Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1991, Qupperneq 32
> 44 T TT-rry "r ^^ MÁNUÐiAiGUR 44. OKTÓBER 19»U Meiming _______ Tómas í Töfraflautu Sýning íslensku óperunnar á Töfraflautunni eftir Wolfgang Amadeus Mozart hefur gengið með ágætum. Síðastliðið laugardagskvöld urðu þær breytingar að ungur bassasöngvari, Tómas Tómasson, tók við hlut- verki Sarastros af Viðari Gunnarssyni sem hefur sung- iö hlutverkið fram að þessu. Þá tók Garðar Cortes við hljómsveitarstjórn af Robin Stapleton. Gafst af þessum ástæðum ágætt tækifæri til að hlusta á þessa skemmti- legu sýningu aftur og athuga hvort nokkrar breyting- ar hefðu orðiö. Þess er fyrst að geta að Tómas Tómasson komst með mikilli prýði frá þessari eldskírn. Rödd hans er sérlega hljómfögur, textaframburður er skýr og túlkun hans tónelsk. Aðeins gætti óöryggis á stöku stað, t.d. á efra tónsviði en það mun hverfa með aukinni reynslu. Hér er ný stjarna á ferðinni. Svo hefur stundum virst sem Garðari Cortes, okkar frábæra söngvara, óperustjóra, söngskólastjóra m. m., sé ekkert ómögulegt þegar söngur og tónlist eru ann- ars vegar. Hann virðist nú hafa loksins hitt fyrir of- jarl sinn þar sem er tónsprotinn. Á reikning hljóm- sveitarstjórans skrifast frammistaða hljómsveitarinn- ar sem var slök þetta kvöld og mun lakari en frumsýn- ingarkvöldið. Þetta varð strax ljóst í forleiknum sem einkenndist af hrynrænni ónákvæmni og þyngsla- gangi, eins og menn hefðu ekki snerpu til að halda uppi hraðanum. Strengjaleikur og málmblástur var oft áberandi óhreinn og gerði þetta söngvurum stund- um erfitt fyrir. Vandkvæöin náðu hámarki í fúgunni frægu í síöari þætti er hljómsveitin varð að hætta í miðju kafi til að ná áttum. Meö þessu er í aðalatriðum upp talið það sem miður fór í þessari ágætu sýningu og margt var það sem nú naut sín betur en á frumsýningu. Má þar nefna frammistöðu Þorgeirs J. Andréssonar í hlutverki Tam- ínós. Honum leið greinilega mun betur í hlutverkinu Tónlist Finnur Torfi Stefánsson nú og kom það fram í afslappaðri leik og betri söng. Ólöf Kolbrún Haröardóttir kom líka betur út. Ólöf hefur flest það til brunns að bera sem prýða má eina söngkonu, fagra og þjálfaða rödd, leikhæfileika og persónulegt aðdráttarafl. Vandi hennar er of miklar raddsveiflur þegar sungið er á miklum styrk og vilja tónar þá verða ógreinilegir og renna saman. Á lægri styrkstigum syngur hún eins og engill. Því varð ekki við komið þegar ritað var um frumsýn- inguna á sínum tíma að ræða um sviðsmynd Unu Collins. Er hún mjög falleg auk þess sem hún þjónar sínu hlutverki vel miðað við þær þröngu aðstæður sem þarna ríkja. Hin gagnsæju tjöld korpa vel út og lita- heimurinn á vel við verkið. Snjallt smáatriði, sem hefur meiri áhrif en fyrst sýnistj eru dyrnar þrjár og breytingin sem gerð er á stellingu þeirra. Andlát Andrew Þorvaldsson, Hátúni 47, Reykjavík, andaðist 11. október. Pálína Guðmundsdóttir lést að heim- ili sínu, Lönguhlíð 3, Reykjavík, 12. október. Þórir Þorleifsson húsgagnabólstrari, Gerðhömrum 1, varð bráðkvaddur 10. október. Jarðarfarir Útför Ingibjargar E. Kristinsdóttur, Hlemmiskeiði, sem lést í Borgar- spítalanum 4. október, verður gerð frá Ólafsvallakirkju 15. október kl. 14. Sólveig Bjarnadóttir, áður að Smiðjustíg 11, verðúr jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 15. október kl. 15. Elfar Skarphéðinsson, Bústaðavegi 73, verður jarðsunginn frá Fríkirkj- unni, Reykjavík, í dag, 14. október kl. 13.30. Fundir Safnaðarfélag Ásprestakalls Fundur verður í félaginu þriðjudaginn 15. október kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Dagskrá: 1. Myndasýning frá sumarferð safnaðarfélagsins. 