Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991. Merming Þorgeirsboli snýr aftur Það er ekki á hverjum degi sem jafn skemmtileg og vel unninn kvæðabók og Óðfluga kemur út. Bókin er saimkallaður ævintýraheimur þar sem allt getur gerst. í bókinni eru 16 kvæöi eða þulur og með hverju þeirra fylgir myndskreyting. Yrkisefnin eru úr ýmsum áttum sótt til númtímans, orðaleikja, þjóðsagna og í íslandssöguna sem dæmi má taka að þar skipa Þor- geirsboli og fyrsti landnámsmaðurinn veglegan sess. Oní fjöru Ingólfur er í skapi fúlu fram og aftur flækist þar en finnur enga súlu Ingólfur gamli finnur eitt og annað sem kemur honum á óvart en hann er kominn til Reykjavíkur á röngum tíma og gefst upp fyrir nútímanum. Hann gengur upp á grænan hól og gerist fyllibytta, og er þar síðan alla tíð algjör myndastytta. Fyrst kom belgurinn og svo kom biöan/ þá byijaði skriðan eru upphafshendingar annars kvæðis í bók- inni og í því fer Þórarinn á kostum í textanum. Af öðrum góðum má nefna kvæðið Bílamir sem eru sófasett á tveimur hjólum en þaö lýsing á hefðbundun bíltúr vísitölufjölskyldunnar. - Textamir em mjög myndrænir en um leið fyndnir og skemmtilegir. Það kurrar í ungum sálum við lestur þeirra. Sigrún Eldjárn teiknar myndir við Ijóð bróður síns. Myndir Sigrúnar og kvæði Þórarins vinna skemmti- lega saman í bókinni. Hvort um sig gæti þó í flestum tilfellum staðiö eitt og sér án þess að glata nokkru af gildi sínu. Það sem tengir bókina saman er flugan og rauði ormurinn sem koma viö sögu á öllum myndun- um og það eru þau sem fá bókina til að mynda eina heild. Þetta em þulur eöa kvæði, sem eru hvort tveggja í senn háðar og óháðar tíma og rúmi, eins konar ævin- týri, sem lifa sjálfstæðu lífi. í þeim felst á stundum Bókmenntir Jóhanna Margrét Einarsdóttir háð á viðteknum venjum eða gömlum gildum svo sem um hann Guðmund á Mýrum, en hann borðar bækur: „Hann segir; þó er best að borða ljóð en bara reyndar þau sem eru góð.“ Það fer ekki bara illa fyrir Ingólfi, sem kemur til landsins á röngum tíma. Þorgeirsboh verðu líka fyrir barðinu á efnishyggjunni, þegar hann kemur í'bæinn: Þegar Þorgeirsboli, þessi gamli svoli aftur aftur gekk örlög grimm hann fékk. Hann ber að dyrum hjá henni Höllu sem að sjálfsögðu verður hissa þegar hún sér bola. Halla opnar hlessa: - Hvaða voða klessa... ? . NEI SKO, ÞETTA ER NAUTAHAKK! Namm og takk. Öllu gamni fylgir nefnilega rammasta alvara ef út í það er farið. Það er ánægjulegt til þess að vita að höf- undar skuli leggja svo mikinn metnað í að gera barna- bók á borð við þessa. Raunar finnst mér bókin ekkert frekar vera bamabók en fullorðinsbók enda hafa þeir sem eldri eru áreiðanlega jafngaman af því að lesa Óðfluguna og böm, ef ekki meiri. Óöfluga Texti: Þórarinn Eldjárn Myndlr: Slgrún Eldjárn Forlagiö 1991 Torgrim Sollid lék á trompetinn og leióbeindi íslenskum djassmönnum. Torgrim Sollid Norski trompetleikarinn Torgrim Solhd dvaldi hér á landi í nokkra daga fyrir skömmu og hélt stutt námskeið í tónsmíðum við Tónlistar- skóla FÍH. Hann lauk svo dvöl sinni með tónleikum á Púlsinum og léku þar með honum Pétur Grétarsson trommuleikari, Sigurður Flosason saxó- fónleikari og Þórður Högnason bassaleikari. Sollid, sem hóf feril sinn sem - trommari,hefurleikiðmeðýmsum tn • þekktum djassleikurum og er UlcLSS greinilega reyndur hljóðfæraleik- --------------------- ari. Eins og sumra trompetleikara Ingvi ÞÓr Kormáksson er siður einkenndust sóló hans a_______________________ nokkuð af stuttum, hröðum skala- hlaupum með lágværara og hægara spili á milli, þar sem virðist sem stöku tónar leki út úr hljómum og viðteknum tónstigum. Getur þetta virkað all ómstrítt í óvön eyru, enda kunnu ekki allir Miles Davis miklar þakk- ir er hann hóf að leika á svipaðan máta á sínum tíma. Skemmtilegustu sóló Sollids voru samt þau sem voru í nokkum veginn órofnu samhengi svo sem í síðasta lagi fyrir hlé og í verkum Kenny Wheelers í upphafi síðari hálfleiks. Músíkin, sem samanstóð af lltt þekktum ópusum með nokkrum undan- tekningum, var fremur krefjandi bæöi fyrir áheyrendur og meðleikara sem trúlega hafa ekki haft mikinn tima til undirbúnings en stóðu sig aödáanlega