Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991.
Fréttir
Skriður kominn á óformlegar viðræður um sameiningu fiskvinnslufyrirtækja í Vestmannaeyjum:
Ganga Fiskiðjan og ís-
félagið í eina sæng?
Ómar Garðaisson, DV, Eyjum;
Samdráttur í fiskveiöum, minni
aílaheimimildir og útflutningur á
ferskum fiski í gámum hefur
þrengt að frystihúsunum í Vest-
mannaeyjum eins og annars staðar
á landinu. Er nú svo komiö að grípa
verður til ráðstafana ef ekki á illa
aö fara og er nú helst horft til sam-
einingar í einhverri mynd.
Vinnslustöðin, Hraðfrystistöðin,
ísfélagiö og Fiskiðjan eru stærstu
frystihúsin í Eyjum. Fyrr í haust
fengu forráðamenn þessara fjög-
urra frystihúsa heimsókn frá ís-
landsbanka sem er aðalviðskipta-
banki þeirra allra. Skilaboðin voru
skýr, styrkja þarf reksturinn. Telja
íslandsbankamenn nauðsynlegt að
frystihúsin myndi sterkari eining-
ar meö sameiningu í einhverri
mynd.
Samkvæmt heimildum DV er
boltinn nú í höndum frystihúsa-
manna. Hafa farið fram óformlegar
viðræður milh þeirra en nú virðist
kominn skriður á málin. Helst er
horft til þess að Fiskiðjan og ísfé-
lagið gangi í eina sæng. Margir
endar eru enn lausir en ljóst er að
spurningin er ekki hvort af sam-
einingu verður, heldur hvenær og
hvernig. Ekki er líklegt aö húsin
fjögur renni saman í eitt heldur að
í Vestmannaeyjum verði tvö eða
þrjú stór frystihús.
Magnús Kristinsson, stjómar-
formaður ísfélags Vestmannaeyja
hf„ sagði viö DV í gærkvöldi að
engar viðræður hefðu átt sér stað
síðustu daga.
„Áður höfðu menn ræðst við, en
hvað gerist í þessari viku á eftir
að skýrast. Varðandi þetta upp-
hlaup sem varð í kjölfar heimsókn-
ar íslandsbanka er rétt að benda á
aö ákveöin forsaga liggur að baki
erfiðleika frystihúsa í Vestmanna-
eyjum í dag. Hún er fyrst og fremst
aflaleysi frá því í júlí í sumar og
afla- og gæftaleysi í haust. Af þessu
stafa þyngslin og ekkert óeðlilegt
við það að íslandsbanki biðji menn
að skoða sín mál. Kanna hvort hag-
kvæmni er í sameiningu í ein-
hverri mynd og það er einmitt það
sem við erum að gera. Ég vil að það
komi fram að ég er mjög ánægöur
með aö menn frá íslandsbanka
komu hingaö og ræddu við okkur
augliti til auglitis um stöðu mála
en gaspra ekki um þau á torgum
úti,“ sagði Magnús.
Bækistöðvar ísfélagsins og Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum. Sameinast þessi tvö fyrirtæki á næstunni?
DV-myndir Ómar
Guðjón Rögnvaldsson, stjórnar-
formaður Fiskiðjunnar hf„ sagði í
gærkvöldi að ekkert væri aö gerast
í augnablikinu. Veriö væri að
kanna ýmsa möguleika. Hann
svaraði því játandi að hafa átt í
viðræðum viö ísfélagið. „Við höf-
um rætt við þá. Hver niðurstaöan
verður skýrist á næstu dögum. Við
viljum vinna þetta mál, hratt og
vel,“ sagði Guðjón.
Tækin, sem notuð eru til malarvinnslu nærri Fnjóská, eru i einni bendu eftir að klakastiflan „staflaði þeim sarnan".
DV-mynd gk
Tjón hjá Vegagerðinni á Akureyri:
Klakastíf la í Fnjóská
ruddi tækjum um koll
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Ég held ekki aö um stórtjón sé að
ræða, ekki enn sem komið er a.m.k.,“
segir Guðmundur Svavarsson, um-
dæmisstjóri Vegagerðar ríkisins á
Norðurlandi eystra, um tjón sem
varð á tækjum Vegageröar ríkisins
nærri bænum Laufási í Kelduhverfi
í Eyjafirði fyrir helgina.
