Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1991. Utgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnartormaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJOLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HORÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglysingastjórar: PALL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjóm. skrifstofur, auglysingar. smáauglýsingar. blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111 105 RVlK. SIMI (91127022 - FAX: Auglýsingar: (91 )626684 aðrar deildir: (91)27079 GRÆN NUMER Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGOTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning. umbrot, mynda- og plotugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÓLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverö á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Færri sveitarfélög Rætt er um mikla breytingu á skiptingu landsins í sveitarfélög, sem getur veriö skammt aö bíöa. Yfirgnæf- andi meirihluti fulltrúaráös Sambands íslenzkra sveit- arfélaga samþykkti fyrir skömmu aö leggja til fækkun sveitarfélaga úr um 200 niöur í 25. Slík fækkun er fyrir löngu orðin tímabær. Núverandi skipting hefur gengið sér til húöar. Sú „byggðastefna“ yröi réttust, þar sem heimastjórn byggöarlaga yrði efld en þau jafnframt í stakk búin til aö takast á herðar stór- aukin verkefni. Ríkisstjórnin ætti að beita sér fyrir lagasetningu um fækkun sveitarfélaga í þessum mæh. Vissulega væri æskilegt, að fækkunin yröi framkvæmd aö frumkvæði sveitarstjórnarmanna sjálfra. En skiptingin hefur fætt af sér fjölmarga „smákónga", höfðingjana í litlu hrepp- unum. Kóngunum er mörgum hverjum sárt um vegtyh- urnar, sem þeir hafa, meöan um svo litlar einingar ræðir. Rætt hefur veriö um að beita „gulrótaraðferð- inni“ til aö ná fram sameiningu Sveitarfélaga, það er aö ríkisstjórnin gefi sveitarstjórnum kost á ýmsum fríö- indum og fyrirgreiðslu, ef sameining verði samþykkt. En fækkun sveitarfélaga er oröin svo brýn, að ekki væri unnt aö bíða þess, aö slík gulrótaraðferð virkaði. Framsýnir menn hafa um langt árabil mælt með sam- einingu sveitarfélaga. í sveitarstjórnarlögum frá 1986 er síöan lögtekið, að ekki verði færri en 50 íbúar í hreppi. En undanþágurnar urðu svo margar, að jafnvel þetta hafði fremur lítil áhrif. Þó hefur dálítið miðað síðustu ár. Félagsmálaráðherra skipaði nefnd í málið í janúar síðastliðnum, meðal annars með fulltrúum ahra þing- flokka. Það markmið var sett, að hvert sveitarfélag yrði eitt þjónustusvæði, sem gæti myndað sterka félagslega heild. Nefndin skilaði áliti nýlega. Aðrir möguleikar eru ræddir, en áherzlan er á fækkun sveitarfélaga í 25, það er sameining í heil byggðarlög. Til samanburðar skal nefna, að gömlu sýslurnar voru um 20. Samband sveitar- félaga hefur nú mælt með þessari leið. Eins og kunnugt er af fréttum standa mörg sveitarfé- lög tæpt fjárhagslega. Litlu sveitaríélögunum er auðvit- að um megn að fullnægja nútíma kröfum íbúanna um þjónustu. Fjárhagsgrundvöllurinn þarf að styrkjast, og það yröi gert með sameiningu og stækkun. Þar skiptir mestu, að sveitarstjórn sameinist kringum ákveðinn byggðakjama. Jafnframt því sem það yrði, ætti að fela