Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Side 30
42 MÁNÚDÁGUR' 14. OKTÓBER 1991. Afmæli Anna Kristjánsdóttir Anna Kristjánsdóttir, prófessor viö KHÍ, Vesturgötu 34, Reykjavík, erfimmtugídag. Starfsferill Anna fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Skerjafirðinum. Hún lauk stúdentsprófi frá MR1961, prófi í uppeldisfræðum við HÍ1965, BA- prófi í stærðfræði og mannkynssögu við HÍ1967 og cand. pæd.-prófi í stærðfræði frá Danmarks Lærehoj- skole 1972. Anna hefur verið framkvæmda- stjóri Bandalags íslenskra skáta og kennari við Hagaskóla og MH. Hún var kennsluleiðbeinandi við kennslufræðideild Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur og námsstjóri í stærðfræði í menntamálaráöuneyti, skólarannsóknadeild, en stjómaði síðan endurskoðun menntamála- ráðuneytis á námsefni og kennslu- háttum í stærðfræði. Hún varð stundakennari við KHÍ1974 og var settur lektor í stærðfræði við skól- ann 1980, auk þess sem hún stjórn- aði um nokkurra ára skeið fræðslu um tölvunotkun í skólastarfi. Anna var skipuð prófessor við KHÍ1991. Anna hefur verið formaður Félags íslenskra rtámsmanna í Kaup- mannahöfn, Kennarafélags KHÍ, íbúasamtaka Vesturbæjar og er nú varaformaður Skýrslutæknifélags íslands. Hún hefur sinnt ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum fyrir Bandalag íslenskra skáta, Dagvistunarheimil- ið Krógasel, Skátasamband Reykja- víkur, Landssamband Félags kvenna í fræðslustörfum, Skýrslu- tæknifélag íslands, Skátafélagið Landnema, Hagþenki - félag höf- unda fræðirita og kennslugagna, íbúasamtök Vesturbæjar, mennta- málaráðuneyti, forsætisráðuneyti ogKHÍ. Anna hefur þýtt og skrifað náms- efni í stærðfræði allt frá 1968, ein eða í samvinnu við aðra. Hún stjórn- aði gerð námsefnisflokksins Stærð- fræði handa grunnskólum ásamt skrifum með öðrum höfundum auk þess sem hún hefur verið ráðgjafi eða stjórnandi við gerð nokkurra tuga annarra verka á sviöi stærð- fræðináms. Fjölskylda Eiginmaður Önnu er Arnlaugur Guðmundsson, f. 21.7.1945, raf- magnstæknifræðingur. Hann er sonur Halldóru Ólafsdóttur, f. 20.7. 1915, d. 12.10.1978, hjúkrunarkonu, og Guðmundar Arnlaugssonar, f. 1.9.1913,fyrrv. rektors við MH. Börn Önnu og Arnlaugs eru Hlíf Arnlaugsdóttir, f. 1.2.1972, háskóla- nemi; Guðmundur Arnlaugssonar, f. 15.10.1976; Skúli Arnlaugsson, f. 2.5.1980. Systkini Önnu eru Helga Kristj- ánsdóttir, f. 25.9.1929, kennari; Ása Kristjánsdóttir, f. 30.10.1931, hús- móðir; Sæbjörn Kristjánsson, f. 19.1. 1947, byggingatæknifræðingur. Foreldrar Önnu voru Kristján Helgi Kristjánsson, f. 18.3.1897, d. 22.10.1984, og Hlíf Magnúsdóttir, f. 3.8.1906, d. 24.8.1967, húsmóðir. Ætt Kristján Helgi var sonur Kristj- áns, skipstjóra, kennara í stýri- mannafræðum og b. í Meðaldal í Dýrafirði Andréssonar, b. í Meðal- dal, Halldórssonar. Móðir Kristjáns var Þórlaug Narfadóttir úr Dýra- firði. Móðir Kristjáns Helga var Helga Ingibjörg Bergsdóttir frá