Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991.
Meiming
Fjölbreytt tónlistarútgáfa:
Hljómplötuframleiðendur
búast við aukinni sölu
- í nóvember og desember er salan 75% af árssölunni
Félag íslenskra hljómplötuútgef-
enda hefur sent frá sér álitsgerð þar
sem margt forvitnilegt kemur fram,
meðal annars að í kjölfar átaksins
íslenskt tónlistarsumar hefur sala á
íslenskum hljómplötum, geisladisk-
um og kassettum aukist verulega. í
ágústlok var sala íslenskrar tónlistar
íjórfalt meiri en á sama tíma árið
áður.
Það er orðið árvisst að íslenska
útgáfan yfirtekur markaðinn í nóv-
ember og desember en í þessum
mánuðum er salan 75% af heildar-
sölu íslenskrar tónlistar. Hljóm-
plötuframleiðendúr eiga ekki von á
að sala á jólamarkaðnum veröi fjór-
fóld miðað við árið í fyrra eins og
varð raunin á eftir íslenskt tónlistar-
sumar. Hins vegar telja hljómplötu-
framleiðendur að góðir möguleikar
séu á verulegri söluaukningu ís-
lenskrar tónlistar miðað við árið
1990.
Almennt verð á íslenskum og er-
lendum hljómplötum, kassettum og
geisladiskum hefur lækkað frá árinu
1990. Nokkrar ástæður eru fyrir
þessu en þyngst vægi hefur sú stað-
reynd aö meðalverð á geisladiskum
hefur lækkaö verulega með auknu
framboði. Er nú hægt að fá innflutta
geisladiska á verði frá kr. 490. Einnig
hefur harðnandi samkeppni í smá-
söluversluninni leitt af sér lækkun á
nýjum geisladiskum.
Miklar hlutfaUsbreytingar eru að
verða á markaðshlutdeild hljóm-
platna, kassettna og geisladiska.
Vægi geisladisksins hefur stóraukist
og hefur hann nú rúmlega 60% sölu-
hlutfall á móti markaðshlutdeild
hljómplötunnar og kassettunnar sem
hvor um sig er með 20%. Algengt er
því orðið að tónlist komi eingöngu
út á geisladiski og kassettu. Má gera
því skóna að fyrir þessi jól verði í
síðasta sinn gefin út íslensk tónlist
með gamla laginu hér á landi, það
er á hijómplötum.
Áætlaö er að heildarsala á íslandi
hafi árið 1990 verið u.þ.b. 300-350
þúsund eintök. Þar af var sala ís-
lensks efnis á því ári 75.000 eintök
sem var 25% minni sala en árið þar
á undan vegna stjómvaldsaðgerða
um að afnema virðisaukaskatt af
bókum sem er helsta samkeppnis-
vara tónlistarinnar á jólamarkaðn-
um. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
forráðamanna hljómplötuframleið-
enda, höfunda og flytjenda til að fá
virðisaukaskatt felldan niður af tónl-
Utgáfutónleikar eru margir þessa dagana og er ekkert sparað til að gera
tekin þegar Rafn Jónsson hélt velheppnaða tónleika i íslensku óperunni á
ist hefur engin breyting orðið þar á
og er íslensk tónúst eina list- og
menningargreinin sem virðisauka-
skattur er lagður á. Þetta hefur þó
ekki komið í veg fyrir stórkostlega
söluaukningu íslenskrar tónlistar á
árinu 1991.
Tveirstórir
útgefendur
Mikið verður um nýja íslenska
tónlist á geisladiskum og plötum fyr-
ir jólin. Tveir útgefendur, Steinar hf.
og Skífan, eru stærstir. P.S. músík
er nýtt fyrirtæki sem einnig gefur
út plötur og sér Steinar hf. um dreif-
ingu. Aðrar útgáfur em mjög smáar
og yfirleitt em það flytjendur sjálfir
sem era að gefa út plötur með eigin
efni og fá svo þá tvo stóm til að
dreifa fyrir sig afurðinni.
Útgáfan er mjög í anda undanfar-
inna ára, vinsælustu flytjendumir
em flestir með plötu og þeir sem
ekki era í baráttunni fyrir jólin vora
með plötur í sumar. Em sumar þær
sem þá voru gefnar út enn í fullum
gangi.
