Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 6
22
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBÉR 1991.
Breskir dagar
Vélarnar hafa nánast ekkert nota-
gildi.
Furðuvélar
Rowlands Emett
Furöuvélarnar í Kringlunni eru
aðeins tvær af mörgum sem Row-
land Emett hannaöi á löngum ferli
sínum sem uppfinningamaður.
Þrátt fyrir aö vélarnar hefðu nán-
ast ekkert notagildi og væru helst
til þess fallnar aö vekja hlátur hjá
almenningi færðu þær hönnuðin-
um alþjóðlega frægð.
En þó að vélar Emetts vektu at-
hygh var hann sjálfur fyrst og
fremst snjall skopmyndateiknari. í
þeim efnum kom hann fyrst fram
á sjónarsviðiö á síðum Punch árið
1939 en það gekk þó ekki átaka-
laust. Fyrstu teikningarnar hans
voru endursendar en Emett lét ekki
deigan síga og sendi inn aðrar
skissur sem féllu í kramið. Reyndar
munaði minnstu að hann yrði
landslagsmálari. Verk hans voru
tekin góð og gild í Royal Academy
og honum bauðst þar innganga en
fjármálin voru ekki beysin og hann
ákvað frekar að fara til Birming-
ham til að starfa á vélaverkstæði.
Eftir að hafa brotið ísinn á síðum
Punch gekk honum vel sem skop-
myndateiknari og á næstu árum
komu út fjölmargar bækur með
verkum hans. í dag er það til vitnis
um hæfileika hans að söfn á borð
við Tate Gallery sýna verk hans.
En það voru hinar ýmsu furðuvél-
ar sem áttu eftir að koma nafni
hans á allra varir. Árið 1956 byij-
aði hann að hanna sínar eigin vélar
í Vestur-Sussex og tæpum þrettán
árum síðar varð nafn hans endan-
lega vel þekkt þegar kvikmyndin
Kittý Kittý Bang Bang kom á hvíta
tjaldið en vélarnar í umræddri
mynd voru hannaðar af Emett.
Vélarnar (ærðu hönnuðinum alþjóðlega frægð þrátt fyrir að þær vektu
aðallega hlátur hjá almenningi.
Furðutækin eru af ýmsum toga en öll eiga þau það sameiginlegt að Framleiðslan á þessum furðutækj-
vera allt annað en hefðbundin i útfærslu. um hófst árið 1956.
KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 689300
Kellogg’s kornflögur, 500 g
Dixel, W.C. rúllur, 2 stk.
Libby’s tómatsósa, 567 g
Heinz, bakaðar baunir, !4 dós
Ritz saltkex, rautt
Hob-Nobs hafrakex, 300 g
Weetabix morgunverður, 215 g
Melroses te, 50 grisjur
Bassel’s lakkrískonfekt, 500 g
Roundtree Mackintosh, 2 kg
Kleenex bréfþurrkur, 150 stk.
Þetta er aðeins
sýnishorn afþví
úrvali af breskum
vörum sem eru á
tilboði á bresku
dögunum í Kringl-
unni 17.-26. okt.
Kr. 199,- .
Kr. 99,-
Kr. 99,-
Kr. 49,-
Kr. 75,-
Kr. 89,-
Kr. 79,-
Kr. 179,-
Kr. 199,-
Kr. 1.939,-