Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Page 15
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1991. 15 Fiskveiðar og vinnsla sjávararfurða: Meingallað kvótakerfi Hvert stefnir með óbreytt kvóta- kerfi? Eiga heilu byggðarlögin eftir að leggjast í eyði? Það getur ekki gengiö lengur að aflakvóti fylgi fiskiskipi þegar það er selt burt úr byggðarlagi. Þau byggðarlög, sem byggja afkomu sína á fiskiðnaði, þola ekki slíka blóðtöku. Lögleg en siðlaus í byggðarlögunum eru fiskverk- unarhús með vélum og öðrum bún- aði sem keyptur var til þess að hægt væri að gera sem mest verð- mæti úr aflanum. íbúarnir, sem hafa lagt sitt af mörkum til þess að skipið fengi sem mestan afla- kvóta, eru skyldir eftir atvinnu- lausir með verðlausar húseignir. Aflakvóti, sem skip hafa fengið úthlutað tii afnota án gjaldtöku hjá ríkinu, er nú dýr verslunarvara á milli útvegsmanna. Verð á fiski- skipum hefur hækkað langt fram yfir tryggingarmat þeirra. í dag eru skip verðlögð eftir veiði- heimildum, sem þau hafa afnot af en eru sameign þjóðarinnar. Ef heldur sem horfir þá lendir allur aflakvótinn hjá fáum fyrirtækjum, ef ekkert verður gert til að stöðva þessa óheillaþróun. Eins og staðan er í dag, er betra KjaUaiinn Einar Kristinsson framleiðslustjóri skatta. Aflakvótasala er lögleg en siðlaus. Þarna verður aö breyta leikreglum strax. Þegar fiskiskip er selt burt úr byggðarlagi ætti helmingur aflakvótans að verða eftir til ráðstöfunar í byggðarlag- inu. Sala á aflakvóta væri bönnuð en skipti á tegundum leyfileg. Landssamband íslenskra útvegs- manna gæti annast þessi mál að öllu leyti. Ótæmdir möguleikar Stjórnmálamenn hafa í þessum málaflokki ekki nægilega gætt hagsmuna umbjóðenda sinna. Þar sem Alþingi hefur ákveöið að fisk- stofnamir umhverfis landið séu sameign þjóðarinnar ber að með- höndla þá sem shka. Þegar menn eru farnir að selja öðrum það sem „Undanfarin tvö ár hefur fiskverð hér heima hækkað það mikið að 1 flestum tilfellum er það sambærilegt þegar all- ur kostnaður og rýmun hefur verið dregin frá söluverði.“ fyrir fyrirtæki í fiskiðnaði að kaupa aflakvóta og sleppa við að greiða þeir eiga ekki en hafa afnot af þá eru reglugerðir ekki í takt við raun- „Fiskvinnslan á að minnsta kosti kröfu til að fá að bjóða í þann fisk sem flytja á út óunninn...,“ segir m.a. í grein Einars. veruleikann. Alltaf heyrast þær raddir að hag- kvæmast sé að flytja úr landi sem mest af óunnum fiski á markaðina í Englandi og Þýskalandi, þar sé besta verðið. Rétt er það, að fyrir takmarkað magn er hægt að fá hærra verð þar en þó ekki alltaf. Undanfarin tvö ár hefur fiskverð hér heima hækkaö það mikið að í flestum tilfellum er það sambæri- legt þegar allur kostnaður og rýrn- un hafa verið dregin frá söluverði. Okkur ber skylda til að nýta allt hráefni til vinnslu hér heima. Fisk- vinnslan á að minnsta kosti kröfu til að fá að bjóða í þann fisk sem flytja á út óunninn í gámum á hina erlendu fiskmarkaði. Fiskiskip, sem stundað hafa sölur á erlendum mörkuðum, halda því áfram ef þau sjá sér hag í því. Samkeppni er af hinu góða en hinir háu tollar, sem fiskvinnslan verður að greiða af ferskum fiskflökum