Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Síða 15
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991. 15 Má ekki veröa til Hambro’s Bank í Austurstræti? Hvaö finnst mönn- um um, aö forstjóri í Pepsi Cola eignist Víðidalsá? Ætti Perrier að mega kaupa vatnsból í Kapellu- hrauni? Svona spurningar vakna nú eftir samkomulagiö um EES í Lúxem- borg aðfaranótt 22. október. Mörg- um mun finnast, aö við ættum ekki aö hleypa útlendingum í framan- greindar eignir. En viö þurfum að vita, hverju viö sleppum, þegar viö stöndum gegn slíku. Er þetta kannski að einhverju leyti æski- legt? „Vörðust fimlega" íslenzku samningamennirnir eru sagðir hafa „varizt fimlega", þegar útlendingarnir voru í Lúxemborg aö reyna aö fá okkur til að leyfa frjálsari innflutning á einhverju smáræði af landbúnaðarvörum. Þar voru ær og kýr íslendinganna aö verja innlendu framleiöend- urna. Hagsmunir íslenzkra neyt- enda voru látnir lönd og leiö. Þetta var þó lítilræði af búvörum, sem útlendingarnir ætluðu aö fá inn- flutning á. Það er einmitt aðaló- kostur EES, aö landbúnaöarvörur eru ekki með í fríverzluninni. Þetta verður Evrópubandalaginu og Evr- ópska efnahagssvæðinu þrándur í götu. Bandalagið á eftir að hafa mikla mæðu af því að láta þrýsti- hóp bænda hafa svo mikil áhrif. Við höfum einnig mikla armæðu af þessu. En íslenzkir bændur fá áfram að vera í friði fyrir innflutningsfrelsi. íslenzkir neytendur þurfa hins vegar á innflutningi á búvörum að halda, á þvi miklu lægra verði, sem kostur gæti orðið á. Á sama hátt líta EB-menn á sjávarafurðir sem landbúnaðarvörur. Um þær ríkir ekki heldur fríverzlun. Fríverzlun ríkir um iðnaðarvörur. Meö EES- samkomuiaginu verður aukin frí- verzlun á fjármagni og þjónustu. En þar höfum við sett margs konar „giröingar”. Mikil „fákeppni" áfram Samningamenn okkar gerðu fyr- irvara. Þeir sögðu, að við höfnuð- um veiðiheimildum handa útlend- ingum. Hinir erlendu menn fá þó lítils háttar veiðiheimildir út úr þessu. Við sögðumst hafna því, að frjáls fjármagnsmarkaður næði til útgerðar og útlendingarnir mættu því ekki íjárfesta í útgerð hér á landi. Þetta hefur orðið ofan á. Við sögðumst vilja sitja einir að orku- lindunum. Það er nokkuð umdeilt, að hve miklu leyti það er tryggt. íslenzku samningamennirnir tóku ekki annað í mál en að við gætum stöðvað innflutning fólks í atvinnu- skyni, ef svo færi, að við teldum slíkan influtning vera að valda vandræðum. Það er umdeilt, að hve miklu þetta er tryggt, en fæstir telja, að þarna sé um hættu að ræða. Loks „fengurn" við þriggja ára aðlögunartíma að hinum frjálsa fjármagnsmarkaði. Vissulega er EES-samningurinn um aukið viðskiptafrelsi. En at- hygh vekur, hve mikið verður þó eftir af einokun og „fákeppni", þar sem fáir eru um hituna. Upp á líf og dauða Lítum á fjármagnsmarkaðinn. Við vitum öll, aö vextir hér eru of háir. Flestir telja, að bankarnir hafi síðastliðið sumar hækkað vexti meira en eðlilegt hefði verið. Forsætisráðherra er meðal þeirra, sem hafa mótmælt þessu. Allir tala um, að lækka þurfi vextina. For- maður Vinnuveitendasambands- ins, Einar Oddur Kristjánsson, leggur til, að vaxtalækkun verði meginmál kjarasamninga. Hann segir, að vexti þurfi að lækka upp á líf og dauða. Hvers vegna eru vextir hér svo háir? «**»<** ■ Þjóðin þarf að losna við áhrif þingmanna á bankana. Erlendur banki í Austurstræti Þúsundir á götuna Háu vextirnir sliga atvinnulíf og einstaklinga. í tillögum formanns Vinnuveitendasambandsins um nýja þjóðarsátt leggur hann lang- mesta áherzlu á að ná vöxtunum niður. Hann segir, að við verðum að komast niður fyrir löndin í Efna- hags- og framfarastofnuninni OECD í verðbólgu. Það þurfi að draga úr peningaumsvifum ríkis og sveitarfélaga upp á nokkra millj- arða. Þaö þurfi að draga úr eyðsl- unni, minnka húsbyggingar, minnka viðskiptahallann við út- lönd. Þegar þetta hafi tekizt, geti aðilar vinnumarkaðarins farið til lífeyrissjóðanna, bankanna og tryggingarfélaganna og krafizt vaxtalækkana. „Sumir kalla þetta ofbeldi. Ég kalla það sátt,“ segir Einar Oddur Kristjánsson í DV. Hægt sé að koma raunvöxtum, vöxtum umfram verbólgustigið, niður í 4-5 prósent. „Ég ætla að halda því fram, að vaxtalækkun Laugardags- pistillinn Haukur Helgason aðstoðarritstjóri skipti nokkrar þúsundir ijöl- skyldna öllu um það, hvort þær halda húsnæði sínu eða lendi á götunni,” segir hann. Og launþegaforingjanir eru sama sinnis um vextina. Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, segir í DV: „Þótt okkur Einar Odd greini eitt- hvað á um hina einu réttu leið, þá fagna ég þeirri áherzlu, sem hann leggur á að ná niður raunvöxtum í landinu, og ég trúi ekki öðru en að við náum saman um það.“ Af hverju þetta mikla böl vegna vaxta? Þvi hefur að hluta verið svarað hér að framan. Ríkið tekur til sín alltof mikið fé og keyrir þannig upp vextina. En vextir eru hér svona háir vegna fákeppninn- ar, af því að samkeppni er ekki nóg milli banka. Mikil vaxtalækkun Þetta mundi breytast, ef erlendur banki eða erlendir bankar kæmu til sögunnar. Margir hafa mælt með því, að hingað kæmi erlendur banki, til dæmis Steingrímur Her- mannsson, þegar hann varð þreytt- astur í íslenzku bönkunum, þótt hann hafi efasemdir um EES- samkomulagið. Þetta er rétt, við verðum að vinda bráöan bug að því að auka samkeppnina. Þróunin hefur verið í þá átt, og hraðinn eykst með EES. Vegna EES-samn- inganna ættu vextir hér á landi að fara niður á svipað stig og er yfir- leitt í Evrópu. Vextir í Evrópu eru yfirleitt 7-10 prósent, meðan vextir af skuldabréfum hér eru ekki undir 18 prósentum. Þetta ætti að jafnast á næstu árum, vegna aðildarinnar að EES. Það mun gleðja aðila vinnumarkaðarins, sem beita sér nú í sameiningu gegn háu vöxtun- um. Þetta mun gerast, með því að Evrópubankarnir komi til skjal- anna hér og auki samkeppnina. Ríkisstjórnin ætlar að gera Bún- aðarbankann og Landsbankann að hlutafélögum. Síðan verða hlutabréf i bönkun- um væntanlega seld. Menn velta fyrir sér, hverjir muni kaupa. Hátt- settur ríkisbankamaður sagði ný- lega við mig, að það væri að fara úr öskunni í eldinn, ef til dæmis Búnaðarbankinn yrði að miklu eign Eimskips eða Flugleiða, þegar ríkiseign hætti. Menn eru yfirleitt sammála rökunum um skaðann af því, að stjórnmálamenn ráði bönk- um. Allavega ætti engum að bland- ast hugur um þann skaða eftir allar uppljóstranirnar um milljarða- sukk stjórnmálamanna. Hindra verður, að einkabankar hér lendi undir einokun, þá á sú hætta að vera úr sögunni með EES-samn- ingnum. Stjórnmálamenn hér eru samt að tala um „girðingar" í þess- um efnum. Þeir segja, að ríkið gæti áfram átt meirihluta hlutafjár í Búnaðarbanka og Landsbanka. Aðeins minnihlutinn yrði seldur, að nokkru leyti líklega útlending- um, sem ættu rétt á að kaupa, þvi að ekki má mismuna þeim. Þetta er hættuleg afstaða. Þjóðin verður að losna alveg við það, að pólitíkus- ar séu með puttana í bankarekstri og valdi þar ómældu tjóni. Það þarf að verða raunveruleg samkeppni, sem leiðir til þess, að við brjótumst út úr stöðnuninni. Það gerist ekki af sjálfu sér. Með opnum fjármagnsmarkaðar EES getum við fengið lægri vexti, og miklu meira fjármagn verður til á íslandi. „Girðingarnar" Stuöningsmenn EES eru of hræddir við gagnrýni. Stjórnar- andstöðuflokkarnir þora í rauninni ekki að ráðast gegn EES-samkomu- laginu, nema Kvennalistinn. En það er eins og ráðherrar okkar geti ekki eða vilji ekki standa nógu fast á kostum samkeppni, þeirrar sam- keppni, sem samkomulagið þó get- ur veitt. Hér hafa verið nefndir kostir aukinnar samkeppni í bankarekstri. Svipað gildir um tryggingarfélög, svo að dæmi sé nefnt. Líklegast er, að frjáls flutn- ingur fólks til og frá í atvinnuskyni verði okkur bara til góðs, þegar fram í sækir. En flest okkar eru þó á því, að hindra verði, að útlenzkir menn kaupi upp náttúrugersemar okkar. Því þarf einhverjar girðingar, en þær þurfa að vera í hófi. Þótt það sé ófrágengið, hefur eftirfarandi verið nefnt, ef útlendingar vilji kaupa jarðir hér. Skilyrði: Að eig- andi hafi verið búsettur hér á landi í 7 ár. Hann þarf að komast fram hjá hindrunum, sem forkaupsrétt- ur sveitarfélags og forkaupsréttur ríkis valda. Loks þarf eigandi að nýta jörðina samkvæmt kvöð. Menn eru mismunandi bjartsýn- ir á, að takist að tryggja alla hags- muni okkar. En við ættum raunar engu að tapa. Það mun mönnum finnast, ef þeir líta raunsæjum aug- umámáhð. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.