Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991.
Skák
Allt getur gerst á haustmóti TR:
Helgi Áss, Héðinn og
Lárus berjast um sigurinn
- stórfengleg baráttuskák K-anna í Tilburg
Að loknum sjö umferðum af ell-
efu á haustmóti Taflfélags Reykja-
víkur var enginn kepjpenda í A-
flokki taplaus og Helgi Ass Grétars-
son raunar sá eini sem aðeins hafði
tapað einni skák. Hann stóð best
að vígi er biðskákir voru ótefldar.
Hafði 5 vinninga en Lárus Jóhann-
esson og Héðinn Steingrímsson
höfðu 4 v. en áttu báðir betri stööu
í biðskákum við Róbert Harðarson.
Áttunda umferð var tefld í gær-
kvöldi en sú níunda verður tefld á
morgun, sunnudag, og hefst kl. 14
í Faxafeni 12.
Næstir þeim þremeningum í A-
flokki komu Róbert með 3,5 v. og
biðskákirnar tvær, Þráinn Vigfús-
son með 3,5 v. og eina biðskák,
Þröstur Ámason með 3,5 v., Þor-
valdur Logason með 3 v., Dan
Hansson og Magnús Örn Úlfarsson
með 2,5 v. og biðskák, Sigurður
Daði Sigfússon með 2,5 v. og Arin-
bjöm Gunnarsson og Bjöm Freyr
Björnsson með 2 v.
í B-flokki var Sigurbjöm Árna-
son efstur þrátt fyrir tap í sjöundu
umferð, með 4,5 v. en næstir komu
Óðinn Gunnarsson, Ragnar Fjalar
Sævarsson og Ægir Páll Friðberts-
son með 4 v.
Hlíðar Þór Hreinsson og Bragi
Þorfinnsson voru efstir í C-flokki
með 5 v. og biðskák og í D-flokki,
þar sem tefla 32 skákmenn 11 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi, hafði Lár-
us Knútsson 5,5 v., Leó Þór Þórar-
insson 5 v. og Bergsteinn Einarsson
og Haraldur Sigþórsson 4,5 v. og
biðskák.
Hér er fjörleg skák úr A-flokki,
sem setti strik í reikning Héðins
Steingrímssonar, íslandsmeistar-
ans frá í fyrra. Skákin er tefld í 5.
umferð. Sigurður Daði hafði þá tap-
að þremur skákum í röð og fannst
greinilega nóg komið af svo góðu.
Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon
Svart: Héðinn Steingrímsson
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 RfB 2. e3 g6 3. Bd3 Bg7 4. f4
Gijótgarðsvöm er gjaman tefld á
svart en þessi uppstilling peðanna
hefur átt minni vinsældum að
fagna á hvitt, Jóhann Þórir Jóns-
son, ritsjóri tífnaritsins Skákar, er
einn helstu hugmyndasmiða. Nú
fetar Sigurður Daði í fótspor meist-
arans.
4. - d6 5. Rf3 (W) 6. 0-0 Rc6 7. c3 e5
8. fxe5 dxe5 9. Bc2 a5
Hér er 9. - Re8!? ásamt framrás
f-peðsins mögulegt.
10. Rbd2 Rg4 11. Rb3 f5 12. h3 Rf6
13. Rc5 De7?
Nauðsynlegt er 13. - e4 með tví-
sýnni stöðu.
14. Ba4!
Sterkur leikur, sem setur svartan
í mikinn vanda. Sýnilega er 14. -
e4 15. Bxc6 bxc6 16. Re5 hvítum í
hag og 14. - exd4 15. exd4 einnig.
Biskupsleikurinn snjalh setur viö-
bótarþrýsting á miðborðið og knýr
svartan til aðgerða. Að auki býr
meira undir, eins og brátt kemur í
ljós.
14. - Re4
1 Xé
i 1 m ii
4
i © & 1
A A%
A A A
A A i;/ A i:
S jfc A B C yy.'.: D E 2<á? F G H
15. Rxb7! Hf6
Eftir 15. - Bxb7 16. Db3+ Kh8 17.
Dxb7 lendir svartur í basli því að
riddarinn á c6 á engan góöan reit.
16. fxe5 He6
Betra er 16. - Rxe5 17. Dd5+ RÍ7
en textaleikurinn felur í sér ótukta-
lega gildru sem hvítur sneiðir þó
hjá.
17. Bxc6 Hxc6 18. Rd8!
Nú var 18. Dd5+ freistandi því
að 18. - He6 19. Rd8 c6 20. Rxc6 gef-
ur vinningsstöðu og 18. - De6 19.
