Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 1
Kringlan 17.-26. október:
Kynning á breskri
vöru og þjónustu
\
Aö kynningunni standa iönadar- og verslunarráóuneyti Bretlands, breska sendiráöiö og fyrirtæki í Kringlunni. DV-mynd Brynjar Gauti
Á morgun hefst í Kringlunni
viöamikil kynning á breskri vöru
og þjónustu sem stendur yflr til 26.
október. Að þessu standa iðnaðar-
og verslunarráöuneyti Bretlands,
breska sendiráöið og fyrirtæki í
Kringlunni.
Af þessu tilefni eru komnir til
landsiris nokkrir breskir skemmti-
kraftar sem munu verða með ýms-
ar uppákomur á næstu dögum. í
þeim hópi eru fjöllistarnaður og
tónlistarmaður og ekta breskur
götukallari. Leitað verður að
stúlku sem líkist mest Lísu í
Undralandi og settar verða upp
tvær sýningar.
Jarl og rit-
handarsérfræðingur
Ljósmyndaverk jarlsins af Lich-
field verða til sýnis en hann er
náfrændi Elísabetar Bretadrottn-
ingar og eru einmitt margar mynd-
anna af konungsfjölskyldunni.
Bresku konungsdjásnin, eða hluti
þeirra, verða til sýnis en þar er um
mjög nákvæmar eftirlíkingar að
ræða.
Sérstakur rithandarsérfræðing-
ur mætir til leiks og tvær furðuvél-
ar teiknars Rowlands Emett verða
settar upp. Þá má minna á að Há-
skólabíó ætlar aö sýna breskar
myndir í tilefni af þessari kynningu
sem ber reyndar yfirskriftina „í
þjónustu hennar hátignar".
Skemmtikraftar
og fatahönnuðir
Samkeppni verður á milli fyrir-
tækja í húsinu um bestu útstilling-
una og sérstakur spurningaleikur
verður fyrir þá sem leggja leiö sína
í Kringluna þessa daga. Skemmti-
kraftarnir, sem hingað eru komnir,
munu jafnframt heimsækja sjúkra-
hús, barnaheimili ,og skóla nokkra
morgna á meðan á dvöl þeirra
stendur.
Þá munu 8 kunnir breskir fata-
hönnuðir sýna framleiðslu sína og
verður boðið upp á margar tísku-
sýningar en frá sýningartímanum
er sagt annars staöar í blaðinu.
Þeim til aðstoðar við aö sýna fatn-
aðinn verður sýningarfólk frá Ice-
landic Models.
Sendiherrann og
götukallarinn
Formleg opnun á þessum viðburði
verður á morgun kl. 16 og hana
annast breski sendiherrann,
Patrick Wogan, en hann er einmitt
nýtekinn við þessu embætti. Einar
I. Halldórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar, mun þó fyrst flytja
ávarp en kynnir verður breski götu-
kallarinn Alfle Howard. Af þvi lo-
knu verður boðið upp á fyrstu tísku-
sýninguna af mörgum þar sem sýnd
verður áðurnefnd hönnun breskra
fatahönnuða. Hljómlistarílutningur
verður í höndum John Arnos en
hann er nokkurs konar eins manns
hljómsveit. Samlandi hans, the Mig-
hty Gareth, mun sýna galdra og
götukallarinn ætlar að færa borgar-
stjóranum sérstakt bréf.
L O F T B R U
Jylmlmrá^
i m ki i c a i i r\ .
VEGNA MIKILLAR SÖLU EDINBORGAR-
FERÐANNA OKKAR AUKUM
VIÐ NÚ SÆTAFRAMBOÐIÐ
makro
^EHEpassT
ALLA LAUGARDAGA OG ÞRIÐJUD.
í NÓVEMBER. 3, 4, OG 7 DAGA
Verð frá 22.832,-
• Fyrir utan skatta samt. 2.650,-
Beint leigufíug með
nýjum vélum Flugleiða
INNIF ALIÐ
Flug. gisting með
skoskum morgunverði,
íslensk fararstjórn,
flutninaur milli
flugvalíar og hótels í
Edinborg.
^KAUPAKORI
E'nkaumboð
atLANTIK
ATHUGIÐ!
ÖLL HÓTELIN OKKAR
ERU í MIÐBÆNUM
ÖtCMtK
FERÐASKRIFSTOFA, BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 679888