Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991. 31 Fréttir Tilraun með kynjaskiptar bekkjardeildir 1 Gagnfræðaskóla Akureyrar: Stelpurnar voru mun ánægðari en strákarnir Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég tel að það hafi tekist mjög vel til, enda er margt sem bendir til þess. Það er auðvitað varhugavert að dæma um svona aöferð út frá einni tilraun en ég get ekki sagt annað en að þetta hafi gefið jákvæðan árang- ur,“ segir Valgerður Bjamadóttir, jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akur- eyrarbæjar, um þróunarverkefnið „kynjaskiptar deildir" sem unnið var í Gagnfræðaskóla Akureyrar á sl. vetri, en þá var gerð tilraun með að kynjaskipta bekkjardeildum í 8. bekk skólans. Valgerður segir það enga launung að þessi tilraun hafi komið betur út fyrir stelpurnar en strákana að mati nemendanna, kennaranna og for- eldra. „Stelpurnar voru í heild mjög ánægðar með þetta og fannst þær fá reynslu sem þær hefðu ekki viljað missa af. Ég hef heyrt þær raddir að einhverjum stelpnanna, sem eru nú á ný komnar í blandáðar bekkjar- deildir, finnist það vera breyting til hins verra og hefðu viljað halda áfram í stelpnabekkjum sem ég tel þó í sjálfu sér ekki vera framtíðar- markmið." Valgerður sagði að það hefði ekki komið sér á óvart að óánægjuraddir voru meiri meðal strákanna með þessa tilraun. „Það hefur alls staðar sýnt sig þar sem eru kynjaskiptar bekkjardeildir í skólum að stelpurn- ar koma vel út úr því en strákarnir eru óánægðir. Kennarar vilja líka síst af öllu kenna strákabekkjum, sérstaklega ef um stórar bekkjar- deildir er að ræða, og við vorum með stóra bekki í fyrra við þessa tilraun.“ Tilgangurinn með þessu verkefni var margþættur aö sögn Valgerðar. Aðalmarkmiðið var að sögn hennar að reyna að leita leiða til aukins jafn- réttis í skólastarfinu, ekki síst með tilliti til þeirrar staðreyndar að strákar í skólum taka að meðaltah um 70% athygli og tíma kennarans í blönduðum bekkjum en stelpumar sitja eftir með sín 30%. „Ég geri ráð fyrir að niöurstaða þessa verkefnis fari dálítið eftir því hver tekur hana saman. Ég tel hins vegar að hlutlaus niðurstaða sé sú að þetta hafi kennt okkur sem að verkefninu stóðu, kennurum, nem- endum og foreldrum ýmislegt um muninn á því að kenna strákum og stelpum og það leiðir vonandi til þess að í framhaldinu séu kennarar betur færir um að koma til móts við bæði kynin í blönduöum bekkjum vegna þess að þeir lærðu ýmislegt um áhrif eigin kennsluaðferða. Mér sýnist hka að allir þeir sem komu að þessu verk- efni hafi lært ýmislegt um stöðu kynjanna og eðli þeirra og það eitt út af fyrir sig er mikils virði,“ sagði Valgerður. í vetur er 8. bekkur Gagnfræða- skóla Akureyrar einnig kynskiptur þótt ekki sé um skipulagt verkefni að ræða. Valgerður sagði það ganga mjög vel, enda hefðu menn nú reynsluna frá því í fyrra að styðjast við. DV-myndir Lúðvíg Leikskólabörn um borð i Bjössa. VeiðHjöm í Berja* dalsámámu Sigurður Svemsson, DV, Akranesi: Vinnuhópur á vegum bæjarstjór- ans á Akranesi hefur í skýrslu, sem hann hefur lagt fram, komist að þeirri niðurstöðu að vænlegt sé að koma upp veiðitjörn í Beijadalsár- námu. Samkvæmt grófri áætlun er kostnaður við að koma upp slíkri veiðitjörn 6-7 milljónir króna. Veiðitjarnir eru fyrir hendi á nokkrum