Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1991, Side 24
32
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991.
M Húsgögn_____
^S/á/|_|ÚSGÖGN
Sígild stálhúsgögn.
• íslensk gæðaframleiðsla.
Sendum í póstkröfu.
Stálhúsgögn, Skúlagötu 61, s. 612987.
■ Bátar
Hausttilboð.
V-105 dýptarmælir, 8 litir, 10" skjár,
1 'kW sendir, hagstætt verð.
Visa og Euro raðgreiðslur.
Friðrik A. Jónsson hf., Fiskislóð 90,
sími 91-14135.
■ Bflar tíl sölu
Ford Econoline 350, árg. ’87, 4x4,
upphækkaður, 36" dekk, læstur
framan og aftan, ekinn 50 þús. mílur,
4 capt. stólar, sóllúga, CB talstöð,
útvarp/segulband, ljóskastarar o.fl.;
skoðaður, toppbíll. Verð kr. 2.490.000.
Uppl. í síma 91-814125 og 91-675346.
Karrqann Ghia, árg. ’63, til sölu, í
toppstandi. Upplýsingar í síma
91-29665 eftir kl. 19.
Smáauglýsingar
Suzuki Vitara JLXi '90 (’91), verklegasti
á landinu, breyttur. Uppl. hjá Bíla-
miðstöðinni, sími 678008.
Ford Bronco II '84, 5 gíra, V6, nýupp-
tekin vél, 33" dekk, upphækkkaður,
brettakantar, fallegur bíll. Verð 1090
þús. Staðgreitt 870 þús. Uppl. í síma
92-11120 0^92-11937/
Gullfallegur M. Benz 190 E, árg. 1988,
ekinn aðeins 43 þús. km, sjálfskiptur,
sóllúga, 4 hnakkapúðar, armpúði milli
framsæta, mjög vel með farinn, skipti
á ódýrari. Uppl. í síma 91-76061.
Til sölu MAN 16.192 F, árg. 1986. ^’ll i
mjög góðu ásigkomulagi. Mjög goðir
greiðsluskilmálar. Til sýnis og sölu
hjá Krafti hf., Vagnhöfða 3, sími
91-677102.
Ford Econoline Club Wagon 250 XL,
árg. ’91, með öllu, vél 7,3 1 dísil. Uppl.
hjá Bílasölu Reykjavíkur í síma 91-
678888.
RAUTTLufrLn RAUTT \
UOS &ZL LJOSí
. WRÁÐ J
Nauðungaruppboð
Á nauðungaruppboði, sem fram á að fara við Bílageymsluna, skemmu
v/Flugvallarveg, Keflavík, föstudaginn 6. desember 1991, kl. 16.00, hefur,
að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl., Ásbjörns Jónssonar hdl., Garðars
Briem hdl., Fjárheimtunnar hf., Sigríðar Thorlacius hdl. og fleiri lögmanna,
verið krafist sölu á eftirtöldum bifreiðum: Ö-1455 Ö-4187 0-4317 0-4668 0-5033
Ö-5085 Ö-2090 0-2276 0-2282 0-2501
0-1229 Ö-3019 0-2879 0-3233 0-3239
0-3614 0-3695 0-3796 0-4686 0-471
Ö-4775 0-4809 0-4811 0-5150 0-5492
0-6150 0-6413 0-6532 0-6974 0-7165
Ö-7802 Ö-790 0-8304 0-8585 0-9411
0-9710 Ö-9470 0-3865 0-829 0-10438
Ö-10860 0-10870 0-11040 0-11207 0-11283
0-10749 0-10407 0-10499 0-11261 A-4661
G-5695 G-5732 G-7746 G-12523 G-24031
I-975 G-23966 I-4908 L-1012 L-1061
L-1957 R-11496 R-11990 R-21938 R-26189
R-36459 R-39976 R-46518 R-54539 R-55374
R-58810 R-64478 R-65866 R-70902 R-71795
R-51240 R-27539 R-26993 R-68358 R-58615
Y-2859 Y-7323 Y-11811 N-749 Þ-3814
U-4456 U-5203 EN-310 FK-882 FL-292
GR-962 HH-532 KD-344 KR-798 LU-901
MA-074 MA-181 ÞA-159 GR-962 GI-232
IB-219 HE-800 IY-347 FY-034 KD-391
FN-845 FR-156 JT-465 MB-600 BI-045
KE-805 TB-968 RG-999 X-3737 X-3810
Ennfremur verður seldur isskápur, litsjónvarp og sandharpa, „Vibrascreen".
Að þessu loknu verður uppboðsrétturinn fluttur að Hafnargötu 91, Keflavík (Skipaafgreiðslu Suður-
nesja), og þar verða seld húsgögn I eigu þrotabús DUUS hf. að kröfu skiptaréttar Keflavíkur.
Uppboðshaldarinn I Keflavík
Meiming
Séð yfir sýningu Guðrúnar Einarsdóttur í Nýlistasafninu.
DV-mynd BG
Flatur galdur
Ijossins
- Guörún Einarsdóttir 1 Nýlistasafninu
í síðasta pistli leitaðist undirritaður við að setja fram
kenningu um samtímalist út frá veðurfarinu. Sú kenn-
ing byggist á þeirri forsendu að listamenn samtímans
hafi tilhneigingu til að þíða, leysa upp form, og hins
vegar að frysta efni og forma það. Guðrún Einarsdótt-
ir, sem þessa dagana sýnir í Nýlistasafninu og einnig
á fullveldishátíð íslendinga í Lundúnum, hlýtur að
teljast fremur tii hinnar síðamefndu skilgreiningar. Á
sýningunni í Nýlistasafninu eru verk í sama anda og
sveif yfir vötnum á sýningu Guðrúnar í Nýhöfn á síð-
asta ári. Verkin eru annaðhvort svört eða hvít en efnis-
mikil og áferðin er e.t.v. veigamesti þáttur listar Guð-
rúnar. Hún ýfir þykkmálaðan flötinn og býr þannig
til áferð endurtekins mynsturs sem minnir t.d. á hár
eða rigningu - þ.e. ef birtan leyfir.
