Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991.
Spumingin
Tekurðumarká
skoðanakönnunum?
Böðvar Gunnarsson verkamaður: Já,
alveg óhikað.
Björgvin Einarsson: Nei, ég tek lítið
mark á þeim.
Víóletta Heiðbrá Hauksdóttir nemi:
Jú, stundum.
Ragnar Þór Ólafsson sjómaður: Já,
að vissu leyti geri ég það.
Jóhann Svanur nemi: Bæði og. Ég
veit það ekki.
Olgeir Örlygsson nemi: Eiginlega
[ekki. _______________________
Lesendur
Verökönnun Neytendafélags Noröflaröar:
Kommúnisminn á íslandi ekki dauður:
Látum ekki
Ólafur Jóhannsson skrifar
Það er af sem áður var í Alþýðu-
bandalaginu. Þar var tíðast boðuð
sameignarstefna, sósíalismi og hatur
á einstaklingsframtaki. Nú boðar
formaður Alþýðubandalagsins nýja
stefnu, allt að því frjálshyggju og
bendir á framtak Davíðs. Ekki Dav-
íðs „hinn ógurlega" eins og sumir
kalla forsætisráðherra fyrir það eitt
að vilja taka á málunum og uppræta
sjóðafár og niðurgreidda vexti til
gjaldþrota fyrirtækja. - Heldur Dav-
íðs Scheving sem hefur tekist að
flytja út íslenskt bergvatn fyrir bein-
harðan gjaldeyri.
En þótt formaður Alþýðubanda-
lagsins boði breyttar áherslur í flokki
sínum og tjái sig fjálglega af sinni
alkunnu mælsku um mildi jafnaðar-
mennskunnar, þá er þar ekki allt
sem sýnist. í flokki hans eru fjöl-
margir sem enn vilja ekki trúa þvi
að tími sameignar og sósíalisma sé
fyrir bí á íslandi. í sjónvarpsfréttum
frá setningu landsfundar Alþýðu-
bandalagsins mátti sjá á svip sumra
þekktra frammámanna flokksins að
formaðurinn boðaði ekki þeirra
fagnaðarerindi.
Það er því ekki laust við að mál-
flutpingi Ólafs formanns megi líkja
við orð hrópandans í eyðimörkinni.
Allir vita að þótt hann hefði nú snú-
ið við blaðinu og séð að eina úrræðið
er að segja skilið við fortíðina er við
Frá nýafstöðnum fundi Alþýðubandalagsins.
ramman reip aö draga innan hans
flokks. Draumur Ólafs formanns um
sameiningu jafnaðarmanna er ekki í
sjónmáli á meðan hann á óvildar- og
öfundarmenn í eigin flokki.
Framsóknarflokkurinn og
Kvennalistinn eru líka varaskeifur
fyrir óánægða alþýðubandalags-
menn, sem munar ekki um að sveifla
sér yfir' þegar þeim finnst Ólafur
formaður vera farinn að tala líkt og
upp úr svefni. Þangað flýr óánægju-
liðið sem tregar sameignaráhrifin og
sem brýst nú úm á hæl og hnakka
til að sundra hverri viðleitni til að
gera þjóðfélagið að öðru og meira en
þriðja heims þjóðfélagi.
Þótt kommúnisminn sé dauður í
Sovétríkjunum og alls staðar sé
reynt aö koma honum sex fet niður
lifir hann góðu lífi í hugum margra
áhrifamanna hér á landi. Við íslend-
ingar eigum aðeins eina von til að
komast út úr yflrstandandi fortíöar-
vanda. Hún er fólgin í því að láta
ekki blekkjast af ábyrgðarlausum
slagorðum pólitískra spellvirkja í
flokkunum sem eru nú utan stjórnar.
blekkjast
Er hægt að treysta henni?