sveitarstjómum frekari verkefni, flytja verkefni frá ríki til sveitarfélaga. Kostir sameiningar em yfirgnæfandi. Ríkisstjómin má alls ekki láta úrelt hreppasjónarmið hindra, að nú verði stigið nauðsynlegt skref, enda eru vonir um sam- stöðu flokkanna um slíkt. í síðustu kosningum beittu Heimastjómarsamtökin sér einkum fyrir eflingu heima- stjómar byggðanna. Sá flokkur fékk að vísu sáralítið fylgi, en það breytir ekki því, að menn í öhum flokkum viðurkenna, að hagstætt yrði að draga mikið úr hinu póhtíska miðstjómarvaldi í Reykjavík. Sú ríkisstjóm, sem að einhverju leyti gefur í skyn, að hún æth að fram- kvæma „frjálshyggju“ með skerðingu miðstjómarvalds, ætti að skilja kosti þessarar gmndvaUarbreytingar. Við verðum að hverfa frá kotungshættinum. Haukur Helgason „... margt sem bendir til aö miklar þrautir geti verið framundan hjá samningamönnum ...“ segir m.a. í grein- inni um EES-samninginn. H vað verður um EES? Nú er hálfur annar mánuöur lið- inn frá því samningur um Evrópskt efnahagssvæði var talinn í höfn af hálfu 19 ríkisstjórna. Aðeins var eftir að samræma og þýða texta og fylla í eyður sem ekki voru sagðar merkilegri en svo að embættis- menn myndu vinna verkið. Samn- ingstextann áttu aðalsamninga- menn að signera viku af nóvember og ráðherrar að hittast á hátíöar- fundi og skiptast á skjölum örugg- lega fyrir jól. Islenski utanríkisráðherrann fór í enn eina yfirreið innanlands á kostnað hins opinbera til að boða mönnum fagnaðarerindið og halda upp á sigurinn mikla. Skjótt skipast veður En það er eins og einhver ólukka fylgi þessu EES-máli. Sannfæring- arkrafturinn í Jóni Hannibalssyni hefur enn ekkí dugað til að fleyta því yfir skerin og upp í flæðarmál, hvað þá að koma því í örugga höfn. Hér innanlands er nú komiö á daginn að trompið mikla, „allt fyrir ekkert á sjávarútvegssviði", er veikara en af var látið. Þeim fjölgar dag frá degi sem væna ráöherrann um yfirhylmingar og ósannsögli. Það er ekki aðeins að langhali hafi breyst í karfa á fáum vikum. Loðn- an, sem átti aö vera skiptimyntin, er bara pappírsfiskur sem EB hefur ekki veitt árum saman og fallið hefur í hlut okkar endurgjalds- laust. Þannig blasir það viö að samningamenn ráðherrans hafa verið aö skipta á tollfríðindum og fiskiveiðiréttindum fnnan íslenskr- ar lögsögu. Svardagamir um að ekki komi til greina að tengja sam- an markaðsaðgang og aögang að auðlind reyndust þannig helber blekking. Erlendis hrannast líka upp óveð- ursský kringum samninginn. Evr- ópudómstóllinn gaf til kynna rétt áöur en samningstextinn átti að fá skemmri skím 18. nóvember að hann hefði ekki sagt sitt síðasta orð. Framkvæmdastjóm EB skrif- aði dómstólnum 13. ágúst sl. og bað um álit hans á réttarlegri stöðu samningsins. Nú er ljóst að athuga- semdir EB-dómstólsins gætu orðið það alvarlegar að þær kollvörpuðu þessu hugverki og hefia yrði samn- ingaviðræður á ný. Það mun vænt- anlega skýrast um miðjan desemb- er, þegar afstaða dómstólsins ligg- ur fyrir. Fyrirvarar Evrópudómstóls- ins í samningsdrögum um Evrópskt efnahagssvæði er gert ráö fyrir sér- stökum yfirþjóðlegum EES-dóm- stól „sem starfar í tengslum við dómstól Evrópubandalagsins... KjaUarinn Hjörleifur Guttormsson alþingismaður Fullskipaður skal dómstóllinn skipaöur fimm dómurum úr dóm- stól Evrópubandalagsins og þrem- ur dómurum sem tilnefndir eru af EFTA-ríkjunum og koma til skiptis frá þeim.