Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1991, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991.
fþróttir__________________
Sport-
stúfar
Rangt var farið með
nafn verðiaunahafa á
uppskeruhátíð knatt-
spymudeildar Víkings
í blaðinu í síðustu viku. Þaö var
Helgi Bjarnason sem var út-
nefndur leikmaður ársins af
deildinni, ekki Helgi Björgvins-
son.
Stefán var ekki
framkvæmdastjóri
í síðustu viku var einnig rang-
hermt að Stefán Konráðsson
heföi verið framkvæmdastjóri ÍSÍ
og vaeri að fara aftur í þá gömlu
stöðu. Stefán var starfsmaður ÍSÍ
áður en hann fór til starfa hjá
KSÍ og nú er hann á leið aftur til
ÍSÍ sem aðstoðarframkvæmda-
....
OrriogJón
Birgir sigruðu
Orri Björnsson og Jón
Birgir Valsson, báðir
úr KR, sigmðu í
þyngdarflokkum karla
i flokkaglímu Reykjavíkur sem
fram fór í Laugardalshöllinni á
laugardaginn. Orri sigraði í +84
kg flokki en Jón Birgir í -84 kg
flokki. Meðal keppenda í léttari
flokknum var Chris Threlfall frá
Bretlandi en hann er fyrsti ef-
lendi einstaklingurinn sem kepp-
ir hérlendis í glímu fyrir íslenskt
félag. Hann keppti fyrir KR.
Litháar unnu
mót í Eistlandi
Látháen sigraði i fjög-
urra þjóða móti í hand-
knattleik karla sem
lauk í Tallinn, höfuð-
borg Eistlands, á sunnudaginn.
Litháar unnu alla leiki sína og
fengu 6 stíg en Eistland, Finnland
og Israel fengu 2 stig hver þjóð.
'Eistland vann Finnland, Finn-
land vann ísrael og Israel vann
Eistland.
Dönsku stúlkurnar
unnu á heimavelli
Danmörk sigraði Svíþjóð, 18-15, í
úrslitaleik á alþjóðlegu móti i
handknattleik kvenna sem lauk
í Danmörku á sunnudag. Dan-
mörk, Sviþjóð og Litháen fengu 4
stig hver þjóð en markatala
dönsku stúlknanna var best.
Lettland tapaði öllum sínum
leikjum.
Elías drjúgur
i Garðinum
Elias Sveinsson var sigursæll á
kappamóti öldunga sem haldið
var í Garðinum á sunnudag.
Hann kastaði spjóti 44,50 metra,
Valbjörn Þorláksson kastaöi 40,80
metra og Jóhann Jónsson 34,08
metra. í kringlukasti með 2 kg
kringlu kastaði Eliasl)7,60 metra,
Valbjörn 35,88 og Ólafur Unn-
steinsson 35,78 metra. í kringlu-
kasti með 1,5 kg kringlu kastaði
Valbjörn 44,96 metra og Ólafur
43,86 metra. Jóhann kastaði 1 kg
kringlu 31,76 metra.
Ewing þénar mest
Patrick Ewing hjá körfuknatt-
leiksliðinu New York Knicks er
launahæsti atvinnumaðurinn i
Bandarikjunum i dag. Ewing
gerði á dögunum sex ára samning
við félagið sem færir honum um
1,9 milljarða íslenskra króna.
Annar launahæsti íþróttmaður-
inn er baseball-leikmaðurinn Ro-
ger Clemens hjá Boston.
Houghton og Walters enn-
þá meiddir
Eftir læknisskoðun í gær er Ijóst
að Ray Houghton og Mark Walt-
ers leika ekki með Liverpool gegn
Swarovski Tirol í Evrópukeppni
félagsliða á morgtm. Hins vegar
mun Mark Wright leika eftir
meiðsli frá því i ágúst.
Karen golfari ársins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hin unga golfkona, Karen Sævars-
dóttir, hefur verið kjörin „Golfmaður
ársins“ af stjórn Golfsambands ís-
lands.
Þetta er í fyrsta skipti sem konu
hlotnast þessi heiður en Karen er
mjög vel að titlinum komin. Hún
varð íslandsmeistari kvenna, ís-
landsmeistari unglinga og vann nær
alla þá titla sem hún reyndi við á
árinu. Þá varð hún fyrsta íslenska
konan til að leika 72 holur undir 300
höggum og einnig fyrsta konan hér
á landi sem leikur 18 holur undir 70
höggum. Bæði þessi afrek vann Kar-
en á Norðurlandamóti unghnga á
Akureyri í sumar en þar hafnaði hún
í 2. sæti í einstaklingskeppninni.
