Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 1991. Spumingin Kaupir þú heimsenda happdrættismiða? Sigurpáll Sigurðsson nemi: Nei. Birgir Þorsteinsson smiður: Helst ekki. Mér finnst vera of mikið af þessu. Auður Kolbeinsdóttir sölukona: Nei, ég vinn aldrei. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir kaupm.: Já, stundum. Sérstaklega ef það er líknarstarfsemi. Jóhanna Jóhannsdóttir verslunar- eig.: Nei, ég hef bara ekki vanið mig á þaö. Hörður Arilíusson nemi: Nei, aldrei. Ég vil fá að velja sjálfur. Lesendur „Þess vil ég geta hér aö samstarf það sem ég hef átt sem SVFÍ félagi við LHS hefur allajafnan verið gott.“ Neyðarkall Hákon Aðalsteinsson, Egilsstöðum, skrifar: í DV þann 8. október sl. rak ég augun í grein sem Guðbrandur Þorkell Guð- brandsson skrifar. Mér fmnst þessi grein mjög undarleg og skil ekki í hvað tilgangi hún er skrifuð. Senni- lega má virða Guðbrandi það til vor- kunnar að hann hefur ekki fylgst með störfum slysavarnafólks und- anfarin ár og veit því ekki um þær viðræður sem farið hafa fram á milli SVFÍ, LFBS og LHS á þessum tíma Það væri að bera í bakkafullan lækinn að fara að rekja þá þróun einu sinni enn en þrátt fyrir miklar viðræður varð ekki af sameiningu og því miður hafa forsvarsmenn SVFÍ ekki fengið skýringu á því enn- þá hvers vegna LHS og LFBS treysti sér ekki til samstarfs. Vera má að þegar LFBS og LHS báru saman fé- lagafjölda og fjárhagsstöðu sína og SVFI þá hafi þeir óttast að þeirra deildir yrðu ekki nægilega áberandi og valdahlutfoll innan þeirra vé- banda mundu skerðast og lái þeim hver sem vill. Hins vegar er enginn að segja að þaö sé hið rétta að sam- eina þessi félög. Samkeppni á alltaf rétt á sér því hún hefur hvetjandi áhrif á alla starfsemi. Þess vil ég geta hér að samstarf það sem ég hef átt sem SVFÍ-félagi við LHS hefur alla- jafnan verið gott og þegar til útkalls hefur komið hafa þessar björgunar- sve.tir unniö sem einn maður og það er aðalatriðið. Ég ætla þess vegna að vona að raddir friðarspilla verði þagðar í hel í fæðingu því nú þegar er komið nóg af svo góðu. Eitt er ég þó óánægður með í yfir- lýsingum Landsbjargarmanna en þaö er undirtitill samtakanna. Leik- maður gæti haldið að Landsbjörg væri flestar björgunarsveitir lands- ins en svo er ekki, aðeins um 30% björgunarsveita er í Landsbjörg, hin- ar tilheyra SVFÍ. Innan Landsbjargar eru mjög vel þjálfaðar björgunarsveitir sem þurfa ekki að láta auglýsa sig upp með því að láta almenning halda að þær séu í röðum SVFÍ. Þær geta örugglega staöið einar undir sínu merki. Eins finnst mér ósmekklegt þetta neyðar- kall og mér liggur við að segja hótan- ir frá Guðbrandi að Landsbjörg muni ekki geta þrifist nema björgunarsveit- ir SVFÍ gangi til samstarfs við hana. Anna og útlitið H.K. hringdi: Ég vil fyrir hönd nokkurra kvenna norður á landi, sem eru saman í saumklúbb, koma því á framfæri við Rás tvö að við teljum að þátturinn „Anna og útlitið" hafi mjög slæm áhrif á morgunþátt Eiríks Jónssonar. Þáttur Eiríks er að okkar mati mjög góður og viljum við helst ekki missa af honum en eftir að þessi Anna fór að koma með pistla sína í þáttinn um útlit fólks finnst okkur hann hafa hríöversnað. Hún tekur fyrir þekkt fólk úti í þjóðfélaginu, nefnir það með nafni og rífur síðan klæðaburð þess niður. Finnur því allt til foráttu en getur ekki einu sinni gert þetta á almenni- legri íslensku. Fyrir nokkru tók hún fyrir Rúnar hljómlistarmann og sagöi þá: „Hann er eins ósmartur og nokkuð getur verið". Við spyrjum: Hvað varðar okkur um það hvernig fólk klæðir sig? Hvaöa rétt hefur hún til að gagnrýna og níöa fólk á þennan hátt. Ef hún vill tala um klæðnað þá er hægðarleikur að tala almennt um hann án þess að nafngreina fólk. Við vinkonurnar fyrir norðan hvetjum Eirík til að hætta að koma með pistla þessarar konu en leyfa fólki frekar að heyra oftar í Guðrúnu Þóru matvælafræðingi. Ríkisstjómin: Skorið niður á röngum stöðum Sigurpáll hringdi: Ríkisstjórnin, með Davíð Oddsson í forsæti, mundar nú kutann og reynir að skera niður á sem flestum stöðum og er þá engu hlíft. Sjúkt fólk, hvort sem þaö þarf að leggjast á sjúkrahús eða taka inn lyf, og nemendur fá ekki síst að kenna á þessum aðgerð- um ríkisstjórnarinnar. Að mínu mati ættu þessir menn að líta sér aðeins nær þegar þeir bregöa hnífnum á loft. Þeir safna að sér að- stoðarfólki og er svo komið að nokkr- ir ráðherrar hafa feiri en einn og