Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Síða 2
18
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
Breskir dagar
Elísabet Bretadrottning kallaði fyrst á Lichfield til myndatöku árið 1966 Lichfield var fenginn sérstaklega til að Ijósmynda brúðkaup Karls Bretaprins og lafði Díönu. A sýningunni eru
og allar götur síðan hefur hann tekið mikið fyrir hana. M.a. tók hann 6 myndir frá brúðkaupi Karls og Díönu og ennfremur fjölmargar aðrar myndir af breska kóngafólkinu.
myndir af silfurbrúðkaupi drottningarinnar og hertogans af Edinborg.
Ljósmyndasýning bresks aðalsmanns:
Patrick lichfield
Jarlinn af Lichfield eða ljósmynd-
arinn Patrick Lichíield eins og
hann er betur þekktur sýnir ljós-
myndaverk sín á breskum dögum.
Lichfield er þekktur ljósmyndari í
heimalandi sínu og þó víðar væri
leitað og ekki spillir fyrir að hann
er náskyldur Elísabetu Breta-
drottningu. í Kringlunni verða
sýnd 38 verk eftir þennan breska
aðalsmann og þar af 5 svart/hvítar
myndir. Ljósmyndirnar eru teknar
á árunum 1966-85 og eru flestar af
breska kóngafólkinu. Einnig eru
nokkrar myndir af þekktum leik-
urum og ennfremur ein mynd af
fyrirsætunni Önnu Björnsdóttur
sem Lichfield hitti fyrst á fegurð-
arsamkeppni á Filippseyjum árið
1974. Myndir Lichfield urðu ekki
síst til að koma Önnu á framfæri í
tískuheiminum en sú mynd sem
sýnd er hérlendis er tekin 1976.
Náskyldur
Bretadrottningu
Thomás Patrick John Anson, sem
síðar varð þekktur undir nafninu
Patrick Lichfield, er fæddur 25.
apríl 1939. Hann kom í heiminn í
Leikkonan Stephanie Powers. Þessi mynd var tekin fyrir auglýsingabækl-
ing vegna söngleiksins Cats sem settur var upp i Hamborg í Þýskalandi.
Patrick Lichfield.
húsi ömmu sinnar við Embank-
ment í London en eyddi megninu
af bernskuárum sínum í Shugboro-
ugh í Staffordshire. Faðir hans,
Anson lávarður, var sonur jarlsins
af Lichfield. Móðir Lichfield, Anne,
var dóttir John Bowes-Lyon sem
var sonur fjórtánda jarlsins af
Strathmore og Kinghorne. John
Bowes-Lyon og Elísabet Breta-
drottning eru systkinabörn og þá
vita lesendur væntanlega allt um
það hvernig ljósmyndarinn og
drottningin eru skyld.
Ljósmyndaði
skólafélagana
Patrick Lichfield gekk í Wellesley
House skólann í Broadstairs í Kent
en frá þrettán ára aldri sótti hann
menntun sína í Harrow. Fyrsta
myndavélin féll honum skaut að-
eins sjö ára gömlum og strax á ár-
unum í Harrow fór hann að fá
greitt fyrir myndatökur. Áður
hafði ljósmyndastofa Hill&Saund-
ers séð um mynda þá nemendur í
Harrow sem luku námi en þegar
Lichfield kom til sögunnar missti
stofan spón úr aski sínum. Ungi
ljósmyndarinn bauð einfaldlega
lægra verð, einn shilling og sex
pens, fyrir myndatökurnar og við-
skiptin blómstruðu. Til brúks var
notuð Kodak Retinette-vél en tekj-
urnar af myndatökunum geröu það
kleift að fjárfest var í betri útbún-
aði. Auk námsins í Harrow stund-
aði Lichfield nám í ljósmyndun á
rannsóknarstofu í nærliggjandi bæ
en hvort það sem er tilviljun eða
ekki eru margir ljósmyndarar sem
hafa verið við nám í Harrow. T.d.
William Henry Fox Talbot, Cecil
Beaton og Geoffrey Shakerley.
Fótgönguliði í
breska hemum
Eftir Harrow lá leiðin til Sand-
hurst þar sem Lichfield hlaut þjálf-
un sem liðsforingjaefni og að því
loknu gekk hann til liðs við eina
af fótgönguliðssveitum breska
hersins. Ljósmyndaáhuginn blund-
Brookie Shields er sennilega
þekktust fyrir hlutverk sín i Pretty
Baby og The Blue Lagoon. Ein af
mörgum leikkonum sem gestir
Kringlunnar geta virt fyrir sér á
sýningunni.
aði þó alltaf sterkt í honum og í
hernum sinnti hann þessu áhuga-
máli sínu. Hermennskan stóð ekki
lengi yfir og hann yfirgaf þennan
starfa sem undirforingi síðla árs
1962 og sneri sér að ljósmyndun.
Lichfield hóf störf sem aðstoðar-
maður í ljósmyndastúdíói hjá
Dmitri Kasterine og Michael Wallis
og vann þar í tæp þrjú ár. Starfið
fór nokkuð fyrir brjóstið á fjöl-
skyldu hans og almenningi enda
þótti það ekki samboðið manni með
blátt blóð í æðum. Hann lét það sig
þó litlu skipta og tæpu ári síðar var
Lichfield farinn að taka myndir á
eigin vegum en var þó enn í starfi
hjá Kasterine og Wallis.
ZsaZsaGabor
og Michael Caine
í fyrstu voru þetta einkum fjöl-
skyldumyndir og þá komu sam-
bönd frá skólaárunum í góðar þarf-.
ir. Lagni hans við að mynda börn
spurðist út og fljótlega fékk hann
sitt fyrsta konunglega verkefni. í
kjölfarið komu myndatökur af leik-
urunum Zsa Zsa Gabor og Michael
Caine og verkefnissamningur við
dagblaðið Express. Leiðin var orðin
greið og ekki spillti fyrir verkefni
í Buckingham Palace 1966 en upp
frá því starfaði hann reglulega fyr-
ir drottninguna.
Lichfield var orðinn vel þekktur
ljósmyndari um þetta leyti og frami
hans spurðist til Bandaríkjanna.
Ameríska útgáfan af Vogue fékk
hann til starfa og hann dvaldist
vestra að mestu leyti á árunum
1968-73. Lichfield skaust heim 1972
til að mynda silfurbrúðkaup Elísa-
betar drottingar og hertogans af
Edinborg og 1974 réðst hann til
starfa hjá Radio Times ásamt því
að vinna að fleiri verkefnum.
Öllum ljós-
mynda-
tækjunum stolið
Nokkrum árum síðar varð hann
fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu
að öllum ljósmyndatækjunum var
stohð en Olympus-fyrirtækið brást
skjótt viö og færði honum nýjan
búnað og upp frá því hefur nafn
hans verið tengd fyrirtækinu í aug-
lýsingaskyni aðallega. Samhliða
velgengni í ljósmyndun hefur hann
verið að færa sig yfir á aðrar braut-
ir og í dag er hann eigandi og/eða
stjórnarmaður í nokkrum fyrir-
tækjum. Þar á meðal eru veitinga-
hús en áhugi hans á þeim vettvangi
jókst mikið á síðasta áratug.
Lichfield hefur haldið fjölmargar
ljósmyndasýningar en alltof langt
mál væri að telja þær allar upp.
Eftir hann hafa birtst myndir í
blöðum og tímaritum auk þess sem
eftir hann liggja nokkrar bækur.
Þá má ekki gleyma því að hann var
beðinn um aö vera sérstakur ljós-
myndari við brúðkaup Karls Breta-
prins og lafði Díönu.