Fjallaskaga í Dýrafiröi. Móðir Helgu Ingibjargar var Elísabet Helgadóttir fráHofiíVatnsdal. Hlíf var dóttir Magnúsar, héraðs- læknis í Flatey, Sæbjörnssonar, b. á Anna Kristjánsdóttir. Hrafnkelsstöðum, Egilssonar. Móð- ir Magnúsar var Hólmfríður Jóns- dóttir, b. í Brekku í Fljótsdal, Jóns- sonar. Móðir Hlífar var Anna Sæ- björnsson (f. Nielsen), dóttir Niels Nielsen, smiðs í Holbæk á Sjálandi. Anna og Arnlaugur taka á móti gestum í AKOGES-salnum, Sigtúni 3, mánudaginn 14.10. klukkan 16.30-18.30. Ámi Jónsson Árni Jónsson vélvirkjameistari, Ásgarðsvegi 16 Húsavík, er níutíu áraidag. Starfsferill Árni fæddist að Fossi, Húsavík, og ólst upp á Húsavík. Hann rak Hafnarbúðina á Húsavík um árabil, og var einnig með heildsölu og verslanir á Akureyri. Árni var trúnaðarmaður verð- lagsstjóra fyrir svæðið Húsavík- Vopnaíjörður og síðar trúnaðar- maður Laxárvirkjunar 2. Þar haföi hann umsjón með öllum flutningum á því efni sem barst sjóleiðis til Húsavíkur, þ. á m. með vélum og byggingarefni. Einnig starfaði Árni viö vélgæslu hjá Kaupfélagi Þingeyinga um tíma og Fiskiðjusamlagi Húsavikur. Fjölskylda Árni var kvæntur Guðrúnu Stef- aníu Steingrímsdóttur, f. 21.2.1908, húsmóður sem nú er látin. Hún var dóttir Steingríms Hallgrímssonar, bónda og veiðimanns, og Kristínar Jónsdóttur. Árni átti fjögur alsystkini sem nú eruölllátin. Ingibjörg Jónsdóttir Ingibjörg Jónsdóttir kennari, Sól- vangi, Hafnarfirði, er níutíu ára í dag. Starfsferill Ingibjörg fæddist að Flögu í Vill- ingaholtshreppi í Árnessýslu en ólst uppíHafnarfirði. Hún lærðikarlmannafatasaum 1920-21 en lauk sVo kennaraprófi 1928. Frá 1928-1930 stóð Ingibjörg fyrir saumanámskeiðum í Hafnar- firði ogíReykjavík. 1930-1938 var hún svo stunda- kennari við St. Jósefsskóla í Hafnar- firði og kenndi svo handavinnu í gagnfræöiskólanum Flensborg frá 1944. Fjölskylda Ingibjörg giftist 1.6.1929 Bérgi Bjamasyni, f. 21.7.1894, d. 9.9.1988, bifreiðastjóra í Hafnarfirði. Hann er sonur Bjarna Bjamasonar, b. í Indriðakoti undir Eyjafjöllum og Ólafar Bergsdóttur. Böm þeirra Ingibjargar og Bergs eru: Jón, f. 30.10.1931, verkfræðing- ur, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Þórdísi Steinunni Sveinsdóttur, f. 25.5.1931, húsmóður og eiga þau þrjú börn; Örn, f. 13.6.1936, skipa- smíðameistari, búsettur í Hafnar- firði, kvæntur Svölu Jónsdóttur húsmóður og eiga þau fimm börn; og Ólafur Bjami, f. 18.10.1938, bif- reiðarstjóri, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Rögnu Þórsdóttur hús- móður og eiga þau fjögur börn. Ingibjörg átti ellefu systkini, sjö þeirra em látin. Systkinin em: Jón St., f. 23.6.1904, verkamaður, nú lát- inn; Oddgeir, f. 4.7.1905, iðnverka- maður í Reykjavík; Margrét, f. 17.8. 1906, nú látin; Gestur, f. 4.10.1907, skósmiður, nú látinn; Þorleifur, f. 6.1.1909, loftskeytamaður, nú lát- inn; Helgi, f. 18.5.1910, forstjóri, nú látinn; Kristjana, f. 28.10.1911, hús- móðir í Hafnarfirði; Margrét, f. 8.11. 