Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1991, Síða 9
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991.
9
Lindi St Clair, öðru nafni fröken Svipuhögg, gaf bókasafni breska þingsins
leiðsögurit um hóruhús heimsins i gær. Við það tækifæri lét hún taka mynd
af sér í fullum skrúða fyrir utan þinghúsiö. Símamynd Reuter
Breska þingið fær bókargjöf:
Fröken Svipuhögg
upplýsir um vændi
Breskir þingmenn fengu hressi-
iega viðbót í bókasafn þingsins í gær,
hvorki meira né minna en leiðsögu-
rit um hóruhús og nákvæmar upp-
lýsingar um hvernig menn geti orðið
sér úti um vændiskonur um allan
heim.
Það var fyrrum vændishúsastýran
Lindi St Clair, öðru nafni fröken
Svipuhögg, sem útvegaði þingheimi
bókina eftir að þingmaður fór fram
á upplýsingar um vændislöggjöf í
Evrópu og kostnaðinn við að stofna
hóruhús.
Samkvæmt upplýsingum St Clair
kostar það milh 20 og 30 milljónir
króna að koma upp nútímavændis-
úsi.
Hún sagðist hafa aðgang að upplýs-
ingum um alþjóðlegt vændi sem
stjórnvöldum veittist erfitt að náig-
ast.
„Það er vegna þess að þeir sem
stunda kynlífssölu fyrirUta og neita
að eiga samvinnu við stjórnvöld og
fjölmiðla sem telja þá óæðri borgara
án sömu mannréttinda," sagði hún.
Fröken Svipuhöggi var formlega
þökkuð bókargjöfin og bókavörður-
inn sagði að framvegis yrði ritið í
defidinni um alþjóða- og varnarmál.
Einungis er ætlast til að bókin veröi
notuð í rannsóknarskyni.
Reuter
VINSÆLIR SKAUTAR
Á GÓÐU VERÐI!
Litir hvítur eða svartur
Verð 30/36, kr. 2.920 stgr.
37/41, kr. 3.888 stgr., 42/45, kr. 4.065 stgr.
Skautaskerpingar á staðnum
Skeifunni 11, sími 679890.
Póstsendum
AÐALHLUTVERK: SHIRLEY MACLAINE
(TERMS OF ENDEARMENT, BEING THERE,
POSTCARDS FROM THE EDGE).
TERI GARR (TOOTSIE, MR. MOM, AFTER HOURS)
GRÍNMYND FYRIR FÓLK Á ÖLLUM ALDRI.
SÝND KL. 5, 7, 9 OG 11.