Um er að ræða tæki til malar-
vinnslu, svokaliaðan malara og færi-
bönd sem staðsett voru ekki fjarri
Fnjóská. í snjókomunni í síðustu
viku og þegar fór aö frysta hefur áin
stíflast á þessum slóðum og þegar
stíflan brast ruddist klakaburðurinn
yfir tækin og þeytti þeim saman í
eina hrúgu.
Sem fyrr sagði virðist sem tækin
hafi ekki skemmst mjög mikið en
erfitt er að komast að þeim. Ain hef-
ur nú rutt sér farveg þeim megin við
tækin sem farið var aö þeim áður og
verður hugsanlega einhver bið á að
hægt verði að komast að þeim og
kanna skemmdir nákvæmlega.
Bæjarstjóm Vestmannaeyja:
Vill þriggja mflna landhelgi við Eyjar
Ómar Garðaxsscm, DV, Eyjum;
Bæjarsljórn Vestmannaeyja sam-
þykkti í síðustu viku aö leggja til viö
sjávarútvegsráðuneytið að sett veröi
þriggja mílna landhelgi við Vest-
.mannaeyjar. Nái hún í kringum allar
eýjar og sker að Surtsev undanskil-
ínm.
Tillagan var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum, 9-0. Fyrr hafði
bæjarstjóm leitað umsagnar hags-
munaaðila um landhelgi við Eyjar
og voru fjórir af sex sem lögðu til að
þessi leið yrði valin. En aliir voru
sammála um að tilgangslaust væri
að loka fyrir veiðar við Eyjar meðan
dragnótaveiðar eru leyÆar upp í
íjöru eins og nú er. TUlaga bæjar-
stjómar tekur líka þvi og vill banna
veiöar meö dragnót inna þriggja
mílna við suðurströndina.
„Fella þarf úr gildi þann þann þátt
fiskveiðileganna sem heimilar svo-
kallaöa fjöruopnun fyrir botnvörpu-
veiðum inn af Vestmannaeyjum á
timabilinu 15. febrúar til 16. apríl ár
hvert,“ segir í tillögunni og er til-
gangurinn að koma í veg fyrir veiðar
trofibáta uppi í kálgörðum eins viö-
gengist hefur undanfarin ár.
Reykjavík:
Róleghelgi
Óverýufátt fólk safnaöist saman
í miðbæ Reykjavíkur um helgina.
Að sögn lögreglirvar ekki nema
um 1.000 manns þar saman komið
aðfaranótt laugardags.
Fjórtán gistu fangageymslur
lögreglunnar sem er óvenjufátt.
Aðfaranótt laugardags voru 10
ökumenn teknir vegna gmns um
ölvunarakstur og aðfaranótt
sunnudags vom 5 teknir af sömu
orsökum. -J.Mar
Kópavogshælið:
Reykingarsettu
kerfiðafstað
Brunaboði fór í gang á Kópa-
vogshæli skömmu eftir hádegi í
gær. Allt tiltækt lið slökkvihðsins
fór á vettvang.
Enginn eldur reyndist þó laus
heldur höfðu nokkrir einstakling-
ar ekki getað hamið nikótínlöng-
un sína og fengið sér að reykja.
Svo óheppilega vildi hins vegar tii
að þeir höfðu tendrað í sígarettun-
um undir réykskynjara með þeim
afleiðingum aö eldvamarkerfi
hælisinsfórafstað. -J.Mar
Mjólkurverkfall
Gylfi Kristjánsson, DV, Akoreyn:
Iðjufélagar, sem starfa í mjólk-
ursamlögunum á Akureyri og
Húsavík, lögöu niöur störf á
föstudag. í dag og á morgun er
einnig vinnustöðvun -á þessum
stöðum.
Unniö af fullum krafti í Mjólk-
ursamlagi KEA á Akureyri á
laugardag en þá var mjólk keyrö
í verslanir.
Deila Iöjufélaga við vinnuveit-
endur stendur um starfsnámskeið
og hærri laun samfara því og hef-
ur verið boðaö til verkfalls nk.
mánudag hafi samningar ekki
tekist. Guðlaugur Þorvaldsson
sáttasemjari hefur boðað deiluað-
ila til fundar á miðvikudag.