Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991. 9 DV KGB hefurengin skjöl umRosen- berghjónin Háttsettur starfsmaöur so- vésku leyniþjónustunnar KGB heldur því fram að þar á bæ hafi menn enga vitneskju um banda- rísku hjónin Julius og Ethel Ros- enberg sem tekin voru af lífi fyrir njósnir í þágu Sovétríkjanna. Vadím Bakatín, nýr yfirmaður KGB, sagði fyrir milligöngu tals- manns síns að ekki væru nein skjöl um hjónin hjá leyniþjón- ustunni. Rosenberghjónin voru dæmd til dauða 1951 fyrir að af- henda Sovétmönnum kjarnorku- leyndarmál Bandaríkjanna. Þau voru tekin af lífi tveimur árum síðar. Sérfræðingur um mál hjónanna sagði hins vegar að ólíklegt væri að KGB-maðurinn væri að segja sannleikann. Skólapiltarvið- urkennaráða- brugg um morð Þrír skólapiitar á aldrinum 13 og 14 ára viðurkenndu fyrir yfir- völdum í borginni Monterey í Kalifomíu að hafa lagt á ráðin um að drepa 11 ára gamlan nem- anda í bamaskóla einum þar í bæ. Piltamir játuðu á sig samsæri um manndráp en höfðu upphaf- lega verið ákærðir fyrir morð- samsæri sem er miklu alvarlegri glæpur. Þeir eiga yflr höfði sér allt að ellefu ára fangelsi. Sjö aðr- ir piltar voru ákærðir fyrir vopnaburð á skólalóðinni og voru reknir úr skólanum. Að sögn lögreglunnar má rekja samsærið til pústra sem urðu eft- ir körfuknattleik á skólalóðinni. Níu ára drengur drepinn af hund- unum sínum Níu ára drengur var rifinn á hol af þremur hundum sínum í bænum Leighton Buzzard á Suð- ur-Englandi í gær. Þrír hundar réðust á David Parry á heimili hans, stóri Dani, þýskur fjárhundur og terrier- hundur. „Hundunum hefur öllum verið fargað að beiðni foreldranna," sagði yfirlögregluþjónninn í bæn- um. „Við erum enn að rannsaka tildrög atburðarins." Þekktasti nauta- baniFrakka sviptirsig lífi Þekktasti nautabani Frakka svipti sig lífi á heimili sínu á mánudag, tveimur árum eftir að alvarlegt vinnuslys batt enda á starfsferil hans. Nautabaninn kallaði sig Nim- beno II. en raunverulegt nafn hans var Christian Montcouquiol og var hann frá borginni Nimes í suðurhluta landsins. Hann lá milli heims og helju í margar vik- ur eftir slysið sem varð í septemb- er 1989. Hann missti máttinn í öðrum handjeggnum og neyddist til að draga sig í hlé. Komiðívegfyrir fangaflótta Starfsmenn fangelsis á Norð- austur-Englandi komu í veg fyrir flótta þriggja fanga á sunnudags- kvöld. Einn þremenninganna er liðsmaður írska lýðveldishersins, IRA. Fangaverðir fundu m.a. stiga sem fangamir höfðu gert úr brotnum húsgögnum og rúmfot- um,-...............Renter Bush Bandaríkjaforseti aldrei verið óvmsælii: Égtrúiekkiá skoðanakannanir - aðeins um helmingur Bandaríkj amanna sáttur við hann Vinsældir George Bush Banda- ríkjaforseta hafa aldrei verið minni frá því hann tók við völdum í árs- byrjun 1989, samkvæmt skoðana- könnunum sem birtar voru í gær- kvöldi. Menn kenna þar um áhyggj- um landsmanna hans af bágbornu efnahagsástandi. Aðeins 51 prósent Bandaríkja- manna er sátt við frammistöðu Bush í embætti, meira en tíu prósentustig- um færri en fyrir einum mánuði. Upplýsingar þessar komu fram í skoðanakönnunum NBC sjónvarps- stöðvarinnar annars vegar og CBS sjónvarpsstöðvarinnar og blaðsins New York Times hins vegar. í skoðanakönnun CBS og NYT kemur fram að minna en helmingur aðspurðra telur að Bush verði endur- kjörinn í nóvember á næsta ári. í október töldu tveir þriðju aðspurðra að hann næði endurkjöri. Aðspurður um skoðanakannanim- ar í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi sagði Bush: „Ég trúi þessum skoð- anakönnunum ekki. Eg trúði þeim heldur ekki þegar þær voru 86 pró- sent.“ Tæplega 90 prósent Bandaríkja- manna voru sátt við frammistöðu forsetans eftir að hann hafði skipu- lagt hemaðaraðgerðirnar gegn írak í febrúar. Síðan þá hefur stöðugt dregið úr vinsældum hans. í skoðanakönnun NBC kom fram að aðeins 27 prósent aöspurðra voru sátt við frammistöðu Bush í efna- hagsmálum en 65.prósent vom ósátt. Reuter George Bush Bandaríkjaforseti kann að vera liðtækur á golfvellinum en samlandar hans telja hann ekki standa sig að sama skapi vel i Hvíta húsinu. Teikning Lurie Kvikmyndaleikarinn Klaus Kinski lést á heimili sínu i Kaliforníu um helg- ina. Hér sést hann i titilhlutverkinu i mynd Werners Herzog „Fitzcarraldo". Kvikmyndaheimurinn syrgir stórleikara: < Klaus Kinski fannst látinn um helgina Kvikmyndaleikarinn Klaus Kinski fannst látinn á heimili sínu í Kalifor- níu á laugardag. Hann virðist hafa látist af eðilegum ástæðum. Kinski var 65 