7 stig Framfærsluvísitala september 1 58,1 stig Húsaleiguvísitala 1,9% hækkun 1. október VERÐBRÉFASJÓDIR HLUTABRÉF Gengi bréfa verðbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 5,955 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Einingabréf 2 3,180 Ármannsfell hf. 2,33 2,45 Einingabréf 3 3,910 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabréf 1,986 Flugleiöir 2,05 2,25 Kjarabréf 5,579 Hampiðjan 1,80 1,90 Markbréf 2,992 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,116 Hlutabréfasjóður VlB 1,01 1,06 Skyndibréf 1,734 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1,72 Sjóðsbréf 1 2,853 Islandsbanki hf. 1,66 1,74 Sjóðsbréf 2 1,932 Eignfél. Alþýöub. 1,68 1,76 Sjóðsbréf 3 1,973 Eignfél. Iðnaðarb. 2,45 2,55 Sjóðsbréf 4 1,729 Eignfél. Verslb. 1,75 1,83 Sjóðsbréf 5 1,179 Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0106 Olíufélagið hf. 5,10 5,40 Valbréf 1,8849 Olls 2,05 2,15 islandsbréf 1,244 Skeljungur hf. 5,65 5,95 Fjórðungsbréf 1,129 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbréf 1,241 Sæplast 7,33 7,65 öndvegisbréf 1,223 Tollvörugeymslan hf. 1,04 * 1,09 Sýslubréf 1,261 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,209 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17 Auölindarbréf 1,03 1,08 islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 laginu. Ekki er ólíklegt að þessar tvær þjóðir sitji líka fund Hollend- inga og Finna. Gagnslitlar viðræður undanfarnar vikur Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif- stofustjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að mjög erfitt sé að meta stöð- una og líkur á samkomulagi á fund- inum í Lúxemborg. Þær viðræöur sem átt hafa sér staða á milli aðal- samningamanna að undanfórnu hafi verið gagnslitlar og borið merki þess að samningamenn hafi ekki haft umboð til að semja. Hann segir að þetta hafi því meira verið þreifingar að undanfórnu um einstök mál og hvernig menn væru stemmdir fyrir þeim. „í næstu viku munu embættismenn halda áfram að ræða saman og kanna nánar hvernig samkomulagið gæti orðið í framkvæmd og litið út. Hið eiginlega pólitíska samþykki og hvaða mögu- leikar eru í dæminu skýrist ekki fyrr en á fundinum í Lúxemborg." Samkomulag um Alpana Að mati Gunnars er núna meiri bjartsýni ríkjandi um að samkomu- lag varðandi samgöngur og flutn- ingastarfsemi Evrópubandalagsins um Alpana, ríki Sviss og Austurrík- is. Þetta hefur verið einn helsti ásteytingarsteinninn í viðræðunum og um hann hefur verið hávaðarifr- ildi á milli bandalaganna tveggja. Um fiskinn segir Gunnar að Evr- ópubandalagiö hafi gengið svo langt í yfirlýsingum um að gefa ekki eftir fríverslun á öllum fiski og því séu menn svartsýnir á að deilan um fisk- inn leysist á fundinum. Full fríverslun á fisk frá EFTA mun tæplega nást „Bandalagiö hefur lagt þunga áherslu á að full fríverslun geti ekki orðið varðandi tegundir eins og lax, makríl og síld, tegundir sem banda- lagið hefur talað mest um. Ég held að varöandi þær fáist í hæsta lagi einhveijir tollkvótar." Loks má geta þess að Evrópu- bandalagið er tilbúið til viðræðna viö EFTA-ríkin eftir fundinn í Lúxem- borg um frekari útfærslu á sam- komulagi sem þar næðist. Hins vegar liggur fyrir að EFTA-ríkin eru að tapa á tíma í samningunum og fund- urinn í Lúxemborg er lokapunktur- inn, ætli þær að koma samkomulag- inu í gegnum þjóðþing sín svo það geti tekið gildi 1. janúar 1993. -JGH Valdís Ólafsdóttir og Gunngeir Friðriksson ganga út úr Fríkirkjunni á laugar daginn þar sem þau voru gefin saman. DV-mynd BC Valdís og Gunngeir giftu sig í Fríkirkjunni Valdís Ólafsdóttir og Gunngeir Friðriksson, sem lesendur DV kann- ast orðið vel við, giftu sig á laugar- daginn í Fríkirkjunni. Það var séra Valgeir Ástráðsson sem gaf þau sam- an. Eftir giftinguna var borðað með nánustu ættingjum í heimahúsi og nóttinni eytt í svítu á Hótel Loftleið- um. Eins og kunnugt er fengu þau fyrstu brúðargjöfina frá DV og var um að ræða 250.000 kr. til að kaupa hluti fyrir gegnum smáauglýsingar DV. í kjölfarið fylgdu fleiri gjafir, meðal annars frystikista og málning á íbúðina þeirra sem