Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91 >27022 - FAX: Auglýsingar: (91 >626684 - aðrar deildir: (91 >27079 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SÍMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Þyrlu strax Hið hörmulega sjóslys við Grindavík hefur ýtt við mönnum. Nú er búizt við samstöðu á Alþingi um að hraða kaupum á nýrri þyrlu. Það væri í samræmi við fyrri ályktun þingsins, en framkvæmdin hefur dregizt alltof lengi. Röð tilviljana og mannlegra mistaka olli því, að þetta slys varð. Sitthvað fór úrskeiðis. Við höfum orð eins þeirra, sem um málið fjölluðu, fyrir því, að greinilegt sé, að boðkerfi björgunaraðila hafi verið „í algerum molum“. Öllum er ljóst, hversu skammt var til þess að þyrla varnarliðsins yrði kölluð til í tæka tíð. Það var því annað en skortur á þyrlu, sem þessu olli. En málið undirstrikar engu að síður, hversu brýn nauðsyn er, að til staðar sé önnur íslenzk þyrla. Ingi Björn Albertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, hefur lengi verið helzti talsmaður þess, að keypt sé ný þyrla. Hann lagði fram í gær ásamt sjö þingmönnum allra flokka frumvarp, þar sem negla á niður, að þyrlan verði keypt hið allra fyrsta. Krafan er einnig, að önnur þyrla verði strax tekin á leigu, meðan beðið verður af- hendingar á hinni nýju þyrlu. Þetta verður að gerast tafarlaust. í frumvarpi þingmannanna segir, að ríkisstjórnin skuli á næsta ári gera samning við framleiðendur eða seljendur um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelg- isgæzluna. Fjármálaráðherra verði heimilt að taka fyrir hönd ríkissjóðs lán að íjárhæð allt að 150 milljónir króna á árinu 1992. Ingi Björn Albertsson sagði í gær, að þyrlan kynni að kosta 7-800 milljónir, sem yrðu greiddar á 9-13 árum. Þetta væru því ekki slíkar fjárhæðir á ári, að miklu skipti fyrir ríkissjóð, miðað við hversu brýnar úrbætur eru. Þarna má ríkisstjórnin ekki hugsa um sparnað, þegar um mannslíf getur verið að tefla. Ráðherrar lýsa því, að þyrlukaupanefnd hafi skilað áhti fyrir skömmu og viðræður um máhn standi yfir, meðal annars við Bandaríkjamenn. En rétt er að taka undir fordæmingu Inga Björns á vinnubrögðunum. Ekki er nóg að tala nú um, að niðurstaða fáist „á fyrri hluta næsta árs“. Skrefið verður að stíga til fuhs. Ahar heimildir eru til staðar, meðal annars í lánsfjárlögum. Nú þarf að binda í lög, að þyrlan verði keypt á næsta ári, og strax að taka aðra á leigu. Landsfeðurnir hafa fylgt slælega eftir ályktun Alþingis um máhð frá í fyrra. Flutningsmenn frumvarpsins benda í greinargerð á, að frumvarpið sé efnislega samhljóða ályktuninni, sem Alþingi hafði samþykkt síðastliðið vór. Frumvarpið sé flutt til þess að herða á því, að vilji Alþingis í þessu máh nái fram að ganga. Flutningsmenn kveðjast vonast til þess, að Alþingi beri gæfu til að veita þessu frumvarpi samþykki sem allra fyrst, þannig að það geti orðið að lögum fyrir næstu áramót. Þessi brýning ætti að duga, einkum eftir mikla sam- stöðu, sem var um málið á fundi í Grindavík í fyrra- kvöld. Frumkvöðlar þess fundar segja, að samstaða hafi orðið um, að fast verði fylgt eftir. En hafa verður í huga, að jafnvel þótt stjórnvöld taki sig á og bretti upp ermar í máhnu, verður að gera ráð fyrir talsverðum biðtíma eftir að þyrla komi. Því er rétt- ast að fara eftir því, sem mikil samstaða virðist orðin um, og taka þyrlu á leigu þegar í stað á allra næstu vikum. Haukur Helgason ——■———------------------------------------------- Gjald í gal- tóman kassa Umræðan um áfengismál er ekki hávær eða fyrirferðarmikil svo af- drifarík sem þau málefni eru fyrir allt samfélagið, svo ótrúlega kostn- aðarsöm, svo gífurlegar fórnir sem færðar eru á altari vínguðsins. Annars vegar eru það aðvaranir okkar bindindismanna, byggðar á bláköldum staðreyndum, sem eru því miður svo alltof sannar, hins vegar ógrundaðar upphrópanir þeirra sem slegnir eru þeirri blindu aö sjá í engu alvöru málsins. Oftast eru þetta þeir sem þykjast í öllu hafa afl við Bakkus, þó oft kunni þaö að vera vafasamt þegar grannt er að