Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Blaðsíða 44
56 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991. Menning Háskólabíó - Hvíti víkingurinn: ★★ Ást, trú og dauði til foma Hvíti víkingurinn er þriöja víkingamynd Hrafns Gunnlaugssonar og lokakaflinn í þessari lotu sem staö- ið hefur í sjö ár. Þegar Hrafn geröi Hrafninn flýgur var hann nánast óþekkt stærö. Sú kvikmynd bar hróö- ur hans víöa og varö til þess aö hann varð fyrsti ís- lenski kvikmyndaleikstjórinn sem skapaði sér nafn á erlendri grund. Hrafn fylgdi þessari velgengni eftir með í skugga hrafnsins sem olli nokkrum vonbrigöum en var þó sýnd víöa um heim viö ágætar undirtektir. í þijú ár er Hrafn búinn aö vera meö Hvíta víkinginn í smíðum. Hrafn hefur haft það fé milli handanna sem kvikmyndaleikstjóra hér á norðurhjara dreymir um og Hvíti víkingurinn ber þess svo sannarlega merki aö ekki er kastað höndum til neins hlutar. Kvikmynd- in virkar sterk í mörgum einstökum atriðum en spennu vantar og handritið er frekar innihaldsrýrt. Hrafn Gunnlaugsson hefur sínar sterku hliðar sem kvikmyndageröarmaður og einnig sínar veiku hliöar. Skilin eru skörp í Hvíta víkingnum sem er dýrasta kvikmyndin sem íslendingar hafa tekiö þátt í að gera. Styrkleiki Hrafns felst í öruggri og kraftmikilli leik- stjóm. Þá er persónusköpun fornmanna hans betri en flestra annarra. Veikleiki Hrafns liggur í að hann er ekki mikill sögumaöur og saga ungu elskendanna nær aldrei að vera áhrifamikil. í raun skipti það litlu máli í lokin hvort örlög þeirra yröu á sama veg og Rómeó og Júlíu eða þau næðu saman. Það verður samt að taka fram að Hvíti víkingurinn er einnig fimm tíma sjónvarpssería og það getur verið að hið mannlega komi betur fram í lengdri útgáfu. En eins og Hviti víkingurinn kemur hér fyrir sjónir vantar margt upp á að um góða kvikmynd sé að ræða og veldur myndin nokkmm vonbrigðum þegar á heildina er litiö. Trúarstríð er umgjörðin Hvíti víkingurinn er misgóð kvikmynd. Til að mynda eru atburðirnir í Noregi í byrjun myndarinnar slak- asti hluti myndarinnar. En um leið og komið er til íslands er eins og Hrafn sé kominn á heimavöll og myndin verður mun meira ógnvekjandi og skarpari og þá fyrst fær maður áhuga á þvi sem er að gerast þótt alltaf vanti spennu í söguþráðinn. í Hvíta víkingnum er áhersla lögð á tvennt. Askur og Embla eru boðberar ástar og hreinleika, staðfestu Kvikmyndir Hilmar Karlsson Maria Bonnevie og Gottskálkur Dagur Sigurðarson leika unga elskendur í Hvita vikingnum. og tryggðar. Þau standa saman í því trúarstríði sem er umgjörðin utan um sögu þeirra. Askur og Embla ólust upp í heiðni en Ólafur Tryggvason Noregskon- ungur neyðir Ask til að taka kristna trú og sendir hann til íslands til að kristna þá heiðnu þjóð. Fyrri för hans verður hin mesta sneypuför en í síðari förinni er það aðeins föður hans, Þorgeiri Ljósvetningagoða, að þakka að hann heldur lífi. Á meðan íslandsför Asks stendur heldur Ólafur Emblu fanginni og ætlar henni drottningarhlutverk sér viö hlið en vill ekki gera hana að drottningu án vilja hennar. í Hvíta víkingnum tekur Hrafn hvorki afstöðu með kristinni trú né ásatrúnni. Illmennin eru Ólafur kon- ungur, sem er kristinn, og einstakir ættingjar Asks á íslandi sem eru heiðnir. I raun er heldur ekki verið að deila á eitt eða neitt heldur sögð forn saga og þar sem á þessum tímum var trúað á alls konar kukl fylg- ir það með í sögunni, sem sögð er, en á ósannfærandi hátt. Góður leikur Hrafn er góður leikarastjórnandi og kemur