Pétur Óskarsson skrifar:
Ég get ekki látið hjá líða að svara
nokkrum rakalausum staðhæfmg-
um, jafnvel hreinum ósannindum, í
frétt af verðkönnun Neytendafélags
Norðfjarðar. Það sem vekur fyrst
furðu mína er að enginn er skrifaður
fyrir fréttinni. En það er svo sem
ekki nýtt varðandi málefni Neskaup-
staðar. Hugleysið þar er slíkt að fólk
þorir ekki að viðra skoðanir sínar
undir nafni - utan örfáir aðilar.
Ég verð að líta svo á að ritstjóri
vikublaðsins Austuriands sé ábyrg-
ur fyrir fréttinni en það var einmitt
þar sem fréttin birtist þann 13. nóv.
sl. Það skal tekið fram að ritstjóri
nefnds blaðs er einnig formaður
Neytendafélags Norðflarðar. Það
næsta sem vakti furöu mína er að
þess er getið í fréttinni að verðkönn-
unin hafi veri gerð í þremur verslun-
um. Þetta er ekki sannleikanum
samkvæmt, þar sem ofanritðum er
kunnugt um að könnunin var gerð í
4 verslunum í bænum, þ.e. í Mela-
búðinni, KF Fram, Víkurmarkaðin-
um og Karma hf., sem er bónusversl-
un í Neskaupstað.
Einungis voru birtar kannanir úr
þremur verslunum á Austurlandi,
og því hlýtur sú spurning að vakna,
hvers vegna verðkönnun úr Karna
hf. var ekki birt? - Einnig vakti at-
hygli mína og furöu þau dæmalausu
ósmekklegheit aö geta þess að 1,5 1
af Coca Cola kosti 170 kr. í Víkur-
markaðinum, og merkt við 170 kr.
með stjörnu - sem táknar að skýring
er neðanmáls og þar stendur að Vík-
urmarkaöurinn býður Coca Cola aö-
eins í 2 lítra flöskum. - Hvernig er
þá hægt að segja neytendum að 1,5
lítri kosti 170 kr. ef hann er ekki til?
Varðandi svona hlutdrægar verð-
kannanir og fréttaflutning í kjölfarið
hlýtur sú spurning að vakna hvort
t.d. aðalsamtök neytenda í Reykjavík
væru tilbúin aö verja svona frétta-
flutning í framtíðinni? Eða geta neyt-
endur átt von á því aö svona brengl-
aðar kannanir verði ekki birtar og
þess gætt þar með að hægt sé að
treysta jafn virtum samtökum og
neytendasamtök virðast vera.
Óréttlátur hæstaréttardómur
Hallgrímur skrifar:
Nýlega gekk dómur í Hæstarétti
yfir leigubílstjóra um að greiða Líf-
eyrissjóði leigubílstjóra iðgjöld til
sjóðsins, allt frá árinu 1982. Mér
finnst þetta óréttlátur dómur. Lög og
reglur sem ekki höfða til almennrar
skynsemi fólks veröa aldrei ásættan-
leg í þjóðfélögum. - Um þau mun
ávallt standa styrr.
Þrátt fyrir almenna óánægju laun-
þega með lífeyrissjóði og greiðslur til
þeirra tekur Hæstiréttur ekkert mið
af slíku. Hann dregur taum lífeyris-
sjóðanna sem sannanlega eru iila
séðir af flestum launþegum, og leyfa
sér t.d. að halda eftir greiðslum fé-
lagsmanna, t.d. við fráfall maka
þeirra. Og ekki tekur Hæstiréttur
heldur tillit til þess að engin starfslög
eru til um lífeyrissjóði í landinu.
Þess vegna furðar marga að dómur
skuli ganga þannig að festa óréttlæti
lífeyrissjóðanna.
Það er engin spurning um að laun-
þegar munu ekki taka þessum dómi
Hæstaréttar þegjandi. Þeir munu
halda áfram að berjast fyrir því að
mönnum verði ekki gert skylt að af-
„Launþegar munu ekki taka þessum dómi Hæstaréttar þegjandi," segir
m.a. í bréfinu.
henda skyldugreiðslur til þessara greiðslum í annað og mun áhættu-
sjóða, þeg£\r.,hægt er að koma lífeyris- minna form fyrir launþegana. j j
DV
Frekar Frón
eða Sögu-eyjan
Ármann skrifar:
Ég rakst á hugmynd í blaði um
að nafnið á landinu okkar, ísland,
væri ekki það heppilegasta og ekki
okkur til framdráttar þegar við
værum að að koma landinu á
framfæri. Auðvitaö er nafhið ein-
staklega fráhrindandi fyrir
ókunnuga og ekki til þess fallið
aö laða lúngað útlendinga. - Sum-
ir eru því líklega fegnastir en lát-
um þaö hggja á milli hluta í bili.
