Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991. 21 Sviðsljós Fyrrum eiginkona Claptons bamshafandi Móðir Conors Clapton litla, sera hrapaði til bana frá 53. hæð í háhýsi í New York síðastliðinn vetur, á nú von á barni. Móðirin, Lori del Santo, á von á barninu með ríkum ítala, Silvio Sardi. Hann er sagður mjög ólíkur Eric Clapton, gítarleikaranum íræga, því honum þykir gott að hafa það notalegt heima á kvöldin. Lori segir að fyrst eftir að Conor litli dó hafi hún haldið að hún væri að missa vitið. Hún hefur gengið til sálfræðings og finnst hún nógu sterk núna til að eignast annað barn. Eric Clapton hefur fyrst nýlega tjáð sig um sonarmissinn. Hann segist hafa dvalið á hóteh rétt hjá þeim stað þar sem slysið varð þegar Lori hringdi í hann og æpti að Conor væri dáinn. Hann sagðist hafa sagt henni að vera ekki með þessa vit- leysu. Hann hefði samt þotið af stað til hennar en ekki skilið að um al- vöru væri að ræða fyrr en hann hefði séð sjúkrabílinn og lögreglubílana. Eric kveðst einnig hafa þurft að ganga til sálfræðings og mest vegna þess að honum fannst hann ekki syrgja nóg. Hann segist hafa verið hræddur vegna viðbragða sinna. Lori sé itölsk og alin upp við það að láta í ljósi tilfinningar sínar. Hann hafi hins vegar verið alinn upp við það að leyna tilfinningum sínum. Eric segist samgleðjast Lori og kveðst reiðuþúinn til að rétta henni hjálparhönd þurfi hún þess með. Lori del Santo og Eric Clapton. Með Monroe áheilanum í nýrri bók um Madonnu kemur fram að söngkonan hafi verið svo ákveðin i því að verða ný Marilyn Monroe aö hún hafi meira að segja farið að vera með John F. Kennedy yngri. En þegar hann fór með Ma- donnu heim til móður sinnar fór Jackie Kennedy ekki leynt með andúð sína á sambandinu. Þess vegna undraði heldur engan að sambandið skyldi fara jafnfljótt út um þúfur og það byrjaði. Stefanía. Stefaníu gert að greiða skaðabætur Stefanía prinsessa er sögð hafa pantað kvöldmat fyrir átján manns í Liege í Belgíu en lét svo ekki sjá sig. Eigandi veitingastaö- arins var búinn að kæla kampa- vínið, laga fimm rétti og vísa öðr- um gestum frá. Hann fór í mál við prinsessuna og fékk á fjórða hundrað þúsund krónur í skaðabætur. Peningam- ir voru teknir af tekjum sem Ste- fanía fékk við tónleikahald í bæn- um. Það gekk nokkurn veginn upp því aðeins fimm hundruð manns komu til að hlusta á söng prinsessunnar. Panasonic ► 6 Power Lovels ► 30 minute timer ► 0.7 cu. ft. Capacity ► Build-in kit availablc SJSO DlM. COHlRÓt Panasonic örbylgjuofn NN5250 Nettur og öflugur, 21 lítra, 800 w, með snúningsdiski 6 mismunandi hitastillingar, 30 mínútna tímastillir. Ef þig vantar dugmikla vinnukrafta á heimilið þá hefur Panasonic lausnina Panasonic ryksuga og Panasonic örbylgjuofn, sannkallaðir dugnaðarforkar. Panasonic ryksuga MCE89 Öflug og meðfæranleg, með inndraganlegri snúru, stillanlegum sogkrafti og geymslu fyrir fylgihluti í vélinni sjálfri JAPIS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 62 52 00 iliili Eigum einnig ódýrari og einfaldari ryksugu Panasonic MCE61 á kr. 7.980.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.