“ (95. gr.) Einnig er gert ráð fyrir undirdómstól á fyrsta dómsstigi í tengslum við EES- dómstólinn. í 104. grein samnings- draganna er að finna eitt viðkvæm- asta ákvæðið að mati EB-dómstóls- in þar sem segir: „Til aö tryggja að samningur þessi verði túlkaður á eins sam- ræmdan hátt og kostur er, með fullri virðingu fyrir sjálfstæði dóm- stólanna, skulu EES-dómstóllinn, á fyrsta dómsstigi, dómstóll Evrópu- bandalagsins, dómstóll EB á fyrsta dómsstigi og dómstólar EFTA-ríkj- anna taka fullt tillit til þeirra meg- inreglna sem mælt er fyrir um í ákvörðunum annarra dómstóla þegar beita og túlka á ákvæði samningsins hvert fyrir sig...“ Með myndun EES-dómstóls telur EB-dómstóllinn vegið aö sam- ræmdum réttargrundvelli Evrópu- bandalagsins og óhæði EB-dómar- anna sem ætlað verði með þessu að þjóna tveimur herrum. I orð- sendingu sinni til framkvæmda- stjórnar EB vísar dómstóllinn til heimildar sem veitt er dómstólum EFTA-ríkjanna til að leita svokall- aðra forúrskurða hjá EB-dómstóln- um, án þess kveðið sé á um að nið- urstöður yrðu bindandi. Þar er þeirri spurningu einnig varpað til framkvæmdastjórnarinnar hvort rétt sé að nota samning af hálfu Evrópubandalagsins við þriðja að- ila, í þessu tilviki EFTA-ríkin, til að hrófla við grundvelli bandalags- ins og dómskerfi þess. Tveir kostir og hvorugur góður! Talsmenn ríkisstjórna í EFTA- löndunum vilja enn ekki gera því skóna að EES-samningurinn sé í hættu og vænta signeripga fyrir jól. Það er hins vegar margt sem bendir til að miklar þrautir geti verið framundan hjá samninga- mönnum. Árið 1977 kvað EB- dómstóllinn upp úrskurð varðandi samning sem framkvæmdastjórnin þá hafði gert við Sviss um sjóð til að draga úr fjárfestingum í skipa- siglingum á ám og vötnum. Sviss- lendingar áttu að eiga einn fulltrúa í stjóm sjóðsins og það taldi dóm- stóllinn ótækt fordæmi og í því fælist hætta fyrir einingu Evrópu'- bandalagsins! Sú hætta er sannar- lega margföld htið til EES-samn- ingsins. Verði niðurstaða EB-dómstólsins á þá leið að EES-samningurinn standist ekki mælikvarða og markmið Rómarsáttmálans kemur einkum tvennt til greina: Að breyta Rómarsáttmálanum til samræmis við EES-samningsdrögin eða taka á ný upp samninga við EFTA-ríkin um aö breyta EES-drögunum. Hvorugur kosturinn er góður. Hinn fyrri kallar á samhljóða sam- þykki ríkisstjóma allra EB-landa; sá síðari heföi í för með sér enn frekari niðurlægingu fyrir ríkis- stjómir EFTA-landanna. „Lagfæringar" á samningsdrög- um um EES auka enn líkumar á að breyta þurfi stjómarskrám ýmissa EFTA-ríkja og því gætu fylgt þingkosningar, m.a. á íslandi. Það er því ekki að undra þótt ókyrröar gæti á ýmsum bæjum nú í skammdeginu. Að vonum fer hrollur um marga þá sem grunar að gleymst hafi að setja neglu í EES-skútuna þegar henni var ýtt á flot í sigurvímu aðfaranótt 22. okt- óber 1991. Hjörleifur Guttormsson „Nú er ljóst aö athugasemdir EB- dómstólsins gætu orðiö þaö alvarlegar að þær kollvörpuðu þessu hugverki og hefla yrði samningaviðræður á ný.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.