fleiri en tvo sér til hjálpar. Jón Bald- Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16 -eða skrifið ATH.: Nafn og sími verður að fylgja bréfum vin Hannibalsson utanríkismálaráð- herra réð nýlega Jakob Frímann Magnússon, sem einhvern menning- arfulltrúa í London og býr þar með til nýja stöðu sem þarf að dæla fé í. „Stöðugt eru að koma (ram í dags- Ijósið nýjar og nýjar kostnaðar- hækkanir bæði vegna ráðhússins og Perlunnar." Var niðurskurðarhnífurinn niðri í skúffu hjá Jóni þegar hann réð Jakob eða þarf bara að skera niöur sums staðar? Stöðugt eru að koma fram í dags- ljósið nýjar og nýjar kostnaðarhækk- ami bæði vegna ráðhússins og Perl- unnar, sem frekar hefði átt að kalla Auðkúlu. Forsætirráðherra ber því við að fyrstu tölurnar hafi bara verið skot út i loftið, því hafi kostnaðar- áætlunin ekki verið raunhæf. Hon- um virðist ekki þykja það neitt tiltök- mál þó kostnaður viö þessar tvær byggingar fari milljarða fram úr áætlun en kostnaður við sjúka ein- staklinga vex honum mjög í augum og leggur til, ásamt öðrum í ríkis- stjóminni, að sjúkrahúsum verði fækkað á landsbyggðinni. Ég viðurkenni að það er nauðsyn- legt að gera róttækar ráöstafanir í fjármálum ríkisins en núverandi rík- isstjómin ræðst á garðinn þar sem hann er lægstur og tel ég þaö alranga stefnu sem ekki mun leiða neitt nema slæmt af sér. Orðskrípiö „HAPPÓ“ Jón S, Þorleifsson hringdi: Mér fmnst það til mitóllar van- sæmdar fyrir Háskóla íslands að nota oröskrípið „Happó“ um hið nýja happdrætti sem er á vegum Happdrættis Háskóla íslands. Há- skólinn er og á aö vera musteri hinnar íslensku tungu og ég á erf- itt með að trúa því að ekki sé að finna betra orð fyrir slíkt happ- drætti en það sem nú hefur orðiö fyrir valinu. Á vegum Háskólans er starfandi málfarsnefhd og þar em menn meðal annars stöðugt að velta fyrir sér nýyrðum. Þvi spyr ég nú bara: Var ektó hægt að fá þessa menn til að finna ný- yrði sem hentar betur en þetta orðskrípi? Ég ætla rétt að vona að þeir fræðingar sem þar starfa hafi ekki verið með í ráöum þegar þetta orö var vaiið því þá fmnst mér fotóð í flest skjól. Rástvö F.H. hringdi: Mig langar að segja mitt álit á Rítósútvarpinu, rás tvö. Ég er mjög ánægð meö morgunþátt rás- ar tvö og þá menn sem þar eru við stómvölinn en það á ekki við um alla sem vinna að síðdegis- og kvölddagskrá rásarinnar. Mér finnst Stefán Jón Hafstein ekki sýna viðmælendum sínum nægi- lega mikla þolinmæði þegar hann er að tala við þá í Þjóðarsálinni. Það er eins og hann sé að keppast við að koma sem flestum'að í hverjum þætti og reynir eftir megni að slita samtölunum sem fyrst. En síðan er hann allan þátt- inn að auglýsa beint símanúmer þáttarins og hveija fólk til að hringja inn. Það þýðir ekkert að vera með svona opinn þátt, þar sem fólk er hvatt til að hringja, ef stjórnendur mega svo ekki vera að því að tala viö það. Eins get ég ekki sagt aö ég sé ánægð með Sigurður Pétur og þátt hans. Ég hef tvisvar sinnum reynt að fá senda afmæliskveðju en ég hef hitt eitthvað illa á hann því hann var hálfleiöinlegur við mig í símann og mátti ekkert vera að þvi að tala við mig. Átökin í Júgó- slavíu Júgóslavi hringdi: Mig langar að koma á framfæri þakklæti til Gunnars Eyþórsson- ar en ég tel aö grein, sem hann skrifaði i DV þann 4. október, hafi verið mjög góð og raunsæ. Greinin ber vott um að hann þektó nokkuð vel til þessara mála og er ég sammála flestu sem þar stendur. Aftur á móti er ég mjög ósam- mála grein sem Tryggvi Líndal skrifaði sem svar við grein Gunn- ars Eyþórssonar og birtist í DV 9. október sl. Hann leggur til að Júgóslavar útkljái sin mál með blóðsúthellingum. Að mínu mati koma blóðsúthellingar engum til góða. Ég skil ekki slíkan hugsuh- arliátt. Það hryggir mig aö þjóð min standi í slikum stríösátökum og vona að þeim limii sem allra fyrst. Óvirðing við krossinn J.S.Þ. hrrngdi: Ég vil koma því á framfæri að ég er mjög ósáttur við að presturinn í Grafarvogi er að grafa upp úr sér genginn raftnagnsstaur sem hann hyggst nota sem kross. Mér finnst þetta óviröing viö kross- martóð. Það á að raeöhöndla krossa og krossmarkið meö lotn- ingu og virðingu. Þessi rafmagns- staur, sem presturinn ætlar að fara aö nota sem kross, er einnig í állt öðrum hlutföllum en kross og þar af leiðandi er ektó hægt að nota þetta sem kross. Það er ósk mín að hætt verði við þetta áform.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.