Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991.
23
Iþróttir
HM eða 25 milUónir
- ákveðið annað kvöld hvort HM ’95 verður á íslandi eða ekki?
Stjórn Handknattleikssambands
íslands stendur nú frammi fyrir
gífurlega erfiðri ákvarðanatöku.
Innan fárra dága þarf HSÍ að gera
það upp við sig hvort halda á
heimsmeistarakeppnina hér á
landi og verða þar með af um 25
milljóna króna aðstoð frá ríkis-
stjórninni, eða að hætta við HM
ævintýrið og njóta umræddrar að-
stoðar frá ríkinu. Eins og nærri
má geta er hér um mikilvæga
ákvörðun að ræða en væntanlega
verður málið til lykta leitt á sam-
bandsstjórnarfundi HSÍ sem boð-
aður hefur verið annað kvöld.
Margir sambandsstjórnarmenn,
sem DV ræddi við í gær, vilja af-
skrifa HM. Fyrir því liggja fyrst og
fremst þær ástæður að mikilvæg-
ara sé fyrir framtíð handknatt-
leiksins í heild og íþróttalífið í land-
inu að tryggja öruggan rekstur HSÍ
en að fórna aðstoð ríkisins fyrir
eina heimsmeistarakeppni.
Stjórnarmenn í ábyrgðum
fyrir milljónatugum
Stjórn HSÍ er ekki öfundsverð af
hlutskipti sínu þessa dagana og
segja má að báðir kostirnir, sem í
boði eru, séu slæmir. Ríkisstjórnin
hefur í raun sett HSÍ stóhnn fyrir
dyrnar með því að neita HSÍ um
aðstoð verði heimsmeistarakeppn-
in haldin hér á landi 1995. Núver-
andi og fyrrverandi stjórnarmenn
hjá HSÍ hafa gengist í ábyrgðir fyr-
ir hverju láninu á fætur öðru á
undanfornum árum og samkvæmt
heimildum DV lætur nærri að sú
upphæð sé 25 milljónir króna. „Ég
held að þetta geti verið rétt tala.
Staðreynd í máhnu er að HSÍ hefur
gert samning við íslandsbanka og
Landsbanka í tengslum við HM
1995 þar sem gamlar skuldir sam-
/ bandsins eru teknar inn í samning-
inn. Ef ekkert verður af HM hér á
landi má telja víst að bankarnir
setji þessi lán í gang á ný og þá er
nokkuð ljóst að margir stjórnar-
menn munu missa húsin sín,“
sagði sambandsstjórnarmaður hjá
HSÍ í samtali við DV í gær.
„Lít á þetta sem
óafgreitt mál“
Sambandsstjórnarmaðurinn, sem
DV ræddi við i gær, hafði ekki
heyrt um nýlega afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til fjárhagserfiðleika
HSÍ og sagðist ekki trúa því að þetta
væri staðreynd málsins: „Þangað
til ég fæ ábyrga skriflega niður-
stöðu frá réttum aðilum lít ég á
þetta sem óafgreitt mál. Og í mín-
um huga eru þetta tvö ólík mál,
annars vegar fjárhagsvandræði
HSÍ og hins vegar hvort hér á halda
heimsmeistarakeppni 1995 eða
ekki. Ríkið getur ekki drepið HSÍ
og ekki heldur HM 1995. Ef hins
vegar ríkisstjórnin ætlar að gera
alvöru úr því að beita HSÍ svona
þrýstingi og niðurstaðan verður að
ekki verði af HM, þá kallar það
auðvitað á dómsmál í hvelli. Og þá
mun það koma í hlut ríkisstjórnar-
innar að tilkynna að ísland treysti
sér ekki til að halda HM. Þá verður
flett ofan af öllu þessu máli og auð-
vitað ætti menntamálaráðherra þá
að segja af sér.“
Hvað gerist annað kvöld?
Sambandsstjórn HSÍ, sem skipuð
er 16 mönnum og konum, kemur
saman til fundar annað kvöld og
þar mun eiga að taka ákvörðun um
það hvor leiðin verður farin, að
hafna HM eða aðstoð við HSÍ frá
ríkinu. „Það kæmi mér ekki á óvart
þótt þessum sambandsstjórnar-
fundi yrði frestað. Fundartíminn
er furðulegur og ég get ekki séð að
eitt kvöld dugi til að fá botn í þetta
erflða mál,“ sagði annar sambands-
stjórnarmaður við DV í gær.
-SK
ni í sundi á dögunum, eins og fram hefur komið í DV. Að liði
inar og á myndinni eru sigurvegararnir með 2. deildar bikar-
arfirði, sem varð í öðru sæti, fylgir liðinu upp í 1. deild. SFS
DV-mynd S
Verður HM á íslandi 1995 og verður hús reist 1 Kópavogi?
Boltinn er hjá HSÍ
>•
- Kópavogsmenn bíða spenntir eftir svari frá HSI
Enn er allt í mikilli óvissu um
hvort af byggingu fjölnota íþrótta-
húss verður 1 Kópavogi í tengslum
við HM í handknattleik. Og ástæðan
er einfóld. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvort heimsmeistarakeppn-
in verður haldin á íslandi 1995. Málið
er allt í illleysanlegum hnút og segja
má að boltinn sé hjá Handknattleiks-
sambandi íslands. HSÍ stendur
frammi fyrir því að taka erfiða
ákvörðun og velja á milli þess að fá
aðstoð fjárhagslega frá rikisstjórn-
inni og hætta við að halda HM 1995
eða að halda HM 1995 og synda án
nokkurrar aðstoðar út úr skuldafeni
sambandsins.