Dd8 + Bf8 20. Rd4 virðist einnig lofa
góðu. En með því að rekja síðara
afbrigðið áfram kemur í ljós að
ekki er allt með felldu. Eftir 20. -
Dd7! er riddarinn á b7 fallinn eftir
21. Dxd7 Bxd7 22. Rxc6 Bxc6 og 21.
Rxc6 Dxc6 22. Rxa5 strandar á lag-
legu stefi: 22. - Db5! 23. Rb3 Dxfl +
24. Kxfl Ba6 + og næst 25. - Hxd8.
18. - Hca6 19. Dd5+ Kf8 20. Rd4 Bd7
21. R8c6 Bxc6 22. Rxc6 Dc5 23. Dxc5
Rxc5 24. Rd4 Ke7
Þar eð 24. - Bxe5 er svarað með
25. Rxf5! gxf5 26. Hxf5+ Bf6 27.
Hxc5 o.s.frv. neyðist svartur til að
tefla endataflið með tveimur peð-
um minna.
25. b3 Re4 26. Ba3+ c5 27. Rf3 Bh6
28. Hfel Hd8 29. g4 a4? 30. g5! Bf8 31.
b4 Hd3 32. bxc5 Ke6 33. Hadl Hxc3
34. Bb4 Hc4 35. Hd4 Hc2?
Afleikur. Eftir 35. - Hxd4 36. exd4
Kd5 er staðan vissulega ekki góð
en ekki öll nótt úti.
36. Hxe4! Hxa2 37. Hc4 Hb2 38. Bc3
Hc2 39. c6 Ha8 40. c7 Hc8 41. Hdl
Og svartur gafst upp.
Baráttuskák
K-anna í Tilburg
Á mánudag verður síðasta um-
ferð tefld á stórmótinu í Tilburg í
Hollandi. Þá mætast Karpov og
Kasparov í annað sinn en tefldar
eru tvöfaldar umferðir á mótinu.
Fyrri skák þessara snjöllustu skák-
manna heims var magnþrungin á
öllum stigum og var ekki að sjá að
þeir væru að tefla saman í 158. sinn!
í byrjuninni kom Kasparov fram
með athyglisverða nýjung, um-
ræðuefni fræðinga næstu mánuði.
Miötaflið iöaði af flækjum eftir
djarfmannalega taflmennsku
heimsmeistarans og sannarlega
óvenjuleg staða kom fram: Kasp-
arov hafði hrók en Karpov þrjá
létta menn - biskup og tvo riddara.
Svo fór að allir aðrir menn, að peð-
um meðtöldum, hurfu út af borð-
inu og þá var fram komin enda-
taflsstaöa, sem ekki mun fyrr hafa
sést í stórmeistaraskákum, þótt
Reuben Fine geti um slíkar stöður
í endataflsbók sinni frá 1941.
Kasparov þurfti að gæta að sér
en jafntefli voru þó líklegustu úr-
shtin enda þurfti hann aðeins að
gefa hrókinn fyrir biskupinn til að
tryggja það - ekki er unnt að máta
með tveimur riddurum einum síns
liðs. Þeir þæfðu skákina áfram í 50
leiki án þess að peöi hefði verið
leikið, eða maður drepinn en í stað
þess að krefjast jafnteflis, fórnaði
Kasparov síðasta manni sínum og
varð patt - skákin jafntefli.
Eflaust hafa margir gaman af því
að renna yfir þessa skák en hún
er löng og athugasemdir því af
skornum skammti.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf8 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8.
d5 Re7 9. Rd2 a5 10. Hbl Rd7 11. a3
f5 12. b4 Kh8 13. f3 Rg8 14. Dc2 Rgf6
15. Rb5 axb4 16. axb4 Rh5 17. g3
Rdf6 18. c5 Bd7!?
Leikaðferð hvíts, sem hefst með
13. leik - í stað 13. Dc2, eöa upp-
skipta á f5, er vel kunn eftir skák
Polugajevskys við Judit Polgar í
einvígi í Aruba fyrr á árinu, sem
tefldist áfram 18. - fxe419. fxe4 Bh3
20. Hf2 og nú lék Judit 20. - Rg4,
sem nægði ekki til tafljöfnunar.
Svartur hefur einnig reynt 20. -
Dd7, t.d. í skákunum Epishín -
Nijboer, Groningen 1990, eða
Ftacnik - Wang Zili í Sydney í sum-
ar. Kasparov hefur djarfa áætlun í
huga.
19. Hb3!
19. - Rxg3!! 20. hxg3 Rh5
Riddarafórnin hleypir svo sann-
arlega lífi í tuskumar. Ef nú 21.
Kh2, eða 21. Kf2 f4 nær svartur
sterku frumkvæði en 21. Hf2!? er
leikur sem taka þyrfti til athugun-
ar.
Karpov hyggst hins vegar færa
sér í nyt að drottningarhrókurinn
getur gripið inn í atburðarásina.