Til aö sjá yfirburði Karenar í golfl
kvenna hér á landi nægir að líta á
forgjöf hennar, sem í dag er 4,6, og
er hún í algjörum sérflokki kvenna
hér á landi hvað forgjöf varðar.
Mætti reyndar margur karlmaður-
inn vera stoltur af að geta skartað
slíkri forgjöf.
Ágúst Ásgeirsson, fyrrum formaður FRÍ:
Rangfærslur í máli
formanns FRÍ
„Það eru verulegar rangfærslur í
máli formanns FRÍ í DV í dag þar sem
hann segir aö skuldir sambandsíns
séu á fjórðu milljón króna og þar af
sé ein milljón frá síðasta ári en af-
gangurinn eldri skuldir. Hið rétta er
að skuldastaða sambandsins er rúm-
ar 6,2 milljónir í skammtímaskuld-
um, sem eru fyrst og fremst frá þessu
ári, og 187.500 krónur í langtíma-
skuldum, frá fyrri tíð,“ sagði Ágúst
Ásgeirsson, fyrrum formaður Frjáls-
íþróttasambands íslands, í samtali
við DV í gær.
„Þegar sú stjorn, sem ég var í for-
sæti fyrir, fór frá árið 1989 var staðan
ekki góð. En við útveguðum ríkis-
styrk upp á þrjár milljónir króna,
skömmu eftir að við hættum, og þar
með er nánast hægt að segja að við
höfum skilað af okkur á núlli,“ sagði
Ágúst.
DV fékk í gær í hendur reikninga
FRÍ sem lagðir voru fyrir ársþingið
um helgina. Þar kemur fram að tap
ársins 1991 hafl verið rúmar 1.990
þúsund krónur, skuldir umfram
eignir rúmar 4,6 milljónir og heildar-
skuldir rúmar 6,4 milljónir.
„Ég veit til þess að endurskoðendur
neituðu að samþykkja reikninga þá
sem gjaldkeri FRÍ ætlaði að leggja
fyrir þingið og það þurfti að breyta
þeim verulega," sagði Ágúst Ásgeirs-
son.
„Ekki sammála því sem
Ágúst segir“
„Ég er ekki sammála því sem Ágúst
segir hér að framan. Þetta sem hann
heldur fram segir alls ekki alla sög-
una. Áður en Ágúst lét af störfum
sem formaður FRÍ voru skammtima-
skuldir sambandsins upp á 2,6 millj-
ónir. Við fengum 1,3 milljónir í haus-
inn sem hvergi voru taldar fram í
reikningi. Tapið þá var ekki 700 þús-
und heldur tvær milljónir," sagði
Magnús Jakobsson, núverandi for-
maöur FRÍ, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
„Þegar Ágúst lét af formennsku
voru skuldir umfram eignir rúm ein
milljón en inni í þeirri upphæð eru
íþróttavörur sem voru þá allt of hátt
Heimsmeistarar í röðum
fatlaðra íþróttamanna
íþróttadeild DV hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning frá íþrótta-
sambandi fatlaðra, undirrituð af
Önnu K. Vilhjálmsdóttur fyrir hönd
stjórnar ÍF:
Um leið og stjórn íþróttasambands
fatlaðra óskar heimsmeisturunum í
kraftlyftingum til hamingju með
glæsilegan árangur sinn vill hún
koma eftirfarandi á framfæri:
íslenskir fatlaðir íþróttamenn hafa
hlotið heimsmeistaratitla í sund-
greinum og frjálsum íþróttum og
hefur góð frammistaða íslenskra
keppenda vakið mikla athygli á al-
þjóðamótum fatlaðra. Gild heimsmet
1991 eru 12 í flokki þroskaheftra, eitt
í flokki sjónskertra og sex í flokki
hreyfihamlaðra.
Hámark á ferli hvers íþróttamanns
hlýtur að vera heimsmeistaratitill en
aðeins með markvissri og þrotlausri
þjálfun verður því marki náð.
í tilefni af sérlega glæsilegum ár-
angri fatlaðra íþróttamanna á árinu
1991, þar sem staðfest voru 7 ný
heimsmet í sundgreinum, hélt stjóm
ÍF sérstakt hóf 17. október sl. þar sem
núverandi og fyrrverandi heims-
meistarar úr röðum fatlaðra voru
sæmdir einu æðsta heiðursmerki
sambandsins, silfurmerki ÍF.