Gunnar Birgisson, formaður bæj-
arráðs Kópavogs, sagði í samtali við
DV í gær að þeir Kópavogsmenn að-
hefðust ekkert þessa dagana varð-
andi byggingu fjölnota íþróttahúss í
Kópavogi. Gunnar sagði ennfremur:
„Ástæðan fyrir því að við erum ekki
að vinna í málinu núna er einfaldlega
sú að við vitum ekki hvort heims-
meistarakeppnin fer fram hér á landi
eða ekki. Það er númer eitt að fá
svar frá HSÍ um það hvort af keppn-
inni verður eða ekki. Ef niðurstaðan
verður að halda keppnina hér þá
munum við hjá Kópavogsbæ taka
byggingu húss til rækilegrar endur-
skoðunar. Það verður að liggja alveg
klárt fyrir aö keppnin verði haldin
hér áður en við gerum eitthvað meira
í máhnu.“
Boltinn hjá HSÍ
Boltinn er sem sagt hjá HSÍ. DV hef-
ur það eftir áreiðanlegum heimildum
að ákveði HSÍ að halda keppnina og
„afneita" aðstoð frá ríkisstjórninni
muni hús verða reist í Kópavogi.
Stjórn HSÍ stendur greinilega
frammi fyrir miklum vanda og ljóst
að stuttur tími er til stefnu.
— . -SK
ÍK lýst gjaldþrota
íþróttafélag Kópavogs hefur verið lýst gjaldþrota og verður í framhaldi af
því tekið til gjaldþrotaskipta. Starfsemi félagsins hefur verið stöðvuð í tvo
mánuði og að þeim tíma liðnum ræðst framtíð þess.
Heildarskuldir ÍK nema um 9 milljónum króna, að sögn Sigurjóns Sigurðsson-
ar, formanns félagsins. „Það var gjaldþrotabeiðni frá Ríkisútvarpinu, ekki sér-
lega há upphæð miðað við annað, sem kom okkur í þessa stöðu. Við vorum að
fá í hendurnar styrk frá Kópavogsbæ þegar það gerðist, en hann kom aðeins
of seint til að bjarga málunum. Við erum að vinna að því að geta haldið starf-
seminni áfram og það skýrist fljótlega hvermg það veröur," sagði Siguijón í
samtali við DV í gær.
Hjá ÍK er fyrst og fremst iðkuð knattspyrna en tennisdeild starfar ekki leng-
ur eftir að Tennisklúbbur Kópavogs var stofnaður fyrr á þessu ári. ÍK leikur í
3. deildinni í knattspyrnu og fari málin þannig að félagið hætti starfsemi sinni,
verður væntanlegur settur á aukaleikur um laust sæti í 3. deild næsta sumar.
Þar mætast þá að líkindum Magni frá Grenivík, sem varð í næstneðsta sæti
3. deildar í sumar, og Höttur frá Egilsstöðum, sem varð í 3. sæti 4. deild-
ar.
Bikarmeistaramir áfram
- ÍBV sigraði Stjörnuna, 24-22, í Eyjum
Guðfinnur Kristmannsson var besti
maður leiksins og skoraði átta mörk.
Firmakeppni
Firmakeppni HK í innanhússknattspyrnu fer fram í
íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi laugardaginn 30.
nóv. og sunnudaginn 1. des. Stór mörk, markmenn,
5 í liði.
Þátttaka tilkynnist Víði (642009/622645) eða Sigvalda
(687171)
hafði verið með þriggja marka for-
ystu í hálfleik, 7-10.
Eyjamenn gerðu fyrstu þrjú mörk-
in í leiknum en Stjarnan jafnaði og
gott betur og hafði yfirhöndina í hálf-
leik. Heimamenn jöfnuðu metin um
miðjan síðari hálfleik og náðu mest
fjögurra marka forystu en í lokin
skildu tvö mörk liðin.
Guðfinnur Kristmannsson var
markahæstur Eyjamanna, skoraði 8
mörk, Belamy Zoltan gerði 5 og þeir
Gylfi Birgisson og Jóhann Pétursson
4 mörk hvor. Hjá Stjörnunni skoruðu
Hafsteinn Bragason, Axel Björnsson
og Magnús Sigurðsson 5 mörk hver.
Eyjastúlkur lögðu
FH að velli
í 1. deild kvenna sigraði ÍBV liö FH,
24-23. Stefanía var markahæst hjá
ÍBV með 10 mörk en Björk Gilsdóttir
og Rut Baldursdóttir skoruðu 6 mörk
hvor fyrir FH.
P00L
TILB0Ð
alla virka daga
frá kl. 12-18.
Klukkutími í billiard,
hamborgari, franskar,
600 kr.
BILLIARDSTOFAN,
Hverfisgötu 46
Ómar Garðaisson, DV, Eyjum:
Bikarmeistarar Eyjamanna í hand-
knattleik sigruðu Stjörnuna í 16-liða
úrslitum bikarkeppninnar í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi. Lokatölur
leiksins urðu 24-22 eftir að Stjarnan