Shppstöðin í Reykjavík gaf þeim. Þá gáfu Flugleið- ir þeim brúðkaupsferð til Amster- dam og verður farið í hana 25. októb- er og dvalið í fjórar nætur á lúxus- hóteli. í spjalli við DV sagði Gunngeir að tíminn frá því þau fengu kvartmillj- ónina hefði verið hreint ótrúlegur og í raun hefði umstangið verið miklu meira en hann hefði búist við. Gunn- geir kvað þau hafa ætlað að flytja í íbúð sína á Ljósvallagötu 30 strax á brúkaupsdaginn en þar sem ekki var alveg búið að standsetja hana seink- ar flutningnum í nokkra daga. Aðspurður hvort þeim hefði þótt óþægilegt að vera jafnmikið í sviðs- ljósinu og raunin varð á sagði Gunn- geir að hann hefði varla tekið eftir því. „Það var svo mikið að gerast hjá okkur þetta tímabil. Ég hafði þó að- eins áhyggjur af þessu í byijun, aðal- lega hvernig vinir og kunningjar tækju þessu en það var óþarfi, allir tóku þess vel og höfðu gaman af. Það var meira gert úr þessu heldur en við bjuggumst við. Áuglýsingar í út- varpi og á plagötum í strætóskýlum komu manni á óvart en í heild var þetta allt saman mjög ánægjulegt. -HK Sandkom dv Klukknatuminn l.'indsmenn b.afacitmasi nýjan útvarps- stjóra.séra. Heimi Sicins- son,semtók viðembætti fyriruokkrum doí'um Viðþað i tækifæri sagði presturinn og útvarpsstjórinn meðai annars: „Ríkisútvarpið er sú íslands- klukka sem „kallar oss heim til sín" frá ystu eyjum og efstu dölum og h vaðanæva þar á milli. Undanfarin ár hefur klukkan mikla eignast dæt- ur, sumar ungar en bráðgjörvar, rás 2 og landshlutastöðvamar. Sjónvai-p- ið er elsta dóttirin, full vaxta nú og ber bj arta my nd og sty rkan róm inn á islensk heimili upp til hópa. Þannig er íslandsklukka Ríkisútvarpsins orðínaðkiukknaturni.. .“-Vérbíð- um þess i oíVæni að útvarpsstjórinn ávarpi oss um áramótin. Áfengis- varnanefhd Ákureyrarbæj-; ar, sem hfjóm- listarmaðurinn IngimarEydal stýrir afmikl- ■;; > um myndar- skap, var að iúndaádögun- um og afgreiddi á þeim fundi nokkrar umsóknir um vínveitingaleyfi. Af- greiðsla nefndarinnar var, ,hefð- bundin" þannigað „nefndin mælir ekkí gegn veitingu ieyfisins", eins og venjan er að orða það. í 5. lið fundar- geröar nefndarinnar vekur ritari hennar hins vegar athy gli á því að fjárfesta þurfi í fundargerðabók. Sú gamia sé oröin útskrifuð enda hafi allar túhdargerðir nefndarinnar síð- an 30. apríl 1948 vériö skrifaðár i bók- ina. Ingimar Eydal lagðí til á fúndin- um að ritari annaðist innkaup á nýrri bók og mælti enginn á móti því. Þau stórtíðindi hafa því gerst að Áfengis- varnanefnd Akureyrar hefur eignast nýja fundargerðabók. púkó Xnímrtahinu injábapp drættiHáskóla íslands, ..IlapixV. hefur fariðfyrir brjóstiðá mörgum. : GunnarBerg. semgetúrúr Gagn og gaman á Akureyri, segir í blaði sínu að sig minni að kennarar sínir hafi lagt á það ríka áherslu hversuorðin„gaggó“, „strætó“, „sveitó“, „púkó“ ogfleirií þeímdúr væruslæm íslenska en nú gangi Há- skóli íslands í fararbroddi, ,ó-menn- ingarinnar" þá hún haldi innreið sína ‘ áný. VísteraðGunnarBergerekki einn um þá skoðun að það sæmi varla æðstu menntastofnun landsins að auglýsa happdrætti sitt á þennan hátt, enda finnst mörgum nafnið „Happó“ veraansi „púkó" þegarþað kemur frá þeírri stofhun. Happó er Að afla sér virðingar ...“ ~.... Þaðerárviss aihurourþi'gar störfum Al- þiiuiiseiiiö liuka jðleggm þarfnúttvið ; dagtújxissað hægtséttðaf- greiðaþaumál semnauösyn- legt er talið aö afgreíða. Viö þau tæki- færi hugsa menn gjaman til þess h vort þíngið liefði ekki getáð nýtt tíma sinn betur svo ekki þurfi að koraa til „maraþonfundanna" i þing- lok. Þetta rifiast upp nú vegrta þess að stjórnarandstaðan á Áiþíngi hélt uppi málþófi þegar kjósa átti í út- varpsráð nú í vikunni. Talsmenn minnihluta þingmanna vildu sem sagt fá úr þ ví skorið h vort þeir sem kj ósa átti í ráðið hefðu traust menntamálaráðherra til starfans. Þar sem menntamálaráöherra var ekkí á landinu og er ekki væntanleg- ur fyrr en eftir tvær vikur vildu þeir fá afgreiðslu frestað, og þeir höfðu sittfram. Það er spuminghvort málatiibúnaöur af þessu tagi er tii þess að auka á viröingu Alþingis. Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.