Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 1991. Útlönd DóMozartúr eitrun? Breskur læknir skýröi frá þvi á laugardag að Mozart hefði hugs- anlega dáið vegna eituráhrifa frá kvikasilfri og antímoni sem læknar gáfu honum við depurð og hita. Dr. Ian James sagði á fundi lækna í London að tónskáldið heföi að því er virtist dáið úr lungnabólgu og nýrnabilun og læknar hefðu líklega geflð bonum kvikasilfur og antímon. Núer viðurkennt að kvikasilfur er eitur fyrir nýrun. Og á tímum Mozarts var antímon oft blandað arseniki. Menn hafa löngum velt vöngum yfir dauða Mozarts og ein kenn- ing er sú að Salieri, keppinautur hans, hafl eitrað fyrir hann. Löggur í maga- minnkun Lögregluþjónar á Filippseyjum, sem eru með ummálsmeiri maga en brjóstkassa, verða sendir í endurhæflngu og þeir sem svindia á málinu verða reknir. Cesar Nazareno, lögreglustjóri eyjanna, sagði í gær aö hafist yrði handa að mæla magaummálið strax í næstu viku. Mælingarnar eru liöur í agaherferð lögreglu- stjórans. „Ef magi lögregluþjónanna verður enn ummálsmeirí en brjóstkassinn eftir sex mánuði verður gengiö fram hjá þeim við stöðuhækkanir og þeir verða sendir í endurhæfingu til að leið- rétta máiin,“ sagði hann. Lofarfleiri konum Frambjóðandi í þingkosning- unum á Tyrklandi hefur lofað því að karlmenn fái að kvænast fleiri en einni konu ef þeir greiði hon- um atkvæði sitt. „Við munum binda enda á ein- kvæni og breyta lögunum til að heimila íjölkvæni," sagði Ibra- him Halil Celik, frambjóðandi Velferðarflokksins. Kosningarn- arfarafram20.október. Reuter (NintendoQ SJÓNVMPSLEIKTÆKIÐ SEM SLÆR ALLT í GEGN 9.950,- stgr. (NintendoQ BLAÐIÐ 250 kr. B Afborgunarskilmálar [g) VÖNDUÐ VERSLUN Kynferðisleg áreitni dómaraefnisins enn 1 sviðsljósinu: Fjögur vitni styðja Anitu Fjórar manneskjur, sem þekkja Anitu Hill, fyrrum aðstoðarkonu Clarence Thomas, hæstaréttardóm- araefnis í Bandaríkjunum, sögðu í gær að hún hefði sagt þeim að dóm- arinn hefði áreitt hana kynferðislega þegar þau unnu saman fyrir einum áratug. „Hún sagði mér að yfirmaður hennar sýndi henni kýnferðislega áreitni. Sá yfirmaður var Clarence Thomas,“ sagði Susan Hoerchner í vitnaleiðslum fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins. Þar lýsti hún símtali frá Hill skömmu eftir aö hún varð aðstoðarkona Thomas árið 1981. „Anita sagði að Clarence Thomas hefði hvaö eftir annað boöið henni út. Hún sagði mér að hún hefði að sjálfsögðu hafnað því. Hún sagði að hann vildi ekki taka afsvar hennar gott og gilt,“ sagði Hoerchner sem er dómari í Kalifomíu. Framburður þriggja annarra vitna, þeirra Joels Pauls, Ellen Wells og Johns Carrs, var á sömu lund. Thomas hefur mótmælt þessum ásökunum harðlega og kallar vitna- leiðslumar í öldungadeildinni „há- tækniaftöku". Anita Hill gekkst undir lygamæhs- próf í gær og þar kom ekkert fram Susan Hoerchner, dómari og vinkona Anitu Hill, sagði fyrir öldungadeild bandaríska þingsins í gær að Hill hefði kvartað undan kynferðislegri áreitni Clarence Thomas dómaraefnis fyrir tíu árum. Simamynd Reuter sem benti til þess að hún væri að fram að næstum tvisvar sinnum segja ósatt. fleiri trúa orðum dómaraefnisins en I nýrri skoðanakönnun, sem gerð Anitu Hfll. Skoðanakönnimin var hefur verið í Bandaríkjunum, kemur gerðálaugardag. Reuter Biskupfjöl- þreifinn við f imm konur LoweU Mays, fyrram biskup í Wisconsin í Bandaríkjunum, hef- ur sagt af sér öllum