það best fram í leik Gottskálks Dags Sigurðarsonar og Mariu Bonnevie. Þetta eru óreyndir leikarar en ná góðum tökum á hlutverkum sínum þótt um engan stjömuleik sé aö ræða. Það sem hjálpar þeim mikið er einmitt ungur aldur þeirra og stundum viðvaningsleg viðbrögð sem passa ágætlega við. Það er ekki hægt annað en að trúa á sakleysi þeirra og heiðarleik og í þeim báðum felast leikaraefni. Egill Ólafsson og Helgi Skúlason era okkar bestu kvikmyndaleikarar og leikur þeirra stendur upp úr. Þeir hafa ekki ósvipaðan leikmáta, eru kröftugir og raddmiklir, og þótt ekki sé verið að halia á Helga þá á Egill stjörnuleik í hlutverki hins slæga konungs sem notfærir sér trúna til að koma áformum sínum fram. Aðrir leikarar koma ágætlega frá sinu en eru samt misgóðir. Sérstök ástæða er að minnast á góöan leik Bríetar Héðinsdóttur í hálfgerðu nornahiutverki. Kvikmyndalega séð er margt vel gert í Hvíta víkingn- um. Bak við kvikmyndavélina er hinn sænski Tony Forsberg sem sjaldan bregst og búningar Karls Júlíus- sonar eru sem fyrr sannfærandi. Þá er tónlist Hans- Eriks Philip sérlega vel heppnuð. Þessi atriði hjálpa til að gera Hvíta víkinginn eftirminnilegan en eru ekki nóg til að gera hana að góðri kvikmynd. HVÍTI VÍKINGURINN Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson. Framleiðandi: Dag Alveberg. Saga: Hrafn Gunnlaugsson. Handrit: Hrafn Gunnlaugsson og Jonathan Rumbold. Kvikmyndatökumaóur: Tony Forsberg. Tónlist: Hans-Erik Philip. Klipping: Sylvia Ingemarsson. Hljóð: Jan Lindvik. Búningar: Karl Júliusson. Aðalhlutverk: Gottskálk Dagur Sigurðarson, Maria Bonnevie, Egill Ólafsson, Thomas Norström og Helgi Skúlason. Andlát Þór Þormar, Grýtubakka 6, andaðist í Landakotsspítala 30. október. Friðrikka Kristín Benónýsdóttir, Hvassaleiti 24, lést í Borgarspítalan- um 31. október. Sigurlaug Svanlaugsdóttir andaðist að morgni 31. október. Guðbjörg Jónsdóttir, Dalbraut 27, lést í Landspítalanurn 30. október. Óskar Long Jónsson frá Arnarstöð- um, Núpasveit, Norður-Þingeyjar- sýslu, er látinn. Hann bjó í Dan- mörku og verður jarðsettur þar. Siguijón Jóhannsson verkamaður, Mikladalsvegi 2, Patreksfirði, andaö- ist í sjúkrahúsinu á Patreksfirði að kvöldi 30. október. ísak Eyleifsson fisksali, Lyngbrekku 12, Kópavogi, lést 31. október. Tilkyimingar Sölusýning - kaffisala Sölusýning og kaffisala verður haldin í Lækjarási, Stjömugróf 7, laugardaginn 2. nóvember milli kl. 14-17. Missið ekki af Gleðispilinu Það eru aðeins þrjár sýningar eftir á Gleðispilinu eftir Kjartan Ragnarsson sem sýnt hefur verið á stóra sviði Þjóð- leikhússins. Gleðiðspilið er nýjasta verk Kjartans og fjallar um fyrsta leikrita- skáld íslendinga, Sigurð Pétursson, og vin hans Geir Vídalín biskup. Þriðja síð- asta sýning verður í kvöld, 2. nóvember, næstsiðasta sýning verður fimmtudaginn 7. nóvember og allra síðasta sýning sunnudaginn 10. nóvember. Kvenfélagið Freyja félagsvist verður spiluð að Digranesvegi 12, Kópavogi, sunnudaginn 3. nóvember kl. 15. Skaftfellingafélagið Spilað verður sunnudaginn 3. nóvember kl. 15 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í dag, laugardag, kl. 15.30 verður fjöl- skylduskemmtun í Laugardalshöll undir kjörorðinu „Vinátta 91“. Á sunnudag verður spiluð félagsvist í Risinu kl. 14 og dansað í Goðheimum frá kl. 20. Jólabasar Sólvangs Hinn árlegi jólabasar Sólvangs í Hafnar- firði verður í dag, laugardaginn 2. nóv- ember, og hefst kl. 14 í anddyri Sólvangs. Fallegar jólagjafir og margt fleira. Allt handunnar vörur. Kaffisala