Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
27
Breskir dagar
Matar- og kaffistell í
sérflokki. Þolir
örbylgjuofn og uppþvottavél.
Hóflegt verð. Sérstakt kynn-
ingarverð í tilefni bresku daganna.
KOSTA BODA
Kringlunni 8-12
Sími 689122
Höfundur Lísu í Undralandi:
Lewis Carroll
MEST SELDI
KATTAMATUR í HEIMI
„CONCERT“
frá „Poole“ í Bretlandi
Fyrsta bókin um Lisu i Undralandi
kom út árið 1865 og var hún mynd-
skreytt af John Tenniel.
(1832-1898)
Lewis Carroll, höfundur sögunnar
um Lísu í Undralandi, hét réttu nafni
Charles Lutwidge Dodgson. Þeir sem
þekkja söguna um Lísu kannast þó
fæstir við hans rétta nafn og því skul-
um við halda okkur við nafnið Lewis
Carroll.
Hann var fæddur í janúar 1932 og
var stærðfræðingur og kennari við
Christ Church-skólann í Oxford á
Englandi. Eftir Lewis hggja margar
stærðfræðiritgerðir en það er þó
vegna ævintýra Lísu sem menn
minnast þessa stærðfræðings. Enn-
fremur samdi hann nokkur ljóð og
er mörg þeirra að finna í bókunum
um Lísu.
Þrátt fyrir hæfni Lewis í stærð-
fræði var hann ekki menntaður í
henni sem slíkri. Hann lagði stund á
guðfræði og hlaut vígslu en þótti
ófær um aö predika vegna þess að
hann stamaði. Af þeim sökum var
honum fengið annað starf og stærð-
fræðin varð fyrir valinu þar sem
Lewis hafði sýnt hæfni í þeirri grein.
Vegna stamsins átti hann reyndar í
mestu erfiðleikum með að halda uppi
samræðum við fullorðið fólk og ekki
bætti úr skák að hann var heyrnar-
laus á öðru eyranu. Að auki var ann-
ar fóturinn á Lewis styttri og hann
stakk við og fyrir vikið varð hann
að þola stríðni í einhverjum mæli.
Lewis hefur reyndar um margt
verið líkt við H.C. Andersen en þeir
áttu það báðir sameiginlegt að lifa
alla ævi sem piparsveinar sem undu
sér best með bömum að leik þar sem
þeir lögðu fyrir þau gátur og þrautir.
Lewis var reyndar nokkuð glúrinn í
að búa til talnaþrautir en þar nýtti
hans sér stærðfræðihæfileikana.
Þegar kom að barnasögunum vildi
hann ekki láta blanda þessu tvennu
saman og var alltaf harðákveðinn í
að halda dulnefninu. Svo langt gekk
hann í málinu að einhverju sinni
sendi hann orðsendingu frá sér sem
hljómaði á þá leið að hr. C.L. Dodg-
son viðurkenndi ekki nein tengsl við
neitt dulnefni eða nokkra bók sem
ekki væri gefin út undir hans eigin
nafni.
Erfiðlega gekk að fá Lewis til að
gefa út söguna um Lísu en það hafð-
Lewis Carroll kenndi stærðfræði við
Christ Church-skólann i Oxford á
Englandi. Hann var piparsveinn sem
undi sér best við að segja börnum
sögur.
ist aö lokum og fyrsta útgáfan leit
dagsins ljós 1865. Sagan varð strax
feikilega vinsæl, jafnt hjá börnum
sem og fullorðnum, og í dag hefur
hún verið þýdd á fiölda tungumála.
Upphaflegt handrit þykir svo dýr-
mætt að því hefur verið komið fyrir
á British Museum sem þjóðardýr-
grip. Myndskreytingar viö fyrstu
bókina, sem nú hefúr jafnvel skipað
sér sess sem eitt meginverk enskra
bókmennta, gerði John Tenniel.
LsFKIS.