Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Síða 12
28
MIÐVIKUDÁGUR 16. OKTÓBER 1991.
Breskir dagar
DV
Breskar kvikmyndir í Háskólabí ói:
Skuldbinding Alans Parker
- og fjórar gamlar klassískar
í tilefni af breskum dögum í
Kringlunni verður boðið upp á sýn-
ingar á breskum myndum í Há-
skólabíói. Sýningarnar hefjast á
morgun og standa yfir sömu daga
og viðburðirnir í Kringlunni með
þeirri undantekningu að myndin í
aðalsalnum verður sýnd áfram.
Fyrir valinu hafa orðið eftirtaldar
myndir: 39 þrep (Thirty Nine
Steps), Áfram læknir (Carry on
Doctor), Rauðu skórnir (The Red
Shoes), í þjónustu hennar hátignar
(On Her Majesty’s Secret Service)
og The Commitments. Síðasttalda
myndin verður sýnd í aðalsalnum
en hinar í einum af minni sölum
bíósins.
Commitments
Commitments, sem jafnframt er
nýjasta mynd Alan Parkers, fjallar
um tólf írska unglinga sem stofna
hljómsveit sem hefur það að
markmiði að kynna soultónlist á
írlandi. Aðalpersónan er Jimmy,
sem er stofnandi hljómsveitarinn-
ar, en hann tékur tónlistina mjög
Bakgrunnurinn í Commitments er óvenjulegur, barir og stræti í iélegu hverfi í Dublin
BRITI SH
K rsl I O HTS
Kringlunni 8-12 - Sími 686062
15% afsláttur á British
Knight í breskri viku.
Þegar rafmagn fer af - í sumarbústaðn-
um - á vinnustað þegar rafmagn er
ekki fyrir hendi.
Tilboðsverð vegna
breskrar viku,
kr. 10.800,- með vsk.
Framleitt í Bretlandi
af Sörensen
PCW200
200 WATT INVERTER
(Samþykkt af Rafmagnseftirliti ríkisins)
12-240 V
Dæmi um notkun: sjónvarp, útvarp, video, vinnuljós, rakvél,
tölvur, hleðslutæki o.fl.
Sent í póstkröfu:
Upplýsingar hjá D.E.B. þjónustan, Jaðarsbraut 7, Akranesi, sími: 93-13220.
alvarlega og er sífellt að gera öðr-
um hljómsveitarmönnum grein
fyrir alvörunni á bak við sveitina.
Eins og við er að búast er mikið
um tónlist í myndinni sem heyrst
hefur t.d. í flutningi Wilson Pickett
og Otis Redding. Bakgrunnurinn
er aftur á móti óvenjulegur, barir
og stræti í lélegu hverfi í Dublin.
Því má svo við bæta að myndin
hefur fengið góða dóma gagnrýn-
enda en leikendur eru allir ungir
og óþekktir tónlistarmenn.
39 þrep og
Áfram læknir
39 þrep gerist 1914 þegar Evrópa
er á barmi styrjaldar. London er
friðsæl á yfirborðinu en hættulegt
samsæri er bruggað að tjaldabaki.
Ofursti í leyniþjónustu Breta hefur
orðið þess áskynja að ofstækis-
menn ætla að ráða forsætisráð-
herra Grikkja af dögum þegar hann
kemur í opinbera heimsókn, til að
kveikja ófriðarbál. Tveimur ráð-
herrum er skýrt frá þessu en þeir
eru báðir myrtir og ofurstinn
ákveður þvi að leita hælis í húsi
vinar síns í London. Ofurstinn
dvelur þar ekki lengi því honum
er komið fyrir kattamef og þá fyrst
flækist vinur hans, verkfræðingur-
inn Richard Hannay, virkilega inn
í máhð. Hann finnur minnisbók
ofurstans en þar er aðeins eitt orð.
Lögreglan og ofstækismennirnir
vilja báðir hafa hendur í hári
Hannays og það gengur á ýmsu
áður en yfir lýkur.
Áfram læknir er frá árinu 1968
og segir frá allléttgeggjuðum hópi
sem starfar innan lækna- og hjúkr-
unarstéttarinnar. Leikstjóri er
Gerald Thomas en í helstu hlut-
verkum eru kunnugleg nöfn sem
hafa komið við sögu í mörgum
Áfram-myndunum. Þar má nefna
Frankie Howard, Barbara Windsor
og Kenneth Williams.
Rauðu skórnir
og James Bond
Rauðu skómir er fyrsti ballettinn
sem vai- saminn sérstaklega með
kvikmyndatökuvélamar í huga.
Höfundurinn er hinn ástralskætt-
aði Robert Helpmann en hann var
Leikendur i Commitments eru allir
ungir og óþekktir tónlistarmenn.
Rauðu skórnir er byggð á
Hans Christian Andersen.
i helstu hlutverkum í Áfram lækn-
ir eru kunnugleg nöfn.
dansahöfundur hjá Royal Ballet
Company þegar hann samdi þetta
verk sem hyggt er á ævintýri
danska rithöfundarins Hans
Christian Andersen. Þar segir frá
ungri stúlku sem gat ekki hætt að
hugsa um rauöu dansskóna sína
og skipti þá engu hvar hún var
stödd. Aðaldansarar em Moira
Shearer, Leonide Massine og Ro-
bert Helpmann sjálfur. Kvik-
myndahandritið skrifuöu Michael
Powell og Emeric Pressburger en
þeir eru einnig framleiðendur og
leikstjórar myndarinnar. Tónlistin
er flutt af The Royal Philharmonic
Orchestra en stjórnandi hennar er
Thomas Beecham.
í þjónustu hennar hátignar er
James Bond-mynd með minnsta
þekkta spæjaranum, George Laz-
enby. Sá umræddi maður lék að-
eins í þessari einu Bond-mynd en
í öðrum helstu hlutverkum em
Gabriele Ferzetti, Diana Rigg og
Telly Savalas. Leikstjóri er Peter
R. Hunt en þess má geta að kvik-
myndahandbók Matlin’s gefur
henni þrjár og hálfa stjömu.