Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Page 14
14 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun; ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Sáttatónn Morgunblaðið birtir mikið viðtal við Davíð Oddsson forsætisráðherra í sunnudagsblaði sínu. Það er sátta- tónn í þessu viðtali. Davíð fer með löndum. Það hefur ekki alltaf verið hans stíll. Forsætisráðherra hefur ein- mitt verið þekktur fyrir að hafa sínar skoðanir og láta þær tæpitungulaust í ljós. Hann hefur farið sínar leiðir og komist upp með það. Einkum þegar hann var borgar- stjóri Reykjavíkur. Davíð Oddsson var ekki í friðarstelhngum þegar hann bauð sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann var heldur ekki að tvínóna við hlutina þegar hann myndaði ríkisstjórnina. Og hann hélt áfram að blása til orrustu í stórum málum og smáum eftir að hann tók við sem forsætisráðherra. Hann hefur tekið stórt upp í sig í vaxtamálum, Evrópumálum og byggðamálum. Það er aðeins stutt síðan hann lét þau orð falla að hagkvæm- ara gæti verið að hjálpa fólki til að flytja úr fámennum byggðarlögum til að þétta byggðakjarna; hjálpa fólki til að flytja heldur en að reka þá byggðastefnu sem ríkt hefur hér á landi. Þessi orð og margt annað sem ráðherrann hefur látið sér um munn fara hefur vakið upp andstöðu og við- brögð og þá ekki síst í hans eigin flokki. Það hafa mörg járn staðið á forsætisráðherra þann stutta tíma sem hann hefur setið við völd. í Morgunblaðsviðtalinu kveður við annan tón. Að vísu tekur ráðherrann af skarið um að gengisfelling sé ekki á dagskrá og ekki heldur stór erlend lántaka til að gefa atvinnulífmu vítamínsprautu. En að öðru leyti fer hann með löndum í þessu viðtali. Það má merkja að Davíð Oddsson er að læra af reynslunni. Hann er að átta sig á að staða forsætisráðherra er ekki það sama og staða borgarstjóra. Borgarstjóri er leiðtogi samhents meirihluta. Forsætisráðherra í samsteypustjórn er sáttasemjari. Sá er munurinn. Davíð réttir sáttahönd til aðila vinnumarkaðarins, sjávarútvegsins og byggðastefnumanna. Hann leggur áherslu á að kreppan megi ekki bitna á launafólki, sér í lagi ekki á láglaunafólki. Þar býður hann upp á sátt. Davíð vill ekki tjá sig með eða móti veiðileyfagjaldi. Þar vill hann bíða átekta. Davíð viU draga í land í byggða- málum. Þar vill hann bera klæði á vopnin. Hann gerir sér grein fyrir því að niðurskurður á fjárlögum og út- gjöldum ríkissjóðs sé ekki einfalt verkefni. Það tekur tíma, segir forsætisráðherra. Það er nýr Davíð Oddsson sem birtist þjóðinni í þessu viðtali. Svo má auðvitað um það deila hvort það sé betri Davíð eða verri. Það er kostur að hafa stjórnmálafor- ingja sem taka af skarið og vita hvað þeir vilja. Styrkur Davíðs Oddssonar sem stjórnmálamanns hefur alla tíð verið sá að hann hefur gengið hreint til verks. Sá Davíð má ekki týnast. En það er jafnframt þroskamerki að kunna að slá af og taka tillit til annarra. Ekki síst þegar maðurinn er leiðtogi þjóðarinnar og verður að sætta sjónarmið. Allir gera sér grein fyrir að erfiðir tímar eru framund- an. Ríkisstjórnin hefur ekki