á Evrópu- markaði, sem er í dag 18%, útilokar okkur frá þeim. Með hinum sögu- lega samningi okkar manna við EES kemur þessi tollur til með að hverfa í ársbyrjun 1993 og opnar fiskvinnslunni ótæmda möguleika. Offjárfesting er staðreynd Hvað varðar offjárfestingu í veið- um og vinnslu þá er hún staðreynd sem hefur komið illa við marga enda hefur gjaldþrotaskriðan, sem hefur átt sér stað innan greinarinn- ar, aö meðtöldum hliðargreinum, svo sem skipasmíðastöðvum, lax- eldisstöðvum að ógleymdu loð- dýraævintýrinu, sem hefur kostað þjóðina of fjár, gert ótaldar fjöl- skyldur gjaldþrota. Að öllu óbreyttu verður ekki komist hjá því að einhver byggðar- lög leggist af sem fiskvinnslustaðir. Þrátt fyrir það eigum við bjarta tíma fram undan í okkar fiskiðn- aði, ef við berum gæfu til að nýta okkur þá möguleika sem vinnsla á okkar sjávarfangi býður upp á. Fiskveiðar og vinnsla sjávaraf- urða verður okkar stóriðja um ókomin ár. Einar Kristinsson Spéspegill er líka spegill ....kannski er það íslensku þjóðinni ekki síður hollt að sjá sig stöku sinnum í spéspegli." - Frá íslandskynningu i Bretlandi. Eftir nokkurra daga dvöl í Fær- eyjum, þar sem allir þekkja fólk á íslandi og flestir hafa annaðhvort komið til íslands eða haft fregnir af landinu hjá vinnum og ættingj- um, er úndarlegt að lesa í blöðum um að grípa þurfi til nútímalegustu auglýsingatækni til þess að koma því inn undir höfuðskelina á íbúum Stóra-Bretlands að á íslandi hafist við þjóð sem eigi sér foma og merkilega menningarhefð. Skiptir það máli? Nú má það vera að það sé óljóst í hugum sjónvarpsáhorfenda á Bretlandseyjum að fólk búi á ís- landi og er þó ekki nema tveggja stunda flug milli Limdúna og Reykjavíkur. En það er reyndar umhugsunarefni hvort það skiptir nokkra máh hvað breskur „al- menningur“ veit eða veit ekki um ísland og foma menningu þeirrar þjóðar sem þar hefur þraukað í ell- efu hundruð ár. Það er kunnara en frá þurfi að segja að breskir vísindamenn, nátt- úrufræðingar, landfræðingar, landkönnuðir og ekki síst málvís- indamenn og sérfræðingar í bók- menntum og menningarsögu hafa um langan aldur haft mikinn áhuga á öhu sem íslenskt er. Frá- bærir vísindamenn hinnar ágætu bresku þjóðar hafa sökkt sér niður í rannsóknir á öllu því sem snertir foman menningararf okkar. Enn þann dag í dag em í Bret- landi merkir fræðimenn í bók- menntum, málfræði og öðm því er lýtur að því sem merkilegast og forvitnilegast hefur verið gert á ís- landi. í hópi þeirra sem ritað hafa um ferðir sínar á íslandi em marg- KjaUarinn Haraldur Ólafsson dósent ir Bretar og em sumar bækur þeirra tvímælalaust í flokki hinna merkustu sem erlendir menn hafa skrifað um ísland. Ekkert bendir til þess að áhugi vísindamanna á Bretlandseyjum á íslandi fari þverrandi. Ungir fræði- menn þaðan vinna að rannsóknum á nútímaverkum íslenskra rithöf- unda. Um árabil hafa fjölmargir ungir tónhstarmenn breskir starf- að á íslandi og kynnst íslenskri tónlist. Hingað koma frá Bretlandi annað veifiö leikstjórar, hljóm- sveitarstjórar, hönnuðir leik- mynda, ballettstjórar og ballett- dansarar og starfa hér um lengri eða skemmri tíma. Varla áhyggjuefni