og hlutavelta Kvenfélags Breiðholts Að lokinni guðsþjónustu í Breiðholts- kirkju í Mjódd kl. 14 á morgun, allraheil- agramessu, verður kaffisala og hluta- velta á vegum Kvenfélags Breiðholts í fyrirhuguðum sal safnaðarheimilis kirkj- unnar. Umferðarkönnun í nágrenni Varmahlíðar Vegagerð ríkisins mun standa fyrir um- ferðarkönnun í nágrenni Varmahlíðar laugardaginn 2. nóvember nk. Markmið- ið með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð milli þéttbýlisstaða á Norður- landi vestra, Framkvæmd könnunarinn- ar er með þeim hætti að allar bifreiðar, sem koma að athugunarstað, eru stöðv- aðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga. Vegagerðin vonast til að veg- farendur, sem leiö eiga um nágrenni Varmahlíðar, taki starfsmönnum vel og biðst velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum. Málverkauppboð Galleri Borgar Gallerí Borg heldur málverkauppboð sunnudaginn 3. nóvember nk. Uppboðiö verður í Súlnasal Hótel Sögu og veröa boðnar upp rúmlega áttatíu myndir. Verkin verða sýnd i Gallerí Borg við Austurvöll í dag og á sunnudag milli kl. 14-18. Auk verka ýmissa núlifandi lista- manna verða boðnar vatnslitamyndir eft- ir Nínu Tryggvadóttur, Þorv’ald Skúlason og Gunnlaug Scheving, þrjár olíumyndir eftir Júlíönnu Sveinsdóttur, Þórarin B. Þorláksson, Gunnlaug Scheving, Finn Jónsson, Kristján H. Magnússon og Jó- hannes S. Kjarval. Þá verður boðin olíu- mynd, blóm í vasa, eftir Jón Stefánsson og sjávarlífsmynd eftir Snorra Arin- bjarnar. Hægt er að gera forboð í myndir fyrir þá sem ekki komast á uppboðið og einnig er hægt að bjóða símleiðis eftir að uppboðið hefst. Uppboðið hefst kl. 20.30 og verður í Súlnasal Hótel Sögu eins og fyrr segir. Vináttugangan ’91 í dag, 2. nóvember, kl. 13.30 verður Vina- ganga í Grafarvogi. Mæting við Fjörgyn kl. 13.15. Skátafélagið Vogabúar annast skipulagningu göngunnar. Þetta er létt fjölskylduganga kringum voginn og ef fiöldi verður nægur er stefnt að því að tengjast hönd í hönd kringum voginn. Effir gönguna bjóða skátamir upp á kaffi og appelsínusafa í félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Sigurður Helgason frá Björgun mun kynna þar nýtt skipulag fyrirhug- aðrar byggingar við Gullinbrú. Fundir Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund mánudaginn 4. nóvember kl. 20.30 1 félagsheimili Dómkirkjunnar. Rætt verður um basarinn. Kaffiveitingar. Kvenfélag Seljasóknar Félagsfundur í kirkjumiðstöðinni þriðju- daginn 5. nóvember kl. 20.30. Gestur fundar Unnur Arngrímsdóttir. Sigurður Kristjánsson sýnir í Galierí 8 Á morgun opnar Sigurður Kristjánsson, listmálari sýningu á myndverkum í Gall- erí 8, Austurstrætí 8. Langflestar myndir á sýningunni hafa aldrei verið sýndar áður. Sýningin er opin kl. 10-18 til 16. nóvember. Sýning á Blönduósi Hjördís Bergsdóttir, Dósla, heldur nú málverkasýningu á Blönduósi og sýnir 14 verk. Hér er Dósla við eitt þeirra. DV-mynd Magnús Ólafsson Kynning á verkum Kjartans Guðjónssonar í Foid í dag, 2. nóvember, hefst kynning á verk- um Kjartans Guðjónssonar í Fold, list- munasölu, Austurstræti 3. Á kynning- unni eru til sölu og sýnis liðlega tuttugu myndir, olíumyndir, gvassmyndir og krítarteikningar. Kjartan hefur dundað sér við myndlist í meira en 40 ár og feng- ist við kennslu í MHÍ i ein 25 ár án þess að vera kennari heldur myndlistarmaður sem fékkst við kennslu. Kynningin stend- ur til sunnudagsins 10. nóvember og er opið mánudaga til föstudaga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.