Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991. Lífestm - sameiginlegt átak húsgagnaframleiðenda og Iðntæknistofnunar Félag húsgagna- og innréttinga- framleiðenda er um þessar mundir að fara út í víðtækt kynningarátak á vöruvottun og beinist kynningin einkum að stórum innkaupaaðilum, framleiðendum og almennum neyt- endum. Rafn B. Rafnsson er formað- ur Félags húsgagna- og innréttinga- framleiðenda. „Við höfum tekið upp alþjóðastaðl- aða hluta og stigið mikilvægt skref til að auka samkeppnishæfni hús- gagnaiönaðar á íslandi. Stór hluti íjöldaframleiddra húsgagna á íslandi hefur fengið vöruvottun hjá Iðn- tæknistofnun. Innlend framleiðsla hefur undantekningarlítið komið vel út og það er búið að prófa töluvert af því sem er í umferð. Kynningarátak þetta beinist aðal- lega að stórum innkaupaaðilum, framleiðendum og almennum neyt- endum. Húsgagnaprófanir eru tæki til þess að stuðla að því að hægt sé að bera saman gæði á framleiðslu- vörum einstakra framleiðenda, hvort sem um er að ræða íslensk eða innflutt húsgögn. Félag húsgagna- framleiðenda og landssambandið hefur lagt áherslu á að ríkisstofnanir hafi frumkvæði því að nýta sér húsa- gagnaprófanir við samanburð á til- boðum. Mikilvægt er að allir geri sér grein fyrir hvers vegna tekin hefur verið upp vöruvottun. Þar kemur einkum tvennt til. í fyrsta lagi að tryggja kaupendum góðar upplýsingar um mikilvægi eiginleika vörunnar. Þær eiga þannig að tryggja það að neyt- endur kaupi ekki lélega vöru vegna ófullnægjandi eða beinlínis rangra upplýsinga. í öðru lagi er það ótvírætt mark- mið með húsgagnaprófunum að styrkja markaðsstöðu innlendrar framleiðslu með því að upplýsa neyt- endur um gæði vörunnar í saman- burði við innflutta vöru. Þetta þýðir einnig að með aðgangUað húsgagna- prófunum gefst framleiðendum kost- ur á að stuðla að endurbótum á vör- unni ef gæðum skyldi vera áfátt. í þriðja lagi má nefna að gæðapróf- anir og gæðastimpill sem þær beita, eru nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að flytja út íslensk húsgögn. í vöruvottunarkerfinu er gerður greinarmunur á lágmarks-, miðl- ungs- og hámarksgæðum. Þessir staðlar ættu að auðvelda kaupendum að bera saman verð og gæði ein- stakra vörutegunda,“ sagði Rafn B. Rafnsson í samtali við DV. Gæðaprófanirnar eru fram- kvæmdar eftir sænskri fyrirmynd og byggja á sama kerfi og Möbelfakta gæðamerkingarkerfið. Gæðastigið sem varan uppfyllir, kemur fram á vöruvottunarmerkinu og fólk getur treyst því að þær upplýsingar séu réttar enda gefnar af óháðum aðila. Framfaraskref fyrir íslenskan húsgagnaiðnað Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra lýsti yfir ánægju með þetta framtak. „Mér finnst mjög ánægjulegt að fá Neytendur að taka þátt í kynna þetta sem ég lít á sem mikið framfaraskref fyrir ís- lenskan húsgagnaiðnað. Það er rétt mánuður síðan samkomulag tókst um evrópska efnahagssvæðið og á þeim stóra markaði sem myndast í ársbyijun árið 1993, verður geysilega hörð samkeppni. Það er enginn vafi á að við verðum enn að b'úa okkur undir enn harðari samkeppni. Við höfum séð að ís- lenskur húsgagnaiðnaður hefur átt við margvíslega erfiðleika að etja á DV BRÚÐAR g)°fin ■ ValdísogGuimgeir DV auglýsti eftir pari í gifting- arhugleiðingum. Valdís og Gunngeir voru svo ljónheppin að vera valin úr fjölda umsækj- enda. DV gaf þeim kvartmilljón, 2 5 o.ooo krónur, til að auðvelda þeim að bvggja upp framtíðar- heimili sitt og notuðu þau pen- ingana til að kaupa hluti í gegnum smáauglýsingar DV. ■ Mikið fyiir lítið VALDIS OG GUNNGEIR ÞREFÖLDUÐU UPPHÆÐINA SEM ÞAU HÖFÐU TIL RÁÐSTÖFUNAR! Þau fengu aldeilis mikið fyrir lítið því þau þrefölduðu upp- hæðina sem þau höfðu til ráð- stöfunar. Þau