Ujá Skífunni koma út margar plöt-
ur. Má þar til dæmis nefna nýja plötu
með Geira Sæm, Jörö. Sléttuúlfamir
fylgja eftir vinsældum sínum frá í
fyrra með Undir bláum mána. Sá eini
sanni Dengsi verður með jólaplötu
og býður mörgum í jólaboð. Eftir
áratugahvíld kemur Savamiatríóið
fram á sjónarsviðið á ný með plötu
sem er í anda þeirra mörgu platna
sem komu út með þeim á sjöunda
áratugnum og heitir hún Eins og þá.
Platan með Sverri Stormsker þetta
árið heitir Greatest (S)Hits, Tifa Tifa
er fyrsta sólóplata Egils Ólafssonar,
. ©s mzmKÁMM.
ÍSKALT HAUSTTILBOÐ
ÁTLAS
/r Rúmmál Hæð Verð
ÍSSKÁPAR Iftrar cm staðgreitt
A1R 284 með innbyggðu frystihólfi 280/27 145 36.900
MR 243 með innbyggðu frystihólfi 240/27 122 31.900
VR 156 með innbyggðu frystihólfi 150/15 85 26.900
KÆLISKÁPAR
RR 291 án frystihólfs 280 143 34.900
RR 247 án frystihólfs 240 120 29.900
RR 154 án frystihólfs 150 85 24.900
KÆLI- / FRYSTISKÁPAR
RF 365 tviskiptur, frystir að ofan 300/60 160 44.900
MRF 289 tvískiptur, frystir að ofan 280/45 145 39.900
RF 181/80 tviskiptur, frystir að neðan 280/80 144 41.900
FRYSTISKÁPAR Í#<X50
VF-223 fimm hillur 220 145 39.900
VF 123 fjórar hillur 120 85 29.900
k J
Nýkomin
sending af Atlas
kælitækjum á
einstöku veröi!
RÖNNING
SUNDABORG 15
í*91 -685868
þá sem best úr garði. Mynd þessi er
(immtudagskvöldió. DV-mynd S
Rúnar Þór er einnig með nýtt efni í
ár og hljómsveit sem kallar sig Sor-
oricide er með plötu sem heitir
Dauðarokk. Auk þess gefur Skífan
út nótnabók með lögum eftir Jóhann
G. Jóhannsson og fylgir geisladiskur
með tónlistinni sem er leikin á píanó.
Frá Steinum og P.S.músík kemur
fjöldi titla og Steinar dreifir einnig
fyrir marga aðila. Fer hér á eftir hluti
af því efni sem Steinar gefur út og
dreifir. Karl Örvarsson sendir frá sér
sína fyrstu sólóplötu, Eldfuglinn.
Todmobile er með sína þriðju plötu,
Opera nefnist hún. Sálin hans Jóns
míns sendi ekki frá sér í fyrra en
sendir nú frá sér plötu sem ber ein-
faldlega nafn hljómsveitarinnar. De
luxe heitir plata frá hljómsveitinni
Ný dönsk. Stóm bömin leika sér er
með þekktum barnasöngvum og em
þeir fluttir af þekktum söngvurum.
Tónleikaplata með Bubba heitir Ég
er og er tekin upp kvöldstund eina í
Púlsinum. Gaia er eins og flestir vita
nafn á víkingaskipi nútimaps en það
er einnig heiti á plötu Valgeirs Guð-
jónssonar og er þar eingöngu um
leikna tónlist að ræða. Satt og logið
heitir nýjasta plata Eyjólfs Kristjáns-
sonar. Leikarinn kunni, Valdimar
Flygenring, sendir frá sér Kettlinga
og blúsplatan Lucky One er með
Kristjáni Kristjánssyni og félögum.
Minningar er plata þar sem valin-
kunnir söngvarar rifiá upp helstu
dægurperlur síðari ára, Hörður
Torfa sendir frá sér Kveðju, Ríó flyt-
ur lög Gunnars Þórðarsonar á Land-
iö fýkur burt og er þar barist gegn
gróðureyðingu. Fortissimos er allt
það besta frá Mezzoforte, endur-
blandað, og Andartak er plata Rafns
Jónssonar þar sem kemur fram með
honum einvalalið söngvara oghljóð-
færaleikara.