efni á að standa í iUdeilum innbyrðis eða innan sinna eigin flokka. Hún hefur ekki efni á stríði milli þéttbýhs og dreifbýlis, mihi sjávarút- vegs og landverkafólks, milh vinnuveitenda og verka- lýðs. Nú þarf þjóðin að standa saman og þá samstöðu þarf ríkisstjórnin og forsætisráðherra að efla. Við vinn- um okkur aldrei út úr erfiðleikunum með því að berja hver á öðrum. Ellert B. Schram „Varóandi nýtingu orkulindanna er engin ástæða til að örvænta." Veikburða atvinnustefna x Með frestun Atlantsálsverkefnis- ins hefur komið í ljós hversu veik- burða atvinnustefna stjórnvalda hefur verið undanfarin misseri. Stjórnvöld hafa talið sér trú um að þau ættu að taka frumkvæðið í at- vinnuuppbyggingu landsmanna, líkt og var hlutskipti stjómvalda í Austur-Evrópu til skamms tima. Og þaö með geigvænlegum erlend- um lántökum til byggingar orku- vera og gylliboðum til erlendra stóriðjuhölda þar sem Blöndu- virkjun, að verðmæti 14 milljarðar króna, er notuð sem tálbeita og þar sem arðsemiskrafa Landsvirkjun- ar er einungis litið yfir 5% meöan arðsemiskrafa Atlantsálsaðilanna er á bilinu 15-20%. Vel er hægt að skilja vonbrigði margra með frestun þessa verkefn- is því til skamms tíma njóta flestir góðs af því, þ.e. meðan erlenda fjár- magnið streymir inn í landiö og umsvifm eru sem mest við 'bygg- ingu ál- og orkuveranna. Sé hins vegar litið til samnings- tímabilsins alls, þ.e. 25 ára, er ekki sjálfgefið að verkefnið skili þjóðar- búinu tilskildum arði. Til þess að svo verði verður álverðið að hald- ast í 1.900 dollurum að meðaltali á tímabilinu, kostnaður orkufram- kvæmda ekki fara mikið fram úr áætluðum byggingarkostnaði og raunvextir að verða lægri en 6%.- Mæiing hagvaxtar Þótt talað hafi verið um mikinn hagvöxt meðan á framkvæmdum stendur er rétt að undirstrika að sá hagvöxtur er að mestu fjár- magnaöur með erlendum lánum sem greiða verður síðar með vöxt- um. Landsframleiðslan tekur hins vegar hvorki tillit til þessara vaxta- greiðslna né afborgana. Vöxtur hennar segir því ekki alla sög- una. Séu árlegar vaxta- og arðgreiðsl- ur af hinu 100 milljarða króna er- lenda fjármagni, sem þarf til fram- kvæmdanna, dregnar frá lands- framleiöslunni fæst þjóðarfram- leiðslan. Og séu árlegar afborganir (afskriftir) einnig dregnar frá fást nettó þjóðartekjur sem eru í raun- inni það sem þjóðin ber úr býtum. Landsframleiðslan eykst um 4-5% en nettó þjóðartekjur miklum mun minna. Atvinnustefnan Atvinnustefna stjórnvalda ætti miklu frekar að taka mið af þyí sem er að gerast í Evrópu, þ.e. aö styrkja hiö almenna efnahagsum- hverfi. Aö taka til hendinni varð- andi s.s. skattkerfiö; að aðlaga það skattkerfum samkeppnislandanna og þannig styrkja samkeppnisstöðu innlendra aðila. Að flýta fyrir hvers konar frjálsum viðskiptum KjaUariim Jóhann Rúnar Björgvinsson þjóðhagfræðingur við aðrar þjóðir og auka þannig samkeppnina og aðhaldið að inn- lendum fyrirtækjum, bönkum og tryggingarfélögum. Að draga úr tortryggni gagnvart þeim erlend- um aðilum sem áhuga hafa á aö fjárfesta í atvinnulífi okkar og líta frekar á þá sem vinveitta. Aö ná niður raunvöxtum