Flöt lýsing
Það er ekki að ástæðulausu sem birtimnar er hér
getið því myndlist Guðrúnar Einarsdóttur bókstaflega
stendur og fellur með lýsingunni. Og ekki að ófyrir-
synju voru verk hennar fengin sem áhersluauki leik-
myndar í sjónvarpsleikriti á síðasta ári - í beinu fram-
haldi af sýningunni í Nýhöfn. Verk Guðrúnar búa yfir
eiginléikum sem leysa úr læðingi galdur ljósbrota og
eru því freistandi verkefni fyrir þá sem unna leik-
rænni lýsingu. Nálgun Guðrúnar við höggmyndalist-
ina er því auðsæ og gaman væri að sjá hana spreyta
sig á skúlptúr eða leikmynd. Af framansögðu ætti aö
vera ljóst að verk Guðrúnar þarfnast þess að þrívídd-
areiginleikar þeirra séu dregnir skýrt fram. Því er því
miður ekki til að dreifa í Nýlistasafninu þar sem flöt
flúrlýsingin leggst yfir verkin eins og ördeyða. Nú
veit ég ekki hvort hér er viö listamanninn að sakast
en hafa má í huga að sýningarsalir eiga að standaSt
kröfur þeirra verka sem þeir hýsa hverju sinni. Ekki
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
hef ég trú á því að miklu þurfi að kosta til svo að ofan-
greint ástand geti skánað til muna.
Ljóslifandi greiðsla
Á sýningu Guðrúnar eru ellefu verk en eitt þeirra
byggist reyndar upp á níu hvítum og átta svörtum
smámyndum. Áferð þessara smámynda er gróf, en
misjöfn og ósamstæð. Ekki sá ég tilganginn með því
að telja þær allar saman sem eitt verk. Sem áður seg-
ir háir slæm lýsing sýningunni en fjögur verk þóttu
mér komast nálægt því að vera yfir þann ágalla hafm;
málverk númer tvö, sem hefur eins konar dropaáferð,
og málverk íjögur, átta og níu, en þau eru „greidd“
og er ljósmynd framan á sýningarskrá gott dæmi um
hvað má laða fram í þessum verkum meö góðri lýs-
ingu. Enn komum við að þessum ljóspunkti en ef jafn-
vel hefði verið staðið að verki við lýsingu sýningarinn-
ar og á ljósmynd í skrá, þá væri hér um langtum
áhrifameiri sýningu að ræða.
Sýning Guðrúnar í Nýlistasafninu lýkur sunnudag-
inn 1. des.
Góð spilamennska
Tónleikar voru í Kristskirkju í gærkvöldi. Þar lék
Chalumeaux tríóið en þaö skipa þrír klarínettuleikar-
ar, þeir Óskar Ingólfsson, Kjartan Óskarsson og Sig-
urður I. Snorrason. Þá komu fram söngvararnir Sig-
rún Hjálmtýsdóttir sópran, Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir messósópran og John Speight baríton. Á efnis-
skránni voru eingöngu verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. y-
Þau verk Mozarts, sem þarna voru flutt, eru ekki
af því taginu sem oftast heyrast. Öll eru þau samjn
eða útsett fyrir 3 bassetthgrn, að frátöldum Sex nætur-
ljóðum sem eru fyrir sópran, messósópran og bassa,
auk klarínettna og bassetthorns. Bassetthom er eitt
af sérkennilegri meðhmum klarínettufjölskyldunnar.
Tónsvið þess er miUi klarínetts í Bb og alto-kiarínetts.
Það hefur sömu borvídd og Bb klarínett og er hægt
að nota sama munnstykki. Meginástæða þess að hljóð-
færi þetta helst í notkun er tónhstin sem Mozart samdi
fyrir það og tónleikagestir fengu að heyra hluta af í
gærkvöldi en hún er gullfalleg eins og við mátti bú-
ast. Það verk sem best kom út var Divertimento nr. 3
K.V. 439 b sem er frábærlega gott verk.
Hljóðfæraleikur á þessum tónleikum var mun betri
en menn eiga aö venjast hér í borg. Það tók þá félag-
ana nokkum tíma í upphafi að finna samstihinguna
en eftir að hún kom varö htið fundið að leik þeirra.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Það sem skemmtilegast var að heyra var hrynræn
snerpa og dýnamík sem allir hljóðfæraleikaramir
höfðu til að bera og náði jafnt til samleiksins sem þess
sem einstakir menn gerðu. Þessir eiginieikar eru því
miður of sjaldgæfir á tónleikum hérlendis og hefur
leitt ýmsa til að halda því fram að íslendingar sem
þjóð hafi lakari hljóðfallsgáfu en annað fólk. Sem bet-
ur fer afsannaðist þetta í gærkvöldi og best í Diverti-
mentóinu ofangreinda sem tók flugið þegar í upphafi
og hélst svo til enda.
Frammistaða söngvaranna var einnig með ágætum.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir söng tvö sálmalög mjög
fallega og samsöngurinn í næturljóðunum fyrmefndu
var ágætur. Flutningur þeirra leið þó nokkuð fyrir of
mikinn hljómburð sem er í Kristskirkju. Hljómburður-
inn var raunar of mikiil fyrir öh verkin en mest var
það þó áberandi þarna þar sem flestir flytjendur tóku
þátt.