í umíjöllun vegna heimsmeistara-
titils íslenskra íþróttamanna fyrr á
þessu ári og aftur nú í nóvember
hafa fatlaðir heimsmeistarar þurft
að sætta sig við það að þeir virðast
af mörgum ekki taldir alvöruheims-
meistarar í alvöruíþróttum.
I heimi íþrótta fatlaðra er heims-
meistaratitill hámarksárangur. í
heimi íþrótta ófatlaðra er heimsmeist-
aratitill einnig hámarksárangur.
Því vonast stjórn ÍF til þess að
heimsmeistarar úr röðum fatlaðra
íþróttamanna hljóti hér eftir viður-
kenningu annarra íslenskra heims-
meistara og þjóðarinnar allrar á
heimsmeistaratitlum sínum.
reiknaðar. Skuldir umfram eignir
versna á árinu 1990 í 2,5 milljónir
vegna reikninga sem ekki voru bók-
aðir á árinu 1989,“ sagði Magnús Jak-
obsson. -VS/JKS
Karen Sævarsdóttir á landsmótinu á siðs
sumri.
Ungmennasamband Kjalarnesþings sigraði í 2. deildar keppnim
UMSK standa sunddeildir Aftureldingar, Breiðabliks og Stjörnur
inn. UMSK mun því leika í 1. deild á næsti ári en SH frá Hafn:
vann keppni í 1. deild um helgina í fyrsta skipti.
KSÍ-þingið um næstu helgi
Fangbragðamenn á mót ytra
íslenska landsliðið í fangbrögðum
keppir um næstu helgi á keltneska
meistaramótinu sem fram fer í borg-
inni Brest sem er í Bretagne-héraði
í Frakklandi.
Liðið skipa Pétur Yngvason, Orri
Bjömsson, Ingibergur Sigurðsson,
Jón Birgir Valsson, Amgeir Friðriks-
son, Karl Erlingsson og Garðar Þor-
valdsson og keppir einn í hverjum
þyngdarflokki. Keppt er í þremur
greinum, ouren, sem eru fangbrögð
Bretóna, axlartökum, að hætti enskra
og skoskra, og íslenskri glímu. Hver
einstaklingur keppir í öllum greinun-
um í sínum þyngdarflokki.
ísland hefur keppt í fimm skipti á
þessu móti og hafnaði í öðru sæti í
fyrra en þá var í fyrsta skipti keppt
í glímu. Þá vann Jóhannes Svein-
björnsson sigur í öllum þremur
greinunum í sínum flokki en hann
getur ekki keppt að þessu sinni og
þar er skarð fyrir skildi.
ísland, Bretagne og England senda
fullskipuð lið á mótið en Skotar,
Hollendingar, Svíar og írar. færri
keppendur. Þessir sjö aðilar mynda
keltneska fangbragðasambandið og
er Glímusamband íslands fulltrúi
íslands í sambandinu.
-VS
Á ársþingi Knattspyrnusambands íslands, sem haldið verður á Höfn í Horna-
flrði um næstu helgi, verður lagt til að leikmenn þurfi aðeins að bíða í viku
með að verða 'löglegir eftir að þeir hafa haft félagaskipti. Það gildir lika þó
skipt sé um félag eftir að viðkomandi leikmaður hefm- spilað á árinu. í lögum
KSI segir að leikmenn þurfi að bíða í mánuð með að leika með nýju félagi eftir
aö þeir hafa gengið frá félagaskiptum þannig að um talsveröa breytingu er að
ræða ef þetta veröur samþykkt.
i sömu tillögu er lagt til að erlendur leikmaður sem konii til íslensks liðs, þurfi
aðeins að hafa verið búsettur á landinu í eina viku til að verða löglegur, í stað
tveggja raánaða áður. Þaö er Fram sera leggur fram tillöguna.
Fjölmargar tillögur ligga fyrir þinginu. Þar má nefna að iagt verður dl að kom-
ið verði á meistarakeppní kvenna, á sama hátt og í karlaflokki. Einnig að lið í 1„
2. og 3. deild geti sent lið í 4. deild, og aö dómarakostnaði í 3. deild karla og 1.
deild kvenna verði jafnað milli félaga, eins og gert er í l. og 2. deild karia - svo
eitthvað sé nefnt. -VS