í hagkerfmu með verulega minni útgáfu ríkis- tryggðra skuldabréfa til að fjár- magna húsnæðiskaup landsmanna og bæta þannig rekstrarumhverfi atvinnulífs og heimila. Þá geta stjórnvöld með markviss- ari vinnu, hreinskiptari og opin- skárri umræðu um efnahagsmál haft jákvæðari áhrif á efnahagsum- hverfið og þannig aukið bjartsýni og áhuga á atvinnuuppbyggingu. Möguleikar okkar með nýgerðum EES-samningum eru miklir og krefjast mikillar undirbúnings- vinnu bæði af hálfu atvinnulífs og stjórnvalda. Hagvöxtur Á árunum 1986-87 jókst hagvöxt- ur eöa landsframleiðslan um 17%, eða um 54 milljarða króna á verð- lagi þessa árs. Á árunum 1988-91 stóð landsframleiðslan hins vegar nánast í staö eða dróst saman um tæp 2%, eða um rúmlega 6 millj- arða króna. Auðvitað er hægt að skapa mikinn hagvöxt eins og á árunum 1986-87 með því að taka á land óskynsamiega mikinn afla og auka þar að auki erlendar skuldir um 23% að raungildi eins og þá. En slíkt hefnir sín síðar eins og við upplifum nú með minni veiði og erlendum skuldagreiðslum. En það er ekki hinn tilbúni hag- vöxtur áranna 1986-87 sem vekur athygli heldur stöðnunin sem ríkt hefur á þessum áratug. Er hægt aö búast við raunverulegum hagvexti þegar þjóðin ráðstafar sparnaði sínum með svo óskynsamlegum hætti sem raun ber vitni? Gefur tugmilljarða fjárfesting hins opin- bera í ýmsum byggingum tilætlað- an virðisauka eða ofljárfestingin í sjávarútvegi, fiskeldi eða í íburðar- miklu íbúðarhúsnæði? Dregur hún jafnvel úr virðisauka annarra fjár- festinga? Og hvað um einokunar- stöðu banka- og tryggingarkerfis með tilheyrandi yfirbyggingu? Er nema von að hagvöxtur stafi ein- ungis af auknu aflamagni úr sjó og af erlendum lánum? Niðurstaða Varðandi nýtingu orkulindanna er engin ástæða til að örvænta. Við eigum að hugsa til langs tíma við nýtingu þeirra og gera kröfu um dágóðan arð, líkt og t.d. Norðmenn varðandi olíuiindir sínar. Engin ástæða er því til að ana áfram vegna skammtímalægðar í efna- hagslífmu og hafa ef til vill í staðinn lítið upp úr orkulindum okkar. Möguleikar okkar í atvinnuupp- byggingu eru óþrjótandi. Fram undan er mikil undirbúningsvinna fyrir gildistöku EES-samninganna. Fyrirtæki þurfa að aðlaga sig breyttu efnahagsumhverfi, nýjum kröfum og nýjum stöðlum. Styrkja samkeppnisstöðuna og skoða möguleika á framleiðslu nýrra af- urða sem EES-samningar gefa færi á, s.s. í fullvinnslu sjávarafuröa. Þá er ferðaþjónustan í örum vexti, sameining sveitarfélaga í stærri atvinnu- og þjónustukjama á döf- inni, vatnsframleiðsla lofar góöu og svo framvegis. Eitt er víst að þau fjölmörgu verk- efni, sem fram undan eru, þurfa á öllum okkar spamaði að halda og einnig því erlenda fjármagni sem hollt er að þjóðarbúið taki á sig svo engin ástæða er til aö syrgja Atl- antsálsverkefnið þegar.hugað er að langtíma-hagsmunum þjóðarbús- ins. Jóhann Rúnar Björgvinsson „Stjórnvöld hafa talið sér trú um að þau ættu að taka frumkvæðið 1 at- vinnuuppbyggingu landsmanna, líkt og var hlutskipti stjórnvalda 1 Austur- Evrópu til skamms tíma.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.