Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1991, Side 27
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991.
39
Það er ýmislegt sem maður þarf að trúa mömmu fyrir þegar komið er heim úr skólanum. Ingólfur Kári, Halldóra og Guðbjörg María
eins og reyndar öll hin,“ ítrekar Hall-
dóra.
Inga Helga og Erna Björk, sem eru
þrettán og fimmtán ára, vinna báðar
þrjá daga í viku eftir skólann í Nið-
ursuöuverksmiðjunni. Þær vinna
einnig ef tímar falla úr í skólanum
og svo á kvöldin og um helgar ef ein-
hverja vinnu er að fá í verksmiðj-
unni. „Guðbjörg María, sem er ellefu
ára, passar börn þrjá daga vikunnar
eftir skólann og um daginn keypti
hún sér kuldaskó fyrir kaupið sitt.“
Stoltið í rödd móðurinnar leynir sér
ekki.
Elsta barnið, Elísabet Björg, sem
er tuttugu og fjögurra ára, hefur flutt
heim til að aðstoöa móður sína og
systkini. Elísabet skýst heim í hádeg-
inu úr vinnu sinni í heildsölufyrir-
tækinu Sandfelli til að elda handa
hópnum stóra. Erna Björk er komin
heim úr skólanum og þá vantar bara
eitt barnanna, Björgúlf Rúnar, tutt-
ugu og tveggja ára. Hann er fluttur
að heiman en býr beint á móti móður
sinni og systkinum. Það er kallað
sérstaklega í hann fyrir fjölskyldu-
myndatöku. Björgúlfur hefur verið á
sjó og fært móður sinni mikinn flsk
sem hún segir hafa veriö góða búbót.
Flúóu til ísafjarðar
Þetta er myndarlegur og samhent-
ur hópur í gömlu og hlýlegu húsi við
Tangagötu á ísafirði. „Ég féll alveg
fyrir þessu húsi um leið og ég gekk
inn um dyrnar. Húsið er frá 1903 og
það er sál í því, örugglega margar
sálir,“ segir Halldóra. Hún bætir því
við að einu sinni hafi búið átta fjöl-
skyldur í þessu húsi.
Þetta er þriðja ár Halldóru og henn-
ar fjölskyldu í húsinu. Að sögn Hall-
dóru var fjölskyldan eiginlega á
flótta frá Mosfellsbæ þegar hún kom
til ísafjarðar en þar fékk hún loks
frið. Hún segir Isafjörð hafa orðið
fyrir vahnu þar sem elsta dóttir
hennar var þegar flutt þangað og bar
staðnum vel söguna.
19ára og ein
með tvö börn
Halldóra bjó til fimmtán ára aldurs
í Keflavík með bróður sínum og móð-
ur, sem varð ekkja er Halldóra var
fimm ára. Hún eignaðist fyrsta barn
sitt sextán ára gömul og sautján ára
var Halldóra, sem er undan Jökh
eins og hún orðar það, komin með
tvö börn í Reykjavík. Hún varð ein
með þau nítján ára og gerðist þá ráðs-
kona úti á landi. Seinna kynntist hún
ísfirðingi og átti með honum þrjú
börn. Það slitnaði einnig upp úr
þeirri sambúð og Halldóra varð aftur
ein og í þetta skipti með fimm börn.
Síöar tók hún svo aftur saman við
fyrri eiginmann sinn og eignaðist
yngsta barn sitt með honum. Seinni
sambúö þeirra fór út um þúfur eins
og sú fyrri. Líf hennar hefur ekki
verið dans á rósum, eins og hún seg-
ir sjálf. Eitt barna hennar hefur glímt
við alvarlegan sjúkdóm en er nú
stálslegið.
Alltaf ræst úr öllu
„Þaö hefur alltaf ræst úr öhu i lok-
in en á síðasta snúningi þó,“ segir
Halldóra og bætir við að aldrei hafi
hvesst svo að ekki hafl lægt aftur.
Hún leggur á það áherslu að það
sé ekki sjálfsagt að maður sé frískur
og að heilsan sé dýrmætari en maður
geri sér grein fyrir. Hún segist finna
það sérstaklega vel núna hversu
miklu máli öll litlu atriðin í lífinu
skipta og það meir en fólk veltir fyr-
ir sér dags daglega.
Heimilið ber þess merki að húsráð-
anda sé annt um það. Halldóra segir
að auk barnanna hjálpi henni yndis-
leg kona með húsverkin. Sjálf segist
hún lítið geta gert annað en að
prjóna. Halldóra er langt komin með
fallega gula peysu á sjálfa sig og
henni til samlætis hafa einnig tvær
dætranna setið og prjónað.
Ingólfur Kári gefur til kynna að
hann sé orðinn svangur og getur
augljóslega varla beöið eftir hádegis-
matnum sem dregist hefur á langinn
vegna nærveru DV-manna. Hann
skýst í ísskápinn og kannar úrvalið.
„Hann er næstum því í heilsufæði,"
segir móðir hans. Hann æfir karate
tvisvar í viku og reynir að gæta sín
á því að borða ekki of mikinn sykur.
Ingólfur sýnir nokkrar karateæf-
ingar á meðan ljósmyndari DV býr
sig undir að mynda fjölskylduna.
Táningsstúlkurnar á heimilinu láta
bíða svolítið eftir sér. „Ætli þær séu
ekki að teikna á sig andlit," segir
Hahdóra þohnmóð og skýtur því aö
um leið að sjálf líti hún ekki vel út.
Hún sé svo þrútin í framan vegna
lyfjatöku.
Fjársöfnun
Halldóra segist vilja koma á fram-
færi þakklæti til allra sem hafa
styrkt hana og veitt henni umönnun
í veikindum hennar. „Það standa
fleiri á bak við mann en maður hygg-
ur.“ Hún minnist sérstaklega á
starfsfólk deildar 1-A á Landakoti og
á höfðinglega gjöf frá starfsfólki og
eigendum Niðursuðuverksmiðjunn-
ar hf. á ísafirði.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir
far og uppihald fyrir Halldóru en hún
segist enn ekki vita hvort greitt verði
fyrir fylgdarmann með henni. Söfn-
un er hafin á ísafirði til styrktar fjöl-
skyldunni og er lagt inn á sparisjóðs-
bók nr. 23730 í útibúi Landsbankans.
Halldóra horfir á þölskyldu sína
og segir börnin öll munu verða sam-
an um jólin í húsinu gamla sem hún
hefur unnið hörðum höndum til að
geta fest kaup á. Húsið er ekki komið
í höfn enn, eins og hún segir, því
greiðslum er ekki lokið. „En vonandi
tekst það. Okkur líður öllum svo vel
hérna, fólkið er svo gott og ég elska
fjöllin hér í kring.
-IBS