Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991
32!
Breskir dagar
DV
Rithandarsérfræðingurinn Erik Rees:
Vinnur út frá lögun, halla
og stærð stafanna
. >
. v
- skriftin segir ýmislegt um persónuleikann
Skrift fólks segir ýmislegt um viö-
komandi einstakling. Þetta er nokk-
uð sem fæstir gera sér grein fyrir en
staðreyndin er samt sú að ótrúleg-
ustu hluti er hægt að lesa út úr skrift
manna. Rithandarsérfræðingar, sem
vinna í þessum málum, hafa ákveðin
atriði í huga þegar komast á að upp-
lýsingum um skrifann.
Viðkomandi er látinn skrifa nafnið
sitt, fæðingardag, þjóðerni og stuttan
texta um eitthvert málefni. T.d.
uppáhaldssjónvarpsefnið, gæludýr-
ið, veðrið eða eitthvað þess háttar.
Úr þessum upplýsingum vinnur rit-
handarsérfræðingurinn og í kjölfarið
á hann að geta frætt skrifann um
ýmislegt sem hann snertir. í mörgum
tilvikum getur sérfræðingurinn ver-
ið að koma upplýsingum á framfæri
sem viðkomandi hafði ekki hugmynd
um.
Rithandarsérfræðingurinn sem
hingað er kominn og verður til taks
í Kringlunni heitir Erik Rees. Hann
er fæddur í Prag í Tékkóslóvakíu en
gekk menntaveginn í Manchester á
Englandi og býr nú í Middlesex í
sama landi. Eins og flestir kollega
hans vinnur Rees út frá lögun, halla
og stærð stafanna til að komast að
upplýsingum um skrifarann. Rees
hefur af þessu fulla atvinnu enda
Skrift fólks segir ýmislegt um viökomandi einstakling. þykir hann mjög fær á sínu sviði.
I þjónustu hennar hátignar
Úrval af frábærum breskum tískufatnaði.
Tilboð: dagana 17. -20. okt.
ing: Föstudag 18. okt. kl. 16.00
Laugardag 19. okt. kl. 14.00
Föstudag 25. okt. kl. 17.00
Laugardag 26. okt. kl. 14.00
Bresk listakona verður á
staðnum og sýnir hvernig
postulínsblóm eru unnin.
Sýning: fimmtudag, föstudag,
laugardag.
HAGKAUP
KRINGLUNNI 8-12, SÍMI: 689300