Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Síða 8
JSIENSKA AUGIÝSINCASTOFAN HF
8
MÁNÚDAGUR 18. NÓVEMBER 1991.
Utlönd
SauQán blaða-
mennfallniri
Júgóslavíu
Sautján blaðamenn af ýmsu
þjóðerni eru nú fallnir í Júgóslav-
íu frá því átökin hófust þar fyrir
alvöru í sumar. Sautjándi maður-
inn féll nú á laugardaginn. Hann
var heimamaður og var í Vuko-
var þegar sókn sambandshersins
var hvað hörðust.
Breski sjónvarpsmaðurinn
Davis Carter liggur nú á sjúkra-
húsi í Belgrad hættulega sár eftir
að hafa orðið fyrir skoti leyni-
skyttu. Að sögn lækna á sjúkra-
húsinu er hann þungt haldinn en
þó ekki í lífshættu lengiuv
Carter vann fyrir sjónvarps-
stöðina ITN og var í Vukovar
þegar skotið var á hann. Ljós-
myndari AP varð einnig fyrir
skotum leyniskyttu í borginni en
er á batavegi. '
Fyrir utan þá sautján sem eru
fallnir er nokkurra saknað. Þar á
meðal eru tveir sovéskir blaða-
menn sem ekkert hefur spurst tii
frá þvi í september. Flest bendir
til aö þeir hafi látið lifið.
Reuter
Sambandsherinn tilbúinn í lokaslaginn um Vukovar:
Síðustu Króatarnir
málning
Jotun
lökk
1600
Irtatónar
3TU/j>
m
\r.,
HFS\>
Geríð góð kaup á
málningardögum
Húsasmiðjunnar.
HUSASMIÐJAN
• u 1IL-JU IV >0 hJt'JL itur
áliMimij ScOeúw SKK.wiz íScStffi
Skútuvogi 16, Reykjavík
i, Hafharfirði'
Serbneskir tlóttamenn foröa sér úr húsarústum í Vukovar. Bærinn er nær
algjörlega i rúst eftir þriggja mánaða umsátur júgóslavneska sambands-
hersins. Símamynd Reuter
Stríðið í Júgóslavlu veldur spennu í Danmörku:
Hótanir um hryðjuverk
ganga á milli inn-
flytjenda frá Júgóslavíu
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn:
„Serbar og Króatar umgangast nú
hvorir aðra með varkárni og enginn
vafi leikur á því að þeir gruna hvorir
aðra um græsku," er haft eftir Karst-
en Fledelius, sem hefur verið form-
aður Dansk-júgóslavneska félagsins
frá árinu 1975.
í Danmörku eru um 6 þúsund Serbar
og 200 Króatar og hafa þeir lifaö í
sátt og samlyndi í fjölmörg ár eöa
allt fram að borgarastríðinu í Júgó-
slavíu. Nú er striðið farið að hafa
bein áhrif á samlyndi Júgóslavanna
og hefur einn af fyrrverandi for-
mönnum félags Júgóslava í bænum
^f§j»gið4jölda upphring-
fém honum er hótad ö)!u
fyrir árás í salarkynnum félagsins
en þau eru bæði Króatar.
Friðriksverksdeildin er hin fjöl-
mennasta í Danmörku með um 700
félagsmenn. Síðar í þessum mánuði
verður stofnuð sérdeild fyrir Króata
í bænum í mótmælaskyni við aðalfé-
lagið en þar hafa Serbar tögl og
hagldir.
Júgóslavarnir hér í Danmörku
fylgjast auðvitað náið með því sem
er aö gerast á þeirra fósturjörð óg
vinna Serbar og Króatar að því að
styðja landsmenn sína með fjárfram-
lögum. Frammámenn meðal Júgó-
slava hér í landi óttast að upp úr
kunni að sjóða meðal þjóðarbrot-
anpa og að öryggi þeirra sé þar með
illu oe auk bess varð eiginkona háns
Júgóslavneski sambandsherinn er
reiðubúinn aö leggja til lokaatlögu
gegn króatískum varöliöum sem eru
innikróaðir á litlum bletti í hjarta
bæjarins Vukovar.
Ríkisstjórn Króatíu sagði í gær að
varðliðarnir í Vukovar ætluðu að
gefast upp fyrir sambandshernum
sem hefur setið um bæinn í þrjá
mánuði. Stjórnvöld höfðu áður lýst
því yfir að þau mundu aldrei gefa
bæinn upp á bátinn.
Króatar urðu hins vegar að láta
undan síga vegna látlausrar sóknar
hersins og vegna ömurlegs aðbúnað-
ar þeirra fjórtán þúsund íbúa bæjar-
ins sem hírast matar- og vatnslausir
í neðanjarðarbyrgjum. Þar á meðal
eru tvö þúsund börn og um fimm
hundruð særðir eftir loftárásir og
stórskotahríö sambandshersins.
Yfirvöld í Zagreb fóru fram á það
viö herinn að hann ábyrgðist öryggi
óbreyttra borgara gagnvart hefndar-
aðgeröum serbneskra skæruliða og
leyfði að þeir yrðu fluttir á brott. Þau
fóru einnig fram á það að alþjóða
Rauða krossinn og eftirlitsmenn
Evrópubandalagsins skærust í leik-
inn. Eftirlitsmenn EB sögðu að her-
inn heföi fallist á nærveru þeirra frá
deginum í dag.
Friðarumleitanir í Vukovar hófust
eftir að nýtt vopnahlé milli Króata
annars vegar og serbneskra skæru-
liða og sambandshersins hins vegar
hófst á laugardag. En harður kjarni
um 1500 króatískra varðliða virtist
ætla að veita viðnám gegn falli Vuko-
var. Þeir hörfuðu inn á víggirt svæði
í miðbænum í gær undir miklum
sprengjuárásum hersins.
Herinn sendi bíla með hátalara inn
i Vukovar þar sem þeir Króatar sem
vildu gefast upp voru hvattir til þess.
Herinn lofaði að fara með þá sem
gæfust upp sem stríðsfanga.
Yfirvofandi fall Vukovar er mikið
reiðarslag fyrir Króata sem hafa
misst um þriðjung iands síns í meira
en fjögurra mánaða bardögum.
Stjórnarerindrekar sögðu hins vegar
að þetta gæti hraðað pólitískri lausn
deilunnar þar sem Serbar hefðu náð
einu helsta takmarki sínu.
Reuter
verjast í miðbænum
- tvö þúsund börn og fimm hundruö særöir menn innilokaöir í bænum