1912, húsmóðir, Sólvangi Hafnar- firði; Hjalti, f. 12.12.1913, mjólkur- fræðingur í Danmörku; Ingólfur, f. 12.12.1913, verkamaður, nú látinn; og Einar, f. 26.10.1916, nú látinn. Foreldrar Ingibjargar vom Jón Þor- Ingibjörg Jónsdóttir. leifsson, f. 14.9.1879, d. 29.11.1954, kirkjugarðsvörður, og Guðlaug Oddsdóttir, f. 6.6.1877, d. 26.7.1953, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á Selvogsgötu í Hafnarfirði. Foreldrar Jóns voru Þorleifur Jónsson, b. í Vatnsholti 1 Flóa, og Guðlaug Oddsdóttir, f. 6.6.1877, d. 26.7.1953, dóttir Odds, b. í Minni- Mástungu í Gnúpveijahreppi, Odds- sonar. Til hamingju með afmælið 14. október 95 ára 60 ára Sæmundur Hallsson, Hvannabraut 5, Höfn í Hornafirði. Vigdis Ágústa Sigurðardóttir, Kleppsvegi 18, Reykjavík. Vigdís verður að heiman á afinæl- isdaginn. 90 ára Stefán Guðni Ásbjörnsson, Grettisgötu 50, Reykjavík. Árni Jónsson, Ásgarðsvegi 16, Húsavík. Ingibjörg Jónsdóttir, Holtsgötu 11, Hafiiarfirði. Sólborg Sigurðardóttir, Leifur Ásgrímsson, Dalseli 31, Reykjavík. Sverrir Gíslason, Laufskálum 5, Rangárvallahreppi. Digranesvegi 125, Kópavogi. 50ára Matthildur Jóhannsdóttir, Austurvegi 14, Þórshöfn. Þórhallur Ægir Hafliðason, , Sólvöllum 19, Akureyri. Anna Kristjánsdóttir, Vesturgötu 34, Reykjavík. 85 ára Ingibjörg Friðgeirsdóttir, Hofsstööum, Álftaneshreppi. Ingibjörg verður að heiman á af- mæhsdaginn. Magnús Snæbjörnsson, Syðri-Gmnd2, Grenivík. 40 ára . Árný Skúladóttir, Reynibergi 7, Hafnarfirði. Matthea Guðný Ólafsdóttir, Brúarflöt 9, Garðabæ. Magnús Guðmundsson, Heiðvangi 52, Hafnarfiröi. Eyjólfur Þór Kristjánssori, 75 ára Maria S. Magnúsdóttir, Hólmgarði54, Reykjavík. 70 ára Selsstöðum, Seyðisfirði. HrafnhiWur Hallgrimsdóttir, Tungu, Hörðudalshreppi. Sigurlaug Einarsdóttir, Klausturhvammi 4, Hafnarfirði. Elín Þórólfsdóttir, Fossvöllum 22, Húsavik. í ——— Sviðsljós Raggi syngur fjölmiólablús Ragnar Sigurjónsson, eða Raggi ljósmyndari og blúsáhugamaður á DV, stóð sig með afbrigðum vel um síðustu helgi sem fulltrúi DV í fjöl- miðlablúsnum vinsæla á Púlsin- um. Raggi syngur hér lagið „My baby’s gonna leave me,“ tregablandið blús- lag við góðar undirtektir áheyrenda. DV-mynd Einar Óli Fjölmiðlablúsinn gengur út á það að fjölmiðlamir sendi fulltrúa sinn á Púlsinn þar sem hann syngur með Blúsmönnum Andreu og skor- ar svo á kollega sinn á öðrum fjölm- iðli. Raggi var gestur þeirra síöasthð- ið fostudagskvöld og söng lögin „I feel alright" og „My baby’s gonna leave me“ af mikilli innlifun og við góðar undirtektir áheyrenda. Aðspurður hvort hann ætlaði að leggja þetta fyrir sig í framtíðinni sagðist Raggi, sem hefur reyndar aldrei áður komið fram opinber- lega, ekki vera viss. Raggi skoraði á Stöð 2 að senda sinn fulltrúa á næstu blúshelgi Púlsins, þann 11. og 12. október. Það ættu ekki að vera vandræði með að finna söngvara á þeim bæn- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.