keyptu fjóra króm- og leð- urstóla, Funai myndbandstæki, 22" Grundig litsjónvarp, tví- skiptan Blomberg ísskáp, sófa- borð með glerplötu og króm- fótum, svartan, tvífættan standlampa með glerplötu, tvo 2ja sæta sófa og stól með tauá- klæði, Eumenia þvottavél með innbyggðum þurrkara og stór- an, þrískiptan fataskáp. Smáauglýsingar Þverholti 11 - 105 Rvík Sími 91-27022 Fax 91-626684 Græni síminn 99-6272 Opið: Virka daga frá kl. 9-22 Laugardaga frá kl. 9-14 Sunnudaga frá kl. 18-22 Ath. Smáauglýsing í helgar- blað DV verður að berast fyrir ; þj. 17 á. föstudag., , ■i V’/ <Af '' ~ 1 f r ■if-nf'l-l undanfórnum árum. Það hefur kannski skort á að neytendur og inn- kaupaaðilar geti séð svart á hvítu hvemig styrkur, ending og gæði eru á húsgögnum. Þess vegna lýsi ég yfir mikilli ánægju með að sjá að Iðn- tæknistofnun og húsgagnaframleið- endur hafa náð saman um þetta eftir- ht, vöruvottun," sagði Jón. -ÍS •vöruvottun vöru* vottun STENST KROFUR HUSGAGNA- OG INNR ETTINGAPROFANA SAMANTEKT PRÓFANA Lagm*ft>s- Weðat- Hamarns- • fOtof WfOlu' AfOlu' Styrkleiki Þol yfirborös Efni og frágangur Nafn framleiöanda: Verö: Vöruvottunarmerkiö: vöru# vottun Húsgögn sem uppfylla tilskildar kröfur trétæknideildar löntæknistofnunar islands má merkja meö vöruvottunarmerki. Merkiö staöfestir aö varan hefur veriö prófuö. Sölumenn eiga aó geta upplýst viöskiptavini um hvaö felst i prófuninni. Framleiöandi ber ábyrgö á aö söluaöili hafi upplýsingar um húsgagna- og innréttmgaprófanir löntæknistofnunar. Húsgögn sem fá gæðastimpil Iðntæknistofnunar verða merktar með vöru- vottunarmiðum sem þessum. Það er vissara fyrir neytendur að leggja útlit- ið á minnið því vöruvottunarmiðinn tryggir gæði vörunnar. Svínakjöt að hætti Jama- íkumanna Svínakjöt er afar ljúffengt og auðmelt kjöt. Allir þekkja svína- kótelettur „eins og mamma bjó til“, það er að kótelettunum velt úr eggi og raspi og þær síðan steiktar í smjöri. Sú matreiðsla var vinsæl hér áður fyrr, einkum áður en búið var að finna út hve kólesteról og fita eru skaðleg. í dag reynum við að matreiða -þannig að við fáum sem minnsta fitu. Þessi uppskrift er frá Jamaíku. Hún er mjög góð, bæði með svína- kjötinu eins og við sáum hana fyrst, en einnig er hægt að nota annað kjöt en svínakjöt. Uppskriftina er einnig hægt að nota fyrir hænsna- kjöt. Uppskriftin hljóðar annars þannig: 2+2 msk. smjör 1 tsk. karrí 2 meðalstórir bananar 'A kg svínakjöt, skorið í litla bita '/2 bolli ananassafi % bolli smátt saxaður laukur !4 bqlli gróft kókosmjöl 2 bollar soðin hrísgijón Bræðiö smjörið á pönnu og látið karríið út í. Skerið bananann í um það bil 2ja cm bita og steikið þá. Takið þetta svo af pönnunni og setj- ið til hliðar. Takið þá aftur 2 msk. af smjöri og bræðið á pönnu, brún- ið kjötbitana og laukinn þar í. Hell- ið síðan anananssafanum út á pönnuna og sjóðið undir loki í 10-15 mín. eða þar til kjötið er orðið meyrt. Þá er heitum hrísgijónum bætt á pönnuna og loks er karrí- banönum bætt út í og síðast er kó- kosmjölinu stráð yfir. Ýsusalat meö selleríi Afgang af soðinni ýsu er hægt að nota í fleiri rétti en plokkfisk, sem út af fyrir sig er ágætur. Reynið ýsusalat með selleríbitum. Upp- skriftin er þannig: Vt bolli (létt) majones 3 msk. sýrður rjómi eða jógúrt 250 g soðin köld ýsa 2-3 stilkar sellerí, skornir í þunna bita '/< bolli saxaðar hnetur 'A bolli vínber (má nota rúsínur) Hrærið majonesinu með sýrða ijómanum, blandið öliu saman við, en ýsunni síðast. Takið hana í bita og hrærið síðan varlega saman við salatið. Skreytt með vínbeijum og grænum blöðum af selleríinu. -ABj i .j 1 u 1 j 1 j 01 ( í i; i 111 : et ■ )| t ti j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.