gáð. Upphrópanir þeirra snúast mest um enn meira frelsi, enn greiðara aðgengi enn fleiri að áfenginu og er þá ekki um aldursmörk skeytt né ofneyslu- hættu. Hver á að borga brúsann? Að undanfórnu hafa nokkrir þessara óvita verið að æpa á sölu ÁTVR eða einkavæðingu hennar og áfengi inn í allar verslanir. Því er þá gleymt vandlega og vel að ríkið, sem nú fær óneitanlega háar tölur „hagnaöar" í sinn hlut af sölu ÁTVR, verður að greiða enn hærri tölur hrikalegs kostnaðar af áfeng- isneyslunni. Ef hagnaður á að fara að mestu í vasa kaupahéðna hvers konar og ótíndra braskara þá munu þeir aöilar ekki greiða her- kostnaðinn gegn áfenginu því engir eru lagnari að skjóta sér undan eðlilegum skattskúum til samfé- lagsins og er þá mikið sagt. Þegar við höfum tölur frá Hag- fræðistofnun Háskólans þar sem hagnaðartölur og. kostnaöar vega salt hjá ríkinu, þó vanmetnir þætt- ir séu máske annað eins í kostn- aði, þá hþótum við fyrst að spyrja okkur, ef einkavæða á ÁTVR: Hver á að borga brúsann? Hvar á ríkið að taka fé til að mæta hinum hræði- lega kostnaði sem hvarvetna blasir við? Við bindindismenn segjum því hiklaust: Illskástur kosta, úr því eitrið er á annaö borð selt, er að ríkið fái „ágóðann“ til að tnæta sem mest og best öllum ofurkostnaðin- um. Svo einfalt er nú það og þar aö auki er staðreyndin sú að einka- sala með þá ákveðinni lágmarks- stjómun, þó lítil sé máske, gefur KiaUarinn Helgi Seljan form. Landssamb. gegn áfengisbötinu alls staðar þá raun að mun minna sé drukkið, einfaldlega af því að aðgengið er svo miklu auðveldara þar sem allt er óhindrað og fijálst. Þetta sanna óyggjandi tölur. Það er hins vegar margt athuga- vert í framkvæmd okkar annars ágætu áfengislaga um margt, því eftirgjöfin á öllum sviðum er alveg ótrúleg, þar sem þjónar hins blinda einkagróða vaða áfram svo engu tali tekur og undarlegustu menn láta undan. Fjölgun vínveitinga- leyfa, einkum í kjölfar bjórsins, er hreint ótrúleg, enda halda menn því ótæpilega fram, sem selja vilja mönnum mat og drykk, að áfengið sé þeim sá bjarghringur er allt velti á um afkomuna. Gjöf vœrl sanni nær Og þar er að imdarlegu verð- mætamati komiö. Maöur skyldi ætla að þetta lífsakkeri veitinga- manna og „búllu“eigenda væri dýru verði keypt, aö hið' opinbera verðlegði þetta dýrmæti allþokka- lega m.a. til þess að mæta í litlum mæli afleiðingum þeim sem af verða utan alls efa. En það er nú öðru nær. Fátt verð- leggur ríkið lægra en einmitt þessi eftirsóttu leyfi, sem veitingamenn telja til einhverra æðstu lífshlunn- inda sinna. Vínveitingaleyfi eru nefnilega á hreinlega hlálegu verði, svo vart er unnt að kalla þaö gjald með góðu móti, gjöf væri nær sanni. Nú er framundan hækkun auka- tekna ríkissjóðs til að mæta tóma- hljóði ríkiskassans og koma þar á fyllri hljómgæðum að hluta. Væri nú ekki upplagt tækifæri fyrir að- þrengdan fjármálaráðherra alls- leysisins að verðleggja þessi leyfi eitthvað skynsamlega, s.s. allt bendir til að óhætt sé, miðað við ákefð sölumanna og eftirsókn í þessi leyfi? í stað 15-20 þúsunda í dag mætti mjög gjaman tífalda þessa upphæð að lágmarki, svona til að byrja með - máske væri eðlilegra og sjálfsagð- ara að hundraðfalda þessar hlálegu upphæðir en vart er að vænta þess að sá sem virðist vera að hugleiða aukið frelsi í öllum greinum áfeng- ismála muni ganga svo langt þó fjárvöntun sé fimamikil á þeim bæ er hann byggir nú. Og vonandi er þetta aðeins hugleiðing án alvöru. Væri nú samt ekki ráð fyrir minn góða vin, fjármálaráðherrann, að hætta öllum hugleiðingum um einkavæðingu „áfengisgróðans“ en leggja nú örlítið sanngjamari byrð- ar á þá sem sannarlega þola, sölu- menn eiturs og ógna, sem eiga vissulega að gjalda samfélaginu sanngjarnan skatt? Þá yrði hans hlutur gæfulegri svo sem ég óska honum eindregið að verða megi. Helgi Seljan „Væri nú samt ekki ráð fyrir minn góða vin, fjármálaráðherrann, að hætta öllum hugleiðingum um einka- væðingu „áfengisgróðans“ en leggja nú örlítið sanngjarnari byrðar á þá sem sannanlega þola...?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.