2. kaffiveitingar. Safn- aðarfélag Grafarvogssóknar kemur í heimsókn á furidinn. Fjölmennið og takið h með ykkur gesti. Kvenfélag Grensássóknar heldur fyrsta fund vetrarins í safnaðar- heimilinu mánudaginn 14. október kl. 20.30. Myndasýning. Mætum vel. Allar konur velkomnar. TilkynriirLgar Taflfélag Reykjavíkur í vetur mun Taflfélag Reykjavíkur standa fyrir öflugu unglingastarfi. Á hverjum laugardegi kl. 14 verða unglingaæfmgar fyrir 14 ára og yngri. Æfingum þessum verður skipt upp í tvo þætti, annars veg- ar skákskýringar og hins vegar skákmót. Einnig verða próf í endataflsþrautum fyrir þá sem vilja. Verðlaun verða veitt fyrir þijú efstu sætin í hverju móti. Allir eru velkomnir og aðgangur verður ókeypis. Haustmót unglinga hefst laugar- daginn 26. október kl. 14 og verður fram- haldið þann 2. nóvember og lýkur laugar- daginn 9. nóvember. Teíldar verða 9 umferðir (3 hvem laugardag). Umhugs- unartími er 40 mín. á mann. Vegleg verð- laun verða veitt fyrir 5 efstu sætin. Þátt- tökugjald er kr. 700. Skrifstofa Taflfélags- ins er opin alla morgna frá kl. 9-12 og mánudaga kl. 13-17. Félag eldri borgara Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17, bridge og frjáls spilamennska. Silfurlínan: Svar- að veröur í simann alla virka daga kl. 16-18, SÍmi 616262. Tímaritið Gangleri, síðara hefti 65. árgangs, er komið út. Það flytur greinar um andleg og heimspekileg mál og alls eru 16 greinar í þessu hefti, auk smáefnis. Helstu titlar í þessu hefti eru: Trúarhugmyndir sem sundra, Hvemig uppgötvum við sannleikann? Mannleg endurreisn, Á háu nótunum, Hlutverk geðlíkamans, Tilfmningar, Hvað er hugrækt? Orkusviö mannsins, Draumar, lækningar framtíðarinnar. Efnið er eftir innlenda og erlenda höf- unda. Gangleri er ávallt 96 bls. og kemur út tvisvar á ári. Áskriftagjald er kr. 1.200. Sími 39573 eftir kl. 17. Peningagjöf til Heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins Heimahlynningu Krabbameinsfélags ís- lands hefur borist peningagjöf til tækja- kaupa frá Lionsklúbbnum Eir. Heima- hlynning er þjónusta fyrir sjúklinga með krabbamein á lokastigi og aðstandendur þeirra og er bæði læknis- og hjúkmnar- þjónusta starfrækt allan sólarhringinn. Einnig er þeim seem em í lyfja- og/eða geislameðferð veittur stuðningur, ráðgjöf og eftirlit heima. Gjafir sem þessar em starfseminni mjög mikill styrkur og hvatning til áframhaldandi þróunar. All- ar upplýsingar um Heimahlynningu em veittar i síma 21122 kl. 9-12 alla virka daga. Ráðstefna um geðheilbrigðis- mál á Austurlandi Austurlandsdeiid Hjúkmnarfélags ís- lands gengst fyrir ráðstefnu um geðheil- brigðismál á Austurlandi. Markmiðið með ráðstefnunni er aö opna umræðu um geðheilbrigðismál í fjórðungnum og að greind veröi þörf geðverndar og vandi geðsjúkra og ættingja þeirra verði ljós- ari. Einnig að bent verði á úrræði og hvernig hægt verði að nálgast þau. Ráð- stefnan verður að Hótel Valaskjálf á Eg- ilsstöðum fóstudaginn 1. nóvember og hefst kl. 10. Nánari upplýsingar og skrán- ing þátttakenda er hjá Gunnhildi s. 71887, Ruth s. 71516, Sigrúnu s. 71395 og Liiju s. 71606. Happdrætti.Norðurlands- deildar SÁÁ Hinn 6. október sl. var dregið í happ- drætti Norðurlandsdeildar SAÁ. Eftirfar- andi númer hlutu vinning. 1. vinningur 300.000 kr. húsbúnaður frá Vömbæ kom á miða nr. 702, 2.-4. 100.000 kr. heimilis- tækjavinningar frá Káupfélagi Eyfirð- inga komu á miða nr. 3557, 3746 og 4959. 5.-8. 50,000 kr. heimilistækjavinningar frá Kaupfélagi Eyfirðinga komu á miða Myndgáta nr. 31, 6333, 6531 og 7020. 9.-18. 10.000 kr. matarkörfur frá Kaupfélagi Eyfirðinga komu á miða nr. 697, 899,1197, 2438, 2923, 3239, 3789, 4518, 4712, 7021. 19.-38. 5.000 kr. matarkörfur frá Kaupfélagi Eyfirð- inga komu á miða nr. 454, 733, 773, 1052, 2930,3790,4369,4705,4711,5205,5206,5709, 5718,5800,6189,6532,6997,7005,7006,7228. Vinninga má vitja á skrifstofu SÁÁ, Gler- árgötu 28, 2. hæð, sími 27611. Hjónáband Endurski í skam rr Þann 1. september vom gefm saman í hjónaband í Dómkirkjunni af séra Jakobi Hjálmarssyni, Elvur Rósa Sigurðardótt- ir og Smári örn Baldursson. Heunili þeirra er að Flyðmgranda 2. Ljósm. Sigr. Bachmann. Þann 17. ágúst vom gefin saman í hjona- band í Bústaðakirkju af séra Pálma Matt- híassyni Anna Garðarsdóttir og Þorkell Garðarsson. Heimih þeirra er að Orra- hólum 7. Ljósm. Jóhannes Long. Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Lausngátu nr. 153: Glasaböm Þann 17. ágúst vom gefin saman í hjóna- band í Bessastaöakirkju Ásta S. Guð- mundsdóttir og Tryggvi Þórir Egilsson. Heimili þeirra er að Víðimel 31, Reykja- vík. Ljósm. Gunnar Kristinn. Þann 24. ágúst vora gefin saman í hjóna- band í Garðakirkju af séra Pálma Matthí- assyni Gerður Jóelsdóttir og Davíð Björnsson. Heimili þeirra er að Kringl- unni 87, Reykjavík. Ljósm. Sigr. Bachmann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.