Mér fmnst ekki nema sjálfsagt
að íhuga hvort nafnbreyting gæti
komiö okkur til góða. Mörg önn-
ur lönd hafa farið þessa leið.
Mætti ég þá benda á nöfn eins og
Frón eða Sögu-eyjan enda landið
oft nefnt þessum nöfnum.
Dugaekkiá
Ijúfulögin
Ásgeir skrifar:
Marga eigum við ágæta söngv-
arana, bæði alhliða þjóðlaga-
söngvara og poppsöngvara. Þeir
hafa hingað til haldið sig við sinn
leista, hvor hópurinn fyrir sig. -
Undanfarið hefur borið á þvi að
söngvarar úr popp- og dægur-
lagaheiminum hafa tekið upp á
þvi að syngja „gömlu, góðu“ ætt-
jarðarlögin eöa húsgangana sem
eru enn vinsælir hjá flölda fólks.
Mér finnst hins vegar að þessir
ungu poppsöngvarar dugi ekki á
gömlu, lj úfu lögin okkar. Kannski
hafa þeir skemmt röddina í sér
með ofbeitingu hennar í poppinu?
Merkinskipta
ekki miklu máli
Elín skrifar:
Sumir gangast upp í því að
klæðast fatnaði með þekktustu
merkjum í tískuheiminum. Við
íslendingar vorum fljótir aö
skjótast fram úr öðrum þjóðum á
því sviði eins og öðrum. Þaö er
meö ólíkindum að almenningur
hér telji sig þurfa aö ganga í fatn-
aði merktum dýrustu tískuhús-
um heims á almennum mann-
fagnaði. - Jafnvel við vinnu sína.
Þetta gengur ekki svona langt
annars staðar. Þar sér maður vel
klætt fólk víöast hvar, án þess að
skarta fatnaði merktum BOSS,
Aigner eöa YSL, svo einhver
merki séu nefnd. Sannleikurinn
er sá að mikið er til af vönduðum
fatnaði og fallegum þótt hann
beri önnur merki en þau þekkt-
ustu.
Já, nýjaút-
varpsstöð!
Magnús Jónsson skrifar:
Ég var að lesa í DV bréf þar sem
stungið er upp á því að einhverjir
framtakssamir stofni nýjá út-
varpsstöð þar sem eingöngu væri
útvarpað léttri og þægilegri tón-
list sem er svo vinsæl hjá fólki
sem man gömlu góðu dagana með
stórhljómsveitunum og vinsælu
söngvurunum frægu.
Mér finnst líka nafnið, sem
bréfritari stakk upp á, vera bæði
frumlegt og fínt - Útvarpsstöðin
fyrir mig og þig og" Clausen-
bræður. - Auðvitaö mætti líka
-efna tii samkeppni um nafnið. Ég
er þess fullviss að auglýsingar
yrðu eflirsóttar þama. Þær yrði
þó að takmarka, Ld. við nokkrar
mínútur fyrir heila og hálfa tím-
ann.
ildsvoðafréttir
Gunnar Bjömsson hringdi:
Ég og margir fleiri erum orðnir
leiðir á þessum eldsvoðafréttum
á sjónvarpsstöðvunum. Þetta eru
engar fréttir, nema þá að um
meiri háttar eldsvoða sé að ræða.
Það er veriö að tína til þótt kvikni
i potti á eldavél eða einhver miss-
ir logandi eldspýtu 1 rusl sem
ekki er í frásögur færandi. - Ég
myndi ekki vilja láta flalla svona
um smáóhapp hjá mér.