Stjórnmálamenn og blaðamenn þekkja vel til íslendinga, svo er þorskastríðum fyrir að þakka. Verslunarviðskipti em mikil við Bretland, fjöldi íslendinga hefur menntast á Bretlandseyjum, sam- göngur era tíðar milli landanna. Yfirleitt verður ekki annað sagt en að ahir þeir sem máh skipta viti það um land og þjóð sem nauðsyn- legt er. Ekki sér sá er þetta ritar neitt athugavert við þann vitundariðnað sem sendiráð íslands í Lundúnum fæst við. Það fjölgar ef til vih um nokkur þúsund þeim sem átta sig á því að eylandið, sem dregur að sér lægðirnar úr vestri efst uppi á veðurkortum sjóvarpsins, er eftir allt saman byggt fólki, hvítu fólki meira að segja. Sá fjöldi menntamanna, sem þeg- ar veit fjölmargt um ísland,og ís- lenska menningu, hefur enga þörf fyrir frekari vitundarvaknignu. Það er hins vegar ekkert nema gott um það að segja að hressilegar poppgrúppur fái inni í hljómleika- höhum heimsborganna. Poppið er nú einu sinni alþjóðlegt eins og önnur tónhst og á auðveldara með að fara yfir menningarmúra en bókmenntir, fornar og nýjar. Það er varla áhyggjuefni þótt ein- hveijir fái þá hugmynd að hér búi sérkennilegir vilhmenn. Þeir sem raunverulega þekkja til landsins vita betur. Þýðingarmeiri mynd Á því tímaskeiði ævi þess sem hér situr við tölvuskjá er hann var leikritahöfundur var smáverk hans um ínúk sýnt beggja vegna Atlantshafsins. Þá risu nokkrir sannir íslendingar upp í þeim af- kima þjóðarsálarinnar sem heitir Velvakandi Morgunblaðsins og bentu á þá svívirðu að auglýsa fyr- ir ahri veröld að hér byggju eski- móar. Að vísu kitlaði það hégómagirnd- ina að sjá því haldið fram að þetta verk væri svo magnað að það breytti hugmyndum mannkyns um íslendinga. En sem betur fer var verkið hvorki svo áhrifamikið aö það hefði minnstu áhrif á þekkingu jarðarbarna á íslendingum né fór það svo víða að þjóð vorri stafaði hætta af. Margt leikhúsfólk sá hins vegar í því margvísleg sammann- leg örlög og tilvísun til stöðu smárra þjóða gagnvart yfirþyrm- andi menningaráhrifum stórþjóða. Smáþjóö, sem vill „komast á kort- ið“, verður að gera upp við sig á hvaða kort hún vill komast vegna þess að mismunandi hópar skoða mismunandi kort. Það skiptir engu til né frá þótt einhverjir telji íslend- inga á sama stigi og „villimenn" í Afríku. Þeir sem telja Afríku byggða vilhmönnum koma okkur ekkert við. Það skiptir ekki öhu hvað aðrar þjóðir hugsa um okkur heldur hvemig við sjálfir hugsum um okk- ur sem þjóð og siðmenntað fólk. Hvað vinnum við okkur sjálfum til þarfa, hvað leggjum við af mörkum til að gera veröld okkar örhtið betri, örlítið skemmtilegri, örlítið manneskjulegri? Sú mynd er þýðingarmeiri og af- drifaríkari fyrir framtíð okkar og menningu en bamalegar uppá- komur og broslegt skopskyn í er- lendum sjóvnarpsstöðvum. Það er hveijum manni hoht að gera grín að sjálfum sér við og við - og kannski er það íslensku þjóð- inni ekki síður hoht að sjá sig stöku sinnum í spéspegli. Haraldur Ólafsson „Smáþjóð, sem vill „komast á kortið“, verður að gera upp við sig á hvaða kort hún vlLL komast vegna þess að mismunandi hópar skoða mismunandi kort.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.