Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 10
26
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
Hjartadrottningin og Hattarinn í Kringlunni:
Leitin að Lísu í
Undralandi
í tilefni af bresku kynningunni,
Kringlan í þjónustu hennar hátign-
ar, sem hefst á morgun, verður leit-
að að stúlku sem líkist mest Lísu í
Undralandi.
Stúlkumar, sem taka þátt í leikn-
um, eiga að vera á aldrinum 6-12
ára og þær sem ætla að vera með
purfa að koma í Kringluna og hitta
þar fulltrúa dómnefndar, Hjarta-
drottninguna og Hattarann, sem
eflaust margir kannast við úr æv-
intýri Lewis Carroll, Lísu í Undra-
landi, en um það ævintýri snýst
þessi leikur.
Hjartadrottningin og Hattarinn
verða í Kringlunni 22.-24.október
kl. 14-18.30 og í framhaldi af því
verða valdar stúlkur til að taka
þátt í úrslitakeppninni sem haldin
verður fóstudaginn 25. október kl.
15.
Sú stúlka sem verður fyrir valinu
sem Lísa í Undralandi hlýtur að
launum ferð fyrir sig og fjölskyldu
sina (fjórir farseðlar) til London og
lestarferð frá London til Wales og
400 punda ávísun á hótelgistingu
að auki. í Llandudno í Norður-
Wales mun hin íslenska Lísa spóka
sig og m.a. skoða sérstakt safn um
þessa frægu sögupersónu sem hún
sjálf líkist svo mjög.
- hin heppna heimsækir Lísu-safnið í Norður-Wales
Formaður dómnefndarinnar er
Kristín Aradóttir, sölustjóri Flug-
leiða, en auk hennar eiga sæti í
nefndinni Páll Dungal, verslunar-
stjóri Pennans í Kringlunni, Af-
saneh Khalatbari, breska sendi-
herrafrúin, og Ratcliffe-hjónin en
þau bregða sér í hlutverk Hjarta-
drottningarinnar og Hattarans á
meðan leitin að Lísu stendur yfir.
Leitin að Lísu í Undralandi stendur
yfir 22.-24. október en föstudaginn
25. verður svo úrslitakeppnin. Sú
sem líkist Lisu mest fær að launum
ferð fyrir fjóra til Bretlands.
Stúlkurnar þurfa að vera á aldrinum 6-12 ára og það verða fulltrúar dómnefndar, Hjartadrottingin og Hattar-
inn, sem hitta þær að máli.
VSK. 11997
Imebal
MAGNÚS E. BALDVINSSON SF.
KRINGLUNNI 8-12 - 103 REYKJAVÍK - SÍMI 31199
GJAFASETT 0G KVEIKJARAR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
CpIíU
OFLONDON
ÚR OG SKARTGRIPIR
Fjöllistamað-
urinn Tim Bat
Tim leikur ótrúlegustu kúnstir hvort heldur er með gríska diska eða
regnhlífar.
Tim Bat er tæplega 36 ára Breti
sem ætlar að sýna gestum Kringl-
unnar ýmsar kúnstir á Breskum
dögum. Bat gekk í listaskóla og
vann síðar sem öskukall en hefur
undanfarinn áratug eða svo haft í
sig og á sem skemmtikraftur. Atriði
hans stendur yfir í 3-30 mínútur
og samanstendur af ýmsum kúnst-
um. Þar má nefna sjónhverfingar,
dans með gríska diska og það að
láta regnhlífar hringsnúast.
Tim er orðinn nokkuð sjóaður í
bransanum og hefur starfaö í
mörgum kabarettum í London auk
þess að koma fram í ýmsum sjón-
varpsþáttum. Hann hefur einnig
starfað mikið erlendis, t.d. á Norð-
urlöndum og er reyndar nýkominn
úr ferð um Baska-héruð Spánar.
Sjálfsagt eru einhverjir sem
kannast við Tim Bat, enda kom
hann hingað til lands árið 1987 og
sýndi ýmsar brellur við opnun
verslunar Pennans samhliða því
að leika í auglýsingu fyrir fyrirtæk-
ið. Tim hefur komið til Islands í
millitíðinni og leit þá inn í Kringl-
unni þótt brögðin og brellurnar
væru ekki með í farteskinu.