embættum á vegum kirkju sinnar eftír aö fimm konur höfðu lagt fram kæru á hendur honum vegna kynferðislegrar áreitni. Maður- inn hafði áður sagt af sér biskups- embætti vegna aðdróttana í þessa sömu veru. Mays tilheyrir lútersk-evangel- ísku kirkjunni í Bandaríkjunum. Trúbræður hans ætluðu að ræða klögumálin á hendur honum en hann sagði af sér áður en til þess kom. Eftir sem áður á biskupinn fyrrverandi yfir höföi sér opin- bera dómsrannsókn vegna kæru kvennanna. Skip Columb- usar lögð upp ívesturferð Skip Columbusar eru farin frá Spáni i nýja Ameríkuferð. Símamynd Reuter Eftirlíkingar skipanna þriggja, sem sægarpurinn Columbus hafði með sér í fýrstu ferðinni til Ameríku, eru nú á leið vestur um haf ffá bænum Huelva á Spáni. Nú eru liðin 499 ár frá því að Columbus lagði upp í frægðárför sina. Áætlað er að skipin verði komin á leiðarenda á næsta ári þegar þess verður minnst aö fimm aldir eru frá fundi Amer- íku. Þá er ferð Leifs heppna að sjálfsögðu ekki talin með. Skipin voru kvödd með mikilli viðhöfn þegar þau lögðu upp. Tuttugu og einu fallbyssuskoti var hleypt af. Leiðangursstjóri er maður að nafni Santiago Bolivar og segist hann þess fullviss að skipin komist heil á leiöarenda. Dularfull morðálög- regluþjónum Lögreglan í Hanover í Þýska- landi óttast að tveir menn úr lög- regluliði hennar hafi verið myrtir af félögum í áður ókunnum sam- tökum. Lögreglumennirnir voru kallaðir út til aö sinna klögumáli nú um helgina en síðan hefur ekkert til þeirra spurst. Bifreið þeirra fannst brunmnn til ösku en áður hafði sjáanlega verið skotið á hana. Þá hefur fundist blóð úr mönnum á staðn- um. Lögreglunni hefur borist til- kynning frá samtökum, sem kalla sig Baráttusamtök fyrir upplausn lögregluríkisins, um að þau beri ábyrgð á dauða mannanna. í tilkynningunni sagði að líkun- um heföi verið hent í mýri ekki fjani morðstaðnura en þau hafa ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit. Lögreglan veit ekki til aö samtökin hafi áður látið til sín taka og er ekki viss um hvort þau eruyfirleitttil. Reuter Díana prisessa heimsækir eyðnisjúka á breskum sjúkrahúsum reglulega. Hér ræðir hún við Sally Miles, 26 ára gamla konu sem á skammt ólifað vegna sjúkdómsins. Símamynd Reuter Hóta Díonu vegna átaks gegn eyðni - Bretar vilja ekki að verðandi drottning umgangist eyðnisjúka Blöð í Englandi hafa greint frá því að Díana prinsessa fái reglulega hot- unarbréf vegna samúðarinnar sem hún sýnir eyönisjúklingum. í kon- ungshöllinni fást þó engar upplýs- ingar um þetta en taliö er aö prins- essunni hafi verið hótað illu, jafnvel lífláti, hætti hún ekki að heimsækja eyðnisjúklinga. Díana hefur nú um nokkurra ára skeið farið reglulega á sjúkrahús þar sem eyðnisjúkir bíða dauðans. Hún hefur einnig stutt átak gegn út- breiðslu eyðni á Bretlandseyjum dyggilega. Þessi áhugi hennar á sjúk- dómnum hefur alltaf sætt mikilli gagnrýni meðal Breta, enda telja fjöl- margir þeirra að það sæmi ekki prinsessu og verðandi Bretadrottn- ingu að umgangast fólk sem liggur fyrir dauðanum vegna kynsjúkdóms. Þá hefur það einnig þótt ámælis- vert að Díana hefur jafnvel valið sér vini úr hópi eyðnisjúklinga. Sumir telja að stöðugar heimsóknir til sjúklinganna geti leitt til þess að prinsessan smitist sjálf. Þykir Bret- um illt til þess að vita ef verðandi drottning þeirra smitast af eyðni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.