vel. Sollid leiðbeindi mönnum sínum með hægð en ákveðið og lausbeislaðar útsetningar miðuðu ekki að því að þétta músíkina í mjög fast form eins og tíðkast í poppi, heldur að láta hana virka „opna“ og frjálsa innan ákveðins ramma. Þannig áhrif fundust í lagi Tristranos, „All About You“, og sérstaklega í norsku þjóðlagi sem var spunnið út í atónalskt, en langt frá því algjört, frelsi. Þórður átti kynngimagnaðan einleik í þessari drungalegu norsku stemmu. Undir lokin lék kvintettinn „Round Midnight", sem er mjög algengt og vinsælt lag á djasstónleikum hérlendis, en hefur líklega sjaldan verið jafn „Mingus“legt í flutningi og í þetta sinn. Sveiflan var ekki í hámarki á tónleikum þessum enda músíkin ekki alltaf þannig löguð. Ekki var þetta þó leiðinlegt en einstöku sinnum lá við að það jaðraði við það. Viljum við vernda börnin okkar? Það er nú komið í ljós að tilkoma áfenga bjórsins hefur aukið áfeng- isneyslu landsmanna það mikið að hann er orðinn hrein viðbót við þá áfengisneyslu sem var fyrir. Þetta sögðu margir og rökstuddu það með reynslu annarra þjóða. Það hefur ennfremur komið í ljós að áfengisneysla yngri aldurshópa hefur aukist mest. í aldurshópnum 15-19 ára hefur hlutfall neytenda aukist úr rúmlega 55% í janúar 1989 í tæp 75% í september 1991. Almennust er neyslan í hópnum 20-24 ára. Rúmlega 92% á þeim aldri segjast neyta áfengis. Hvað ertil varnar? Við þessa miklu aukningu á neyslu áfengis aukast vandamál á mörgum sviðum og þá ekki síst á heilbrigðissviðinu. Sannleikurinn er sá að áfengisvandamálið verður í samræmi við það sem við sættum okkur Við. Sé það böl sem við búum við ásættanlegt þá gerðum við ekk- ert, nema e.t.v. eitthvert kák, til að friða samviskuna. Og það virðist vera stefna stjóm- valda því þau hafa engin viðbrögð sýnt í sambandi við afleiðingamar af tilkomu bjórsins. Þau gætu þó gripið í taumana ef þau væm óánægð með árangurinn. En vill ekki fólk almennt gera eitthvað til varnar? Vilja foreldrar ekki takast á við það aö vemda 2 bömin sín? Kjallarinn Páll V. Daníelsson útgefandi að sýna það að hægt er að skemmta sér án áfengis. Vemda ákveðin svið fyrir áfengisneyslu og ákveðna staði. Má þar nefna grunnskólann, æskulýðsstarfsemi, íþróttastarf, kirkjustarf og menningarstarfsemi ýmiss konar. Foreldrar em yfirleitt ánægðir með aö börn og unglingar eyði tóm- stundum sínum í íþróttir og leggja sig margir fram um að fylgja því eftir. íþróttahúsin eru því miö- stöðvar æskulýösstarfs fjölda bama og unglinga. Þau ætti því að vemda og ekki leyfa að þar færi fram áfengisneysla. En það vill koma fyrir þegar fullorðna fólkið, fyrirmyndirnar, heldur samkomur sínar í húsunum þá em heimilaðar vínveitingar. Þarna væri hægt að gera breyt- „Þá ætti aldrei að fagna sigri í íþróttum með áfengu kampavíni eins og nú virð- ist í tísku og ættu ráðamenn að sýna góðum íþróttaárangri meiri virðingu en svo.“ Vilji hlýtur að vera fyrir hendi Ég trúi ekki öðra en að vilji fólks sé fyrir hendi og þá ekki síst for- eldra, Margt er hægt að gera. T.d,, ingu á, þannig að í þessum húsum tilheyrði ekki meðferð áfengis, hvorki hjá unglingum né fullorðn- um. Þá ætti aldrei að fagna sigri í Jþróttum,með áfengu kampavíni „Iþróttahúsin eru því miðstöðvar æskulýðsstarfs fjölda barna og ungl- inga.“ eins og nú virðist í tísku og ættu ráðamenn að sýna góðum íþrótta- árangri meiri virðingu en svo. Alkóhóhð byggir ekki upp afreks- menn. Það er misskilningur. Tímabundið bindindi Þá væri mögulegt fyrir foreldra barna í grannskóla að taka það upp að neyta ekki áfengis á meðan þeir eiga böm í grunnskóla og gefa þeim þannig gott fordæmi. Sumum finnst að nóg sé aö segja bömum það að þau megi ekki neyta áfengis og leiða þeim fyrir sjónir hvað af gæti hlotist. En slik umræða við bömin verð- ur innihaldslítil ef henni er ekki fylgt eftir með góðu fordæmi. E.t.v. finnst foreldrum þetta vera mikil fóm. En viljum við heldur auka áhættuna fyrir börnin okkar en að fórna þessu. Foreldrarnir gætu lyft grettistaki íþessum efnum aðeins ef þeir vilja. Ýmislegt fleira mætti nefna en hér læt ég staöar numið að sinni. j, -■. rj , Páll, y, P^nipls^on

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.