í þessari upptalningu hefur aUs
ekki verið minnst á nema hluta af
þeim fiölda titla sem gefnir verða út
og em komnir út og er óhætt að segja
að allir geti fundið eitthvað við sitt
hæfi í því mikla úrvali sem er á boð-
stólum hþómplötuverslana. -HK
Iðnóverði
menningar-
miðstöð
Bandalag íslenskra listamanna
hefur samþykkt ályktun þar sem
skorað er á borgaryfirvöld og yf-
irmenn menningarmála i landinu
að nýta Iðnó áfram fyrir menn-
ingarstarfsemi. Segir i ályktun-
inni að hús lönaðarmannafélags
Reykjavíkur (Iðnó) sé nú til sölu
og sé að grotna niöur vegna þess
að ekkert sé gert til þess að halda
því við. Þar hafi verið blómleg
starfsemi Leikfélags Reykjavíkur
um margra áratuga skeið og er
skorað á borgaryfirvöld að kaupa
húsið og gera nauðsynlegar end-
urbætur á þvi og fmna hagnýtt
rekstrarform þar fyrir nýja menn-
ingarmiðstöð í hjarta borgarinnar
í samvinnu við listamenn.
Tílvitiiunar-
orðabók
ísmíðum
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur ákveðið að gefa út tilvitn-
unarorðabók. Mun hún heita Orð
í tíma töluð. Ritstjóri er Tryggvi
Gíslason skólameístari sem hefur
um árabil unnið að undirbúningi
bókarinnar. Bókin á aö geyma
fleyg orð og tilvitnanir í sígildar
íslenskar bókmenntir og þekkt rit
en einnig verða þar erlendar til-
vitnanir sem unnið hafa sér þegn-
rétt í íslensku. Orð i tíma töluö
verður um 1.000 blaðsíöur meö
yfir 10.000 tilvitnunum og orðtök-
um sem raðað er eftir atriðisorð-
um með millivísunum. Auk þess
verða skrár um höfunda, safnrit
og einstök verk.
Ljósmyndaský
Tímaritið ský hefur hingað til
verið vettvangur fyrir skáldskap
en í fimmta tölublaðinu, sem ný-
lega er komið út, beinast sjónir
að ljósmyndum og birtar eru
myndir eftir fimmtán íslenska
Ijósmyndara, þekkta og óþekkta.
Fyrirmyndir ljósmyndanna em
mannlíf og landslag á íslandi og
i Færeyjum en heftið er helgað
minningu Williams Heinesen.
Þeir sem eiga Jjósmyndír í Skýi
era Davíð Þorsteinsson, Einar
Falur Ingólfsson, Guðmundur
Ingólfsson, Halldór Þ. Halldórs-
son, Kristinn Ingvarsson, Krisfj-
án G. Amgrimsson, Nökkvi El-
íasson, Páll Stefánsson, Pétur
Eiðsson, Ragnar AxeLsson, Sigur-
geir Siguijónsson, Sigurþór Hali-
bjömsson, Valgeir Sigurðsson,
Vilmundur Kristjánsson og Þor-
kell Þorkelsson.
um Guðmund
Ingólfsson
Þegar Guðmundm Ingólfsson
lést í ágúst síðastliðnum var stórt
skarð höggvið í raðir islenskra
djassleikara. Vinir hans í tónlist-
inni viija minnast hans með tón-
leikum í Súlnasal á sunnudaginn
og þar verður svo sannarlega ffítt
liö mætt til að taka sveifluna. Of
langt mál er að telja upp hverjir
þar koma fram en segja má að
ijóminn af íslenskum djassleik-
urum veröi til staðar auk sér-
stakra gesta. Má þar nefna Bubba
og Hauk Morthens, Megas, Björk
Guðmundsdóttur, Andreu Gyifa-
dóttur og Lindu Gísladóttur.
Hfjómsveitimar, sem koma frarn,
erameðal annars kvintett Gunn-
ars Reynis, BltMcomþaníið ög
Ami ísleifsson og djasssmiðja
Austuriands. Allur ágóöi af tón-
leikunum rennur í minningarsjóö
Jazzvakningar en næsta verkefni
hans er að gefa út minningardisk
um Guömund Ingólfsson. ! =