Var kannski mögulegt að fórna
riddaranum strax í 18. leik?
21. f4!? exf4 22. c6 bxc6 23. dxc6 Rxg3!
24. Hxg3 25. cxd7 g2! 26. Hf3 Dxd7
27. Bb2 fxe4 28. Hxf8+ Hxf8 29.
Bxg7 + Dxg7 30. Dxe4
Hvítur hefur bægt atlögunni frá
og á nú liðsyfirburði. En aðeins
eitt peð er eftir í safninu og vinn-
ingur gæti því orðið mjög torsóttur.
30. - Df6 31. Rf3 Df4 32. De7 Hf7 33.
De6 Hf6 34. De8+ Hf8 35. De7 Hf7
36. De6 Hf6 37. Db3 g5! 38. Rxc7 g4(?)
E.t.v. hefur heimsmeistarinn
Skák
Jón L. Árnason
misreiknað sig stuttu fyrir tíma-
mörkin. Eftir 38. - Dcl + 39. Kxg2
Dxc7 hlýtur hann að halda jöfnu
án erfiðleika.
39. Rd5 Dcl+ 40. Ddl Dxdl+ 41.
Bxdl Hf5 42. Re3 Hf4 43. Rel Hxb4
Síðasta peð hvíts er failið. Svart-
ur gerir nú best með því að gefa
peð sín með góöu. Tveir riddarar
nægja í mörgum tilvikum til vinn-
ings ef mótherjinn á eftir peð, sem
hindrar pattstöður.
44. Bxg4 h5 45. Bf3 d5 46. R3xg2 h4
47. Rd3 Ha4 48. Rgf4 Kf7 49. Kg2 Kf6
50. Bxd5 Ha5 51. Bc6 Ha6 52. Bb7
Ha3 53. Be4 Ha4 54. Bd5 Ha5 55. Bc6
Ha6 56. Bf3 Kg5 57. Bb7 Hal 58. Bc8
Ha4 59. Kf3 Hc4 60. Bd7 Kf6 61. Kg4
í þessari stööu fór skákin í biö
og áfram tefldist:
61. - Hd4 62. Bc6 Hd8 63. Kxh4 Hg8
64. Be4 Hgl 65. Rh5+ Ke6 66. Rg3
Kf6 67. Kg4 Hal 68. Bd5 Ha5 69. Bf3
Hal 70. Kf4 Ke6 71. Rc5+ Kd6 72.
Rge4+ Ke7 73. Ke5 Hfl 74. Bg4 Hgl
75. Be6 Hel 76. Bc8 Hcl 77. Kd4
Hdl+ 78. Rd3 Kf7 79. Ke3 Hal 80.
Kf4 Ke7 81. Rb4 Hcl 82. Rd5+ Kf7
83. Bd7 Hfl+ 84. Ke5 Hal 85. Rg5+
Kg6 86. Rf3 Kg7 87. Bg4 Kg6 88. Rf4 +
Kg7 89. Rd4 Hel+ 90. Kf5 Hcl 91.
Be2 Hel 92. Bh5 Hal 93. Rfe6+ Kh6
94. Be8 Ha8 95. Bc6 Hal 96. Kf6 Kh7
97. Rg5+ Kh8 98. Rde6 Ha6 99. Be8
Ha8100. Bh5 Hal 101. Bg6 Hfl+ 102.
Ke7 Hal 103. Rf7+ Kg8 104. Rh6+
Kh8105. Rf5 Ha7+ 106. Kf6 Hal 107.
Re3 Hel 108. Rd5 Hgl 109. Bf5 Hfl
110. Rdf4 Hal 111. Rg6+ Kg8 112.
Re7+ Kh8 113. Rg5 Ha6+ 114. Kf7
Hf6+!
Og jafntefli samið.
-JLÁ
Ráðgjafi - e.t.v. hJutastarf -
Ráðgjafi óskast á einkastofu fyrir hárigræðslu.
Við óskum eftir einstaklingi sem tekur starfið alvarlega, er ábyrgðarfullur og
er dönskumælandi.
Æskilegur aldur umsækjenda er 28-45 ár. Einnig er æskilegt að umsækjandi
hafi eigin bíl og sé frá hárskera- eða hárgreiðslustétt.
Þetta ahugaverða og fjölbreytta starf veitir nýjum starfskrafti möguleika á góð-
um launum og tækifæri á ánægjulegum og gefandi starfsframa. Við höfum
starfað lengi og haft í meðferð marga íslenska viðskiptavini.
Starfsþjálfun fer fram hjá okkur.
Umsóknir sendist til: 1 O
Skanhár- Bredgade 12,1. \ /11/*
6000 Kolding. Simi 75-50-89-00 Lj H t>
Att.: Nina Taaning _ Yðar hár í okkar höndum