ára. Kinski fæddist í Póllandi árið 1926 og hét fullu nafni Klaus Gunther Naksynski. Hann lék í ótölulegum fjölda kvikmynda um ævina en mestu leikafrek sín vann hann vafa- laust undir stjóm þýska leikstjórans Wemers Herzog í myndum á borð við „Aguirre, reiði guðs“ og „Fitzc- arraldo". Hann kom einnig fram í myndum á borð við „Zhivago lækni“ og „Fyrir nokkra dollara til“. Klaus Kinski var einnig faðir leik- konunnar Nastössju Kinski. Talsmaður líkskoðarans í Marin- sýslu í Kalifomíu sagði seint í gær- kvöldi að það hefði verið fjölskyldu- vinur sem kom að Kinski látnum á heimili hans. , Útför Kinskis verður gerð frá Hæðakirkjunni í bænum San Ans- elmoíKalÍfomíU. Reuter Pólland: Fimm flokk- ar vilja mynda nýja ríkisstjórn Samsteypa fimm mið- og hægri- flokka á pólska þinginu hefur alla burði til að mynda næstu ríkisstjórn Póllands en leiðtogar flokkanna eiga þó eftir að sannfæra Lech Walesa forseta um að þeir séu hæfir til að sljóma landinu. Flokkarnir stóðust kröfu Walesa um þingstyrk þegar þingmenn kusu frambjóðanda þeirra í embætti forseta þingsins á fyrsta starfsdegi þess eftir kosningarnar. Jan Krzysztof Bielecki, fráfarandi forsætisráöherra, lagði fram lausn- arbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt við þingsetninguna í gær, þrátt fyrir beiðni forsetans um að sitja áfram þar til nú stjórn heföi verið mynduð. Walesa sagði að fimmflokkarnir yrðu að styrKja stöðu sína á þingi og koma sér saman um stefnuskrá áður en þeir fengju aö taka við völdum og hann fór þess á leit við forseta þings- ins að komið yrði í veg fyrir afsögn Bieleckis. . „Ný ríkisstjórn þarf góðan tima áður en hún fæst við það erfiða hlut- verk aö stjóma og það verður ein- hver að stjórna landinu áður en hún er rnynduö," sagði Walesa í bréfi til þingforsetans. Þingmenn verða að greiða atkvæði um afsögn forsætisráðherrans áður en hún tekur gildi. Líklegt er talið að stjóm Bieleckis muni stjórna þar til Walesa hefur tilnefnt og þingið samþykkt nýjan forsætisráðherra. En ef þingið fellst á afsögnina mun fráfarandi stjóm fara með völdin til . bráðabirgða. Reuter ____________Útlönd Rafmagn frá Grænlandi til Evrópu „Ef viö gætum flutt rafmagn frá Grænlandi til Evrópu þá þyrfti vart að leita eftir öðrum orkugjöf- um,“ sagði svissneksi verkfræö- ingurinn Gustav Grob á ráö- stefnu um orkumál í heimalandi sínu fyrir skömmu. í Evrópu hafa menn vaxandi áhyggjur af mengun frá orku- framleiðslu með kolum og olíu og kjarnorkan þykir heldur ekki góður kostur meðan enginn veit hvað á að gera við úrganginn frá orkuvemnum. Á ráðstefnunni þótti þvi fýsilegt að leita eftir vatnsafli en það er alls staðar fullnýtt á meginlandi álfunnar. Grænfriðungar á móti selveið- umsembetr- unarvinnu Grænfriðungar í Noregi em lit- ið hrifhir af hugmyndumsem þar hafa komiö fram um aö láta ung- menni veiöa sel í norðurhöfum í eins konar betmnarvinnu. Hug- myndin er að gera út leiðangur með um 600 unglingum sem ann- ars hafa ekkert fyrir stafni og kenna þeim list gömlu selveiði- mannanna. Grænfriðungar segja að það bæti vart nokkum mann að beija sel í höfuðið með kylfu. Þá segja þeir að síst sé ástæða til að hafa áhyggjur af því þótt þessi fomu vinnubrögð gleymist. ísraelsmenn viljaganga ísraelsmenn hafa áhuga á að ganga í evrópska efnahagssvæöið með rikjum Evrópubandalagsins og Efta. Fyrirspurnir hafa borist frá ísraelsstjórn um málið til höf- uðstöðva EB í Brussel en ekkert svar hefur borist enn. Embættismenn í Brussel segja að litlar lfkur séu á að ísraels- menn fái aðgang en samt hefur óskin veriö kynnt Efta-ríkjunum. ísraelsmenn hafa mikinn áhuga á aö tengjast Evrópu nánari böndum en nú er og því er veriö að leita eftir þessum möguleika. Veiða meira en kvótar heimila Þetta ár verður það fjóröa í röð þegar danskir sjómenn veiða meira en takmarkaðir kvótar Evrópubandalagsins heimila þeim. í Danmörku hafa vaknaö grunsemdir um aö fiskútflytjend- ur falsi skýrslur til að koma af- lanum á markað óskráðum. Vegna þessa eru uppi ráðagerð- ir um aö heröa eftirlit með út- flutningi svo ekki veröi mögulegt aö svindla á kvótakerfinu. Afli dregst stööugt saman í Norður- sjónum og kvótarnir minnka að samaskapi. Leiðangur Norðmanna f astur í ísnum Leiðangur Norðmanna og fleiri Norðurlandabúa til suðurskauts- ins er fastur á ísnum vegna ill- viðra. Sovétmenn hafa reynt aö koma til þjálpar á isbrjót en hann kemst ekki alla leið vegna þess hve þykkur isinn er. Ritzau, TT og NTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.