Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 4
20
MIÐVIKUDAGUR 16. ÖKTÓBER 1991.
BRAKl
BPAX!
BRAK!
BRAK!
Hob-nobs frá McVities er svo stökkt og
brakandi að nær ógerlegt er að borða það
hljóðlega.
Hob-nobs kökurnar eru stórar og
matarmiklar enda í þeim bæði hafrar og
heilhveiti.
Hob-nobs er hreinasta afbragð með kaffi
og sumum finnst það jafnvel enn betra með
svolitlu smjöri.
Hob-nobs. Það er þó ekki heimabakað?
Dreifing: Bergdal hf ■ Skútuvogi 12 ■ 104 Reykjavík Sími 91-680888
Djásn bresku konungsfjölskyldunnar verða gestum Kringlunnar til sýnis þá daga sem kynningin á breskri vöru
og þjónustu stendur yfir.
Eftirlíkingar bresku konungsdjásnanna:
Kórónur, sverð
og veldissprotar
- og ektá klæðnaður bresku varðliðanna
Djásn bresku konungsfjölskyld-
unnar verða gestum Kringlunnar til
sýnis þá daga sem kynningin á
breskri vöru og þjónustu stendur
yfir. Það er þó rétt að hafa í huga að
dýrgripirnir, sem hér eru sýndir, eru
ekki ekta heldur nákvæmar eftirlík-
ingar af herlegheitunum sjálfum. En
það breytir ekki þeirri staðreynd að
hér eru á ferð merkir hlutir sem
væntanlega mjög margir hafa gaman
af að berja augum.
Uppistaðan í þessari sýningu er
kórónur, sverð og veldissprotar en
auk þess eru sýndir ýmsir aðrir
munir. í allt eru þetta 40 hlutir og
auk þess er klæðnaður breskra
varðliða frá ýmsum sveitum sýndur.
Sá klæðnaður er allur ekta og er
fenginn að láni frá varðliðasafninu í
London. Umræddir búningar eru
notaðir við hin ýmsu tækifæri í
Lundúnum og þeir sem hafa t.d. séð
varðaskiptin við Buckingham Palace
ættu að kannast við þennan klæðn-
að.
Á meðal kóróna á sýningunni er
St. Edwards kórónan en hún er notuð
þegar nýr kóngur er krýndur hveiju
sinni. Kórónan vegur fimm pund og
var fyrst notuð árið 1661. Einnig
verður hægt að berja augum Imper-
ial State kórónuna en hún er ómetan-
legur dýrgripur. Hún var búin til
handa Viktoríu drottningu áriö 1783
og er skreytt yfir 2800 demöntum.
Hún er t.d. ávallt notað þegar breska
þingið er sett.
Smákóróna í eigu Spencer-fjöl-
skyldunnar verður sýnd. Hér er á
ferð kóróna sem lafði Díana bar við
giftingarathöfn hennar og Karls
Bretaprins fyrir tæpum 10 árum.
Ýmsar aðrar kórónur verða þar
einnig en of langt mál er að telja þær
allar upp. Þó má geta þess að þær
eru margar skreyttar ótrúlegum
demöntum og Imperial kórónan, sem
var reyndar minnst á áðan, skartar
demanti sem er 317 karöt.
Veldissproti krossins er hingað
kominn með demantinn Fyrstu
stjörnu Afríku sem er 530 karöt og
var upphaflega færður Edward sjö-
unda árið 1907. Þá má minnast á þjóð-
höfðingjahringinn en hann er tákn
konungdómsins og hefur verið það
frá árinu 1831 er William ijórði tók
við konungdóminum.
t rf :■
*$* r-f—\
ip ■*Sb&
M:Ts : öÍ—
■*k p
1'
*? Ai'- —Ti|v i* •J-S »• V' v.: ft&Nesa
1
Uppistaðan í þessari sýningu er n
kórónur, sverð og veldissprotar.
Dýrgripirnir, sem sýndir verða, eru ekki ekta heldur nákvæmar eftirlíkingar
en muninn er þó erfitt að sjá.
KmMMCr.....
MÝKT ER OKKAR STYRKUR
HEILDSÖLUB. JOHN LINDSAY H.F.