stöðum á landinu, m.a. í Hvammsvík, á Reyðarfirði, Akureyri og á Snæfellsnesi. Rekstur þeirra hefur gengið ágætlega nema á Akur- eyri. Of há veiðiieyfi þar komu senni- lega í veg fyrir almennan áhuga. Markmiðið með veiðitjörn er að útvíkka ímynd Akraness sem bæjar fyrir íþróttir og útivist. Um leið myndi tilkoma hennar auka mögu- leika Skagamanna á skemmtilegri tómstundaiðju. Borgarafundur á Höfn: Knýr enn á um fjárveit- ingu til hjúkrunarálmu Tálknaflörður: Leikskólinn Vindheimar og báturinn Bjössi Lúðvig Thorberg, DV, Tálknafirði: Leikskólinn Vindheimar í Tálkna- firði eignaðist nýlega góðan grip sem börnin þar eru greinilega mjög ánægð með og kunna vel að meta. Þetta er þriggja tonna skarsúðaður trébátur úr eik og furu, smíðaður af Einari Sigurðssyni á Fáskrúðsfirði árið 1949. í bátnum er handfærarúlla, talstöð, dýptarmælir, sighngaljós, snúnings- hraðamæhr, bátalugt, loftvog og auð- vitað skrúfublöð og stýri. Og svo er báturinn að sjálfsögðu málaður í ís- lensku fánalitunum. Sá sem gaf leikskólanum þessa myndarlegu gjöf er ungur Tálknfirð- ingur, Björn Fjalar Lúðvígsson, og þótti vel við hæfi að nefna bátinn í höfuðið á honum. Bátnum var svo formlega gefiö nafn fóstudaginn 8. nóvember og heitir Bjössi. „Leikskóhnn Vindheimar var tek- inn í notkun 1977. Þar er rými fyrir 40-50 börn á aldrinum tveggja th sex ára. Núna eru 25 böm í leikskólanum en flest voru þau 35 á árinu 1988. Við störfum þrjár í tveim stöðugildum. Ég byijaði hér sem fóstra 1979 og tók viö forstöðu Vindheima 1981,“ sagði fólks í Vindheimaleikskólanum sagði Ásdís Ólafsdóttir leikskólastjóri. Að- Ásdís að hann væri mjög góður. spurð um aðbúnað barna og starfs- Leikskólinn Vindheimar i Tálknafirði. DV-mynd Lúðvíg Júlía Imsland, DV, Höfir Fjölmennur fundur var hafdinn í Sindrabæ á Höfn 8. nóvember og til- efnið var að knýja enn einu sinni á um fjárveitingu til byggingar hjúkr- unarálmu við heilsugæslustöðina hér á Höfn. Engin aðstaða er þar fyr- ir legusjúklinga, ekki einu sinni bráðatilfelli vegna slysa eða veikinda og þarf því að senda slíka sjúklinga til Reykjavíkur, um 470 km leið. Þeg- ar bygging þessa húss verður að vemleika koma þar 30 sjúkrarúm og af þeim eru fjögur ætluð fyrir bráða- tilfehi. Hjúkrunarálman mun leysa þau miklu þrengsh sem em á Elli- og hjúkmnarheimihnu Skjólgarði en af þeim 45 vistmönnum, sem þar dvelja, er 31 hjúkrunarsjúkhngur. Sem dæmi um þrengslin á Skjólgarði má nefna að í þeim herbergjum, sem í em tvö sjúkrarúm, er ekki pláss fyr- ir tvö náttborð eða tvo stóla. Sé reiknaður fermetrafjöldi á hvern vistmann - þar með tahð eldhús, gangar, geymslur og setustofa - er útkoman aðeins 17,3 m2. Á sambæri- legum stöðum annars staðar á land- inu er fermetrafjöldi 40-60 á mann. Á fundinum var samþykkt að beina þeirri eindregnu ósk til heUbrigðis- ráðherra og fjárveitingarnefndar Al- þingis að bygging hjúkrunarálmu við heilsugæslustöðina á Höfn fái þær fjárveitingar sem óskað er eftir í til- lögum Heilbrigðismálaráðs Austur- lands, kr. 50 mihjónir, á næsta fjár- lagaári. I lok fundarins afhenti Árni Stef- ánsson hótelstjóri Sturlaugi Þor- steinssyni bæjarstjóra peningagjöf frá Hótel Höfn í tUefni 25 ára afmæl- is hótelsins og skal gjöfm renna til hj úkrunarálmunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.